Katri skrifaði:
Hej Drops Flg tekst er taget fra hals-opskriften: "VENSTRE SIDE: = 18-19-20 (23-24) m. Videre lukkes der af i beg af hver p som starter fra halsen: 2 m 2 gange og 1 m 2 gange = 12-13-14 (17-18) m tilbage på skulderen. Luk af når arb måler 20-22-24 (26-28) cm." Menes der at der skal strikkes 2 m sammen 2 gange og så almindeligt pinden ud, og så gentage indtil der er 12 m på pind? Eller er det *2 m sammen 2 gange, 1 m 2 gange* Gentag *-* pinden ud? For det giver da 13 masker på en pind?
04.10.2010 - 22:42
DROPS Design skrifaði:
Hej, det skall vara det samma som på vänstersida, när arb mäter 19-21-23(25-27) cm stickas det 12 v rätst över alla m. Maska sedan av.
20.11.2009 - 11:19
Anna-Karin skrifaði:
Är mönstret på kragen helt komplett? Får en känsla av att det fattas ett par rader i slutet av texten på bakstycke höger sida eller är det jag som tänker fel?
19.11.2009 - 15:11
DROPS Design skrifaði:
Just click the link below the picture. Then there is a print button within the pattern.
27.11.2008 - 17:11
Jill Welker skrifaði:
Thus us adorable. It is just the hat pattern I've been looking for to make for my grandson. Where can I get this pattern?
27.11.2008 - 17:00
Elisebeth skrifaði:
Strikket luen på en kveld og holder nå på med halsen. Fin julepresang til tantebarn :)
25.11.2008 - 16:40
Petra Wagner skrifaði:
Das ist süß.
04.11.2008 - 03:29
Karoline skrifaði:
Dette er vel en smekk? Det ønsker jeg oppskrift på.
27.10.2008 - 13:45
Mette W skrifaði:
Det er den sødeste hue jeg længe har set - den MÅ bare med
23.10.2008 - 21:10
Cecilia skrifaði:
Jättefin mössa, sitter fint på huvudet.
21.10.2008 - 23:53
Woodland Elf#woodlandelfset |
|
|
|
Prjónuð húfa fyrir börn úr DROPS Fabel og hálsskjól úr DROPS Alpaca.
DROPS Baby 18-5 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón og sokkaprjóna. HÚFA: Fitjið upp 112-120-128 (136-144) lykkjur á hringprjón 2,5 með Fabel. Prjónið stroff = 2 lykkjur slétt/2 lykkjur brugðið í 8-8-10 (10-12) cm. Haldið áfram í sléttprjóni – JAFNFRAMT í umferð 1 er fækkað um 16-18-20 (22-24) lykkjur jafnt yfir = 96-102-108 (114-120) lykkjur. Þegar stykkið mælist 13-13½-15 (15½-17) cm setjið 6 prjónamerki með 16-17-18 (19-20) lykkja millibili. Prjónið síðan 2 lykkjur slétt saman á eftir hverju prjónamerki í annarri hverri umferð 5-5-6 (6-7) sinnum og síðan í hverri umferð 9-10-10 (11-11) sinnum = 12 lykkjur eftir á prjóni. Prjónið 2 cm yfir þessar = toppurinn á húfu og prjónið síðan saman allar lykkjur 2 og 2. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru og herðið að. Öll húfan (meðtalinn toppur) mælist ca 20-21-23 (24-26) cm. EYRNALEPPUR 1: Brjótið uppá stroffið tvöfalt að réttu. Haldið húfunni með toppinn að þér og takið upp lykkjur með sokkaprjóni 2,5 með Fabel: 22-24-26 (28-30) lykkjur neðst meðfram annarri hliðinni – takið upp eina lykkju í hverja lykkju. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – fram og til baka. JAFNFRAMT er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið með því að prjóna 2 næst síðustu lykkjurnar slétt saman. Fækkið lykkjum svona í 4. hverri umferð 5-5-6 (6-7) sinnum og síðan í annarri hverri umferð 4-5-5 (6-6) sinnum = 4 lykkjur eftir á prjóni. Prjónið þessar lykkjur saman 2 og 2 og steypið þessum tveimur lykkjum sem eftir eru yfir hvora aðra. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum lykkjuna sem eftir er. Eyrnaleppurinn mælist ca 5-6-6½ (7-8) cm. EYRNALEPPUR 2: Byrjið með að prjóna upp lykkjur frá 42-42-46 (46-50) lykkjum talið frá fyrri eyrnalepp (þessar 42-42-46 (46-50) lykkjur = eru mitt framan á húfu). Prjónið upp lykkjur með sokkaprjón 2,5 með Fabel. Eina lykkju í hverja af næstu 22-24-26 (28-30) lykkjum. (Nú eru 26-30-30 (34-34) lykkjur á milli eyrnaleppa að aftan). Prjónið þennan eyrnalepp á sama hátt og fyrri. SNÚRA Klippið 3 þræði Fabel 60 cm og tvinnið þá saman vel. Þræðið snúruna neðst í gegnum hornið á öðrum eyrnaleppnum og leggið síðan þráðinn saman þannig að hann tvinnist aftur saman. Gerið hnút á endann á snúrunni. Endurtakið á hinum eyrnaleppnum. ------------------------------------------------------- HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í tveimur hlutum, neðan frá og upp. FRAMSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka. Fitjið upp 32-36-40 (44-48) lykkjur á prjón nr 3 með Alpaca. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið áfram í sléttprjóni með 4 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið. JAFNFRAMT í fyrstu umferð í sléttprjónuðu umferðinni er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið innan við 4 lykkjur garðaprjón – aukið út með því að prjóna 2 lykkjur í 1 lykkju. Endurtakið útaukningu í 4. hverri umferð alls 6-6-6 (8-8) sinnum = 44-48-52 (60-64) lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni með 4 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið þar til stykkið mælist 15-17-19 (20-22) cm. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Setjið síðan miðju 8-10-12 (14-16) lykkjur á þráð. Hvor hlið er nú prjónuð til loka fyrir sig. Setjið inn lykkjur frá hægri hlið (séð frá réttu) á þráð. VINSTRI HLIÐ: = 18-19-20 (23-24) lykkjur. Fækkið lykkjum í framhaldinu í byrjun á hverri umferð sem byrjar við hálsmál: 2 lykkjur 2 sinum og 1 lykkja 2 sinnum = 12-13-14 (17-18) lykkjur eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 20-22-24 (26-28) cm. HÆGRI HLIÐ: Setjið til baka lykkjur af þræði á prjóninn = 18-19-20 (23-24) lykkjur. Prjónið á sama hátt og vinstri hlið þar til stykkið mælist 19-21-23 (25-27) cm = 12-13-14 (17-18) lykkjur á prjóni. Prjónið síðan 6 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur. Næsta umferð er prjónuð þannig (frá réttu): 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 4-5-6 (8-9) lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2-2-2 (3-3) lykkjur slétt. Prjónið síðan 5 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur. Fellið af. BAKSTYKKI: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og framstykki en fellið ekki af fyrir hálsmáli heldur prjónið áfram þar til stykkið mælist 18-20-22 (24-26) cm. Fellið af miðju 18-20-22 (24-26) lykkjurnar fyrir hálsmáli. Hvor hlið er nú prjónuð fyrir sig til loka. Setjið lykkjur á hægri hlið (séð frá réttu) á þráð. VINSTRI HLIÐ: = 13-14-15 (18-19) lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og 4 lykkjur garðaprjón í hlið. JAFNFRAMT er felld af 1 lykkja í næstu umferð frá hálsmáli = 12-13-14 (17-18) lykkjur eftir á prjóni. Þegar stykkið mælist 19-21-23 (25-27) cm prjónið 12 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur. Fellið nú af. HÆGRI HLIÐ: = 13-14-15 (18-19) lykkjur. Í næstu umferð er felld af 1 lykkja við hálsmál = 12-13-14 (17-18) lykkjur eftir á prjóni. Fellið af þegar stykkið mælist 20-22-24 (26-28) cm. FRÁGANGUR: Saumið hægri öxl. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Takið upp ca 82 til 102 lykkjur á prjón 3 með Alpaca í kringum hálsmál (deilanlegt með 4 + 2, meðtaldar lykkjur frá framstykki af þræði). Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Prjónið síðan þannig: 6 lykkjur garðaprjón, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 8 lykkjur eru eftir, endið með 2 lykkjur slétt og 6 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram – JAFNFRAMT þegar kantur í hálsmáli mælist 2-3-3 (4-4) cm er fellt af fyrir 1 hnappagati yfir hin á öxl þannig (frá réttu): 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt, haldið síðan áfram að prjóna stroffprjón með 6 síðustu lykkjurnar í garðaprjóni. Fellið af með slétt yfir slétt og brugðið yfir brugðið þegar kantur í hálsi mælist 3-4-4 (5-5) cm. Saumið tölur á öxl. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #woodlandelfset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 11 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 18-5
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.