Fie skrifaði:
Det er lige mig !
18.06.2011 - 11:31
Mia skrifaði:
Underbar!Hoppas mönsret kommer SNART!
17.06.2011 - 16:56
Monique Ooms skrifaði:
Schitterend
15.06.2011 - 19:00
A Håkansson skrifaði:
Meget smukt sjal glæder mig til at strikke det
14.06.2011 - 08:58
Karin skrifaði:
Der Schal gefällt mir sehr gut. Warte gespannt auf die Anleitung
13.06.2011 - 17:01
Christien skrifaði:
Prachtig. Zou er zo aan willen beginnen.
13.06.2011 - 14:36
Anna skrifaði:
Een uitdagend breiwerk!!!
10.06.2011 - 23:09
Lis Hansen skrifaði:
Super flot sjal,det må jeg lave
09.06.2011 - 16:19
Claudia skrifaði:
Wunderschöner Schal, den ich mir bestimmt stricken werde!
08.06.2011 - 16:46
Dawn skrifaði:
Beautiful lace and nupps. Would definitely make this one.
08.06.2011 - 05:22
Whispering Lace#whisperinglaceshawl |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónað sjal með gatamynstri og kúlum úr DROPS Lace.
DROPS 133-16 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. KÚLA: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið 7 lykkjur í 1 lykkju þannig: * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum og endið með 1 lykkju slétt = 7 lykkjur. Mikilvægt er að lykkjurnar verði ekki of lausar (ca 1 cm langar). UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið þessar 7 lykkjur brugðið saman. Ef lykkjurnar í umferð 1 eru ekki nægilega langar og aðeins lausar er erfitt að prjóna þær saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka. ATH! Hægt er að stækka sjalið eða minnka með því að fitja upp 24 lykkjur fleiri eða færri. SJAL: Fitjið upp 103 lykkjur á prjón 3,5 með Lace og prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Næsta umferð er prjónuð þannig: 3 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – 8 sinnum M.1, 1 lykkja sléttprjón, 3 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram þar til M.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið 5 umferðir slétt og 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið nú 4 sinnum M.2 síðan 1 lykkju sléttprjón JAFNFRAMT er haldið áfram með 3 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið. Prjónið M.2 1 sinni á hæðina, prjónið síðan 5 umferðir slétt og 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð þannig: 1 sinni M.3A, 6 sinnum M.3B og 1 sinni M.3C með 3 kantlykkjum garðaprjón í hvorri hlið. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist ca 75 cm, stillið af að prjónuð sé heil eða hálf mynstureining með M.3 á hæðina. Prjónið nú 4 umferðir slétt yfir allar lykkjur. Setjið allar lykkjur á þráð. Prjónið annað stykki á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið bæði stykkin saman lykkju fyrir lykkju með lykkjusaumi. STREKKING: Leggið stykkið í volgt vatn þar til það er orðið gegnblautt. Pressið varlega vatnið úr – ekki vinda. Rúllið síðan stykkinu upp í handklæði og klemmið til þess að ná enn meira vatni úr stykkinu – nú á stykkið að vera aðeins rakt. Leggið stykkið á mottu eða á dýnu – dragið stykkið varlega út í þá stærð sem stendur efst í útskýringu. Látið þorna. Endurtakið þetta í hvert skipti sem stykkið er þvegið. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #whisperinglaceshawl eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 6 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 133-16
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.