Elin skrifaði:
Kjempefint mønster, fint snitt, fin fargekomb.!
18.06.2006 - 21:31
Monica skrifaði:
Har også lett etter en genser med rundt bærestykke. Nå har jeg funnet den. Denne må med!
18.06.2006 - 18:53
Zette skrifaði:
Denne skal bare være med. Mit favoritgarn er Alpaca. Meget flot mønster
18.06.2006 - 13:54Vilde skrifaði:
Det er denne jeg leter etter! Håper den kommer med.
18.06.2006 - 00:40Rebekka skrifaði:
Over alle ønsker så må i bara opfylde dette: Denne må med!!!! Alpaca er et så lækkert garn, og jeg vil glæde mig at strikke denne flotte modell!!!! gensere med slike bærestykker er så efterspurgte for tiden, og ikke minst vil de bli når den kolde tid kommer.
17.06.2006 - 18:03Synne skrifaði:
Denne var fantastisk fin! Håper oppskrift kommer!!!!
15.06.2006 - 23:17elisabeth skrifaði:
denne må være med.kjempefin.
15.06.2006 - 21:10mia skrifaði:
Flot mønster ,vill gæærna att oppskriften kommer på denna
15.06.2006 - 14:30
Pia skrifaði:
flot mønster!
15.06.2006 - 12:46
NIAN skrifaði:
Som flere har skrevet; har lett etter en slik genser med rundfellign lenge, men ikke funnet et pent mønster. Denne er nydelig. Deilig retrostil. Og utrolig god i Alpaca, kan jeg tenke meg.
14.06.2006 - 10:31
Milk & Chocolate |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa með norsku mynstri úr tveimur þráðum DROPS Alpaca. Stærð S-XXL
DROPS 97-24 |
||||||||||||||||
MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.1 og M.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ---------------------------------------------------------- PEYSA: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna neðan frá og upp. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 150-162-180-198-216 lykkjur á hringprjón 3,5 með 2 þráðum ljós brúnum. Skiptið yfir í 2 þræði natur og prjónið stroff * 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðnar *, endurtakið frá *-* í 6 cm. Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og haldið áfram með sléttprjón JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður út til 144-152-176-192-208 lykkjur í 1. umferð. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið (= 72-76-88-96-104 lykkjur á milli prjónamerkja). Þegar stykkið mælist 10 cm er M.1 prjónað (örin á einungis við um ermi). Haldið síðan áfram með sléttprjóni með ljós brúnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 18 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin í 7.-7-.8.-8.-9. hverjum cm alls 3 sinnum = 156-164-188-204-220 lykkjur. Þegar stykkið mælist 34-35-36-37-38 cm prjónið næstu umferð þannig: Fellið af 4 lykkjur fyrir handveg, prjónið 70-74-86-94-102 lykkjur (= framstykki), fellið af 8 lykkjur fyrir handveg, prjónið 70-74-86-94-102 lykkjur (= bakstykki) og fellið af 4 lykkjur fyrir handveg. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað í hring. Fitjið upp 42-48-54-54-60 lykkjur á sokkaprjón 3,5 með 2 þráðum ljós brúnn. Skiptið yfir í 2 þræði natur og prjónið stroff * 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðnar *, endurtakið frá *-* í 6 cm. Skiptið yfir á sokkaprjón 4,5 og haldið áfram með sléttprjón JAFNFRAMT sem lykkjufjöldinn er jafnaður út til 42-45-49-51-55 lykkjur í 1. umferð. Þegar stykkið mælist 8-10-10-10-9 cm er aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi með 4-3½-3½-3½-3½ cm millibili alls 10 sinnum = 62-65-69-71-75 lykkjur. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 15 cm er prjónað M.1. Staðsetjið 1 mynstureiningu mitt á ermi (sjá ör í mynsturteikningu sem merkir miðju), útauknu lykkjurnar eru prjónaðar inn í mynstur – passið uppá að mynstrið færist ekki til. Þegar stykkið mælist 46-45-45-45-44 cm fellið af 8 lykkjur mitt undir ermi = 54-57-61-63-67 lykkjur. Geymið stykkið og prjónið aðra ermi. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 248-262-294-314-338 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í allar skiptingarnar á milli fram- og bakstykkis og erma = 4 prjónamerki. Haldið áfram með sléttprjón JAFNFRAMT er úrtaka fyrir laskalínu. Prjónið 2-3-2-1-2 umferðir áður en úrtakan byrjar. Nú eru 8 úrtökur í hverri úrtökuumferð. Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: 2 lykkjur slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir. Fækkið lykkjum í 4. hverri umferð 0-0-4-5-5 sinnum, síðan í annarri hverri umferð 4-4-0-0-0 sinnum = 216-230-262-274-298 lykkjur. Prjónið 3-4-2-1-2 umferðir með ljós brúnum JAFNFRAMT sem lykkjufjöldinn er jafnaður til 216-225-261-270-297 lykkjur í 1. umferð. Prjónið og fækkið lykkjum eftir M.2. Á eftir síðustu úrtöku eru 120-125-145-150-165 lykkjur á prjóni. Prjónið nú 1 umferð natur jafnframt er lykkjum fækkað til 102-108-108-114-120 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5 og prjónið stroff * 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðnar *, endurtakið frá *-* með natur í 12 cm. Fellið síðan af. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 19 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 97-24
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.