DROPS Children 49 · Fullt af nýrri hönnun fyrir börn!
Product image DROPS Merino Extra Fine yarn
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1980.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2425
DROPS Extra 0-683
Tillaga á nafni
DROPS Design: Mynstur nr ME-049-by
Garnflokkur B
--------------------------------------------------------

Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mánaða (2 - 3/4) ára
Stærð í cm: 50/56 - 62/68 - 74/80 (86/92 - 98/104)

GARN:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio
100 - 100 - 100 (100 - 150) gr litur nr 08, ljós beige
Afgangur af lit nr 01, natur (fyrir heklaðan kant)

PRJÓNAR:
DROPS PRJÓNAR NR 4,5.

PRJÓNFESTA:
20 lykkjur á breidd og 34 umferðir á hæð með perluprjóni með prjóna nr 4,5 = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 4 (fyrir kant).

DROPS TÖLUR:
DROPS TRÉTALA NR 503: 2 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1980.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

PERLUPRJÓN:
UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-*.
UMFERÐ 2: Prjónið brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur og sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur.
Endurtakið umferð 2.

LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING:
Öll útaukning er ger í ystu lykkju – aukið út með því að prjóna 2 lykkjur í sömu lykkju.

LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um hálsmál):
Öll úrtaka er gerð í byrjun umferðar.
Fækkið lykkjum þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt / brugðið saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

VESTI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka, neðan frá og upp í stykkjum sem saumuð eru saman í lokin. Síðan er heklaður kantur í kringum stykkið.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 42-48-54 (60-66) lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjón nr 4,5 með litnum ljós beige DROPS Merino Extra Fine.
Prjónið PERLUPRJÓN – lesið útskýringu að ofan. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu.
Þegar stykkið mælist 2-3-3 (4-4) cm aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu í hvorri hlið þegar stykkið mælist 5-6-7 (8-8) cm = 46-52-58 (64-70) lykkjur. Þegar stykkið mælist 8-9-10 (11-12) cm fellið af 4-4-4 (5-5) lykkjur í byrjun á næstu 2 umferðum fyrir handveg. Síðan er fækkað um 1 lykkju í byrjun hverrar umferðar alls 4-4-5 (5-6) sinnum í hvorri hlið – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA = 30-36-40 (44-48) lykkjur. Þegar stykkið mælist 16-18-20 (22-24) cm fellið af miðju 14-16-18 (20-20) lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fækkið síðan um 1 lykkju í næstu lykkju frá hálsmáli. Prjónið 1 umferð án úrtöku, endurtakið síðan úrtöku í næstu umferð frá hálsmáli = 6-8-9 (10-12) lykkjur eftir á öxl. Fellið af í perluprjóni þegar stykkið mælist 18-20-22 (24-26) cm.
Prjónið hina öxlina á sama hátt nema gagnstætt.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 15-17-19 (21-23) lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjón nr 4,5 með litnum ljós beige DROPS Merino Extra Fine.
Lestu allan næsta kafla áður en þú prjónar áfram.
Prjónið perluprjón – JAFNFRAMT í umferð 1 er aukið út um 1 lykkju í ystu lykkju við miðju að framan – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING! Endurtakið útaukningu í hverri umferð (þ.e.a.s. bæði frá réttu og frá röngu) alls 8-8-7 (5-1) sinnum og síðan í annarri hverri umferð alls 3-4-6 (9-14) sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 2-3-3 (4-4) cm er aukið út um 1 lykkju í hliðinni, endurtakið útaukningu í hliðinni þegar stykkið mælist 5-6-7 (8-8) cm. Eftir allar útaukningar eru 28-31-34 (37-40) lykkjur á prjóni. Þegar stykkið mælist 8-9-10 (11-12) cm fellið af fyrir handveg í hliðinni eins og á bakstykki. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 8-9-11 (12-14) cm fækkið um 1 lykkju við miðju að framan fyrir hálsmáli – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku í annarri hverri umferð alls 14-15-16 (17-17) sinnum = 6-8-9 (10-12) lykkjur eftir á öxl. Haldið áfram þar til stykkið mælist 18-20-22 (24-26) cm og fellið af í perluprjóni.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið eins og vinstra framstykki, nema gagnstætt.

ERMI:
Stykkið er prjónað fram og til baka.
Fitjið upp 28-30-34 (38-42) lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjón nr 4,5 með litnum ljós beige DROPS Merino Extra Fine.
Prjónið perluprjón að loka máli. JAFNFRAMT í byrjun á fyrstu 2 umferðum er fækkað um 1 lykkju – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku í byrjun hverrar umferðar þar til stykkið mælist ca 4½ -5½ -6½ (7½ -7½) cm. Fækkið síðan um 2 lykkjur í byrjun næstu 2 umferða áður en allar lykkjur eru felldar af í perluprjóni.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju og saumið ermar í – ermar eru saumaðar í ca 2-3 cm ofan við þar sem byrjun á affellingu er fyrir handveg. Saumið tölur í vinstri kant að framan. Tölum er hneppt í heklaða kantinn.

HEKLAÐUR KANTUR:
Heklið kant í kringum allt opið á vestinu með heklunál nr 4 með litnum natur DROPS Merino Extra Fine þannig: 1 fastalykkja í fyrstu lykkju, * 3 loftlykkju, 1 stuðull í 1. loftlykkju, hoppið yfir ca 1-1½ cm, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* og endið með 1 fastalykkju í fyrstu lykkju.
Neðst meðfram báðum er heklaður kantur með natur – byrjið í annarri hliðinni þar sem ermin er saumuð saman og endið í gagnstæðri hlið þannig: 1 fastalykkja í fyrstu lykkju, * 3 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1-1½ cm, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-*.

Mynstur

Diagram measurements for DROPS Extra 0-683
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!
Ertu búin að klára þetta mynstur?
Merktu myndirnar þínar með #dropspattern eða sendu þær inn í #dropsfan gallery.

Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-683

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (35)

country flag Brenda Arriaga skrifaði:

El punto de orillo ya está incluído en el patron o tengo que agregarlo? El punto de orillo es el punto deslizado de cadenas? Gracias

28.10.2024 - 14:52

DROPS Design svaraði:

Hola Brenda, Montar 42-48-54 (60-66) pts (incluye 1 pt de orillo de cada lado); es decir, el punto orillo ya se incluye en los puntos montados, no hay que montar puntos extra. El punto orillo es un punto que se trabaja siempre en punto musgo, de derecho siempre.

03.11.2024 - 12:40

country flag Cristiana skrifaði:

Buongio, sto eseguendo il modello per la taglia 3 anni. Non capisco lo schema delle maniche. Quante maglie rimangono alla fine delle diminuzioni? Come si attaccano al corpetto? Cosa significa cucire a 2/3 cm dallo scalfo? Grazie

25.06.2024 - 05:21

DROPS Design svaraði:

Buongiorno Cristiana, sulle maniche deve diminuire fino a raggiungere la lunghezza indicata. Per la confezione deve attaccare le maniche a una distanza di circa 2-3 cm dall'inizio dello scalfo, come può vedere nello schema delle misure. Buon lavoro!

26.06.2024 - 08:04

country flag Nicky skrifaði:

Hi I would like to do this pattern with Drops Alpaca...using 2 threads.Can you help converting?Is it better to increase needle size or reduce number of stitches..or both?Many thanks,Nicky.

27.07.2022 - 10:20

DROPS Design svaraði:

Hi Nicky, it would be easier to replace original yarn (from Groupe B) to another one from the same group. Using 2 strands of Alpaca you will obtain C. Unfortunately we are not able to adjust our patterns to any individual requests. Should you need any individual assistance, please contact the store where you bought the yarn, even per mail or telephone. Happy knitting!

27.07.2022 - 10:52

country flag Maura Montemerlo skrifaði:

Buongiorno ho eseguito questo modello più volte in taglie diverse sia in lana che in cotone e riuscito sempre benissimo. Ora avrei necessità di farne uno in taglia 11-12 anni. Ho provato a fare io aumentando in lunghezza e larghezza ma il risiltato finale non è stato per niente buono. Potreste gentilmente darmi istruzioni per questa taglia? Grazie per l' aiuto che fornite sempre.

13.07.2022 - 16:58

DROPS Design svaraði:

Buongiorno Maura, questo modello è stato progettato per essere lavorato in quelle taglie, non possiamo svilupparlo su altre. Per un'assistenza così personalizzata può però rivolgersi al suo rivenditore DROPS di fiducia. Buon lavoro!

13.07.2022 - 18:06

country flag Birgit skrifaði:

Bitte was heisst: \" gehen die Mitte\" und total?

01.03.2021 - 10:25

country flag Birgit skrifaði:

Warum lässt sich die Anleitung nicht ausdrucken? Was mache ich verkehrt?

28.02.2021 - 18:26

DROPS Design svaraði:

Liebe Birgit, prüfen Sie mal die Druckereinstellungen - versuchen Sie auch die Seite zu aktualisieren oder mit einem anderen Browser zu versuchen. Viel Spaß beim stricken!

01.03.2021 - 09:57

country flag Lucia Battisti skrifaði:

Buonasera non comprendo nella spiegazione del davanti sinistro "sul I° ferro aumentare 1 maglia verso il centro davanti". Questo aumento quindi non si fa ai lati ma al centro delle maglie? Mentre gli altri aumenti vengono fatti all'inizio o alla fine e poi come mi comporto con la grana di riso dopo gli aumenti? Grazie a presto

26.02.2021 - 22:30

DROPS Design svaraði:

Buongiorno Lucia, gli aumenti sul davanti sinistro iniziano da centro davanti. Per la grana di riso, incorpora gli aumenti nel lavoro. Buon lavoro!

27.02.2021 - 11:22

country flag Helen skrifaði:

Left front - if I am increasing a stitch on every row mid front, how I’ll the moss stitch match up because each time I will have an extra stitch. Please help. Thanks

08.11.2020 - 13:59

DROPS Design svaraði:

Dear Helen, at the beg of the row, purl the stitch if the next stitch should be knitted or knit the stitch if the next stitch should be purled / at the end of the row, knit the stitch if the previous stitch was purled and purl the stitch if the previous stitch was knitted. Happy knitting!

09.11.2020 - 11:02

country flag Dum skrifaði:

Bjr, serait- il possible de mettre les explications avec des aiguilles droite plutot que des aiguille cirsulaire car entant que européen ns utilision des aiguilles droites site que j'aime beaucoups

03.05.2020 - 11:15

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Dumm, Ce modèle se tricote sur aiguilles droites, on utilise parfois des circulaires uniquement pour avoir suffisamment de place pour y loger toutes les mailles. Vous trouverez ici comment adapter un modèle sur aiguilles droites. Bon tricot!

04.05.2020 - 13:50

country flag Silvia skrifaði:

Sono al cm 14 del davanti 3/4 anni. Avevo 40 m, ne ho intrecciate 5 (35) devo fare 1 poi 17 diminuzioni. Come possono poi rimanerne 12 sul ferro? 35-18=17, non 12... Grazie

04.10.2019 - 22:57

DROPS Design svaraði:

Buongiorno Silvia. Sul davanti deve intrecciare per lo scalfo 5 m e poi 1 m (sul lato dello scaldo sempre) per 6 volte. In tutto 11 m per lo scalfo come fatto per il dietro. Poi intreccia per lo scollo 1 m 17 volte. Quindi: 40 - 11 - 17 = 12 m. Buon lavoro!

05.10.2019 - 07:14