Sweet Almond Overall#sweetalmondoverall |
|
![]() |
![]() |
Prjónaður galli fyrir börn úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, garðaprjóni, hettu, eyrum og i-cord. Stærð 0 – 4 ára.
DROPS Baby 53-2 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið i-cord þannig: Prjónið 2 lykkjur snúnar slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið i-cord þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, lyftið 2 lykkjum af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið. Haldið svona áfram frá réttu og frá röngu. LASKALÍNA: Aukið út 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, það á ekki að myndast gat. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um fyrir miðju undir ermum og innan á skálmum): Fækkið í umferð sem prjónuð er slétt. Prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna, prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt saman og 1 lykkju slétt (= 2 lykkjur færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að kantur í hálsmáli hefur verið prjónaður til loka. Fellið síðan af fyrir 6-6-7-7-7-7 næstu hnappagötum með ca 4-5-4½-5-5-5½ cm á milli hverra hnappagata. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- GALLI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Allur gallinn er prjónaður í garðaprjóni, með 2 lykkjur i-cord í hvorri hlið fyrir miðju að framan. Berustykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður með útaukningu fyrir laskalínu. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna þar til kantlistinn að framan hefur verið prjónaður til loka, á meðan ermarnar bíða. Eftir kantlistann að framan er stykkið sett saman og síðan prjónað í hring í garðaprjóni. Stykkið skiptist fyrir skálmar og hvor skálm er prjónuð í hring. Síðan eru ermarnar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin er prjónuð hetta með eyrum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 58-58-66-70-78-82 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Air. Prjónið 8 umferðir GARÐAPRJÓN prjónað fram og til baka með 2 lykkjur I-CORD í hvorri hlið – lesið leiðbeiningar að ofan (= 8 umferðir). Setjið 1 merki innan við lista að framan í annarri hlið á stykki (= miðja að framan), stykkið er mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Nú eru sett 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett á milli 2 lykkja, þessar 2 lykkjur eru kallaðar fyrir laskalykkjur og auka á út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar. Teljið 12-12-14-14-16-16 lykkjur (= vinstra framstykki), setjið 1. merki á undan næstu lykkju, teljið 8-8-8-10-10-12 lykkjur (= ermi), setjið 2. merki á undan næstu lykkju, teljið 18-18-22-22-26-26 lykkjur (= bakstykki), setjið 3. merki á undan næstu lykkju, teljið 8-8-8-10-10-12 lykkjur (= ermi), setjið 4. merki á undan næstu lykkju. Það eru 12-12-14-14-16-16 lykkjur eftir á prjóninum fyrir hægra framstykki. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið garðaprjón með i-cord í hvorri hlið fram og til baka og aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við laskalykkjurnar – lesið leiðbeiningar að ofan með útskýringu hvernig auka á út. Munið eftir að fella af fyrir HNAPPAGAT – lesið leiðbeiningar að ofan. Aukið út fyrir laskalínu eins og útskýrt er að neðan, aukið er út hvoru megin við laskalykkjurnar þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar = 8 lykkjur fleiri. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið slétt og prjónið uppsláttinn eins og útskýrt er að ofan. UMFERÐ 3: Prjónið slétt og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar = 8 lykkjur fleiri. UMFERÐ 4: Prjónið slétt og prjónið uppsláttinn eins og útskýrt er að ofan. UMFERÐ 5: Prjónið slétt án útaukninga. UMFERÐ 6: Prjónið slétt án útaukninga. Prjónið UMFERÐ 1 til 6 alls 5-5-6-5-6-5 sinnum (= 30-30-36-30-36-30 umferðir prjónaðar), prjónið síðan umferð 1 og 2 0-0-0-1-1-0 sinnum til viðbótar = 98-114-154-134-158-154 lykkjur í umferð. Munið að fylgja prjónfestunni. Prjónið síðan og aukið út fyrir laskalínu þannig: UMFERÐ 1: Prjónið slétt og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar = 8 lykkjur fleiri. UMFERÐ 2: Prjónið slétt og prjónið uppsláttinn eins og útskýrt er að ofan. UMFERÐ 3: Prjónið slétt og aukið út fyrir laskalínu á framstykkjum og á bakstykki, ekki er aukið út yfir ermar = 4 lykkjur fleiri. UMFERÐ 4: Prjónið slétt og prjónið uppsláttinn eins og útskýrt er að ofan. UMFERÐ 5: Prjónið slétt án útaukninga. UMFERÐ 6: Prjónið slétt án útaukninga. Prjónið UMFERÐ 1 til 6 alls 3-3-2-4-3-5 sinnum (= 18-18-12-24-18-30 umferðir prjónaðar = 3-3-2-4-3-5 sinnum útaukning á ermum og 6-6-4-8-6-10 sinnum útaukning á framstykkjum/bakstykki) = 174-182-194-198-210-222 lykkjur í umferð. Öll útaukning fyrir laskalínu hefur nú verið gerð til loka, aukið hefur verið út 16-17-17-18-18-20 sinnum á framstykkjum/bakstykki og 13-14-15-14-15-15 sinnum á ermum. Stykkið mælist nú ca 12-13-13-14-14-15 cm frá merki fyrir miðju að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 28-29-31-32-34-36 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 34-36-38-38-40-42 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 50-52-56-58-62-66 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 34-36-38-38-40-42 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 28-29-31-32-34-36 lykkjur eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 114-122-130-138-146-154 lykkjur. Prjónið eins og áður þar til stykkið mælist 28-34-36-38-41-44 cm frá merki fyrir miðju að framan. Nú er stykkið sett saman og prjóna á í hring – prjónið frá réttu eins og útskýrt er að neðan: Prjónið eins og áður þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, leggið þessar 6 lykkjur ofan á síðustu 6 lykkjur frá vinstra framstykki og prjónið lykkjurnar saman 2 og 2 (prjónið 1 lykkju frá hægra framstykki saman með 1 lykkju frá vinstra framstykki). Til að garðaprjónið passi þá þarf að prjóna 2 og 2 lykkjur slétt saman 3 sinnum, síðan er prjónað 2 og 2 lykkjur brugðið saman = 108-116-124-132-140-148 lykkjur. Prjónið síðan GARÐAPRJÓN prjónað í hring yfir allar lykkjur – lesið leiðbeiningar að ofan – setjið 1 merki fyrir miðju í 6 lykkjurnar sem prjónaðar voru saman – þetta er núna byrjun umferðar. Prjónið hringinn þar til stykkið mælist 31-37-39-41-44-47 cm frá merki fyrir miðju að framan (það hafa verið prjónaðir 3 cm hringinn yfir allar lykkjur). Nú á að skipta stykkinu fyrir skálmar og hvor skálm er prjónuð áfram hvor fyrir sig. Klippið þráðinn. SKIPTING FYRIR SKÁLMAR: Stykkið skiptist upp fyrir skálmar án þess að lykkjurnar séu prjónaðar: Byrjið 3 lykkjum á undan merki í byrjun umferðar, setjið fyrstu 6 lykkjurnar (= miðja að framan) á lykkjuhaldara, setjið næstu 48-52-56-60-64-68 lykkjur á þráð (= vinstri skálm), setjið næstu 6 lykkjur á lykkjuhaldara (= miðja að aftan), það eru 48-52-56-60-64-68 lykkjur eftir á prjóni fyrir hægri skálm. Hvor skálm er prjónuð áfram hvor fyrir sig. HÆGRI SKÁLM: = 48-52-56-60-64-68 lykkjur. Setjið 1 merki í byrjun umferðar (= að innanverðu á skálm) og prjónið garðaprjón í hring. Þegar prjónuð hefur verið 1 umferð, fækkið um 2 lykkjur að innanverðu á skálminni – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 3. hverri umferð alls 3 sinnum = 42-46-50-54-58-62 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til skálmin mælist 14-18-24-33-37-41 cm frá skiptingunni, passið uppá að næsta umferð sé umferð sem prjónuð er brugðið. Prjónið brugðið þar til 21-23-25-27-29-31 lykkjur eru eftir í umferð, fellið af næstu 19-21-23-25-27-29 lykkjur, prjónið síðustu 2 lykkjurnar í umferð brugðið = 23-25-27-29-31-33 lykkjur í umferð. Prjónið garðaprjón fram og til baka í 8 cm. Fellið af og klippið þráðinn. VINSTRI SKÁLM: Prjónið á sama hátt og hægri skálm, en þegar skálmin mælist 14-18-24-33-37-41 cm frá skiptingunni prjónið þannig, passið uppá að það sé umferð sem prjónuð er brugðið: Prjónið 2 lykkjur brugðið, fellið af næstu 19-21-23-25-27-29 lykkjur, prjónið brugðið yfir næstu 21-23-25-27-29-31 lykkjur = 23-25-27-29-31-33 lykkjur í umferð. Prjónið garðaprjón fram og til baka í 8 cm. Fellið af og klippið þráðinn. ERMAR: Setjið 34-36-38-38-40-42 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á sokkaprjóna 3,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 4-6-6-8-8-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 38-42-44-46-48-50 lykkjur. Setjið 1 merki fyrir miðju í 4-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkið. Prjónið garðaprjón í hring - JAFNFRAMT þegar prjónuð hefur verið 1 umferð eftir skiptinguna, fækkið um 2 lykkjur fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 3 cm = 34-38-40-42-44-46 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist ca 15-18-22-26-30-33 cm frá skiptingunni, stillið af að næsta umferð sé prjónuð brugðið. Byrjið við merkið, prjónið fyrstu 9-10-11-11-12-12 lykkjurnar, fellið af næstu 16-18-18-20-20-22 lykkjur og prjónið síðustu 9-10-11-11-12-12 lykkjur í umferð = 18-20-22-22-24-24 lykkjur í umferð. Prjónið garðaprjón fram og til baka yfir þessar lykkjur í 8 cm. Fellið af og klippið þráðinn. HETTA: Notið hringprjón 3,5 og prjónið upp 1 lykkju í hverja lykkju frá uppfitjunarkanti efst í hálsmáli = 58-58-66-70-78-82 lykkjur. Prjónið garðaprjón fram og til baka með 2 lykkjum i-cord í hvorri hlið, JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út um 6 lykkjur jafnt yfir = 64-64-72-76-84-88 lykkjur. Prjónið þar til hettan mælist 14-15-16-18-18-19 cm. Setjið 20-20-22-24-27-29 lykkjur í hvorri hlið á sitt hvorn hjálparprjóninn (= miðju 24-24-28-28-30-30 lykkjurnar eru eftir í umferðinni). Klippið þráðinn, byrjið frá réttu og prjónið yfir 24-24-28-28-30-30 lykkjur í umferð. Prjónið slétt þar til 1 lykkja er eftir í umferð, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið fyrstu lykkjuna af hjálparprjóni, steypið lyftu lykkjunni yfir, snúið, prjónið þar til 1 lykkja er eftir, lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið fyrstu lykkjuna af hjálparprjóni, steypið lyftu lykkjunni yfir. Lykkjurnar frá miðjustykki eru prjónaðar saman með lykkjum af hjálparprjóni með þessari aðferð þar til allar lykkjur hafa verið prjónaðar saman. JAFNFRAMT eru prjónaðar stuttar umferðir til að forma eyrun eins og útskýrt er að neðan: Prjónið 8-8-12-14-16-18 umferðir með því að prjóna lykkjurnar saman í lok hverrar umferðar. Nú eru sett 2 merki í stykkið, merkin eru sett í 4-4-4-4-6-6 lykkju inn frá hvorri hlið, það eru 16-16-16-16-18-18 lykkjur á milli lykkja með merki. Lykkjurnar með merki eru kallaðar eyrna-miðjulykkja. ÚTAUKNING FYRIR EYRA: FRÁ RÉTTU: Prjónið fram að fyrstu eyrna-miðjulykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið eyrna-miðjulykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið fram að annarri eyrna-miðjulykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið eyrna-miðjulykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið út umferðina. Snúið stykkinu og prjónið til baka, uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt frá röngu. Aukið út á sama hátt 1 sinni til viðbótar. ÚTAUKNING FYRIR EYRA SKREF 1-4: 1- FRÁ RÉTTU: Prjónið fram að fyrstu eyrna-miðjulykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið eyrna-miðjulykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur. Snúið stykkinu og prjónið 7 lykkjur til baka jafnframt því sem uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt frá röngu (= 2 nýjar lykkjur í eyra). Snúið stykkinu. 2- FRÁ RÉTTU: Prjónið fram að fyrstu eyrna-miðjulykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið eyrna-miðjulykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið síðan fram að annarri eyrna-miðjulykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið eyrna-miðjulykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur (= 2 nýjar lykkjur fyrir hvort eyra). Snúið stykkinu og prjónið 7 lykkjur til baka jafnframt því sem uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt frá röngu. Snúið stykkinu. 3-FRÁ RÉTTU: Prjónið fram að annarri eyrna-miðjulykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið eyrna-miðjulykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið út umferðina (= 2 nýjar lykkjur fyrir annað eyrað). Snúið stykkinu. 4-FRÁ RÖNGU: Prjónið 1 umferð yfir allar lykkjur. Það eru nú 9 lykkjur í hvoru eyra. Prjónið SKREF 1-4 alls 3-3-3-3-4-4 sinnum, aukið er út hvoru megin við eyrna-miðjulykkju og prjónaðar eru stuttar umferðir yfir fleiri og fleiri lykkjur, eftir alla útaukningu eru 17-17-17-17-21-21 lykkjur í hvoru eyra. ÚRTAKA FYRIR EYRA SKREF 1-3: 1-FRÁ RÉTTU: Prjónið þar til 8-8-8-8-10-10 lykkjur eru eftir á undan fyrstu eyrna-miðjulykkju, prjónið 6-6-6-6-8-8 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið eyrna-miðjulykkju, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 6-6-6-6-8-8 lykkjur (= 2 lykkjur færri í hvoru eyra). Snúið stykkinu og prjónið yfir 15-15-15-15-19-19 lykkjur frá röngu. Snúið stykkinu. 2-FRÁ RÉTTU: Prjónið 5-5-5-5-7-7 lykkjur, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið eyrna-miðjulykkju, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið þar til 8-8-8-8-10-10 lykkjur eru eftir á undan annarri eyrna-miðjulykkju, prjónið 6-6-6-6-8-8 lykkjur, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið eyrna-miðjulykkju, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 6-6-6-6-8-8 lykkjur (= 2 lykkjur færri í hvoru eyra). Snúið stykkinu og prjónið yfir 15-15-15-15-19-19 lykkjur frá röngu. Snúið stykkinu. 3-FRÁ RÉTTU: Prjónið 5-5-5-5-7-7 lykkjur, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið eyrna-miðjulykkju, prjónið 2 lykkjur slétt saman og prjónið út umferðina (= 2 lykkjur færri í hvoru eyra). Snúið stykkinu og prjónið 1 umferð til baka frá röngu. Það eru nú 13-13-13-13-17-17 lykkjur í hvoru eyra. Prjónið SKREF 1-3 alls 3-3-3-3-4-4 sinnum, lykkjum er fækkað hvoru megin við lykkjur með merki og prjónaðar eru stuttar umferðir yfir færri og færri lykkjur, eftir alla úrtöku eru 5 lykkjur í hvoru eyra. Munið eftir að prjóna saman í hvorri hlið FÆKKIÐ LYKKJUM FRÁ RÉTTU: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan fyrstu eyrna-miðjulykkju, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið eyrna-miðjulykkju, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið fram að 2 lykkjum á undan annarri eyrna-miðjulykkju, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið eyrna-miðjulykkju, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið út umferðina (= 4 lykkjur færri). Prjónið svona alls 3 sinnum í hverri umferð frá réttu. Þegar allar lykkjur af hjálparprjóni hafa verið prjónaðar saman með miðjustykki er fellt af með sléttum lykkjum frá réttu. Hettan mælist ca 10 til 15 cm frá þar sem lykkjurnar voru settar á hjálparprjón. FRÁGANGUR: Saumið saman 6 lykkjur frá lykkjuhaldara við miðju að framan með 6 lykkjum frá lykkjuhaldara við miðju að aftan – saumið með lykkjuspori, svo saumurinn verði ekki þykkur. Brjótið uppá stykkið/spælana frá skálmum og ermum upp að framhlið og saumið niður í hvorri hlið. Saumið fallega í ysta lykkjuboga á lykkjunni, þannig að saumurinn verði ekki of þykkur. Saumið tölur í vinstra framstykki. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sweetalmondoverall eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 20 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 53-2
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.