Laluna#lalunaset |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Prjónað axlarskjól með tölum og köðlum, húfa og vettlingar með köðlum úr DROPS Snow
DROPS 117-15 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- AXLARSKJÓL: MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.1. Mynsturteikning sýnir mynstur séð frá réttu. HNAPPAGAT: Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kanti. 1 hnappagat = prjónið 2. pg 3. l frá miðju saman. Í næstu umf er slegið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l frá miðju. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist 7, 13, 19, 25, 31 og 37 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- AXLARSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka. AXLARSKJÓL: Fitjið upp 158-176-194 l á hringprjóna nr 8 með Snow. Prjónið 1 umf slétt frá röngu. Nú er prjónað frá réttu þannig: Prjónið 5 l garðaprjón, * 4 l sl, 4-5-6 l br *, endurtakið frá *-* þar til 9 l eru eftir, endið á 4 l slétt og 5 l í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 5 cm er prjónað frá réttu þannig: Prjónið 5 l garðaprjónn, * mynstur M.1 (= 4 l), 12-14-16 l br *, endurtakið frá *-* þar til 9 l eru eftir, endið á mynstri M.1 og 5 l í garðaprjóni. Munið að fella af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Haldið áfram með þetta mynstur. Þegar stykkið mælist 10-11-12 cm er fækkað um 1 lykkju hægra megin við br l (= 9 úrtökur). Fækkið lykkjum með því að prjóna fyrstu tvær l br saman. Endurtakið úrtöku á víxl vinstra og hægra megin við br l með 2 ½. cm millibili alls 8 sinnum = 86-104-122 l. Þegar úrtöku er lokið mælist stykkið ca 28-29-30 cm. Nú er prjónað frá réttu þannig: Prjónið 5 l garðaprjón, * 4 l sl, 4-6-8 l br *, endurtakið frá *-* þar til 9 l eru eftir, endið á 4 l slétt og 5 l garðaprjóni. Haldið áfram þar til stroffið mælist 14 cm. Fellið af með sl í sl og br í br. Saumið tölur á stykkið. ------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HÚFA: MYNSTUR Sjá mynsturteikningu M.1 og M.2. Mynsturteikningin sýnir mynstur séð frá réttu. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. HÚFA: Fitjið upp 68-72 l á sokkaprjóna nr 8 með Snow. Prjónið stroff þannig: * Prjónið 4 l sl, 2-3 l br, 2 l sl, 2 l br, 4 l sl, 2 l br, 2 l sl, 2-3 l br, 4 l sl, 2 l br, 2 l sl, 2 l br, 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* alls 2 sinnum. Þegar stykkið mælist 4 cm er prjónað þannig: Mynstur M.1 (= 4 l), 4-5 l br, mynstur M.2A (= 8 l), 4-5 l br, mynstur M.1, 10 l br, mynstur M.1, 4-5 l br, mynstur M.2A, 4-5 l br, mynstur M.1, 10 l br. Þegar búið er að prjóna mynstur M.2A einu sinni á lengdina er haldið áfram með mynstur M.2 B. Þegar búið er að prjóna mynstur M.2 B tvisvar sinnum á lengdina er haldið áfram með mynstur M.2 A til enda. Haldið áfram með mynstrið, þegar stykkið mælist 17 cm er felld af 1 lykkja í hverjum br einingu með 10 l br, endurtakið á 2 cm millibili alls 4 sinnum (fellið af á víxl í byrjun og lok br eininga) = 60-64 l. Þegar stykkið mælist 24 cm eru allar l í mynstri M.1 prjónaðar tvær og tvær saman = 52-58 l. Þegar stykkið mælist 26 cm er prjónað 1 umf slétt jafnframt eru allar l prjónaðar 2 og 2 saman = 26-29 l. Þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru og festið. ------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- VETTLINGAR: MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.1. Mynsturteikning sýnir mynstur séð frá réttu. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónarður snúinn slétt (þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkbogann í næstu umf) svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VETTLINGAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á sokkaprjóna og saumað saman í hliðum í lokin HÆGRI VETTLINGUR: Fitjið upp 24-27 l á prjóna nr 9 með Snow. Prjónið þannig: Prjónið 2-3 l sl, 2 l br, 4 l sl, 2 l br, * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* yfir næstu 12-16 l, endið á 2-0 l sl. Prjónið 3 cm stroff. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 2-3 l br, M.2 B (= 8 l), 14-16 l br. Haldið áfram þar til stykkið mælist 12 cm. Í næstu umf frá réttu er fækkað um 4 l jafnt yfir = 20-23 l (fækkið ekki lykkjum yfir fyrstu 10-11 l í hverri umf). Prjónið 3-5 umf. Setjið prjónamerki í 11.-13. hverja lykkju frá hægri, séð frá réttu. Prjónið áfram og aukið út fyrir þumli: Aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerkið í annarri hverri umf alls 3 sinnum – LESIÐ ÚTAUKNING, (prjónið útauknar lykkjur brugðið séð frá réttu) = 7 þumallykkjur = 26-29 l alls). Þegar útaukningu er lokið eru þumallykkjurnar 7 settar á þráð. Fitjið upp 1 l fyrir hverja lykkju á bandi = 20-23 l. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 29-32 cm. Prjóni síðan 2 og 2 l saman = 10-12 l. Klippið frá, þræðið þráðinn tvisvar í gegnum l sem eftir eru, herðið að og festið. ÞUMALL: Setjið 7 lykkjur af þræði á prjóninn, fitjið upp 1 l hvoru megin = 9 l. Prjónið sléttprjón með rönguna út fram og tilbaka þar til stykkið mælist 5-6 cm. Prjónið allar lykkjur 2 og 2 saman = 5 l. Klippið frá, þræðið þráðinn tvisvar í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel. VINSTRI VETTLINGUR: Prjónið á sama hátt og hægri vettlingur, nema gagnstætt. Vettlingurinn er prjónaður þannig: Prjónið 2-0 l sl, * 2 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-* næstu 12-16 l, 2 l br, 4 l sl, 2 l br, 2-3 l sl. Eftir stroffið er prjónað þannig: Prjónið 14-16 l br, M.2 B (= 8 l), 2-3 l br. Prjónamerki fyrir þumal er sett í 10.-11. l. FRÁGANGUR: Saumið hliðarnarsauma saman yst í lykkjubogann svo að saumurinn verði ekki of þykkur. Saumið þumal saman á sama hátt. Saumið lykkjur sem fitjaðar voru upp hvoru megin niður við vettlinginn. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #lalunaset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 21 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 117-15
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.