Holly skrifaði:
With the small place mat; I don't understand round 8. I crochet one sc in first space, then crochet two sc's in the next space, then crochet 3 sc's in the next space; then start over again...?? I end up with a much smaller amount than listed.
02.07.2018 - 19:57DROPS Design svaraði:
Dear Holly, you will work round 8 as follows: ch1, *2 sc in next chain, 3 sc in next chain*, repeat from *-* all the round and join with 1 sl st in the ch from beg of round. There are 54 chains on round 7: (27x2 sc) + (27x3sc) = 135 sc over 54 chains. Happy crocheting!
03.07.2018 - 08:28
Lucie skrifaði:
0-623 návod na prostirku: v češtině není přiloženo video to jsem našla jen v komentářích. A poprosím zda je správně návod malá prostírka řada 6: protože dle videa zas nesouhlasí. Děkuji
02.02.2018 - 18:45
Vita skrifaði:
Hvis man ønsker at gøre den store dækkeserviet større ved at gentage omgang 18 og 19, skal masketallet kunne deles med 4 (ikke 2) før omgang 20 hækles
27.10.2015 - 10:18
Maria-Emma skrifaði:
Maria-Emma Forster 19.08.2013 kl. 14:55: Hallo Anja, leider komme ich auch nicht mit der 4. Reihe klar. Bis zum ersten * ist in Ordnung, aber dann, ab den 7 Lfm klappt es nicht mehr. Könntest du es mir in deutsch erklären? Ich wäre Dir unendlich dankbar. LG Maria-Emma
19.08.2013 - 18:27DROPS Design svaraði:
Liebe Maria-Emma, Anja schrieb, dass das este Blütenblatt zunächst nur zur Hälfte gehäkelt wird und erst am Ende der Rd beendet wird. Hilft das schon weiter?
20.08.2013 - 09:30
Bodil Engen Lund skrifaði:
Heller den lille brikken. Har kommet til omgang 4, får det ikke helt til å stemme med oppskriften. Trenger hjelp.
10.08.2013 - 18:48DROPS Design svaraði:
Følg opskriften men se videoen her:
Crochet: Flower circle from Garnstudio Drops design on Vimeo.
12.11.2013 - 10:44
Anja skrifaði:
Let me give you one more advice: the first petal is just half finished when you start the second. But you ment to use the same cain stitch for the first half of the first petal AND the first half of the second petal as well. At the end of round 4 you complete the last petal.
21.03.2013 - 19:01
Anja skrifaði:
Hi kristen, hope i can help. round 4 is confusing. it just meens: on top of the 12 curved parts you got from round 3 you are ment to put 12 petals, consist out of a group of 4 tripple crochets.
21.03.2013 - 12:19Cristiane Wu skrifaði:
Round 4 is too confusing.
17.03.2013 - 13:54DROPS Design svaraði:
What you making?
12.04.2013 - 16:20
Kristen skrifaði:
Hi there, I'm having trouble getting past round three on this pattern. I have the correct number of stitches when Rnd. 3 is complete, but in Rnd 4 I keep ending up with 8 dtr 'petals' rather than 12! If I'm skipping an entire (sc + chain + sc) set each time I complete a 4 dtr together, there just doesn't seem to be enough stitches. I've already pulled my work out 5 times, so any suggestions would be wonderful!
27.06.2012 - 05:21
Sunny Morning#dropssunnymorningset |
|
![]() |
![]() |
Heklaðar diskamottur, eggjahettur og servéttuhringir úr DROPS Safran og DROPS Glitter. Þema: Páskar.
DROPS Extra 0-623 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR HEKL-1 (á við um diskamottu): Í byrjun umferðar þar sem einungis fastalykkjur eru heklaðar er fyrstu fastalykkju skipt út fyrir 1 loftlykkju. Hver umferð endar með 1 keðjulykkju í loftlykkju í byrjun umferðar. LEIÐBEININGAR HEKL-2 (á við um eggjahettu og servéttuhring): Í byrjun hverrar umferðar eru fyrstu fastalykkju skipt út fyrir loftlykkju. Hver umferð endar með 1 keðjulykkju í loftlykkju í byrjun umferðar. 2 FASTALYKKJUR HEKLAÐAR SAMAN (á við um eggjahettu): Stingið heklunálinni í fyrstu fastalykkju, sækið þráðinn, stingið heklunálinni í næstu fastalykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (nú hefur fækkað um 1 fastalykkju). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- DISKAMOTTUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring. LÍTIL DISKAMOTTA: Heklið 8 loftlykkjur með heklunál 3 með 1 þræði DROPS Safran í litnum sólskin + 2 þráðum DROPS Glitter í litnum gull og tengið loftlykkjurnar saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Lesið LEIÐBEININGAR HEKL-1. UMFERÐ 1: Heklið 24 fastalykkjur um hringinn. UMFERÐ 2: 5 loftlykkjur (= 1 stuðull + 2 loftlykkjur), * hoppið yfir 1 fastalykkju, 1 stuðull í næstu fastalykkju, 2 loftlykkjur *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar = 12 stuðlar með 2 loftlykkjur á milli hverra. UMFERÐ 3: 1 loftlykkja, heklið síðan um hvern loftlykkjuboga umferðina hringinn þannig: 1 fastalykkja + 1 loftlykkja + 1 fastalykkja + 1 loftlykkja, endið umferðina með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju = 24 fastalykkjur með 1 loftlykkju á milli hverra UMFERÐ 4: 1 keðjulykkja í fyrstu fastalykkju, 1 keðjulykkja um fyrstu loftlykkju, 5 loftlykkjur, 1 þríbrugðinn stuðull um sömu loftlykkju, * 7 loftlykkjur. Heklið síðan 4 þríbrugðna stuðla saman þannig: Heklið 2 þríbrugðna stuðla í sömu loftlykkju, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin á báðum þríbrugðnu stuðlunum, hoppið yfir 1 fastalykkju + 1 loftlykkju + 1 fastalykkju, heklið 1 þríbrugðinn stuðul um næstu loftlykkju, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið síðan síðustu þríbrugðnu stuðlana saman með loftlykkju og síðasti uppslátturinn er dreginn í gegnum allar 5 lykkjurnar á heklunálinni *, endurtakið frá *-* alls 11 sinnum, 7 loftlykkjur, heklið 2 þríbrugðna stuðla saman um sömu loftlykkju (en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegnum báða þríbrugðnu stuðlana í lokin), heklið 1 keðjulykkju í 5. loftlykkju í byrjun umferðar og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni. UMFERÐ 5: 1 keðjulykkja um fyrsta loftlykkjuboga, 4 loftlykkjur (= 1 tvíbrugðinn stuðull), 7 tvíbrugðna stuðla um sama loftlykkjuboga, heklið síðan 8 tvíbrugðna stuðla um hvern loftlykkjuboga, endið með 1 keðjulykkju í 4. loftlykkju í byrjun umferðar = 12 tvíbrugðnir stuðlahópar með 8 tvíbrugðnum stuðlum í hverjum. UMFERÐ 6: 1 loftlykkja, 1 fastalykkja í keðlulykkju, heklið síðan 1 fastalykkju í hvern tvíbrugðinn stuðul og 1 fastalykkju í hvern tvíbrugðna stuðlahóp umferðina hringinn, endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun umferðar = 108 fastalykkjur. UMFERÐ 7: 4 loftlykkjur (= 1 stuðull + 1 loftlykkja), hoppið yfir 1 fastalykkju, * 1 stuðull í næstu fastalykkju, 1 loftlykkja (passið uppá að loftlykkjurnar séu heklaðar jafn langt og 1 fastalykkja, annars kemur umferðin til með að dragast saman), hoppið yfir 1 fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar = 54 stuðlar með 1 loftlykkju á milli hverra. UMFERÐ 8: 1 loftlykkja, heklið til skiptis 2 og 3 fastalykkjur um hverja loftlykkju umferðina hringinn, endið með 1 keðjulykkju í loftlykkju í byrjun umferðar = 135 fastalykkjur. UMFERÐ 9: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 135 fastalykkjur. UMFERÐ 10 (= blúndukantur): 1 loftlykkja, 1 fastalykkja í keðjulykkju, * 5 loftlykkjur, 1 stuðull í aðra loftlykkju sem var hekluð, 1 tvíbrugðinn stuðull í fyrstu loftlykkju sem var hekluð, hoppið yfir 4 fastalykkjur, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og endið með 1 keðjulykkju í fastalykkju í byrjun umferðar (í stað 1 fastalykkju í næstu lykkju) = 27 bogar. Klippið og festið þræðina. STÓR DISKAMOTTA: Heklið á sama hátt og litil diskamotta til og með umferð 9. UMFERÐ 10-12: Heklið eins og umferð 9 = 135 fastalykkjur. UMFERÐ 13: * Heklið 1 fastalykkju í hverja af fyrstu 8 fastalykkjum, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 150 fastalykkjur. UMFERÐ 14-15: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 150 fastalykkjur. UMFERÐ 16: * Heklið 1 fastalykkju í hverja af fyrstu 4 fastalykkjum, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju, heklið 1 fastalykkju í hverja af næstu 5 fastalykkjum *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 165 fastalykkjur. UMFERÐ 17: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 165 fastalykkjur. UMFERÐ 18: * Heklið 1 fastalykkju í hverja af fyrstu 14 fastalykkjum, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 176 fastalykkjur. UMFERÐ 19: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 176 fastalykkjur. Ef óskað er eftir að hafa diskamottuna aðeins stærri er hægt að endurtaka umferð 18 og 19, en í hvert skipti sem umferð 18 er hekluð er hekluð 1 fastalykkja fleiri á milli hverra útaukninga. Passið einnig uppá að fjöldi lykkja sé deilanlegur með 2 áður en umferð 20 er hekluð (ef diskamottan er hekluð stærri þá passar ekki fjöldi stuðla og fastalykkja sem gefið er upp að neðan). UMFERÐ 20: Heklið eins og umferð 7 = 88 stuðlar með 1 loftlykkju á milli hverra. UMFERÐ 21: Heklið eins og umferð 8 = 220 fastalykkjur. UMFERÐ 22: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 220 fastalykkjur. UMFERÐ 23: Hekli blúndukant samkvæmt umferð 10 í lítilli diskamottu að ofan = 44 bogar. Klippið og festið þræðina. ------------------------------------------------------- EGGJAHETTA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring. EGGJAHETTA: Heklið 44 loftlykkjur með heklunál 3 með 1 þræði í DROPS Safran í litnum sólskin + 2 þráðum í DROPS Glitter í litnum gull og tengið loftlykkjurnar saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. UMFERÐ 1: 1 loftlykkja, 1 fastalykkja í keðjulykkju, 1 fastalykkja í hvora af næstu 2 loftlykkjum, hoppið yfir 1 loftlykkju, * 1 fastalykkja í hverja af næstu 4 loftlykkjum, hoppið yfir 1 loftlykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun umferðar = 35 fastalykkjur. Lesið LEIÐBEININGAR HEKL-2 að ofan. Haldið áfram hringinn með 1 fastalykkju í hverja fastalykkjur þar til stykkið mælist 2 cm. Setjið eitt merki í byrjun umferðar – fyrir miðju aftan á eggjahettunni. Fækkið síðan um 1 fastalykkju með því að hekla saman fyrstu 2 fastalykkjur á eftir merki – lesið 2 FASTALYKKJUR HEKLAÐAR SAMAN – að ofan. Í næstu umferð er fækkað um 1 fastalykkju með því að hekla saman síðustu 2 fastalykkjur á undan merki. Haldið áfram að fækka um 1 fastalykkju í hverri umferð og að fækka lykkjum til skiptis á undan og á eftir merki þannig að miðjulínan færist ekki til. Klippið þræðina frá þegar eftir eru 5 fastalykkjur, eftir það eru þræðirnir þræddir upp og niður í gegnum 5 lykkjurnar, herðið að og festið vel. HEKLAÐUR BLÚNDUKANTUR AÐ NEÐAN: Heklið kant að neðan í kringum eggjahettuna með 1 þræði DROPS Safran í litnum sólskin + 2 þráðum DROPS Glitter í litnum gull þannig: 1 fastalykkja í fyrstu lykkju, * 5 loftlykkjur, 1 stuðull í aðra loftlykkju sem var hekluð, 1 tvíbrugðinn stuðull í fyrstu loftlykkju sem var hekluð, hoppið yfir ca 1½ cm, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun umferðar (í stað 1 fastalykkja í næstu lykkju). Klippið og festið þræðina. GOGGUR: Byrjið við miðju að framan ca 2½-3 cm frá toppi og heklið neðan frá og upp þannig: 1 keðjulykkja í lykkju með 1 þræði DROPS Safran í litnum kórall + 1 þræði DROPS Glitter í litnum rauður, heklið 2 loftlykkjur, 1 fastalykkju í fyrstu loftlykkju, hoppið yfir ½ cm, 1 keðjulykkja í næstu lykkju, klippið og festið þræðina að innanverðu á stykki. KAMBUR: Byrjið ca 1 cm beint ofan við gogginn og heklið 1 fastalykkju í lykkju með 1 þræði DROPS Safran í litnum kórall + 1 þræði DROPS Glitter í litnum rauður, 3 loftlykkjur, 1 fastalykkja í fyrstu loftlykkju, hoppið yfir ½ cm, *4 loftlykkjur, 1 stuðull í fyrstu loftlykkju, hoppið yfir ca ½ cm, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum þannig að það myndist kambur ofan á höfði, klippið og festið þræðina að innanverðu á stykki. AUGU: Saumið eitt auga í hvora hlið á höfðinu ca 2 cm frá toppi með smáu spori með DROPS Safran í litnum svartur. ------------------------------------------------------- SERVÉTTUHRINGUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring. SERVÉTTUHRINGUR: Heklið 38 loftlykkjur með heklunál 3 með 1 þræði DROPS Safran í litnum sólskin + 2 þráðum DROPS Glitter í litnum gull og tengið loftlykkjurnar saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. UMFERÐ 1: 1 loftlykkja, 1 fastalykkja í keðjulykkju, 1 fastalykkja í næstu loftlykkju, hoppið yfir 1 loftlykkju, * 1 fastalykkja í hverja af næstu 4 loftlykkjur, hoppið yfir 1 loftlykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun umferðar = 30 fastalykkjur. UMFERÐ 2: 1 fastalykkja í hverja fastalykkju. UMFERÐ 3: 4 loftlykkjur (= 1 stuðull + 1 loftlykkja), * hoppið yfir 1 fastalykkju, 1 stuðull í næstu fastalykkju, 1 loftlykkja *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar = 15 stuðlar með 1 loftlykkju á milli hverra. UMFERÐ 4: 1 loftlykkja, 1 fastalykkja í keðjulykkju, heklið síðan 1 fastalykkju um hverja loftlykkju og 1 fastalykkju í hvern stuðul umferðina hringinn, endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun umferðar = 30 fastalykkjur. Heklið síðan fastalykkjur hringinn með 1 fastalykkju í hverja lykkju þar til stykkið mælist 5 cm. Næsta umferð er hekluð þannig: 2 loftlykkjur, * hoppið yfir 1 fastalykkju, 1 fastalykkja í næstu fastalykkju, 1 loftlykkja *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju í byrjun umferðar (= uppábrotskantur). Næsta umferð er hekluð þannig: 1 loftlykkja, 1 fastalykkja í keðjulykkju, heklið síðan 1 fastalykkju um hverja loftlykkju og 1 fastalykkju í hverja fastalykkju umferðina hringinn, endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun umferðar = 30 fastalykkjur. Heklið 2 umferðir til viðbótar með 1 fastalykkju í hverja fastalykkju. Brjótið efsta hlutann á servéttuhringnum út að réttu í uppábrotskanti og heklið næstu umferð frá réttu þannig (= blúndukantur): * 5 loftlykkjur, 1 stuðull í aðra loftlykkju sem var hekluð, 1 tvíbrugðinn stuðull í fyrstu loftlykkju sem var hekluð, hoppið yfir ca 1½ cm, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun umferðar (í staðinn fyrir 1 fastalykkju í næstu lykkju). Klippið og festið þræðina. Heklið blúndukant á sama hátt í hinum endanum á servéttuhringnum. Klippið og festið þræðina. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #dropssunnymorningset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 8 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-623
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.