DROPS Design skrifaði:
Karyn, at the top of the pattern it explains how the pattern is to be done. Then comes the pattern itself with the full description from cast on to bind off.
30.01.2009 - 18:38
Karyn skrifaði:
How do you start the lace pattern if you don't cast on the stitches?
29.01.2009 - 22:42
DROPS Design skrifaði:
Yes, two yo (i.e. double) is 2 loops with the yarn around the needle.
28.01.2009 - 17:14
Myriam skrifaði:
1 double YO: What does it mean?. 2 loops in the needle?.
28.01.2009 - 16:39
Monica skrifaði:
Den här är min favorit, vill börja sticka på en gång!
28.01.2009 - 12:33
Regina skrifaði:
Erg mooi allen de hals te diep
23.01.2009 - 19:49
LotusMonkey skrifaði:
This silhouette is attractive on most women and I'm glad to have the opportunity to knit it.
21.01.2009 - 04:55
Inge skrifaði:
Weich fließender Schnitt, wunderschöne Spitze am Halsausschnitt, ein sehr edles Modell.
20.01.2009 - 00:11Deb skrifaði:
What a funky top....i so want to add this to my wardrobe
15.01.2009 - 06:30
Gerd Dolk skrifaði:
Tycker den är jättesnygg.Stickar väldigt mycket. Ni har helt klart bästa mönstren Mvh Gerd
13.01.2009 - 21:13
Morning Light#morninglighttunic |
|
|
|
Prjónuð tunika úr DROPS Bomull-Lin. Stærð S - XXXL.
DROPS 112-1 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna): *1 umf slétt og 1 umf brugðið *, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. GATAMYNSTUR: Hægri kantur að framan: UMFERÐ 1 (frá réttu): Prjónið 3 l sl, sláið 2 sinnum uppá prjóninn, 1 l br, 3 l sl. UMFERÐ 2 (frá röngu): Prjónið 5 l sl, 1 l snúin slétt (þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan), 3 l sl. UMFERÐ 3: Fellið af 2 l (= 1 l eftir á hægri prjóni), 2 l sl, 1 l br, sláið 2 sinnum uppá prjóninn, 2 l snúnar slétt saman, 1 l snúin slétt. UMFERÐ 4: Prjónið 2 l sl, 1 l sl í tvöfalda uppsláttinn, hinn uppslátturinn er látinn falla niður, 4 l sl. Vinstri listi að framan: UMFERÐ 1 (frá röngu): Prjónið 3 l sl, sláið 2 sinnum uppá prjóninn, 4 l sl. UMFERÐ 2 (frá réttu): Prjónið 3 l sl, 1 l br, 1 l sl, 1 l snúin slétt, 3 l sl. UMFERÐ 3: Fellið af 2 l (= 1 l eftir á prjóni), 3 l sl, sláið 2 sinnum uppá prjóninn, 2 l snúnar slétt saman, 1 l snúin slétt. UMFERÐ 4: Prjónið 3 l sl (hinn uppslátturinn er látinn falla niður), 1 l br, 3 l sl. ÚRTAKA (á við um hálsmál): Öll úrtaka er gerð frá réttu. Fækkið lykkjum á eftir kanti að framan þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. Fækkið lykkjum á undan kanti að framan þannig: Prjónið 2 l slétt saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TUNIKA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 176-188-204-220-244-260 l á hringprjóna nr 5 með Bomull-Lin. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan! Prjónið nú sléttprjón. Setjið 8 prjónamerki í stykkið með ca 22-23-25-27-30-32 l millibili. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 5 cm er fækkað um 1 l til skiptis hægra og vinstra megin við prjónamerkin með 8 cm millibili alls 5 sinnum (= 8 úrtökur í hverri umf) = 136-148-164-180-204-220 l. Þegar stykkið mælist 38 cm er haldið áfram í garðaprjóni. Setjið tvö prjónamerki í stykkið, 1 í byrjun umf og 1 eftir 68-74-82-90-102-110 l. Þegar stykkið mælist 44 cm er prjónað áfram með byrjun á eftir fyrsta prjónamerki þannig: Prjónið 32-35-39-43-49-53 l sl, GATAMYNSTUR (umf 1 – hægri kantur að framan) – sjá útskýringu að ofan – yfir næstu 7 l, 128-141-157-173-197-213 l sl, fitjið upp 4 nýjar l fyrir aftan hægri kant að framan = 140-152-168-184-208-224 l. Snúið við og prjónið fram og til baka. Næsta umf er prjónuð frá röngu þannig: Gatamynstur (umf 1- vinstri kantur að framan) yfir fyrstu 7 l, sléttprjón yfir næstu 126-138-154-170-194-210 l, gatamynstur (umf 2 – hægri kantur að framan) yfir síðustu 7 l (= hægri kantur að framan) ATH! Fjöldi l kemur til með að vera breytilegur vegna gatamynsturs. Teljið því bara l á eftir umf 4. Þegar stykkið mælist 51-52-53-54-55-56 cm eru felldar af 3 lykkjur megin við bæði prjónamerkin og hvert stykki er prjónað til loka fyrir sig. BAKSTYKKI: = 62-68-76-84-96-104 l. Haldið áfram í sléttprjóni – JAFNFRAMT er fellt af fyrir handveg í hvorri hlið í byrjun hverrar umf þannig: Fellið af 2 l 0-1-2-3-5-6 sinnum og 1 l 0-0-1-2-3-4 sinnum = 62-64-66-68-70-72 l. Þegar stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm prjónið garðaprjón yfir miðju 30-30-32-34-34-36 l. Þær l sem eftir eru, eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 68-70-72-74-76-78 cm er fellt af miðju 14-14-16-18-18-20 l fyrir hálsmáli. Í næstu umf er felld af 1 l við hálsmál = 23-24-24-24-25-25 l eftir á hvorri öxl. Haldið áfram með 7 l garðaprjón við hálsmál. Fellið af þegar stykkið mælist 70-72-74-76-78-80 cm. HÆGRA FRAMSTYKKI: = 33-36-40-44-50-54 l. Fellið af fyrir handveg í hlið eins og á bakstykki = 33-34-35-36-37-38 l. Prjónið sléttprjón með gatamynstri yfir kant að framan – JAFNFRAMT er fellt af fyrir hálsmáli innan við kant að framan með 2½ cm millibili alls 10-10-11-12-12-13 sinnum – LESIÐ ÚRTAKA = 23-24-24-24-25-25 l eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 70-72-74-76-78-80 cm. VINSTRA FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema gagnstætt / spegilmynd. ERMI: Stykkið er prjónað fram og til baka. Fitjið upp 50-52-54-54-56-58 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjóna nr 5 með Bomull-Lin. Prjónið 10 umf garðaprjón og haldið áfram í sléttprjón. Þegar stykkið mælist 5 cm er aukið út um 1 l á hvorri hlið með 9-6½-4½-3½-2½-2 cm millibili alls -5-6-8-10-11 sinnum = 58-62-66-70-76-80 l. Þegar stykkið mælist 34-33-33-33-31-30 cm – ATH! Styttri mál í stærri stærðum vegna víðari handvegs og breiðari axla – fellið af fyrir ermakúpu í byrjun hverrar umf þannig: 3 l 1 sinni, 2 l 3-3-3-3-4-4 sinnum, 1 l 0-1-2-3-3-5 sinnum. Fellið síðan af 2 l í hvorri hlið þar til stykkið mælist 40-40-41-42-42-43 cm. Fellið af 3 l 1 sinni í hvorri hlið og fellið síðan af þær l sem eftir eru. Stykkið mælist ca 41-41-42-43-43-44 cm. FRÁGANGUR: Saumið axlarsauma kant í kant. Saumið ermar í. Saumið ermasauma. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #morninglighttunic eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 112-1
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.