Sussie skrifaði:
Ett underbart sett som är lättstickat och blir så fint har stickat det två gånger nu skall sticka det i rött nu.
14.11.2007 - 09:16kattemor skrifaði:
I dag er jeg 45 år og maken din denne er jeg avbildet sammen med min mor og far i 1961. Flott å se de gamle tingene komme igjen.
25.03.2006 - 11:20
camilla skrifaði:
igen den gammeldags stil som jo bare er det sødeste
21.03.2006 - 16:47
Helle skrifaði:
Meget fin model. Den er så sød i sig selv, at den kun vil blive endnu mere bedårende af at blive strikket i f.eks. en råhvid farve.
15.03.2006 - 19:34Gunilla skrifaði:
Nu gäller retro-trenden ser jag... men det är kul! Jättesöt!
15.03.2006 - 13:18skrifaði:
sødt sæt - det vil jeg lave til min søsters datter!
14.03.2006 - 18:01
Lotte skrifaði:
Godt snitt,flott tekstur!!!
14.03.2006 - 12:08
ulla.B skrifaði:
fin modell på detta plagg,ser ut att vara lättstickad. stilig!!
14.03.2006 - 11:38
Ingeborg skrifaði:
Virklig flott,,,,,,,idell til mitt barnebarn
14.03.2006 - 11:00
annemor skrifaði:
Denne er virkelig søt, og absolutt noko eg kunne tenkt meg å lage til vesla mi
13.03.2006 - 19:55
Josie Cardigan#josiecardigan |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa fyrir börn án ermasauma, húfa og sokkar í garðaprjóni úr DROPS Alpaca. Stærð 1 mán - 4 ára.
DROPS Baby 14-7 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kant að framan. 1 hnappagat = fellið af 3. og 4. lykkju frá kanti og fitjið upp 2 nýjar lykkjur yfir þær sem felldar voru af í næstu umferð. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist ca: Stærð 1/3 mán: 18, 21 og 24 cm Stærð 6/9 mán: 18, 22 og 26 cm Stærð 12/18 mán : 19, 22 og 29 cm Stærð 2 ára: 19, 25 og 30 cm Stærð 3/4 ára: 21, 27 og 33 cm ATH: Fellt er af fyrir síðasta hnappagatinu þegar 2 umferðir eru eftir innan við úrtöku í hálsmáli. STROFF (á við um sokka): * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-*. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Peysan er prjónuð í stykkjum sem síðan eru saumuð saman. BAKSTYKKI: Fitjið upp 93-100-108 (115-122) lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 3 með Alpaca og prjónið slétt í hverri umferð (= garðaprjón). Þegar stykkið mælist 16-17-19 (20-22) cm er fækkað um 36 lykkjur jafnt yfir = 57-64-72 (79-86) lykkjur. Þegar stykkið mælist 18-19-21 (22-24) cm eru fitjaðar upp nýjar lykkjur í hvorri hlið fyrir ermi í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í lok hverrar umferðar): 3 lykkjur 3-3-3 (3-2) sinnum, 4 lykkjur 4-4-3 (5-8) sinnum, 10 lykkjur 2-2-3 (3-3) sinnum og síðan 10-13-12 (15-14) lykkjur 1 sinni = 168-180-197 (227-250) lykkjur. Þegar stykkið mælist 25-29-32 (34-37) cm fellið af miðju 19-20-24 (25-26) lykkjurnar af fyrir hálsmáli. Fækkið um 2 lykkjur í næstu umferð við háls = 73-78-85 (99-110) lykkjur eftir á hvorri öxl/ermi. Þegar stykkið mælist 28-30-33 (35-38) cm – stillið af eftir 1 umferð slétt frá röngu – setjið allar lykkjur á þráð. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 52-55-59 (63-66) lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hlið og 5 kantlykkjur við miðju að framan) á hringprjón 3 með Alpaca. Prjónið slétt í hverri umferð (= garðaprjón). Þegar stykkið mælist 16-17-19 (20-22) cm fækkið um 18 lykkjur jafnt yfir (ekki fækka lykkjum yfir kant að framan) = 34-37-41 (45-48) lykkjur. Þegar stykkið mælist 18-19-21 (22-24) cm fitjið upp nýjar lykkjur í hlið fyrir ermi eins og á bakstykki = 90-95-104 (119-130) lykkjur. Þegar stykkið mælist 24-26-29 (30-33) cm fellið af ystu 10-10-12 (13-13) lykkjur við miðju að framan fyrir hálsmáli. Haldið áfram að fækka lykkjum fyrir hálsmáli við miðju að framan í annarri hverri umferð: 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkja 3 sinnum = 73-78-85 (99-110) lykkjur eftir á öxl/ermi. Þegar stykkið mælist 28-30-33 (35-38) cm – stillið af eftir 1 umferð slétt frá röngu – setjið allar lykkjur á þráð. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og vinstra framstykki, nema gagnstætt – fellt er af fyrir HNAPPAGAT meðfram kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. ATH: Fellt er af fyrir síðasta hnappagatinu þegar 2 umferðir eru eftir áður en fellt er af fyrir hálsmáli. FRÁGANGUR: Saumið axla- og hliðarsauma í eitt með lykkjuspori. Saumið sauma undir ermum og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp ca 65-85 lykkjur í kringum hálsmál á hringprjón 3 með Alpaca. Prjónið 6 umferðir slétt (umferð 1 = ranga), fellið síðan laust af með sléttum lykkjum frá röngu. Saumið tölur í. HEKLAÐUR KANTUR: Heklið kant neðst í kringum báðar ermar og meðfram öllu opinu á peysunni (þ.e.a.s. upp meðfram báðum framstykkjum, aftan í hnakka og meðfram öllum neðri kanti) með heklunál 2,5 og Alpaca þannig: 1 fastalykkja í fyrstu lykkju, * 3 loftlykkjur, 1 stuðull í fyrstu af 3 loftlykkjum sem voru heklaðar, 1 fastalykkja í hverja af næstu 3 lykkjum *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn en endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð. Brjótið uppá 4 neðstu cm á hvorri ermi (saumið e.t.v. niður með nokkrum sporum). ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka frá miðju að aftan. SOKKUR: Fitjið upp 48-52-56 (56) lykkjur á prjón 2,5 með 2 þráðum Alpaca. Takið frá annan þráðinn og prjónið STROFF í 5-6-6 (7) cm – passið uppá að næsta umferð sé prjónuð frá röngu. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu jafnframt því sem fækkar um 14-14-18 (14) lykkjur jafnt yfir = 34-38-38 (42) lykkjur. MEÐ GATAUMFERÐ: Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkja slétt, * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* og endið með 1 lykkju slétt. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. ÁN GATAUMFERÐAR: Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð brugðið frá röngu. Setjið nú ystu 12-13-13 (15) lykkjur í hvorri hlið á þráð. Prjónið 4 - 4½ - 5½ (6½) cm með garðaprjóni yfir miðju 10-12-12 (12) lykkjurnar. Setjið lykkjur af þræði til baka á prjóninn og prjónið upp 10-11-13 (16) lykkjur hvoru megin um miðju stykki = 54-60-64 (74) lykkjur alls á prjóni. Prjónið 3-4-5 (5) cm í garðaprjóni yfir allar lykkjur jafnframt eftir 1½ - 2 - 2½ (3) cm er lykkjum fækkað í annarri hverri umferð til loka þannig: Fækkið um 1 lykkju í byrjun og í lokin á stykki og prjónið 2 lykkjur slétt saman hvoru megin við 2 miðju lykkjurnar. Fellið af og saumið saum undir fæti og upp meðfram miðju að aftan í ystu lykkjubogana svo að saumurinn verði ekki þykkur. Þræðið e.t.v. silkiborða í gegnum gataumferðina. HEKLAÐUR KANTUR: Heklið kanti í kringum sokkinn efst með heklunál 2,5 með Alpaca þannig: 1 fastalykkja í fyrstu lykkju, * 3 loftlykkjur, 1 stuðull í fyrstu af 3 loftlykkjunum, 1 fastalykkja í hverja og eina af 3 næstu lykkjum *, endurtakið frá *-* og endið með 1 keðjulykkju í fastalykkju í byrjun á umferð. ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka. HÚFA: Fitjið upp 82-88-100 lykkjur á prjón 2,5 með Alpaca. Prjónið slétt í hverri umferð (= garðaprjón) jafnframt því sem er gert 1 gat í hvorri hlið í 6. hverri umferð með því að fella af 3. lykkju frá kanti og fitja upp 1 nýja lykkju yfir lykkjuna sem felld var af í næstu umferð, þar til stykkið mælist 6 cm. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Prjónið nú sléttprjón en 5 ystu lykkjurnar í hvorri hlið eru prjónaðar slétt í hverri umferð eins og áður (götin í hvorri hlið halda áfram í 6. hverri umferð eins og áður) þar til stykkið mælist 14-15-16 cm. JAFNFRAMT í síðustu umferð frá röngu eru felldar af ystu lykkjur í hvorri hlið og lykkjufjöldinn jafnaður út til 70-80-90 lykkjur. Setjið 5 prjónamerki í stykkið þannig: 1. prjónamerki er sett eftir 1 lykkju, síðan eiga að vera 14-16-18 lykkjur á milli hverra. Nú eru 13-15-17 lykkjur á eftir síðasta prjónamerki. Prjónið garðaprjón jafnframt því sem fækkað er um 1 lykkju á eftir hverju prjónamerki í annarri hverri umferð alls 12-14-16 sinnum = 10 lykkjur eftir á prjóni. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru og festið vel. FRÁGANGUR: Saumið húfuna saman við miðju að aftan í ystu lykkjubogana. Heklið kant í kringum allt opið á húfunni (þ.e.a.s. meðfram uppfitjunarkanti og neðri kanti) með heklunál 2,5 og Alpaca þannig: 1 fastalykkja í fyrstu lykkju*, 3 loftlykkjur, 1 stuðull i fyrstu af 3 loftlykkjum, 1 fastalykkja í hverja af 3 næstu lykkjum *, endurtakið frá *-* og endið með 1 keðjulykkju í fastalykkju í byrjun umferðar. Brjótið uppá kant að framan tvöfaldan að réttu ca 3 cm og saumið niður neðst í hvorri hlið þannig að uppábrotið haldist – passið uppá að götin í neðri kanti passi á móti hvoru öðru. Þræðið silkiborða í gegnum götin í neðri kanti. ------------------------------------------------------- Sól: Sjá DROPS Baby 13-30 Teppi: Sjá DROPS Baby 14-24 ------------------------------------------------------- |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #josiecardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 14-7
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.