Tine (Admin) skrifaði:
Hoi Irma, Je hebt gelijk. Er staat ook 297 in het originale patroon, dus een klein foutje. Ik zal het wijzigen en bedankt voor je opmerking! :o)
13.01.2007 - 23:11
Irma skrifaði:
Bij het breien van de ronde pas, blijkt dat het aantal steken wat je moet minderen niet klopt, want het stekenaantal moet deelbaar zijn door 9 en van alle maten is dat zo behalve bij de grootste. In het patroon staat minderen tot 292, maar dat moet zijn tot 297
12.01.2007 - 03:46
Drops design skrifaði:
Hei! Har du husket å bruke utskriftsvennlig versjon (Skriv ut siden)? Hvis ikke kan deler av teksten mangle. Dersom det er noe annet du mener hører vi gjerne fra deg igjen. Mvh Garnstudio/Drops Design
03.01.2007 - 10:59
Marte skrifaði:
Hjelp! Fin genser, men mønsterrapporten er ikke fullstendig gjengitt. Får derfor ikke til mønsteret. Noen som kan hjelpe meg med dette??? Har noen fått til en fullstendig mønsterrapport???
25.12.2006 - 22:16Helen skrifaði:
Er denne enkel eller vanskelig å strikke?
24.10.2006 - 13:11viktoira skrifaði:
åkäj, nu är denna tröja min favvo xD
23.09.2006 - 10:23
Grete skrifaði:
bare ett ord som må sies.. vakker...
17.09.2006 - 13:40
Renee skrifaði:
Exquisite detail in this pattern. I can't wait for the weather to get cold so that I can wear this one!!
15.09.2006 - 22:14Siril skrifaði:
Perfekt! Denne må vi ha med!
10.09.2006 - 16:44
Fía skrifaði:
Den har jeg tenkt mig at strikke. Den skal med.
10.09.2006 - 13:38
Milk & Chocolate |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa með norrænu mynstri með 2 þráðum DROPS Alpaca. Stærð S-XXL
DROPS 97-24 |
||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.1 og M.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 150-162-180-198-216 lykkjur á hringprjón 3,5 með 2 þráðum ljós brúnn DROPS Alpaca. Skiptið yfir í 2 þræði natur og prjónið stroff * 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* í 6 cm. Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og haldið áfram í sléttprjói JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður út til 144-152-176-192-208 lykkjur í 1. umferð. Setjið 1 merki í hvora hlið (= 72-76-88-96-104 lykkjur á milli merkja). Þegar stykkið mælist 10 cm er M.1 prjónað (örin á einungis við um ermi). Haldið síðan áfram í sléttprjóni með litnum ljós brúnn. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 18 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði merkin með 7-7-8-8-9 cm millibili alls 3 sinnum = 156-164-188-204-220 lykkjur. Þegar stykkið mælist 34-35-36-37-38 cm prjónið næstu umferð þannig: Fellið af 4 lykkjur fyrir handveg, prjónið 70-74-86-94-102 lykkjur eins og áður (= framstykki), fellið af 8 lykkjur fyrir handveg, prjónið 70-74-86-94-102 lykkjur eins og áður (= bakstykki) og fellið af 4 lykkjur fyrir handveg. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað í hring, neðan frá og upp. Fitjið upp 42-48-54-54-60 lykkjur á sokkaprjón 3,5 með 2 þráðum ljós brúnn DROPS Alpaca. Skiptið yfir í 2 þræði í litnum natur og prjónið stroff * 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* í 6 cm. Skiptið yfir á sokkaprjón 4,5 og haldið áfram í sléttprjóni JAFNFRAMT sem lykkjufjöldinn er jafnaður út til 42-45-49-51-55 lykkjur í 1. umferð. Þegar stykkið mælist 8-10-10-10-9 cm er aukið út um 2 lykkjur fyrir miðju undir ermi með 4-3½-3½-3½-3½ cm millibili alls 10 sinnum = 62-65-69-71-75 lykkjur. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 15 cm er prjónað M.1. Staðsetjið 1 mynstureiningu fyrir miðju á ermi (sjá ör í mynsturteikningu sem merkir miðju), útauknar lykkjur eru prjónaðar inn í mynstur – passið uppá að mynstrið færist ekki til. Þegar stykkið mælist 46-45-45-45-44 cm fellið af 8 lykkjur fyrir miðju undir ermi = 54-57-61-63-67 lykkjur. Geymið stykkið og prjónið aðra ermi. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handvegi = 248-262-294-314-338 lykkjur. Setjið 1 merki í allar skiptingarnar á milli fram- og bakstykkis og erma = 4 merki. Haldið áfram í sléttprjóni JAFNFRAMT er úrtaka fyrir laskalínu. Prjónið 2-3-2-1-2 umferðir áður en úrtakan byrjar. Nú eru 8 úrtökur í hverri úrtökuumferð. Fækkið lykkjum á undan merki þannig: 2 lykkjur slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir merki þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir. Fækkið lykkjum í 4. hverri umferð 0-0-4-5-5 sinnum, síðan í annarri hverri umferð 4-4-0-0-0 sinnum = 216-230-262-274-298 lykkjur. Prjónið 3-4-2-1-2 umferðir með litunum ljós brúnn JAFNFRAMT sem lykkjufjöldinn er jafnaður til 216-225-261-270-297 lykkjur í 1. umferð. Prjónið og fækkið lykkjum eftir M.2. Á eftir síðustu úrtöku eru 120-125-145-150-165 lykkjur á prjóni. Prjónið nú 1 umferð í litnum natur jafnframt er lykkjum fækkað til 102-108-108-114-120 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5 og prjónið stroff * 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* með litnum natur í 12 cm. Fellið síðan af. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 13 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 97-24
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.