DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 924.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS Baby 21-35
DROPS Design: Mynstur nr BM-035-by
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------

Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 – 3/4) ára
Lengd fótar: 10-11-12 (14-16) cm

Efni:
DROPS BABY MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
50-50-50 (50-50) gr litur nr 22, ljós grár

DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5 – eða þá stærð sem þarf til að 26 lykkjur og 34 umferðir með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 924.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HÆLÚRTAKA:
Prjónað er fram og til baka í sléttprjóni.
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið þar til 1ykkja er eftir, snúið við.
UMFERÐ 2 (= ranga): Lyftið fyrstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, herðið á þræði og prjónið þar til 1 lykkja er eftir, snúið.
UMFERÐ 3 (= rétta): Lyftið fyrstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, herðið á þræði og prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir, snúið.
UMFERÐ 4 (= ranga): Lyftið fyrstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, herðið á þræði og prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir, snúið.
Haldið svona áfram með úrtöku þar til 8-8-10 (10-12) lykkjur eru eftir í miðri umferð. Setjið 1 prjónamerki.
Haldið áfram fram og til baka, en nú er prjónuð 1 lykkja fleiri í hverri umferð yfir hæl. Til þess að koma í veg fyrir göt í skiptingunum er þráðurinn tekinn upp á undan lykkju sem prjónuð er upp og þráðurinn settur snúinn á prjóninn. Prjónið þráðinn saman með lykkju. Prjónið svona þar til prjónað hefur verið yfir allar lykkjur á hæl.

ÚRTAKA:
Fækkið lykkjum á undan 3 lykkjum á undan prjónamerki þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt.
Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður að tá.

SOKKUR:
Fitjið upp 40-44-48 (52-56) lykkjur á sokkaprjóna nr 2,5 með DROPS Baby Merino.
Prjónið í stroffprjón í hring = 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið þar til stykkið mælist 7-8-9 (10-11) cm. Setjið síðustu lykkju sem var prjónuð á sama prjón og fyrstu 19-19-23 (23-27) lykkjur í umferð = 20-20-24 (24-28) lykkjur á prjóni fyrir hæl. Hinar 20-24-24 (28-28) lykkjurnar (= ofan á fæti) eru settar á þráð – stroffprjón ofan á fæti byrjar og endar núna með 1 lykkju brugðið. Prjónið nú HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan! Eftir hælúrtöku eru lykkjjur af þræði settar til baka á prjóninn og haldið er áfram að prjóna hringinn yfir allar lykkjur – ATH: Stroffprjón er prjónað yfir 20-24-24 (28-28) lykkjur ofan á fæti og sléttprjón yfir 20-20-24 (24-28) lykkjur undir fæti.
Þegar sokkurinn mælist 7½-8½-9 (11-12) cm frá prjónamerki á hæl (nú er eftir ca 2½-2½-3 (3-4) cm að loka máli) skiptið lykkjum þannig að það verða 20-22-24 (26-28) lykkjur bæði ofan á fæti og undir fæti. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið. Prjónið sléttprjón hringinn yfir allar lykkjur – JAFNFRAMT er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerkin - LESIÐ ÚRTAKA: Fækkið lykkjum í annarri hverri umferð alls 5-5-6 (6-7) sinnum = 20-24-24 (28-28) lykkjur eftir á prjóni. Klippið frá þannig að það sé nægilega langur þráður til að sauma með.
Leggið stykkið flatt og saumið 10-12-12 (14-14) lykkjur ofan á fæti við 10-12-12 (14-14) lykkjur undir fæti með lykkjuspori. Sokkurinn mælist ca 10-11-12 (14-16) cm.

Prjónið annan sokk á sama hátt.
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Baby Booties

Sarah, Austria

Baby Booties

Roksana, Poland

Baby Booties

Roksana, Poland

Baby Booties

Maja, Poland

Baby Booties

Rebekka, Norway

Gestrickte Babysocken für Junior

Gimpel & Mars, Germany

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 21-35

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (63)

country flag Jennifer wrote:

Good basic pattern

21.03.2024 - 05:31

country flag Tea wrote:

Hej! Vad kallas hälen som görs här.? Även om jag tittat på mönster för vuxna får jag inte fram samma stickteknik på hälen?

23.10.2023 - 14:49

DROPS Design answered:

Hej Tea, jo den her hælindtagning bruger vi ret ofte. Vi har lavet en video som viser nøjagtig hvordan vi gør. Du finder videoen nederst i opskriften :)

24.10.2023 - 11:07

country flag Tea wrote:

Hej! Vart kan jag hitta ett mönster för hälavmaskning för storlek 36/37 39/40. 41/42... antar att det inte ska stickas tills 8-10 maskor kvar på häl för vuxen också?

23.10.2023 - 14:14

DROPS Design answered:

Hej Tea. Här hittar du mönster på sockar i damstorlekar. Mvh DROPS Design

23.10.2023 - 14:36

country flag Barbara DelPonte wrote:

I have incorporated wrap and turn on gusset but there remains a hole between the add back stitches and the beginning of the new round starting with a continuing of stockinette stitch over 20 stitches and knit 2 purl 2 over 24 stitches. how do i connect these without creating a hole in the sock?

30.08.2023 - 03:02

country flag Lise Hebert wrote:

Je comprends encore moins, vous dites répéter les rangs 1 a 4, En laissant 1 maille,,,,, alors que les rangs 3 et 4 c’est 2 mailles

27.03.2023 - 15:27

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Hebert, à la fin du 1er et du 2ème rang, vous tricotez jusqu'à ce qu'il reste 1 m à la fin du rang et vous tournez, à la fin du 3ème rang, tricotez 1 maille en moins = il reste 2 mailles non tricotées, tournez, et répétez sur l'envers = il reste 2 m non tricotées. Au 5ème rang, répétez: il reste 3 m non tricotées, au 6ème rang, répétez aussi: il reste 3 m non tricotées de l'autre côté et ainsi de suite jusqu'à ce que vous ayez tricoté 10 mailles pour le talon (les autres sont en attente de chaque côté). Regardez bien la vidéo, ce sera plus facile à comprendre. Bon tricot!

27.03.2023 - 15:45

country flag Lise Hebert wrote:

Petite question Quand vous dites continuez les rangs raccourcis jusqu’à ce qu’ils restent 10 mailles Est ce que cela voudrais dire , répéter les 4 rangs diminutions de talon,,, je comprends pas trop là

27.03.2023 - 14:26

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Hebert, avez-vous regardé la vidéo que j'ai indiqué dans la réponse précédente? Elle montre précisément comment tricoter ce type de talon: vous tricotez 1 maille en moins à la fin de chaque rang (vous laisser 1 m en attente à la fin de chaque rang) de chaque côté jusqu'à ce qu'il reste 10 mailles sur l'aiguille (les autres mailles sont en attente de chaque côté), puis vous tricotez 1 maille en plus à la fin de chaque rang jusqu'à ce que toutes les mailles du talon aient été à nouveau tricotées. Bon tricot!

27.03.2023 - 15:35

country flag Lise Hebert wrote:

Quand vous indiquez, continuez les rangs raccourcis, je comprends pas trop Est ce que cela voudrait dire refaire les 4 rangs de diminution

27.03.2023 - 01:37

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Hebert, vous continuez à tricoter comme aux rangs 1 à 4, mais en laissant toujours 1 maille en plus non tricotée à la fin du rang (vous tricotez 1 m en moins tous les rangs, en fin de rang), puis vous tricoterez 1 m en plus tous les rangs en fin de rang. Cette vidéo montre comment tricoter ces rangs raccourcis. Bon tricot!

27.03.2023 - 09:42

country flag Lise Hebert wrote:

Puis-je tricoter ce modèle de bas avec des broches circulaires en utilisant le magic loop

26.03.2023 - 23:53

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Hebert, tout à fait. Bon tricot!

27.03.2023 - 09:40

country flag Véronique WUILLEMIN wrote:

Bonjour, Je tente de réaliser les chaussettes ci-dessus. Tous mes nombreux esais sont vains et cela en suivant les tutos. Auriez-vous ce même modèle à tricoter avec 2 aiguille plates ? (Je tricote un modèle pour adulte à 2 auguilles) Une 1ère pour les babig ! ;) Merci pour votre réponse et vos futures explications ! Cordiallement, Je m'en retourne à un ultime essai !

05.11.2022 - 17:20

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Wuillemin, la plupart de nos chaussettes bébé sont tricotées en rond, mais certaines se tricotent en rangs (on les attribue souvent de "chaussons" mais en fonction des modèles et de l'effet souhaité, vous pourrez peut-être les utiliser en chaussettes. Sinon, vous avez ce modèle qui a sa propre vidéo. Bon tricot!

07.11.2022 - 08:37

country flag Bettina wrote:

Ich verstehe das Video zum Zusammennähen an der Spitze nicht. An welcher Stelle muss man in das Video einsteigen?

24.04.2022 - 12:19

DROPS Design answered:

Liebe Bettina, dieses Video für die Spitze folgen Sie bis Sie alle Abnahmen gestrickt haben, bei diesem Modell endet sich die Socken nicht genauso gleich, sonder mit mehr Maschen auf der Nadel, diese Maschen nähen Sie zusammen wie in diesem Video. Viel Spaß beim stricken!

25.04.2022 - 07:48