Giuseppina skrifaði:
Danke. Dann ist die Passage "Zusammennähen" nicht korrekt.
12.09.2016 - 15:07DROPS Design svaraði:
Liebe Giuseppina, das Zusammennähen wurde korrigiert, vielen Dank!
13.09.2016 - 08:46
Giuseppina skrifaði:
Hallo zusammen! ich hab eine Frage bezüglich dieser Passage: ZUSAMMENNÄHEN: Die Schulternaht zusammennähen. Die Knöpfe annähen. Sollen die Knöpfe nur als Deko dienen? Oder sollte da evtl. stehen "Die Seitennähte zusammennähen.?" Besten Dank für die Hilfe! Giuseppina
11.09.2016 - 22:30DROPS Design svaraði:
Liebe Giuseppina, die Knöpfe sollen auf dem Rückenteil aufgenäht, den Knopflöchern von dem Vorderteil gegenüber.
12.09.2016 - 09:56
Sabrina skrifaði:
Hallo, das Kleidchen ist wirklich süß! Allerdings stimmt in den Größenangaben etwas nicht, 74/88 soll bestimmt 74/80 heißen oder? LG Sabrina
04.09.2016 - 23:42DROPS Design svaraði:
Liebe Sabrina, das ist ja korrekt, Anleitung wurde korrigiert. Herzlichen Dank!
09.09.2016 - 11:07
Monique skrifaði:
Ja, ich habe das Original-Garn Drops Merino Extra Fine genommen. Mit der 4,5er Häkelnadel bin ich jetzt auf 17 Maschen auf 10cm gekommen. Ich werde einfach eine 5er nehmen und dann klappt es sicher :-) Danke für die Hilfe.
05.11.2015 - 22:05DROPS Design svaraði:
Ja, es hört sich so an, dass Sie mit einer 5-er Nadel die richtige Maschenprobe erhalten müssten. Gutes Gelingen und viel Spaß beim Häkeln!
07.11.2015 - 12:16
Monique skrifaði:
Hallo :-) Ich komme mit der Maschenprobe für das Kleidchen nicht zurecht. Ich möchte das Kleid für die Größe 74/80 machen. Mit einer 5er-Häkelnadel komme ich nach 2 Reihen H-Stb nicht auf 41cm, sondern nur auf 34cm. Mit einer 6er-Nadel sind es 37,5cm. Muss ich eine 7er-Nadel nehmen, wenn doch 4,5 angegeben ist. Ich häkel auch weder zu straff noch zu locker. Haben Sie eine Idee, was ich falsch mache bzw. was ich anders machen sollte? Vielen herzlichen Dank. Monique
17.10.2015 - 21:54DROPS Design svaraði:
Haben Sie denn ein passendes Garn verwendet? Halten Sie sich an die angegebene Maschenprobe, die oben unter dem Material genannt ist, 10 cm in der Breite müssten Sie mit 16 H-Stb erreichen. Schlagen Sie hierfür mindestens 20 Luft-M an und häkeln Sie Halb-Stb, dann messen Sie in der Mitte aus, wie viele Sie auf 10 cm benötigen und passen ggf. die Nadelstärke an. Wichtig ist, dass Sie entweder das Originalgarn oder ein Garn ähnlicher Stärke verwenden, dann sollte es mit der Maschenprobe klappen.
29.10.2015 - 14:27
Michela skrifaði:
Buonasera. Volevo provare a fare il cappello, ma non trovo la descrizione per quanto riguarda il motivo tipo pizzetto. Forse interpreto male qualcosa. Grazie mille
22.08.2015 - 19:02DROPS Design svaraði:
Buonasera Michela, le istruzioni del cappellino ci sono tutte, quale parte non le è chiara? Buon lavoro!
22.08.2015 - 21:22
Michela skrifaði:
Buonasera. Volevo provare a fare il cappello, ma non trovo la descrizione per quanto riguarda il motivo tipo pizzetto. Forse interpreto male qualcosa. Grazie mille
22.08.2015 - 19:01DROPS Design svaraði:
Buonasera Michela, le istruzioni del cappellino ci sono tutte, quale parte non le è chiara? Buon lavoro!
22.08.2015 - 21:23
Madeleine skrifaði:
Hallo, ich finde das Kleidchen richtig süß und würde es sehr gerne nachhäkeln. Doch leider bin ich nicht so geübt in Häkelschrift lesen. Gibt es noch eine andere Anleitung die für mich einfacher ist? Ich komme mit den ganzen Zahlen in den Klammern nicht zurecht. Vielleicht kann mir jemand helfen. Vielen Dank schon mal Lg Madeleine
24.02.2014 - 16:02DROPS Design svaraði:
Liebe Madeleine, die Zahlen stehen für die verschiedenen Größen, und zwar in der Reihenfolge, wie sie bei den Größenangaben ganz am Anfang vor den Materialangaben zu finden sind. Sie suchen sich also immer die passende Zahl heraus: wenn Sie z.B. Größe (cm) 74/88 stricken wollen, wählen Sie immer die Zahl vor der Klammer. Wenn Ihnen die Anleitung noch zu schwierig ist, wenden Sie sich am besten an Ihr Wollgeschäft, dort kann man Ihnen weiterhelfen.
24.02.2014 - 23:11
Monika skrifaði:
Een vraag over het minderen is elke (voor mij) 3cm is dit inclusief het rijtje met de vermindering erin?
13.10.2013 - 14:49DROPS Design svaraði:
Hoi Monika. Je meet in totaal. Dus je mindert op 3 cm, en vervolgens op elke 3 cm = 6, 9, 12 cm enzovoort. Veel haakplezier.
16.10.2013 - 13:35
Annika skrifaði:
Tere, tahaks lapsele kleiti teha aga mitte ei saa sellest 1.reast aru...1. RIDA: vaata heegeldamise infot - heegelda 1 psm 3. ahels-sse heegelnõelast, 1 psm igasse järgmisse 3 ahels-sse, * jäta vahele 1 ahels, 1 psm igasse järgmisesse 4 ahels-sse *, korda * - *, kuni jääb 2-3-5 (3-4) ahels, jäta vahele 1 ahels ja lõpetuseks tee 1 psm igasse viimasesse 1-2-4 (2-3) ahels-sse = 54-59-65 (71-76) poolsammast.Ette tänades
24.06.2013 - 13:12DROPS Design svaraði:
Millisest kohast täpsemalt aru ei saa?
29.08.2013 - 15:43
Sweet Little Cupcake#sweetlittlecupcakedress |
|
![]() |
![]() |
Sett með hekluðum kjól og húfu fyrir börn úr DROPS Merino Extra Fine.
DROPS Baby 20-20 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- KJÓLL: HEKLLEIÐBEININGAR: Fyrsta hálfa stuðli í hverri umferð er skipt út fyrir 2 loftlykkjur og fyrstu fastalykkju í hverri umferð er skipt út fyrir 1 loftlykkju. Hver umferð með hálfum stuðli endar með 1 hálfum stuðli í 2. loftlykkju frá byrjun fyrri umferðar og hver umferð með fastalykkjum endar með 1 fastalykkju í 1. loftlykkju frá byrjun fyrri umferðar. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA 1: Fækkað er um 1 hálfan stuðul með því að hekla 2 hálfa stuðla saman, þ.e.a.s. heklið einn hálfan stuðul en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin (= 3 lykkjur eftir á heklunálinni), heklið 1 hálfan stuðul í næstu lykkju og dragið síðasta hálfa stuðulinn í gegnum allar 5 lykkjurnar á heklunálinni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA 2 (á við um handveg og hálsmál): Fækkið lykkjum í byrjun á umferð þannig: Skiptið út 1 fastalykkju með 1 keðjulykkju. Fækkið lykkjum í lok umferðar þannig: Snúið stykkinu þegar eftir eru nægilega margar fastalykkjur sem á að fækka og heklið til baka. FASTALYKKJUR HEKLAÐAR SAMAN (á við um dúska að framan): Heklið 2 fastalykkjur saman í 1 fastalykkju þannig: Stingið heklunálinni í fyrstu lykkju, takið upp þráðinn, stingið heklunálinni í næstu lykkju, takið upp þráðinn, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað fram og til baka í tveimur stykkjum. FRAMSTYKKI: Heklið 68-74-81 (89-95) loftlykkjur (meðtaldar 2 loftlykkjur til að snúa við) með heklunál 4,5 með litnum ljós bleikur. UMFERÐ 1: LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR – heklið 1 hálfan stuðul í 3. loftlykkju frá heklunálinni, 1 hálfan stuðul í hverja af næstu 3 næstu loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, 1 hálfur stuðull í hverja af næstu 4 loftlykkjum *, endurtakið frá *-* þar til 2-3-5 (3-4) loftlykkjur eru eftir, hoppið yfir 1 loftlykkju og endið með 1 hálfum stuðli í hverja af síðustu 1-2-4 (2-3) loftlykkjum = 54-59-65 (71-76) hálfur stuðull. Heklið síðan 1 hálfan stuðul í hvern hálfan stuðul – ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar stykkið mælist 3 cm er fækkað um 1 hálfan stuðul í hvorri hlið – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA 1. Endurtakið úrtöku í hvorri hlið með 2-2½-3 (3-3½) cm millibili alls 9-9-9 (10-10) sinnum = 36-41-47 (51-56) hálfur stuðull í umferð. Þegar stykkið mælist 22-24-30 (33-37) cm (úrtöku á nú að vera lokið) heklið nú 2 umferðir með fastalykkjum (heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju). NÆSTA UMFERÐ ER HEKLUÐ ÞANNIG: Heklið 2-1-1 (2-1) fastalykkjur, * 2 loftlykkjur, hoppið yfir 2 fastalykkjur, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* og endið með 1 fastalykkju í síðustu fastalykkju (= gatakantur fyrir snúru). Heklið nú fastalykkjur yfir allar lykkjur (eftir gataumferð er hekluð 1 fastalykkja í hverja fastalykkju og 2 fastalykkjur um hvern loftlykkjuboga = 36-41-47 (51-56) fastalykkjur í umferð. Þegar stykkið mælist 24-26-32 (36-40) cm fækkið um 3-4-5 (5-6) fastalykkjur í hvorri hlið fyrir handveg – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA 2! Fækkið síðan lykkjum í hvorri hlið í hverri umferð þannig: 2 fastalykkjur 1-1-1 (2-2) sinnum og 1 fastalykkja 2 sinnum = 22-25-29 (29-32) fastalykkjur. Þegar stykkið mælist 29-31-38 (42-47) cm setjið eitt prjónamerki mitt í stykkið (í stærð 6/9 MÁN, 12/18 MÁN og 2 ÁRA er prjónamerkið sett í miðju fastalykkju í umferð). Fækkið síðan lykkjum fyrir hálsmáli þannig: Heklið frá öxl og inn að hálsmáli þar til eftir eru 4-4-5 (5-7) fastalykkjur á undan prjónamerki (í stærð 6/9 MÁN, 12/18 MÁN og 2 ÁRA verður á UNDAN fastalykkju með prjónamerki). Snúið stykkinu. Fækkið síðan lykkjum fyrir hálsmáli í hverri umferð frá hálsmáli: 2 fastalykkjur 1 sinni og 1 fastalykkja 1 sinni = 4-5-6 (6-6) fastalykkjur eftir á öxl. Þegar eftir eru 3 umferðir að loka máli eru hekluð hnappagöt á öxl þannig: 1-1-2 (2-2) fastalykkjur, 2 loftlykkjur, hoppið yfir 2 fastalykkjur, 1 fastalykkja í hverja af 1-2-2 (2-2) síðustu lykkjum. Heklið 2 umferðir með fastalykkjum (heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju og 2 fastalykkjur um hvern loftlykkjuboga frá fyrri umferð) = 4-5-6 (6-6) fastalykkjur. Klippið frá og festið enda, stykkið mælist ca 33-36-43 (48-53) cm. Endurtakið í hinni hlið í hálsmáli. BAKSTYKKI: Fitjið upp og heklið eins og framstykki. Fækkið lykkjum fyrir handveg eins og á framstykki = 22-25-29 (29-32) fastalykkjur. Þegar stykkið mælist ca 31-34-41 (46-51) cm setjið eitt prjónamerki mitt í stykkið (í stærð 6/9 MÁN, 12/18 MÁN og 2 ÁRA er prjónamerki sett í miðju fastalykkju í umferð). Fækkið síðan lykkjum fyrir hálsmáli þannig: Heklið frá öxl og inn að hálsmáli þar til eftir eru 5-5-6 (6-8) fastalykkjur á undan prjónamerki (í stærð 6/9 MÁN, 12/18 MÁN og 2 ÁRA verður á UNDAN fastalykkju með prjónamerki). Snúið stykkinu. Fækkið síðan um 1 fastalykkju í 2 næstu umferðum frá hálsmáli = 4-5-6 (6-6) fastalykkjur eftir á öxl. Þegar stykkið mælist 33-36-43 (48-53) cm setjið eitt prjónamerki = mitt á öxl. Heklið 3 umferðir með fastalykkjum sem liggja undir, klippið frá og festið enda. Endurtakið í hinni hlið í hálsmáli. FRÁGANGUR: Saumið hliðarsauma kant í kant með smáu fínu spori. Saumið niður tölur á bakstykki í línu með prjónamerki á öxl. HEKLAÐUR KANTUR: Byrjið á hlið og heklið með heklunál 4,5 með litnum natur í kringum báða handvegi, hálsmál og öxl í eitt þannig: 1 fastalykkja í fyrstu lykkju, * 2 loftlykkjur, hoppið yfir ca 2 fastalykkjur/2 umferðir, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* og endið með 2 loftlykkjur og 1 keðjulykkju í fyrstu fastaalykkju. Heklið kant í lokin meðfram neðri kant á kjól með heklunál 4,5 með litnum natur þannig – byrjið í hlið: 1 fastalykkja í fyrstu lykkju, * 3 loftlykkjur, 1 stuðull í 1. loftlykkju, hoppið yfir ca 1,5 cm, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju. SNÚRA MEÐ FLÖTUM DÚSKUM: Heklið einn dúsk þannig: Heklið 4 loftlykkjur með heklunál 4,5 með litnum natur og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju. Fyrsta fastalykkjan í byrjun á umferð er skipt út fyrir 1 loftlykkju og hver umferð endar með 1 keðjulykkju í loftlykkju í byrjun á umferð. UMFERÐ 1: Heklið 4 fastalykkjur um hringinn. UMFERÐ 2: Heklið 2 fastalykkjur í hverja fastalykkju = 8 fastalykkjur. UMFERÐ 3: * 1 fastalykkja í fyrstu fastalykkju, 2 fastalykkjur í fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 12 fastalykkjur. UMFERÐ 4-5: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 12 fastalykkjur. UMFERÐ 6: * 1 fastalykkja í fyrstu lykkju, heklið síðan 2 næstu fastalykkjur saman – sjá útskýringu að ofan *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 8 fastalykkjur. UMFERÐ 7: Leggið stykkið flatt og heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju í gegnum bæði lögin = 4 fastalykkjur. UMFERÐ 8: Heklið saman fastalykkjur tvær og tvær = 2 fastalykkjur. Heklið annan dúsk. Heklið 1 keðjulykkju mitt þar sem dúskurinn er minnstur þar sem hann var heklaður flatur í gegnum bæði lögin, heklið loftlykkju þar til loftlykkjusnúran mælist ca 75-80-85 (95-100) cm. Þræðið snúruna upp og niður í gegnum gataumferð á kjólnum (byrjið við miðju að framan). Endið með því að hekla loftlykkjusnúruna í seinni dúskinn með 1 keðjulykkju mitt þar sem hann er minnstur. Klippið frá og festið enda. ------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HÚFA: HEKLLEIÐBEININGAR-1: Fyrsta hálfa stuðli í hverri umferð er skipt út fyrir 2 loftlykkjur Hver umferð endar með 1 hálfum stuðli í 2. loftlykkju í byrjun á fyrri umferð. HEKLLEIÐBEININGAR-2: Fyrsta hálfa stuðli í byrjun á hverri umferð er skipt út fyrir 2 loftlykkjur. Hver umferð enda með 1 keðjulykkju í 2. loftlykkju í byrjun á umferð. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Aukið út um 1 hálfan stuðul með því að hekla 2 hálfa stuðla í næst síðasta hálfa stuðul. HÁLFIR STUÐLAR HEKLAÐIR SAMAN: Fækkað er um einn hálfan stuðul með því að hekla 2 hálfa stuðla saman, þ.e.a.s. heklið einn hálfan stuðul en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin (= 3 lykkjur eftir á heklunálinni), heklið 1 hálfan stuðul í næstu lykkju og dragið að lokum þráðinn í gegnum allar 5 lykkjurnar á heklunálinni. FASTALYKKJUR HEKLAÐAR SAMAN: Heklið 2 fastalykkjur saman í 1 fastalykkju þannig: Stingið heklunálinni í fyrstu lykkju, sækið þráðinn, stingið heklunálinni í næstu lykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fyrst eru eyrnaleppar heklaðir fram og til baka, síðan er húfan hekluð í hring. EYRNALEPPUR: Heklið 5 loftlykkjur með heklunál 4,5 með litnum ljós bleikur. Heklið 1 hálfan stuðul í 3. loftlykkju frá heklunálinni, 1 hálfan stuðul í 2 næstu loftlykkjur = 4 hálfir stuðlar, snúið stykkinu. LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR-1. Heklið 1 hálfan stuðul JAFNFRAMT er aukið út um 1 hálfan stuðul í hvorri hlið – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING! Endurtakið útaukningu í hvorri hlið í hverri umferð alls 6-7 (8) sinnum = 16-18 (20) hálfir stuðlar. Haldið áfram með hálfa stuðla og endið þegar eyrnaleppurinn mælist 6-7 (8) cm. Geymið stykkið og heklið hinn eyrnaleppinn á sama hátt. HÚFA: LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR-2! Heklið 7-8 (9) loftlykkjur, heklið hálfa stuðla yfir annan eyrnaleppinn, heklið 18-20 (22) loftlykkjur (= miðja að framan), heklið hálfa stuðla yfir hinn eyrnaleppinn, heklið 7-8 (9) loftlykkjur og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju = 64-72 (80) hálfir stuðlar. Haldið áfram með hálfa stuðla hringinn. Þegar stykkið mælist 8-10 (11) cm frá kanti við miðju að aftan er næsta umferð hekluð með úrtöku þannig: * 1 hálfur stuðull í hvern af fyrstu 6 lykkjum, heklið síðan næstu 2 hálfa stuðla saman – sjá útskýringu að ofan *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn (nú hefur fækkað um 8-9-10 hálfa stuðla í umferð). Heklið 1 umferð án úrtöku og síðan næstu umferð þannig: * 1 hálfur stuðull í hverja af fyrstu 5 lykkjum, heklið síðan næstu 2 hálfa stuðla saman *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umferð (með 1 hálfum stuðli færri á milli úrtöku í hvert skipti sem lykkjum er fækkað) 3 sinnum til viðbótar = 24-27 (30) hálfir stuðlar í umferð. Heklið 2-2 (3) umferðir án þess að fækka lykkjum. Næsta umferð er hekluð þannig: * 1 hálfur stuðull í fyrstu lykkju, síðan eru næstu 2 hálfu stuðlarnir heklaðir saman *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 16-18 (20) hálfir stuðlar. Í næstu umferð eru allir hálfu stuðlarnir heklaðir saman 2 og 2 = 8-9 (10) hálfir stuðlar til baka í umferð. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum síðustu lykkjurnar og herðið að, húfan mælist ca 17-19 (21) cm ofan frá topp og niður. HEKLAÐUR KANTUR: Heklið með heklunál 4,5 með litnum natur í kringum opið á húfunni þannig: * 1 fastalykkja í fyrstu lykkju, 1 loftlykkja, hoppið yfir 1 lykkju/umferð *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju. SNÚRA MEÐ DÚSK: Byrjið á dúsknum: Heklið 4 loftlykkjur með heklunál 4,5 og litnum natur og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju. ATH: 1. fastalykkja í byrjun á umferð er skipt út fyrir 1 loftlykkju og hver umferð endar með 1 keðjulykkju í loftlykkju í byrjun umferðar. UMFERÐ 1: Heklið 4 fastalykkjur um hringinn. UMFERÐ 2: Heklið 2 fastalykkjur í hverja fastalykkju = 8 fastalykkjur. UMFERÐ 3: * 1 fastalykkja í fyrstu fastalykkju, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 12 fastalykkjur. UMFERÐ 4-5: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 12 fastalykkjur. UMFERÐ 6: * 1 fastalykkja í fyrstu fastalykkju, heklið síðan 2 næstu fastalykkjur saman – sjá útskýringu að ofan *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 8 fastalykkjur. UMFERÐ 7: Leggið dúskinn flatan og heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju í gegnum bæði lögin = 4 fastalykkjur. UMFERÐ 8: Heklið fastalykkjurnar saman 2 og 2 = 2 fastalykkju. Heklið 22-26 (30) cm með loftlykkjum fyrir snúru og festið með 1 keðjulykkju neðst mitt á öðrum eyrnaleppnum. Endurtakið í hinni hliðinni. KANTUR: Heklið ca 7 umferðir með kanti í kringum húfuna. Byrjið á umferð 2 ofan frá toppi á húfu og heklið 1. umferð þannig: 1 fastalykkja í fyrstu lykkju, * 3 loftlykkjur, 1 stuðull í 1. loftlykkju, hoppið yfir ca 1,5 cm, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn á toppnum á húfunni og endið með keðjulykkju í fyrstu fastalykkju. Klippið frá og festið enda. Heklið síðan 6 umferðir til viðbótar (eða að óskuðu máli) alveg eins með ca 2-2½ cm á milli hverra umferða. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sweetlittlecupcakedress eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 9 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 20-20
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.