Crifil skrifaði:
Ce modèle est très beau. Le point choisi est original et est très bien avec des manches longues. Bravo. Crifil
31.05.2011 - 20:49
Marie skrifaði:
Ce modele est bien avec ou sans manche
27.05.2011 - 19:14
Elisabeth skrifaði:
Fin
23.05.2011 - 17:57
Magalie skrifaði:
Cette veste, aussi belle avec ou sans manches, est d'une grande féminité grâce à son motif très fin et sa forme.
21.05.2011 - 11:43
Mamenko skrifaði:
Ce modèle est aussi beau avec ou sans manches.
20.05.2011 - 14:35
Cantin skrifaði:
J'adore votre présentation avec ou sans manche on se rend mieux compte
20.05.2011 - 04:31
Trude Wicklund skrifaði:
Exciting knitting
19.05.2011 - 21:21
Majestic Vest#majesticvest |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónað vesti með upprúlluðum kanti að framan og gatamynstri úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stærð S - XXXL.
DROPS 134-50 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN: Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. ÚRTAKA (á við um úrtöku á fram- og bakstykki): Fækkað er um 1 l með því að prjóna 2 l saman. ÚTAUKNING: Aukið er út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn (þ.e.a.s. prjónað er aftan í lykkjubogann í stað framan) til að koma í veg fyrir göt. MYNSTUR: Sjá M.1 (mynsturteikningin sýnir mynstur séð frá réttu). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka. BAKSTYKKI: Fitjið upp 89-96-105-114-122-134 l (meðtalin er 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjóna nr 5 með 1 þræði af hvorri tegund. Prjónið 4 umf með GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan (umf 1 = rétta). Prjónið nú 2 umf í sléttprjóni með 1 kantlykkju í hvorri hlið á stykkinu. Í næstu umf frá réttu er prjónað þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni 5-5-6-7-4-3 l í sléttprjóni, prjónið M.1 (= 7 l) alls 11-12-13-14-16-18 sinnum, 5-5-6-7-4-3 l sléttprjón, endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið áfram með 1 kantlykkju (prjónuð í garðaprjóni til loka) og sléttprjóni í hvorri hlið á stykki, M.1 yfir þær l sem eftir eru. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 10-11-8-7-12-17 cm er fækkað um 1 l – Lesið ÚRTAKA að ofan – innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið á stykkinu. Endurtakið úrtöku með 8-8-7-6-12-16 cm millibili alls 4-4-5-6-3-2 sinnum (stykkið mælist nú ca 34-35-36-37-36-33 cm) = 81-88-95-102-116-130 l (11-12-13-14-16-18 mynstureiningar af M.1 + 1 l í sléttprjóni innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið). Haldið áfram eins og áður þar til stykkið mælist 44-45-46-47-48-49 cm. Aukið nú út fyrir ermi í næstu umf frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 1 l í sléttprjóni, aukið út um 1 l – Lesið ÚTAUKNING að ofan, prjónið þar til 2 l eru eftir á prjóni, aukið út um 1 l, 1 l sléttprjón, 1 kantlykkja í garðaprjóni. ATH: Nýju l eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur. Endurtakið útaukningu í hvorri hlið í hverri umf frá réttu alls 14 sinnum í öllum stærðum = 109-116-123-130-144-158 l (= 15-16-17-18-20-22 mynstureiningar af M.1 + 1 l í sléttprjóni innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið). Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Fellið nú af fyrir hálsmáli þannig: Í næstu umf frá röngu eru felldar af miðju 17-24-17-24-24-24 l og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið af 2 l í næstu umf frá hálsi – Jafnframt er fellt af fyrir öxl þannig: Fellið af 14-14-17-17-19-21 l í byrjun á næstu 2 umf frá öxl = 16-16-17-17-20-23 l eftir á öxl. Nú mælist stykkið ca 68-70-72-74-76-78 cm, felli laust af allar l. HÆGRA FRAMSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka. Fitjið upp 52-52-60-63-67-73 l (meðtalin er 1 kantlykkja í hlið) á hringprjóna nr 5 með 1 þræði af hvorri tegund. Prjónið 4 umf í garðaprjóni (umf 1 = rétta). Næsta umf frá réttu er prjónuð þannig: Prjónið 18-18-18-20-20-20 l í sléttprjóni með röngu út (= lykkjur á kanti að framan), prjónið út umf í sléttprjóni, endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Næsta umf frá röngu er prjónuð þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið sléttprjón þar til eftir eru 18-18-18-20-20-20 l, prjónið út umf í sléttprjóni með röngu út (= lykkjur á kanti að framan). Í næstu umf frá réttu er prjónað þannig: Prjónið 18-18-18-20-20-20 l í sléttprjóni með rönguna út, prjónið M.1 alls 4-4-5-5-6-7 sinnum, 5-5-6-7-4-3 l í sléttprjóni, endið með 1 kantlykkju (prjónuð í garðaprjóni til loka). Haldið áfram að prjóna mynstur í sléttprjóni í hlið og sléttprjón með röngu út á kanti að framan. Þegar stykkið mælist 10-11-8-7-12-17 cm byrjar úrtaka í sléttprjóni í hlið eins og á bakstykki = 48-48-55-57-64-71 l (= 4-4-5-5-6-7 mynstureiningar af M.1 + 1 l í sléttprjóni innan við 1 kantlykkju í hlið). Þegar stykkið mælist 44-45-46-47-48-49 cm aukið út fyrir ermi í hlið innan við 1 kantlykkju og 1 l í sléttprjóni eins og á bakstykki = 62-62-69-71-78-85 l (6-6-7-7-8-9 mynstureiningar af M.1 + 1 l í sléttprjóni í hlið). Þegar stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm fellið af fyrir öxl í byrjun næstu umf frá röngu þannig: Fellið af fyrstu 14-14-17-17-19-21 l á prjóni, prjónið út umf. Endurtakið úrtöku 1 sinni til viðbótar í næstu umf frá röngu. Fellið nú af 16-16-17-17-20-23 l í næstu umf frá röngu = 18-18-18-20-20-20 l eftir fyrir kraga. Haldið áfram í sléttprjón með röngu út 9-11-9-11-11-11 cm. Fellið nú af þannig í byrjun á næstu 2 umf frá röngu: Fellið af fyrstu 6 l, prjónið út umf. Fellið nú af þær 6-6-6-8-8-8 l sem eftir eru laust af í næstu umf frá réttu. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema spegilmynd. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma frá réttu með lykkjuspori. Saumið saman kraga frá röngu við miðju að aftan og saumið við hálsmál aftan við hnakka. Saumið hliðarsauma og sauma undir ermum. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #majesticvest eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 9 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 134-50
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.