Judi skrifaði:
I am making this pattern and for the Front piece, it doesn't indicate the number of cast on stitches. Can you please help? Thank you!!!
02.02.2014 - 02:34DROPS Design svaraði:
Dear Judy, work for front piece as you worked for back piece until piece measures 39-41-43-45-47 cm, this mean you will cast on 98-106-110-118-128 sts, dec as for back piece and when piece measures 39-47 cm (see size), continue reading pattern under front piece. Happy knitting!
03.02.2014 - 09:46
Lillemor skrifaði:
Jag har stickat denna i strl XL. Enligt mönstret går det åt 500 g garn, men det stämmer inte. Jag var tvungen att köpa ytterligare 150 g för att få den klar.. Så alltså 650 g för strl XL i garnet Drops bomull/lin.
24.09.2013 - 16:48
Helene skrifaði:
Hur vet jag vilken storlek jag ska sticka? Dvs, var hittar jag en storleksguide för denna grymt snygga tunika? Tack på förhand, Helene
12.08.2013 - 19:17DROPS Design svaraði:
Hej Helene. Du kan se maalene per storlek i cm nederst paa mönstret. Du kan sammenligne med dine egne maal og vaelge din storlek. God fornöjelse.
14.08.2013 - 12:50
Helene skrifaði:
Så snygg. Jag ska sticka den nu. I svart. har just fått hem garnet och stickat en provbit för att säkerställa 10 cm. Kommer bli en favorit, vinter som sommar!!
12.08.2013 - 19:15
Anne-Marie skrifaði:
I am making the biggest size and did not have enough beomull-lin to finish it. You need to order 50 grams more.
22.07.2013 - 20:56
Benedetta skrifaði:
Buonasera,non capisco come distribuire 5 diminuzioni in modo uniforme per 7 volte,i modo allineato in verticale sia davanti che dietro.infatti ho diminuito 1m.ogni 16 m.,ma alla successiva diminuzione come funziona.?grazie di cuore
14.07.2013 - 21:57DROPS Design svaraði:
16 m sono indicative, ma se ha 98 m e deve diminuire 5 maglie può fare 98/5= 19,6, se poi toglie le 2 maglie vivagno e lascia magari qualche maglia all'inizio e alla fine del ferro dove non diminuisce, va bene ogni 16 m circa. Spero di aver risposto alla sua domanda
25.07.2013 - 18:23
Maria skrifaði:
Ho realizzato il capo, ma non capisco come fare il fiocco alle estremità del cordino.
22.05.2013 - 00:36DROPS Design svaraði:
Buongiorno. Ad ogni estremità del cordino trova un piccolo cerchio di 4 cat (il primo lo crea all'inizio, il secondo alla fine quando chiude con 1 m.bss nella quarta cat dall'uncinetto). Tagli ora 20 capi di Cotton Viscose lunghi 25 cm l'uno. Li pieghi in due per formare una "U"; passi la parte tonda della "U" in uno dei cerchi; passi le estremità dei capi attraverso la "U" e stringa. Il fiocco resta così agganciato al cerchio di cat. Buon lavoro!
22.05.2013 - 13:27
Katia skrifaði:
Bonjour, je crois qu'il y a une erreur dans les éxplications du devant, il manque les diminutions pour l'emmenchures et le total de maille pour chaque épaule n'est pas comme pour le dos.
04.07.2012 - 17:59DROPS Design svaraði:
Effectivement, il manquait une partie, elle a été ajoutée, merci. Bon tricot !
05.07.2012 - 08:47
Eva Gaberud skrifaði:
Denna är hur snygg som helst! Jag bara måste sticka den!
03.12.2008 - 22:37
DROPS Design skrifaði:
The translations for the Diagrams for all Garnstudio patterns are included within the text of the Pattern itself. If you look immediately above the diagram, you will find lines starting with an = sign. These are the translations, and they are given in the same vertical order as the chart symbols within the diagram.
31.08.2007 - 16:42
Elbe#elbetunic |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð tunika með hekluðum ferningum og ¾-síðum ermum úr DROPS Bomull-Lin og DROPS Cotton Viscose. Stærð S-XXL
DROPS 100-1 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLAÐUR FERNINGUR: Sjá mynsturteikningu M.1 ATH: Síðasta umf með fl í M.1 er hekluð með heklunál nr 3,5 – ekki heklunál nr 4,5. HEKLAÐUR KANTUR: Sjá mynsturteikningu M.2. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TUNIKA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka og saumað saman í lokin. BAKSTYKKI: Fitjið upp 98-106-110-118-128 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjóna nr 7 með DROPS Bomull-Lin og prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan sléttprjón. Þegar stykkið mælist 6 cm er fækkað um 5 l jafnt yfir í umf – deilið niður úrtökunni svo að það verða álíka margar l á milli úrtöku (ca 16-17-18-19-21 l á milli hverra). Haldið áfram með úrtöku á sama hátt með 5-5½-6-6-6½ cm millibili alls 7 sinnum – fellt er af frá réttu með því að prjóna saman 2 l sl – passið uppá að úrtakan sé fyrir ofan hverja aðra upp úr = 63-71-75-83-93 l. Þegar stykkið mælist 53-54-55-56-57 cm er fellt af fyrir handveg í hvorri hlið í annarri hverri umf: Fellið af 3 l 1-1-1-2-2 sinnum, 2 l 1-2-2-2-3 sinnum og 1 l 1-2-3-3-5 sinnum = 51-53-55-57-59 l. Þegar stykkið mælist 70-72-74-76-78 cm eru felldar af miðju 33 l fyrir hálsmáli. Í næstu umf er felld af 1 l við hálsmál = 8-9-10-11-12 l eftir á hvorri öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 72-74-76-78-80 cm. FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og bakstykki þar til stykkið mælist 39-41-43-45-47 cm (úrtöku er lokið). Prjónið nú 4 umf garðaprjón yfir miðju 41 l (aðrar l eru prjónaðar í sléttprjóni). Fellið nú af miðju 35 l = 14-18-20-24-29 l eftir í hvorri hlið. Prjónið nú hægra og vinstra framstykki hvort fyrir sig. Prjónið sléttprjón með 3 l garðaprjón við miðju að framan. Þegar stykkið mælist 53-54-55-56-57 cm er fellt af fyrir handveg á sama hátt og á bakstykki = 8-9-10-11-12 l eftir á hvorri öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 72-74-76-78-80 cm. ERMI: Fitjið upp 31-32-34-36-37 l (meðtalin er 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjóna nr 7 með Bomull-Lin og prjónið 4 umf garðaprjón. Prjónið síðan sléttprjón. Þegar stykkið mælist 5-5-5-6-6 cm er aukið út um 1 l í hvorri hlið með 2½-2½-2½-2-1½ cm millibili alls 10-10-10-11-13 sinnum = 51-52-54-58-63 l. Jafnframt þegar ermin mælist 8, 13 og 22 cm í öllum stærðum, prjónið 2 umf slétt með 1 þræði af Bomull-Lin + 1 þræði af Cotton Viscose. Þegar ermin mælist 33-31-31-30-29 cm fellið af fyrir ermakúpu í hvorri hlið í annarri hverri umf: Fellið af 3 l 1 sinni, 2 l 2-2-2-2-3 sinnum og 1 l 1-2-3-3-5 sinnum. Fellið síðan af 2 l í hvorri hlið þar til stykkið mælist 40-40-41-41-42 cm, að lokum er fellt af 3 l 1 sinni í hvorri hlið. Fellið af þær l sem eftir eru, stykkið mælist 41-41-42-42-43 cm. HEKLAÐUR FERNINGUR: Heklið 4 ferninga með heklunál nr 4,5 og Cotton Viscose – sjá M.1 og útskýringu að ofan (síðasta umf). Byrjið á 4 ll sem tengdar eru í 1 hring. Heklið 3 ll og 11 st í hringinn o.s.frv. Sjá M.1. FRÁGANGUR: Saumið saman hekluðu ferningana 2 og 2. Mikilvægt er að sauma 1 spor í hverja fl. Heklið 1 umf með st með heklunál nr 3,5 og DROPS Cotton Viscose í kringum báða ferningana. Á neðri brún á opinu á tunikunni eru ferningarnir saumaðir kant í kant í umf með garðaprjóni. Í hliðum eru ferningarnir lagðir ofan á 2 síðustu l á tunikunni og saumað með smáu spori. Ferningarnir eiga að enda 6 cm áður en komið er efst á öxl. Saumið axlarsauma. Saumið ermar í. Saumið erma- og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju. HEKLAÐUR KANTUR: Neðan í kringum ermar og í kringum hálsmál er heklað M.2 með heklunál nr 4,5 og Cotton Viscose. Að lokum er hekluð ein umf með fl neðst í kringum ermar, í kringum hálsmál og niður í kringum op/klauf. HEKLUÐ SNÚRA: Heklið 4 ll með heklunál nr 4,5 og Cotton Viscose, tengið þær í hring með 1 kl í fyrstu ll. Heklið nú ll þar til snúran mælist 60-70 cm, endið á að hekla kl í 4. síðustu ll. Þræðið inn snúrunni á milli 2 hekluðu ferningana á hvorri hlið við miðju að framan. Gerið 1 skúf í hvorn enda á snúrunni þannig: Klippið 20 þræði af Cotton Viscose ca 25 cm. Leggið alla þræðina saman tvöfalda, þræðið lykkjuna inn í hringinn og dragið þræðina í gegnum lykkjuna. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #elbetunic eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 100-1
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.