DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2970.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Funny Jester

Prjónuð balaclava / lambhúshetta / húfa fyrir börn með hálsskjóli og dúskum úr DROPS Alpaca. Stærð 1 mán - 4 ára.

DROPS Baby 14-28
DROPS Design
Garnflokkur A

Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Höfuðmál: ca 40/42 - 42/44 44/46 (48/50 - 50/52) cm

Efni:
DROPS Alpaca frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
150-150-150 (200-200) gr nr 2917, turkos

DROPS HRINGPRJÓNAR OG SOKKAPRJÓNAR NR 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að 18 lykkjur og 23 umferðir með sléttprjóni með 2 þráðum verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2970.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

LAMBHÚSHETTA / BALACLAVA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring neðan frá og upp.

LAMBHÚSHETTA / BALACLAVA:
Fitjið upp 144-153-162 (180-198) lykkjur á hringprjóna 4,5 með 2 þráðum.
Prjónið 8 umferðir í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan stroff þannig: * 7 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn.
Þegar stykkið mælist 3-4-4 (5-5) cm er fækkað um 1 lykkju í öllum brugðnu mynstureiningum með því að prjóna saman 2 fyrstu brugðnu lykkjurnar = 128-136-144 (160-176) lykkjur á prjóni. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umferð 4 sinnum til viðbótar = 64-68-72 (80-88) lykkjur á prjóni (= 2 lykkjur brugðið og 2 lykkjur slétt umferðina hringinn). Stykkið mælist ca 7-8-8 (9-9) cm. Prjónið áfram í stroffprjóni þar til stykkið mælist 11-12-13 (14-15) cm.
Setjið 1 prjónamerki fyrir miðju að aftan og 1 við miðju framan á stykki.
HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Prjónið nú sléttprjón. Þegar stykkið mælist 1-2-2 (3-4) cm frá prjónamerki eru settar 10-10-12 (12-14) lykkjur við miðju að framan á þráð (= op fyrir andlit).
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
Prjónið sléttprjón fram og til baka JAFNFRAMT er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið í annarri hverri umferð 2-2-2 (3-4) sinnum. JAFNFRAMT er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki við miðju að aftan í annarri hverri umferð: 4-4-4 (5-5) sinnum. Eftir alla útaukningu og úrtöku eru 58-62-64 (72-76) lykkjur á prjóni.
Þegar stykkið mælist 11-12-13 (14-15) cm er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið við miðju að framan í annarri hverri umferð 4-4-4 (5-5) sinnum. Fitjið síðan upp 6-6-8 (8-12) lykkjur við miðju að framan yfir opi = 72-76-80 (90-98) lykkjur. Stykkið er prjónað til loka í hring. Þegar stykkið mælist 19-21-22 (24-26) cm frá prjónamerki eru allar lykkjur felldar laust af.

FRÁGANGUR:
Leggið húfuna saman tvöfalda með op fyrir andliti fram og saumið efst saman með lykkjuspori.
Prjónið upp ca 68-88 lykkjur meðtaldar lykkjur af þræði (deilanlegt með 4) með 2 þráðum skipt jafnt niður á sokkaprjóna 4,5 í kringum op fyrir andlit. Prjónið 1 umferð brugðið og 1 umferð slétt, haldið áfram með stroffprjón = 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur brugðið. Þegar kanturinn mælist 4-4-5 (5-6) cm fellið af allar lykkjur með slétt yfir slétt og brugðið yfir brugðið.
Leggið kantinn saman tvöfaldan og saumið niður.

DÚSKAR:
Gerið 2 þétta dúska 4 cm að þvermáli. Saumið 1 dúsk í hvora hlið efst á húfunni.

LEIKFÖNG: DROPS Baby 13-36 og DROPS Baby 13-34.

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 14-28

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (75)

country flag Dittrich wrote:

Ich hatte ein Problem mitder Angabe "glatt stricken". Sicherer wäre, wenn die Bezeichnung re oder li mit erscheint.Ich habe mir zur Sicherheit das Foto angesehen.Da war es mir auch klar, was gemeint war.Danke für die schöne Anleitung.

25.12.2013 - 20:01

country flag Bunel wrote:

Bonjour, je pense qu'il manque des informations. Avant de remonter les mailles du front, combien doit-on faire de centimètre après les dernières augmentations?

21.11.2013 - 20:37

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Bunel, A 11-12-13 (14-15) cm de hauteur totale, augmentez de chaque côté milieu devant tous les 2 rangs : 4-4-4 (5-5) fois 1 m. Quand toutes ces augmentations sont faites, montez les mailles du front au milieu devant et continuez en rond sur toutes les mailles. Bon tricot!

22.11.2013 - 09:34

country flag Jdankmeyer wrote:

Meerder bij een hoogte van 11-12-13 (14-15) cm langs de middenvoor in elke 2e nld: 4-4-4 (5-5) x 1 st. Dit maakt niet duidelijk vanaf waar het 12-13 (14-15) cm moet tellen.

12.11.2013 - 20:55

DROPS Design answered:

Hoi. Het is een totale hoogte van 11-12-13 (14-15) cm - dus vanaf de opzetnld. Dit is standaard bij alle DROPS patronen tenzij anders wordt vermeldt in het patroon. Veel plezier verder.

13.11.2013 - 15:13

country flag Ashleigh Dudics wrote:

I started this hat and did great until it called to make the opening for the face. The whole part is confusing to me. Is there an easier way to explain this part?

10.10.2013 - 22:29

DROPS Design answered:

Dear Mrs Dudics, the hat is working from bottom top, ie you start with ribbing (neck) and then put the middle sts in a st holder for the opening for face, continue back and forth (as for a hood for example) with dec & inc as stated until forehead. You will continue in the round, casting on new sts for middle front until finished measurements. You will then pick up sts around (sts on the st holder + around the opening + sts cast on for forehead) to work the border. Happy knitting!

11.10.2013 - 09:52

country flag Lisbeth Andersen wrote:

Hei, jeg lurer på en ting. På slutten av oppskriften står det: "Når arb måler 11-12-13 (14-15) cm økes det i hver side mot midt foran på hver 2.p: 1 m 4-4-4 (5-5) ganger". Hvor nært midt foran (hvor nært åpningen til ansiktet) skal disse legges opp? Er det disse som legges opp for å lage de to lengre "ørene" på siden der duskene skal festes? Lurer veldig på dette, og gleder meg veldig til å få luen ferdig.M.V.H.Lisbeth Andersen

18.09.2013 - 09:07

DROPS Design answered:

Det er i yderste maske mod midt foran du øker. Det har ikke nogt med ørene at gøre. Ørerne får du når du syr huen sammen.

02.10.2013 - 14:45

country flag Coraline wrote:

Bonjour, les mailles qu'on doit mettre en attentes doivent t elle être rabattus, si non, que doit t on faire de ses mailles?

22.07.2013 - 07:15

DROPS Design answered:

Bonjour Coraline, les mailles mises en attente (cf vidéo ci-dessous) pour l'ouverture sont ensuite reprises (sous Assemblage) pour tricoter la bordure tout autour du visage. Bon tricot !

22.07.2013 - 10:43

country flag Shirley Johnson wrote:

I am now about to start number five hat...I only need to do another one and all of my Grandchildren will have one for the winter...such a lovely pattern and very easy to follow.Thank you, Shirley

29.05.2013 - 20:49

country flag Lotta wrote:

Vilken längd på rundsticka rekommenderas här?

23.09.2012 - 15:26

DROPS Design answered:

Börja med 60 cm sedan anv du strumpstickorna. Lycka till!

04.10.2012 - 10:54

Drops Design wrote:

Hi Catherine THe whole hat is worked with 2 strands held together. You can use 2 balls or take the yarn both from inside and outside of the same ball.

24.10.2011 - 17:23

country flag Catherine Senior wrote:

I am about to knit the little joker hat it says cast on with 2 strands does this mean I am knitting with 2 balls of alpaca at the same time or is this for the initial casting on I am new to knitting

22.10.2011 - 16:13