Cathrine skrifaði:
Mulig jeg er dum, men jeg kan ikke finne diagrammet i oppskriften. Hvor er det?
08.02.2012 - 20:44
Marie skrifaði:
Jag hittar inte diagrammet? Snopet när jag kommit mig iväg och köpt garn och så finns inte det med i mönstret. :(
08.02.2012 - 19:48
Drops Design skrifaði:
I str 5 har du 224 m minus dem du sætter på en tråd = 124 + 8 nye m i hver side = 140 m på p.
18.08.2009 - 09:54
Karina skrifaði:
Hej Jeg er gået lidt i stå nu hvor jeg skal til at tage masker fra til ærmer. f.eks. Skal man ved str5 år tage 50 masker i hver side til det ene ærme = 100m og derudover slå 8 masker op på hver side af dem altså 4 gange 8= 32 m. men i opskriften skulle det give 140 m. er der noget jeg har overset eller er det en fejl? hilsen karina
17.08.2009 - 20:12
Ellen Rosted skrifaði:
Kjempefin genser til sommeren for små mannfolk!!
14.02.2007 - 08:50Gitte skrifaði:
Der mangler noget smart til drengene i de lidt større størrelser. man kan købe en masse så må man da også ku lave nogle opskrifter.
08.02.2007 - 21:27
Tine skrifaði:
Kun få (umoderne) opskrifter til drenge igen, de kan altså også lide smart tøj!
03.02.2007 - 10:10Bettina skrifaði:
Det ville være dejligt hvis modellen blev strikket fra oven og ned!!!!!!
02.02.2007 - 19:52
Marianne skrifaði:
Super flot
03.01.2007 - 19:08
Britta Thomsen skrifaði:
Jeg kan godt lide den, men halsen er for åben
16.12.2006 - 23:45
Seashore Stripes#seashorestripessweater |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir börn með röndum og laskalínu úr DROPS Paris. Stærð 5 til 14 ára.
DROPS Children 15-14 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.1. RENDUR: Rendurnar eru prjónaðar eftir mynsturteikningu M.1 þannig: Axlastykki: Sjá ör fyrir byrjun í mynstri M.1. Fram-/bakstykki: Prjónið M.1 áfram. Á eftir M.1 er M.1b endurtekið til loka. Ermi: Prjónið M.1 áfram eins og á fram- og bakstykki að * í mynstri. Prjónið M.1c 1 sinni á hæðina. Haldið áfram með M.1 frá * í mynstri. Á eftir M.1 er M.1b endurtekið til loka. LEIÐBEININGAR (á við um hálsmál): Til þess að koma í veg fyrir göt þegar stykkinu er snúið við er 1. lykkjan tekin óprjónuð þegar prjónað er til baka og hert er á þræði. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (á við um laskalínu): Aukið út frá réttu: Byrjið 2 l á undan prjónamerki: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 4 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa l), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt (þ.e.a.s. prjónað er í aftari lykkjubogann í stað fremri) til þess að koma í veg fyrir göt. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna. Prjónað er ofan frá og niður svo hægt sé að stilla lengdina á stykkinu að eigin ósk. AXLASTYKKI: Fitjið upp 76-80-84-88-88 l á sokkaprjóna nr 4,5 með litnum blágrænn DROPS Paris. Prjónið stroff 2 l sl/2 l br þar til stykkið mælist 3 cm. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf (= hægri hlið). Prjónið nú upphækkun við hnakka (svo að hálsmálið sitji fallega). Haldið áfram með stroff 2 l sl/2 l br og prjónið fram og til baka þannig: Prjónið 38-40-42-44-44 l, snúið við – lesið LEIÐBEININGAR – og prjónið til baka að prjónamerki. Snúið við. Prjónið 43-45-47-49-49 l. Snúið við. Prjónið 48-50-52-54-54 l til baka. Snúið við. Prjónið 56-58-60-62-62 l. Snúið við. Prjónið 64-66-68-70-70 l til baka. Snúið við. Prjónið 1 umf yfir allar l og haldið áfram fram og til baka að prjónamerki. Prjónið nú í hring. Prjónið 1 umf sléttprjón með litnum blágrænn jafnframt er aukið út um 12-10-8-12-12 l jafnt yfir = 88-90-92-100-100 l. Prjónið 8 l áfram frá prjónamerki (byrjun umf færist til). Setjið 4 ný prjónamerki í stykkið þannig: 1. prjónamerki í byrjun umf (= 1. skipting á milli hægri ermi og bakstykkis), 2. prjónamerki á eftir 28-29-30-34-34 l (= bakstykki), 3. prjónamerki á eftir 44-45-46-50-50 l (= vinstri ermi), 4. prjónamerki á eftir 72-74-76-84-84 l (= framstykki). Lykkjur á milli 4. og 1. prjónamerki = hægri ermi. Haldið áfram í sléttprjóni og rendur samkvæmt M.1 – sjá útskýringu að ofan – til loka. Jafnframt er aukið út fyrir laskalínu: Aukið út um 1 l hvoru megin við 4 prjónamerkin (= 8 útaukningar í hvert skipti) – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING – að ofan. Aukið út í hverri umf 2-4-6-3-7 sinnum og síðan í annarri hverri umf 15-15-15-18-17 sinnum. Eftir alla útaukningu fyrir laskalínu eru 224-242-260-268-292 l á prjóni. Í næstu umf eru 50-54-58-58-64 l í hvorri hlið (á milli 2. og 3. prjónamerkis og á milli 4. og 1. prjónamerkis) settar á þráð fyrir ermi. Jafnframt eru fitjaðar upp 8 nýjar l í hvorri hlið neðan við l á þræði = 140-150-160-168-180 l á prjóni. FRAM- OG BAKSTYKKI: Haldið áfram í sléttprjón og rendur samkvæmt M.1 – sjá útskýringu að ofan. Í umf 1 er sett 1 prjónamerki í hvora hlið á stykki undir ermum (þ.e.a.s. 4 nýjar l hvoru megin við hvort prjónamerki). Jafnframt þegar stykkið mælist 4 cm frá prjónamerkjum í hlið er fækkað um 1 l hvoru megin við hvort prjónamerki með 5-6-5½-6-6 cm millibili alls 4-4-5-5-5 sinnum = 124-134-140-148-160 l. Haldið áfram þar til stykkið mælist 41-44-49-51-53 cm frá öxl. Endið M.1. Ef óskað er eftir að hafa stykkið lengra þá er haldið áfram að prjóna rendur samkvæmt M.1. Prjónið nú stroff 2 l sl/2 l br með ljós grár. (ATH: Í stærð 7/8 ára: Áður en byrjað er að prjóna stroff er prjónuð 1 umf í sléttprjóni þar sem fækkað er um 2 l jafnt yfir = 132 l). Haldið áfram þar til stroffið mælist 4 cm. Fellið laust af með sl yfir sl og br yfir br. Stykkið mælist ca 45-48-53-55-57 cm mælt frá öxl. ERMI: Setjið l af þræði (= 50-54-58-58-64 l) yfir á sokkaprjóna nr 4,5. Haldið áfram í sléttprjóni og með röndum samkvæmt M.1 – sjá útskýringu að ofan. Jafnframt í umf 1 eru fitjaðar upp 8 nýjar l undir ermi = 58-62-66-66-72 l. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi (þ.e.a.s. 4 nýjar l hvoru megin við prjónamerki). Þegar stykkið mælist 4-4-3-3-3 cm frá prjónamerki mitt undir ermi er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerki með 3½-3-3-4-3½ cm millibili alls 7-9-11-9-12 sinnum = 44-44-44-48-48 l. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 29-33-36-39-43 cm frá prjónamerki mitt undir ermi, skiptið yfir í litinn ljós grár. Haldið áfram með stroff 2 l sl/2 l br í 6 cm, fellið laust af með sl yfir sl og br yfir br. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #seashorestripessweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 20 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 15-14
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.