DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4620.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS Baby 20-17
DROPS Design: Mynstur nr ME-051-by + ME-053-by
Garnflokkur B
--------------------------------------------------------

Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Stærð í cm: 50/56- 62/68- 74/88 (86/92-98/104)

Efni:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio
200-200-200 (250-250) g litur nr 01, natur
50-50-50 (50-50) g litur nr 16, ljós bleikur

DROPS HEKLUNÁL NR 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að 16 hálfir stuðlar á breidd og 14 umferðir á hæð verði 10 x 10 cm.

DROPS PERLUTALA NR 521: 3 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4620.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

30% AFSLÁTTUR á 6 tegundum af bómullargarni!
Tilboðið gildir til 12.04.2024

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR:
Fyrsta hálfa stuðli í hverri umferð er skipt út fyrir 2 loftlykkjur. Hver umferð endar með 1 hálfum stuðli í 2. loftlykkju í byrjun á fyrri umferð.

ÚTAUKNING (á við um ermar):
Aukið er út fyrir ermar í lok hverrar umferðar þannig: Heklið jafn margar loftlykkjur og fjöldi hálfa stuðla sem á að auka út, snúið stykkinu, heklið 1 fastalykkju í 2. loftlykkju frá heklunálinni (nú eru 2 fastalykkjur í byrjun á umferð = 1 loftlykkja + 1 fastalykkja), heklið 1 hálfan stuðul í hverja og eina af þeim loftlykkjum sem eftir eru áður en haldið er áfram að hekla eins og áður. Í lok næstu umferðar í hlið er hekluð 1 fastalykkja í síðasta hálfa stuðulinn áður en aukið er út fyrir ermi. Þetta er gert þannig að ekki verði ójafn kantur undir ermi.

ÚRTAKA (á við um ermar):
Fækkið lykkjum í byrjun hverrar umferðar frá hlið þannig: Skiptið út þann fjölda hálfa stuðla sem á að fækka mínus 1 hálfum stuðli með 1 keðjulykkju í hvern hálfa stuðul, heklið 1 loftlykkju, hoppið yfir síðasta hálfa stuðulinn sem á að fækka um og heklið síðan eins og áður. Þetta er gert til að ekki verði ójafn kantur undir ermi.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan.
1 HNAPPAGAT = skiptið út öðrum hálfa stuðli frá miðju að framan með 1 loftlykkju. Í næstu umferð er heklaður 1 hálfur stuðull um þessa loftlykkju.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
STÆRÐ 1/3 MÁN: 8, 12 og 16 cm.
STÆRÐ 6/9 MÁN: 9, 13 og 17 cm.
STÆRÐ 12/18 MÁN: 10, 15 og 20 cm.
STÆRÐ 2 ÁRA: 11, 16 og 21 cm.
STÆRÐ 3/4 ÁRA: 11, 17 og 23 cm.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fyrst er hægra framstykkið heklað jafnframt því sem aukið er út fyrir ermi, vinstra framstykkið er heklað jafnframtu því sem aukið er út fyrir ermi, síðan eru bæði framstykkin sett saman og heklað er niður yfir bakstykki, ermalykkjum er fækkað og síðan er heklað yfir bakstykki.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið 29-31-35 (38-41) loftlykkjur (meðtaldar 2 loftlykkjur til að snúa við) með heklunál nr 4,5 með litnum natur. Fyrsta umferðin er hekluð frá miðju að framan þannig: 1 hálfur stuðull í 3. loftlykkju frá heklunálinni, 1 hálfur stuðull í hverja af næstu 3 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, 1 hálfur stuðull í hverja af næstu 4 loftlykkjum *, endurtakið frá *-* þar til eftir eru 3-5-4 (2-5) loftlykkjur, hoppið yfir 1 loftlykkju, heklið 1 hálfan stuðul í hverja af 2-4-3 (1-4) loftlykkjum sem eftir eru = 23-25-28 (30-33) hálfur stuðull í umferð, snúið stykkinu. Haldið áfram að hekla 1 hálfan stuðul í hvern hálfan stuðul. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA. Munið eftir að fella af fyrir HNAPPAGAT í kanti að framan – sjá útskýringu að ofan.

Þegar stykkið mælist 15-16-18 (19-21) cm fitjið upp nýja hálfa stuðla fyrir ermi, fitjið upp í lok hverrar umferðar að hlið – LESIÐ ÚTAUKNING: 5 hálfir stuðlar 2-2-3 (3-4) sinnum og síðan 18-20-17 (25-25) hálfur stuðull 1 sinni = 51-55-60 (70-78) hálfir stuðlar í umferð fyrir öxl/ermi – haldið áfram með hálfa stuðla. Þegar stykkið mælist 26-28-31 (33-36) cm setjið eitt prjónamerki 10-11-12 (13-13) hálfir stuðlar frá miðju að framan – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Í næstu umferð er EKKI heklað yfir síðustu 10-11-12 (13-13) hálfa stuðla við miðju að framan, en heklaður er 1 hálfur stuðull í hvern af 41-44-48 (57-65) hálfum stuðlum sem eftir eru JAFNFRAMT er aukið út um 1 hálfan stuðul við prjónamerki með því að hekla 2 hálfa stuðla í síðasta hálfa stuðul við prjónamerki. Nú eru 42-45-49 (58-66) hálfir stuðlar í umferð.
Geymið stykkið og heklið vinstra framstykki.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Heklið á sama hátt og hægra framstykkin nema gagnstætt – ekki fella af fyrir hnappagötum í kanti að framan.

BAKSTYKKI:
Heklið hálfan stuðul yfir 42-45-49 (58-66) hálfa stuðla á vinstra framstykki (ermi/öxl), heklið 12-14-16 (18-18) loftlykkjur (= aftan í hnakka) og heklið hálfan stuðul yfir 42-45-49 (58-66) hálfa stuðla á hægra framstykki = 96-104-114 (134-150) hálfir stuðlar. Haldið áfram með hálfa stuðla þar til stykkið mælist 7-7½-7½ (8-8) cm. Fækkið síðan lykkjum í ermum í hvorri hlið í byrjun á hverri umferð þannig – LESIÐ ÚRTAKA: 18-20-17 (25-25) hálfir stuðlar 1 sinni, 5 hálfir stuðlar 2-2-3 (3-4) sinnum = 40-44-50 (54-60) hálfir stuðlar í umferð. Endið þegar bakstykki mælist 26-28-31 (33-36) cm – brjótið stykkið saman tvöfalt við prjónamerki á öxlum og passið uppá að fram- og bakstykki séu jafn löng.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Heklið 2 umferðir með hálfum stuðlum fram og til baka með heklunál nr 4,5 með litnum natur yfir 34-38-42 (46-46) hálfa stuðla í kringum hálsmál.

VASI:
Heklið 5-6-7 (8-9) loftlykkjur (meðtaldar 2 loftlykkjur til að snúa við) með heklunál nr 4,5 með litnum natur. Heklið 1 hálfan stuðul í 3. loftlykkju frá heklunálinni, 1 hálfur stuðull í hverja af 2-3-4 (5-6) næstu loftlykkjum = 4-5-6 (7-8) hálfur stuðull. Snúið stykkinu. Heklið síðan 1 hálfan stuðul í hvern hálfan stuðul JAFNFRAMT er aukið út um 1 hálfan stuðul í hvorri hlið með því að hekla 2 hálfa stuðla í síðasta hálfa stuðul í hvorri hlið. Endurtakið útaukningu í hvorri hlið í hverri umferð alls 3 sinnum = 10-11-12 (13-14) hálfa stuðla. Heklið síðan hálfan stuðul þar til vasinn mælist ca 5-5-6 (7-7) cm. Klippið frá og festið enda.

Heklið síðan kant í kringum allan vasann með heklunál nr 4,5 með litnum ljós bleikur þannig – byrjið efst í horni: 1 fastalykkja í fyrstu lykkju * 3 loftlykkjur, 1 stuðull í 1. loftlykkju, hoppið yfir ca 1,5 cm, 1 fastalykkja í næstu lykkju * endurtakið frá *-* meðfram efri kanti á vasa (= ca 4-4-5 (5-6) bogar), heklið síðan í kringum afganginn á vasanum þannig: * 1 loftlykkja, hoppið yfir 1 umferð/hálfan stuðul, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* og endið með 1 loftlykkju og 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun umferðar. Heklið hinn vasann á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið erma- og hliðarsauma í eitt – saumið kant í kant með smáu spori – passið uppá að saumurinn undir ermum verði eins jafn og mögulegt er. Saumið tölur í vinstri kant að framan.
Saumið einn vasa í hvort framstykki ca 3-3-4 (5-6) cm frá neðri kanti og ca 5-5-6 (6-7) ca frá miðju að framan.

HEKLAÐUR KANTUR:
Heklið kant í lokin meðfram báðum köntum að framan og í kringum kraga með heklunál nr 4,5 með litnum ljós bleikur – byrjið neðst á hægra framstykki: 1 fastalykkja í fyrstu lykkju, * 1 loftlykkja, hoppið yfir 1 umferð, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* að 1 cm ofan við efsta hnappagat. Haldið síðan áfram í kringum kraga þannig: * 3 loftlykkjur, 1 stuðull í 1. loftlykkju, hoppið yfir ca 1,5 cm, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* í kringum allan kragann og endið 1 cm ofan við efstu tölu.
Heklið síðan meðfram vinstri kant að framan þannig: * 1 loftlykkja, hoppið yfir 1 umferð, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* og endið neðst á vinstra framstykki.

Heklið kant í lokin í hring neðst á báðum ermum með heklunál nr 4,5 með litnum ljós bleikur þannig: 1 fastalykkja í fyrstu lykkju, * 1 loftlykkja, hoppið yfir 1 umferð, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* og endið með 1 loftlykkju og 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju.

Mynstur

diagram measurements
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Sophie by the Sea

Jennie, Sweden

Sophie by the Sea

mandy, Germany

Ensemble petit matelot

J'attrape le voleur..., France

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 20-17

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (43)

country flag Marie wrote:

Hej, jag har svårt att förstå ökningen vid ärmen. Vad betyder 5 hst 2 gånger och sedan 18 hst 1 gång? Ska de virkas i samma maska?

02.03.2024 - 17:24

DROPS Design answered:

Hej Marie, se ÖKNINGSTIPS, du laver først 5 lm, vender og virkar 5 halvst, det gør du 2 ggr, og så virkar du 18 lm, vender og virkar 18 halvst

05.03.2024 - 14:35

country flag Annie wrote:

Jeg klarer ikke å forstå helt økningen på forsidene for å få til plass til ermene. Man går nemlig fra 25 til 55 hdc. Er det en video man kan se på?

15.03.2023 - 18:59

DROPS Design answered:

Hej Annie, har du læst ØKETIPS (gjelder ermene): Det økes til erme på slutten av hver rad mot siden slik: hekle like mange lm som det ant halvst som skal økes, snu arb, hekle 1 fm i 2.lm fra nåla (det er nå 2 fm på beg av raden = 1 lm + 1 fm), hekle 1 halvst i hver av de resterende lm før det hekles videre som før. På slutten av neste rad mot siden hekles det 1 fm i siste halvst før det økes ut til erme. Dette gjøres for å unngå en svært hakkete linje under ermet.

17.03.2023 - 08:36

country flag Kia Andersson wrote:

Hej, tänkte använda mig av detta mönster till en Tomtefar i stl 9 mån-1år, men vill inte ha kragen. Kan man virka något extra varv på halskanten utan att det ser konstigt ut? Har aldrig virkat en kofta. Tacksam för svar. Mvh Kia

29.06.2021 - 13:44

DROPS Design answered:

Hej Kia, det går helt fint at ændre mønsteret når du kommer op til kragen. Vi har desværre ikke mulighed for at skrive opskriften om :)

30.06.2021 - 14:45

country flag Evelin wrote:

Ang. framstyckena. Det står virka tills arb mäter 36cm sätt en markör 13 halvst in. På nästa varv virkas det inte över de 13 halvst. Jag förstår inte hur jag ska göra här. Ska jag dra upp de 13 halvst och börja på nästa varv därifrån, ska jag virka varvet ut och klippa av tråden för att kunna börja på nästa varv 13 halvst in? Hur ska jag göra?

24.03.2019 - 16:04

DROPS Design answered:

Hei Evelin. Om du tilpasser at raden du hekler etter å ha satt merketråden er en rad fra vrangsiden så kan du hekle frem til det gjenstår 13 halvstaver (mot midt foran), og så snu arbeidet og hekle tilbake. God fornøyelse

02.04.2019 - 09:30

country flag Franzi wrote:

Ich habe Probleme mit den Ärmeln. Wie genau werden die denn gehäkelt? Ich habe 23 Maschen. Nehme ich dann auf einmal 5 HbSt auf? Was bedeutet 2-2-3 (3-4) dann dahinter? Und wie komme ich auf die Maschenzahl von 51-55-60 (70-78), wenn ich doch nur 18-20-17 (25-25) H-Stb aufnehme? Ich freue mich, wenn mir jemand helfen kann! Liebe Grüße und vielen Dank

03.09.2018 - 07:07

DROPS Design answered:

Liebe Franzi, nach 15 cm schlagen Sie auf der Seite (= Ärmel) in jeder Reihe 5 H-Stb 2 x und 18 H-Stb 1 x: 23 + 5 +- 5 + 18 = 51 H-Stb. Viel Spaß beim häkeln!

03.09.2018 - 15:29

country flag Merete wrote:

Lurer på fellingen på bakstykket. Jeg forstår hvordan jeg skal gjøre det på begynnelsen av første rad med felling, og hekler halvstaver videre. Men når jeg er ferdig å hekle halvstaver, skal jeg da fortsette med kjedemasker ut raden på samme måte som jeg gjorde på begynnelsen av raden? Eller skal jeg bare snu med en gang jeg er ferdig med halvstavene? Da vil det vel ikke bli likt på begge sidene, for kjedemaskene bygger vel også noen millimeter ut...

06.03.2018 - 11:04

DROPS Design answered:

Hej Merete, de masker du skal felle sidst på pinden, lader du bare være og snuer uden at hækle kædemasker. God fornøjelse!

13.03.2018 - 16:01

country flag Caroline wrote:

Tusen tack för snabbt svar! Så långt har jag förstått med åldrarna men vad menas med det sista "5 halvst 2-2-3 (3-4) ggr och sedan 18-20-17 (25-25) halvst 1 gång = 51-55-60 (70-78) ", hur kan det bli 55?

25.10.2016 - 14:37

DROPS Design answered:

Hej Caroline. Du har 25 halv st og tager ud i siden som fölger: 2 ganger 5 halv st (+10) og 1 gang 20 halv st = 25+10+20 = saa har du 55 halv st i alt paa omg

25.10.2016 - 14:47

country flag Caroline wrote:

Vad betyder siffrorna inom parentes: "När arb mäter 15-16-18 (19-21) cm läggs det upp nya halvst till ärm, lägg upp i slutet på varje varv mot sidan – LÄS ÖKNINGSTIPS: 5 halvst 2-2-3 (3-4) ggr och sedan 18-20-17 (25-25) halvst 1 gång = 51-55-60 (70-78) halvst på varvet till axel/ärm ". Får det inte till att bli 55 halvst? Mvh, Caroline

25.10.2016 - 12:59

DROPS Design answered:

Hej Caroline. Alle tallene henviser til hvilken störrelse du laver. Du har str 1/3 - 6/9 - 12/18 mnd (2 - 3/4) år og det er saa lig 2-2-3 (3-4) ggr

25.10.2016 - 14:31

country flag Marie wrote:

Lurer litt på halskanten til jakken. Det står at det skal strikken to rader med halvstaver rundt, altså første runde blir 34 halvstaver. Snur du og går enda en runde rundt? På bilde ser det nesten ut som de har heklet to "trekanter". Har dere et mer utfyllende forklaring?

17.09.2015 - 20:08

DROPS Design answered:

Hej igen Marie, Ja det stemmer du hækler en hel række om til den anden side af halsen, snur og hækler tilbage hele rækken ud. God fornøjelse!

18.09.2015 - 15:00

country flag Marie wrote:

Lurer litt på halskanten til jakken. Det står at det skal strikken to rader med halvstaver rundt, altså første runde blir 34 halvstaver. Snur du og går enda en runde rundt? På bilde ser det nesten ut som de har heklet to "trekanter". Har dere et mer utfyllende forklaring?

17.09.2015 - 06:48

DROPS Design answered:

Hej Marie, Hæklekanten står beskrevet nederst i opskriften: Videre fortsettes det slik rundt kragen: * 3 lm, 1 st i 1.lm, hopp over ca 1,5 cm, 1 fm i neste m *, gjenta fra *-* rundt hele kragen og stopp 1 cm over øverste knapp

17.09.2015 - 09:46