Shaidoo skrifaði:
But I can't see any chart for these letter ( M1 M2 and M3) the bottom of the patteratn. I am still confused. Sorry for the inconvience. Many thanks.
17.01.2012 - 10:23Drops Design skrifaði:
Shaidoo, these are the numbers of the charts that you find below the text.
16.01.2012 - 17:19
Shaidoo skrifaði:
I am a bit confused with what M1, M2 and M3 stands for in this pattern. I was unable to find it in the abbreviations also. Can anyone be kind enough to help me please. many thanks
14.01.2012 - 11:56
Marit skrifaði:
Kanskje dere kan få til et tydeligere diagram?
05.05.2011 - 15:14
Lone skrifaði:
Tak for reaktionen Marit :) Så er jeg da ikke helt tosset :o) Jeg ved ikke hvor meget garn der bruges til huen.
19.07.2010 - 04:45
Marit skrifaði:
Vet noen hvor mye garn det går med til luen?
18.07.2010 - 22:54
Marit skrifaði:
Enig, det er en maske for mye.
18.07.2010 - 17:04
Lone skrifaði:
Hm er det bare mig der ikke kan få maskeantallet til at passe? Hvis det skal passe med mønsteret er der da angivet en maske for meget. 10 masker i mønster og 4 kantmasker. Gør jeg mon noget forkert eller hva?
15.07.2010 - 22:15Yolanda skrifaði:
Hola, felicitaciones por todas las traducciones en Español. me ha quedado difícil entender la disminución en las sisas,lo he terminado pero con dudas. Muchas garacias y exitos
05.07.2010 - 17:25
Marit skrifaði:
Hvor mye garn trenger man til luen?
02.07.2010 - 22:13
Beach Baby#beachbabydress |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónaður ermalaus kjóll úr DROPS Safran og húfa. Stærð 6 mán – 4 ára.
DROPS Baby 10-7 |
||||||||||||||||
GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.1, M.2 og M.3. Mynsturteikning sýnir mynstur frá réttu. HNAPPAGAT: Fellt er af fyrir hnappagötum meðfram hægri kant að framan. 1 hnappagat = fellið af 3. l frá kanti að framan, í næstu umf er slegið uppá prjóninn yfir l sem felld var af. Þegar uppslátturinn er prjónaður er hann prjónaður snúinn slétt (þetta er gert til að gatið verði ekki of stórt). Hnappagötin byrja fyrst á stroffi. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ 6/9 MÁN: 22, 25, 28 og 31 cm. STÆRÐ 1 ÁRA: 31, 34,5, 38 og 41 cm. STÆRÐ 2 ÁRA: 33, 37, 40,5 og 44 cm STÆRÐ 3/4 ÁRA: 35, 39,5, 44 og 48 cm. ÚRTAKA (á við um handveg og hálsmál): Öll úrtaka er gerð frá réttu. Fækkið lykkjum á undan 4 l garðaprjón þannig: 2 l slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir 4 l garðaprjón þannig: Takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. ---------------------------------------------------------- KJÓLL: Kjóllinn er prjónaður fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan. Fitjið upp 189-199-209-219 l (meðtaldar 4 kantlykkjur í hvorri hlið við miðju að framan) á prjóna nr 3 með hvítur. Prjónið M.1, haldið síðan áfram með M.2 þar til stykkið mælist 22-31-33-35 cm en 4 kantlykkjur í hvorri hlið eru prjónaðar í GARÐAPRJÓN uppúr – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Eftir M.2 er prjónað M.3 – JAFNFRAMT í 1. umf er fækkað um 79-69-65-61 l jafnt yfir í umf (ATH: Ekki er l fækkað yfir 4 kantlykkjur að framan) = 110-130-144-158 l. Eftir M.3 er prjónað sléttprjón til loka (kantlykkjur eru áfram prjónaðar í garðaprjóni) – Munið eftir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan – meðfram hægri kanti að framan. Þegar stykkið mælist 25-34-37-40 cm setjið 2 prjónamerki í stykkið – setjið 1 prjónamerki eftir 28-33-37-40 l inn frá hvorri hlið á stykki = 54-64-70-78 l á milli prjónamerkja = bakstykki. Prjónið nú 4 umf með garðaprjón yfir 6 l hvoru megin við bæði prjónamerkin = 12 l garðaprjón í hvorri hlið. Í næstu umf eru felldar af 4 miðju l við þessar 12 l garðaprjón fyrir handveg. Hvort stykki er nú prjónað til loka fyrir sig. VINSTRA FRAMSTYKKI: = 26-31-35-38 l. Prjónið nú sléttprjón með 4 l garðaprjón við miðju að framan og 4 l garðaprjón við handveg. JAFNFRAMT er fækkað um 1 l við handveg í annarri hverri umf – sjá ÚRTAKA – alls 2-2-2-2 sinnum = 24-29-33-36 l. Haldið áfram með 4 l garðaprjón uppúr meðfram handveg til loka. Þegar stykkið mælist 31-41-44-48 cm prjónið 4 umf í garðaprjóni yfir 12-13-14-15 l við miðju að framan. Í næstu umf er fækkað um 8-9-10-11 l við miðju að framan fyrir hálsmáli. Prjónið áfram með 4 l garðaprjón við miðju að framan – JAFNFRAMT er fækkað um 1 l við hálsmál í annarri hverri umf – sjá ÚRTAKA – alls 4 sinnum = 12-16-19-21 l eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 37-47-51-55 cm. HÆGRA FRAMSTYKKI: Prjónið eins og vinstra framstykki, nema spegilmynd. Munið eftir hnappagötum meðfram kanti að framan! BAKSTYKKI: = 50-60-66-74 l. Fækkið lykkjum fyrir handveg í hvorri hlið eins og á framstykki = 46-56-62-70 l. Þegar stykkið mælist 35-45-49-53 cm prjónið 4 umf garðaprjón yfir miðju 30-32-32-36 l. Í næstu umf eru felldar af miðju 22-24-24-28 l fyrir hálsmáli = 12-16-19-21 l eftir á hvorri öxl. Prjónið áfram í sléttprjóni með 4 l garðaprjón í hvorri hlið þar til stykkið mælist 37-47-51-55 cm, fellið af. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma og saumið tölur í. ---------------------------------------------------------- HÚFA: Stærð: 6/12 mán - 2/4 ára. Höfuðmál: 42 - 46 cm. HÚFA: Fitjið upp 90-100 l á stutta hringprjóna eða sokkaprjóna nr 3 með hvítur. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, haldið áfram með M.2 uppúr. Prjónið M.2 alls 5-6 sinnum á hæðina. Setjið nú 1 prjónamerki í fyrstu l í hverja mynstureiningu í mynstri = 9-10 prjónamerki. Prjónið mynstur einu sinni til viðbótar JAFNFRAMT er l fækkað í umf sem merktar eru með örvum. Fækkið l þannig: Takið l innan við prjónamerki óprjónaða, prjónið l með prjónamerki + næstu l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir. Endurtakið þessa úrtöku í öllum mynstureiningu við allar 3 örvar, þ.e.a.s. fækkað er um 54-60 l = 36-40 l eftir á prjóni. Eftir síðustu umf af M.2 er prjónuð 1 umf sléttprjón jafnframt þar sem allar l eru prjónaðar saman 2 og 2 = 18-20 l eftir á prjóni. Þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #beachbabydress eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 22 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 10-7
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.