Yolanda skrifaði:
Me encanta tu trabajo
30.09.2019 - 22:01
Jessica Calisher skrifaði:
Super cute pattern!! Can I sell the snowmen I make? Not planning to sell on-line. Thanks!
10.09.2019 - 03:11DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Calisher, as long as you follow the copyright rules - see at the bottom of every pattern page - you can sell your crocheted pieces. Happy crocheting!
10.09.2019 - 09:23
Doris skrifaði:
Guten Tag, ich habe den Schneemann nachgearbeitet und er ist wirklich süß geworden. Danke für die schöne Anleitung.
23.10.2018 - 21:26
Olga skrifaði:
Me gustaría tejer varios, me podríais decir cuantos muñecos salen con 50gr. de lana blanca?
17.11.2017 - 14:25DROPS Design svaraði:
Hola Olga. Con un ovillo, si se mantiene la tensión del tejido, se pueden realizar aproximadamente 3 muñecos de nieve.
19.11.2017 - 20:04
Nicole skrifaði:
Bei dem Hut: wird nur Runde 4 im hinteren Bogen gehäkelt? oder die weiteren 6 Runden auch im hinteren? Danke :-) (echt schnieker Schneemann) Danke :-)
19.11.2013 - 06:32DROPS Design svaraði:
Liebe Nicole, es wird nur in der 4. Rd im hinteren Maschenbogen gehäkelt.
19.11.2013 - 09:28Petra Gertenbach skrifaði:
In der Runde 5 ist ein Fehler aufgetaucht: 5. RUNDE: * 1 fM in jede der 2 ersten fM, 2 fM in die nächste fM *, von *-* wiederholen = 40 fM. Es muss richtig heißen: 5. RUNDE: * 1 fM in jede der 3 ersten fM, 2 fM in die nächste fM *, von *-* wiederholen = 40 fM.
14.11.2013 - 08:41DROPS Design svaraði:
Liebe Petra, das stimmt, danke für den Hinweis. Wir haben es sofort korrigiert.
14.11.2013 - 09:18
Lanthi skrifaði:
Bei Schneeball 1 ist ein Fehler in Runde 5. Es müssen *1 fM in jede der 3 ersten fM, dann 2 fM in die nächste fM*, von *-* wiederholen = 40 fM.
24.07.2012 - 03:45
DROPS Design NL skrifaði:
Je hoeft niet de draad te breken. Laat hem meelopen met de eerste l/v van de toer.
09.01.2012 - 11:48
Mirjam skrifaði:
Goedendag. Mijn vraag is: hoe maak ik de sjaal. moet ik bij wisseling van kleur steeds de draad afbreken of is er een andere manier om van kleur te wisselen? Graag hoor ik van u. Met vriendelijke groeten, Mirjam
06.01.2012 - 21:28
Frosty The Snowman#dropsfrostythesnowman |
|
![]() |
![]() |
Heklaður sjókall úr DROPS Alpaca. Þema: Jól
DROPS Extra 0-801 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Fyrstu fastalykkju í hverri umferð er skipt út fyrir 1 loftlykkju og hver umferð endar með 1 keðjulykkju í loftlykkju frá byrjun umferðar. Snúið er við í hverri umferð með 1 loftlykkju. ÚTAUKNING: Aukið er út um 1 fastalykkju í hvorri hlið með því að hekla 2 fastalykkjur í næst ystu lykkju í hvorri hlið. 2 FASTALYKKJUR HEKLAÐAR SAMAN: Fækkað er um 1 fastalykkju þannig: Stingið heklunálinni í fastalykkju og sækið þráðinn, stingið heklunálinni í næstu fastalykkju og sækið þráðinn, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjur á heklunálinni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SNJÓKALL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Byrjað er neðst á búk og heklaðar eru 2 eða 3 snjókúlur ofan á hverja aðra í mismunandi stærðum. Síðan er hatturinn heklaður og hálsklúturinn. Allt er heklað með 1 þræði með heklunál 2,5. Hægt er að hekla snjókallinn með 2 eða 3 snjókúlum ofan á hverja aðra. 1. SNJÓKÚLA: Heklið 4 loftlykkjur með litnum natur og formið í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. UMFERÐ 1: 8 fastalykkjur um loftlykkjuhringinn – lesið HEKLLEIÐBEININGAR! UMFERÐ 2: 2 fastalykkjur í hverja fastalykkju = 16 fastalykkjur. UMFERÐ 3: * 1 fastalykkja í fyrstu fastalykkju, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* = 24 fastalykkjur. UMFERÐ 4: * 1 fastalykkja í hvora af fyrstu 2 fastalykkjur, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* = 32 fastalykkjur. UMFERÐ 5: * 1 fastalykkja í hverja af fyrstu 3 fastalykkjur, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* = 40 fastalykkjur. Síðan eru heklaðar 10 umferðir með 1 fastalykkju í hverja fastalykkju. UMFERÐ 16: * 3 fastalykkjur, heklið 2 fastalykkjur saman – sjá 2 FASTALYKKJUR HEKLAÐAR SAMAN – að ofan *, endurtakið frá *-* = 32 fastalykkjur. UMFERÐ 17: * 2 fastalykkjur, heklið 2 fastalykkjur saman *, endurtakið frá *-* = 24 fastalykkjur. UMFERÐ 18: * 1 fastalykkja, heklið 2 fastalykkjur saman *, endurtakið frá *-* = 16 fastalykkjur. UMFERÐ 19: * heklið saman allar fastalykkjur 2 og 2 = 8 fastalykkjur, ekki klippa þráðinn. Nú er fyrsta snjókúlan klár. Setjið inn smá vatt og haldið áfram að hekla næstu snjókúlu. 2. SNJÓKÚLA: UMFERÐ 20: Heklið á sama hátt og umferð 2 = 16 fastalykkjur. UMFERÐ 21: Heklið á sama hátt og umferð 3 = 24 fastalykkjur. Heklið síðan 7 umferðir með 1 fastalykkjur í hverja fastalykkju. UMFERÐ 29: Heklið á sama hátt og umferð 18 = 16 fastalykkjur. UMFERÐ 30: Heklið á sama hátt og umferð 19 = 8 fastalykkjur. Ef sjókallinn á að vera með 2 snjókúlum þá er þráðurinn klipptur frá, fyllið með vatti, þræðið þráðarendanum í kringum opið og herðið að. Ef snjókallinn á að vera með 3 snjókúlum þá er haldið áfram samkvæmt leiðbeiningum að neðan. 3. SNJÓKULA: UMFERÐ 31: Heklið á sama hátt og umferð 2 = 16 fastalykkjur. UMFERÐ 32: Heklið á sama hátt og umferð 2 = 24 fastalykkjur. Heklið áfram 5 umferðir með 1 fastalykkju í hverja fastalykkju. UMFERÐ 37: Heklið á sama hátt og umferð 18 = 16 fastalykkjur. UMFERÐ 38: Heklið á sama hátt og umferð 19 = 8 fastalykkjur. Klippið þráðinn, fyllið með vatti, þræðið þráðarendann í kringum opið og herðið að. HATTUR FYRIR SNJÓKALL MEÐ 2 SNJÓKÚLUM: Heklið 4 loftlykkjur með litnum svartur og formið í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. UMFERÐ 1: 8 fastalykkjur um loftlykkjuhringinn – lesið HEKLLEIÐBEININGAR! UMFERÐ 2: 2 fastalykkjur í hverja fastalykkju = 16 fastalykkjur. UMFERÐ 3: * 1 fastalykkja í fyrstu fastalykkju, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* = 24 fastalykkjur. UMFERÐ 4: 1 fastalykkja í hverja fastalykkju – ATH: Í þessari umferð er einungis heklað í aftari lykkjubogana þannig að það myndist smá kantur þar sem kollurinn á hatti endar. Síðan eru heklaðar 6 umferðir með 1 fastalykkju í hverja fastalykkju (nú er aftur heklað yfir báða lykkjubogana). UMFERÐ 11: Heklið 3 loftlykkju, heklið síðan 2 stuðla í hverja fastalykkju umferðina hringinn = 48 stuðlar. Klippið frá og festið þráðinn. Heklið loftlykkjuband með 30 loftlykkjum, leggið loftlykkjubandið saman tvöfalt og gerið hnút neðst og þræðið í gegnum toppinn á hatti. Setjið smá vatt í hattinn og saumið niður á toppinn á höfði. HATTUR FYRIR SNJÓKALL MEÐ 3 SNJÓKÚLUM: Heklið 4 loftlykkjur með litnum svartur og formið í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. UMFERÐ 1: 8 fastalykkjur um loftlykkjuhringinn – lesið HEKLLEIÐBEININGAR! UMFERÐ 2: 2 fastalykkjur í hverja fastalykkju = 16 fastalykkjur. UMFERÐ 3: 1 fastalykkja í hverja fastalykkju – ATH: Í þessari umferð er einungis heklað í aftari lykkjubogana þannig að það myndist smá kantur þar sem kollurinn á hatti endar. Síðan eru heklaðar 4 umferðir með 1 fastalykkju í hverja fastalykkju (nú er aftur heklað yfir báða lykkjubogana). UMFERÐ 8: Heklið 3 loftlykkju, heklið síðan 2 stuðla í hverja fastalykkju umferðina hringinn = 32 stuðlar. Klippið frá og festið þráðinn. Heklið loftlykkjuband með 30 loftlykkjum, leggið loftlykkjubandið saman tvöfalt og gerið hnút neðst og þræðið í gegnum toppinn á hatti. Setjið smá vatt í hattinn og saumið niður á toppinn á höfði. NEF: Heklið 4 loftlykkjur með litnum appelsína og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. UMFERÐ 1: 4 fastalykkjur um loftlykkjuhringinn. UMFERÐ 2-3: 1 fastalykkja í hverja fastalykkju. UMFERÐ 4: Heklið fyrstu 2 fastalykkjur saman, 1 fastalykkja í hvora af næstu 2 fastalykkjum = 3 fastalykkjur. UMFERÐ 5. Heklið fyrstu 2 fastalykkjur sama, 1 fastalykkja í næstu fastalykkju = 2 fastalykkjur. Klippið þráðinn og saumið nefið mitt á höfuðið. ANDLIT: Saumið út augu og munn með litnum svatur. HÁLSKLÚTUR: Heklið 4 loftlykkjur með litnum appelsína, snúið og heklið 1 fastalykkju í hverja af síðustu 3 loftlykkjum. Síðan eru heklaðar rendur þannig: * 2 umferðir með litnum svartur, 2 umferðir með litnum appelsína *, endurtakið frá *-* þar til hálsklúturinn mælist ca 20 cm, klippið þráðinn. Hnýtið hálsklútinn utan um hálsinn á snjókallinum. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #dropsfrostythesnowman eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 10 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-801
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.