Elisabeth skrifaði:
Dejlig farve flot model
30.06.2009 - 06:21
Adelaide Milder skrifaði:
Gostaria muito de ver este casaco traduzido para o portugues,ele é lindissimo,desde já obrigada.
30.06.2009 - 01:21
Pernille skrifaði:
Flot!
27.06.2009 - 22:40
Connie skrifaði:
Flot længde, krave og mønster. Er vild med denne sweater
26.06.2009 - 22:15
Gloria skrifaði:
Ein Traum. Tolle Farbe.
25.06.2009 - 15:35
Aud skrifaði:
Herlig flettemønster,perfekt lengde.
22.06.2009 - 21:20
Christina skrifaði:
An so einem kalten Sommertag wie heute ist es schade, dass ich diesen wunderschönen Pullover noch nicht stricken kann. Er wäre genau richtig.
21.06.2009 - 13:00
Annika Lennholm skrifaði:
Underbar stortröja! Härlig krage.
20.06.2009 - 14:47
Ingrid skrifaði:
Fin genser - fin farge. Det er sikkert morsomt å strikke det fine mønsteret, gleder meg!
13.06.2009 - 08:11
Anita skrifaði:
Kjempefin genser! Akkurat hva jeg har sett etter. Denne skal jeg strikke så fort mønsteret blir lagt ut.
12.06.2009 - 08:45
Alaska Cables#alaskacablessweater |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Snow með kaðlamynstri við miðju að framan. Stærð S-XXXL.
DROPS 117-18 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá teikningar M.1, M.2 og M.3 – mynsturteikningin sýnir mynstur séð frá réttu, í mynstri M.2 er lykkjufjöldi frá 17 til 27 l. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka. FRAMSTYKKI. Fitjið upp 61-69-75-83-89-97 l (meðtalin er 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjóna nr 7 með Snow. Prjónið þannig (umf 1 = rétta): STÆRÐ S + L + XXL: Prjónið 1 kantlykkju með GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 3 l sl, 4 l br * endurtakið frá *-*, endið á 3 l sl og 1 kantlykkja í garðaprjóni. STÆRÐ M + XL + XXXL: Prjónið 1 kantlykkju GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 4 l br, 3 l sl * endurtakið frá *-*, endið á 4 l br og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 4-4-4-5-5-5 cm eru allar 4 lykkjur brugðið fækkað í 3 lykkjur brugðið (séð frá réttu) = 53-59-65-71-77-83 l. Haldið áfram með sl í sl og br í br. Þegar stykkið mælist ca 8-8-9-10-10-11 cm (næsta umf prjónuð frá réttu) er skipt yfir á prjóna nr 8. Næsta umf er prjónuð þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 9-12-15-18-21-24 l sl, 1 l garðaprjón, 2 l br, prjónið 2 l sl í hverja af næstu 3 lykkjum (þ.e.a.s. að 3 sléttar lykkjur verða 6 sléttar lykkjur), 3 l br, 3 l sl, 9 l br, 3 l sl, 3 l br, prjónið 2 l sl í hverja af næstu 3 l (þ.e.a.s. að 3 sléttar lykkjur verða 6 sléttar lykkjur), 2 l br, 1 l garðaprjón, 9-12-15-18-21-24 l sl og 1 kantlykkja í garðaprjóni. Nú er aukið út um 6 l = 59-65-71-77-83-89 l. Prjónið 1 umf til baka sl í sl og br í br. Næsta umf er prjónuð þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 9-12-15-18-21-24 l sl, 1 l garðaprjón, 2 l br, M.1 (= 6 l), M.2a (= 21 l), M.3 (= 6 l), 2 l br, 1 l garðaprjón, 9-12-15-18-21-24 l sl og 1 kantlykkja í garðaprjóni. Þegar mynstur M.2a hefur verið prjónað er haldið áfram með M.2b (M.2b er prjónað 4 sinnum á lengdina). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 25 cm er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið frá réttu með því að prjóna 2 l slétt saman innan við 1 kantlykkju, endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 30 og 35 cm. Þegar stykkið mælist 45 cm er aukið út um 1 l hvoru megin með því að prjóna 2 l í næst síðustu l, endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 50 og 55 cm. Þegar stykkið mælist 62 cm (í öllum stærðum) er fellt af fyrir handveg í byrjun umf í báðum hliðum: Felið af 3 l 1-1-1-1-2-2 sinnum, 2 l 0-1-2-2-2-3 sinnum og 1 l 2-2-2-4-3-3 sinnum. Þegar búið er að prjóna M.2b 4 sinnum á lengdina mælist stykkið ca 72 cm, nú er prjónað M.2c 1 sinni yfir M.2b. Þegar mynstur M.2c hefur verið prjónað eru 49-51-53-55-57-59 l eftir á prjóni. Nú eru 17-17-19-19-21-21 miðju-l settar á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð fyrir sig – haldið áfram með mynstur eins og áður. Nú er fækkað um 2 l við hálsmál með því að prjóna 3 síðustu l slétt saman, endurtakið úrtöku í annari hvorri umf alls 3 sinnum = 10-11-11-12-12-13 l eru eftir á öxl. Þegar stykkið mælist ca 82-83-84-85-86-87 cm fellið. BAKSTYKKI: Fitjið upp 62-68-76-82-90-96 l (meðtalin er 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjóna nr 7 með Snow. Prjónið (umf 1 = rétta) þannig: STÆRÐ S + L + XXL: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * 4 l br, 3 l sl * endurtakið frá *-*, endið á 4 l br og 1 kantlykkju í garðaprjóni. STÆRÐ M + XL + XXXL: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * 3 l sl, 4 l br * endurtakið frá *-*, endið á 3 l sl og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 4-4-4-5-5-5 cm eru allar 4 lykkjur brugðið fækkað í 3 lykkjur brugðið (séð frá réttu) = 53-59-65-71-77-83 l. Haldið áfram með sl í sl og br í br. Þegar stykkið mælist ca 8-8-9-10-10-11 cm er skipt yfir á prjóna nr 8. Haldið áfram í sléttprjóni – Fellið af 4 l jafnt yfir í fyrstu umf = 49-55-61-67-73-79 l. Þegar stykkið mælist 25, 30 og 35 cm er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið á sama hátt og á framstykki = 43-49-55-61-67-73 l. Þegar stykkið mælist 45, 50 og 55 cm er aukið í um 1 l í hvorri hlið á sama hátt og á framstykki = 49-55-61-67-73-79 l. Þegar stykkið mælist 62 cm er fellt af fyrir handvegi í hvorri hlið á sama hátt og á framstykki = 39-41-43-45-47-49 l. Þegar stykkið mælist ca 79-80-81-82-83-84 cm (endið þannig að það eru 3 cm eftir miðað við framstykki) er fellt af 17-17-19-19-21-21 miðjulykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð fyrir sig. Fellið af 1 l í byrjun umf frá hálsmáli = 10-11-11-12-12-13 l eru eftir á hvorri öxl. Fellið af þegar stykkið er jafn langt og framstykki. ERMI Stykkið er prjónað fram og til baka. Fitjið upp 32-32-38-38-38-38 l (meðtalin er 1 kantlykkja á hvorri hlið) á prjóna nr 7 með Snow. Prjónið stroff = 3 l sl, 3 l br með 1 kantlykkju í hvorri hlið í garðaprjóni. Skiptið yfir á prjóna nr 8 þegar stykkið mælist 12 cm, haldið áfram í sléttprjóni – Fellið af 2-0-4-2-0-0 l jafnt yfir umf = 30-32-34-36-38-38 l. Þegar stykkið mælist 14 cm er aukið út um 1 l í hvorri hlið, endurtakið útaukningu með 6.-6.-5½.-5½.-5.-4. cm millibili, alls 6-6-6-6-6-7 sinnum = 42-44-46-48-50-52 l. Þegar stykkið mælist 47-46-45-44-43-42 cm (styttri mál í stærri stærðum vegna breiðari axla) er fellt af fyrir handveg í byrjun umf hvoru megin: Fellið af 4 l 1 sinni og 2 l 1 sinni, fellið af 1 lykkju í hvorri hlið þar til stykkið mælist 54 cm. Þá eru felldar af 4 l 1 sinni í hvorri hlið áður en fellt er af. Stykkið mælist nú ca 56 cm. FRÁGANGUR: Saumið axlarsauma. HÁLSMÁL: Takið upp 60 til 72 l í kringum hálsmál (deilanlegt með 6, meðtaldar lykkjur af þræði að framan) á hringprjóna nr 7. Prjónið stroff = 3 l sl, 3 l br – athugið að slétt lykkja passi við slétta lykkju í mynstri M.2 fyrir miðju að framan. Þegar hálsmálið mælist 10 cm er aukið út þannig að allar 3 l sl verða 4 l sl = 70 til 84 l. Prjónið áfram með 4 l sl, 3 l br þar til hálsmálið mælist 20 cm. Nú er aukið út þannig að allar 4 l sl verða 5 l sl = 80-96 l. Prjónið áfram með 5 l sl, 3 l br þar til hálsmálið mælist 25 cm, fellið laust af með sl í sl og br í br. FRÁGANGUR: Saumið ermar í, saumið erma og hliðarsauma saman innan við kantlykkju. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #alaskacablessweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 117-18
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.