Marit Cecilie skrifaði:
Takk for svar:) Jeg økte 2 masker før ansiktet, deretter 3 før, 4 før osv, for jeg trodde det skulle skrå utover (blir en skrå linje ut fra ansiktet). Men skal alle økes like langt fra ansiktet? F.eks innenfor den ytterste masken hver 2. omgang? Mvh Marit Cecilie
30.11.2009 - 17:45
DROPS Design skrifaði:
Du øker i slutten av pinnen (åpning til anskitet).
29.11.2009 - 20:09
Marit Cecilie skrifaði:
Hei, jeg lurer på en ting. På slutten av oppskriften står det: "Når arb måler 11-12-13 (14-15) cm økes det i hver side mot midt foran på hver 2.p: 1 m 4-4-4 (5-5) ganger". Hvor nært midt foran (hvor nært åpningen til ansiktet) skal disse legges opp? Er det disse som legges opp for å lage de to lengre "ørene" på siden der duskene skal festes? Lurer veldig på dette, og gleder meg veldig til å få luen ferdig. Mvh Marit Cecilie
28.11.2009 - 16:35
TetaBaltjeoff skrifaði:
Hi, I'm a new buyer, solely registered on your forum. I count for your message, I chose the chide sector - this. warm monicker - garnstudio.se.
14.01.2009 - 00:20
Kate skrifaði:
Hallo Drops Deutsch und Huguette, vielen Dank für Eure Antworten. Genau so kenne ich das auch, aber in der Anleitung zu dieser Mütze steht: "Nach 19-21-22 (24-26) cm, vom Markierungsfaden, abk." und das ist falsch, denn der Maschenstich wird doch direkt von der Nadel genäht, da wird nicht zuerst abgekettet!! Könnte man vielleicht in der Anleitung ändern. Aber auf jeden Fall vielen Dank für Eure vielen schönen Anleitungen; ich schaue bestimmt mal wieder rein! Kate
21.12.2008 - 15:35
Huguette skrifaði:
Nein, man naeht die teile zusamen auf ein bestimte weise. Man nimt das faedschen (auf die naehnadel) zwischen den zwei letsten maschen von ersten teil und dan das selbe am zweiten teil. uzw... wen man 2 bis 3cm hat ziet man den fahden. Dan sieht man keine naht mehr auf der rechten seite.viel gluck
14.12.2008 - 11:26
DROPS Deutsch skrifaði:
Mit Maschenstich meint man einen Nähstich der wie eine rechte Masche aussieht.
11.12.2008 - 09:02
Kate skrifaði:
Hallo, wie kann ich die Mütze mit Maschenstichen zusammennähen, wenn ich vorher abgekettet habe - das gibt doch keinen Sinn. Oder soll da oben so eine dicke Naht sein? Vielen Dank für eine schnelle Hilfe - gerne auch in Englisch Danke Kate
10.12.2008 - 14:18
Drops Deutsch skrifaði:
Vielen Dank für den Tipp!
07.11.2008 - 10:19
Teresa skrifaði:
In der Anleitung ist ein Fehler unterlaufen. Das Modell wird mit einer Rundstricknadel 4,5 begonnen, nicht mit 2,5!!! Vergleicht hierzu auch die Anleitung z.B. in englisch.... Grüße, Teresa
07.11.2008 - 09:28
Funny Jester#funnyjesterhood |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð balaclava / lambhúshetta / húfa fyrir börn með hálsskjóli og dúskum úr DROPS Alpaca. Stærð 1 mán - 4 ára.
DROPS Baby 14-28 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- LAMBHÚSHETTA / BALACLAVA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring neðan frá og upp. LAMBHÚSHETTA / BALACLAVA: Fitjið upp 144-153-162 (180-198) lykkjur á hringprjóna 4,5 með 2 þráðum. Prjónið 8 umferðir í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan stroff þannig: * 7 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn. Þegar stykkið mælist 3-4-4 (5-5) cm er fækkað um 1 lykkju í öllum brugðnu mynstureiningum með því að prjóna saman 2 fyrstu brugðnu lykkjurnar = 128-136-144 (160-176) lykkjur á prjóni. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umferð 4 sinnum til viðbótar = 64-68-72 (80-88) lykkjur á prjóni (= 2 lykkjur brugðið og 2 lykkjur slétt umferðina hringinn). Stykkið mælist ca 7-8-8 (9-9) cm. Prjónið áfram í stroffprjóni þar til stykkið mælist 11-12-13 (14-15) cm. Setjið 1 prjónamerki fyrir miðju að aftan og 1 við miðju framan á stykki. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið nú sléttprjón. Þegar stykkið mælist 1-2-2 (3-4) cm frá prjónamerki eru settar 10-10-12 (12-14) lykkjur við miðju að framan á þráð (= op fyrir andlit). LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Prjónið sléttprjón fram og til baka JAFNFRAMT er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið í annarri hverri umferð 2-2-2 (3-4) sinnum. JAFNFRAMT er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki við miðju að aftan í annarri hverri umferð: 4-4-4 (5-5) sinnum. Eftir alla útaukningu og úrtöku eru 58-62-64 (72-76) lykkjur á prjóni. Þegar stykkið mælist 11-12-13 (14-15) cm er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið við miðju að framan í annarri hverri umferð 4-4-4 (5-5) sinnum. Fitjið síðan upp 6-6-8 (8-12) lykkjur við miðju að framan yfir opi = 72-76-80 (90-98) lykkjur. Stykkið er prjónað til loka í hring. Þegar stykkið mælist 19-21-22 (24-26) cm frá prjónamerki eru allar lykkjur felldar laust af. FRÁGANGUR: Leggið húfuna saman tvöfalda með op fyrir andliti fram og saumið efst saman með lykkjuspori. Prjónið upp ca 68-88 lykkjur meðtaldar lykkjur af þræði (deilanlegt með 4) með 2 þráðum skipt jafnt niður á sokkaprjóna 4,5 í kringum op fyrir andlit. Prjónið 1 umferð brugðið og 1 umferð slétt, haldið áfram með stroffprjón = 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur brugðið. Þegar kanturinn mælist 4-4-5 (5-6) cm fellið af allar lykkjur með slétt yfir slétt og brugðið yfir brugðið. Leggið kantinn saman tvöfaldan og saumið niður. DÚSKAR: Gerið 2 þétta dúska 4 cm að þvermáli. Saumið 1 dúsk í hvora hlið efst á húfunni. LEIKFÖNG: DROPS Baby 13-36 og DROPS Baby 13-34. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #funnyjesterhood eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 18 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 14-28
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.