Peaceful Bay Jacket#peacefulbayjacket |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Air og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með laskalínu, vafningsstykki, i-cord, klukkuprjóni og belti. Stærð XS - XXXL.
DROPS 271-18 |
||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HÆGRI KANTLISTI MEÐ I-CORD: RÉTTA: Prjónið 1 lykkju brugðið, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. RANGA: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt. VINSTRI KANTLISTI MEÐ I-CORD: RÉTTA: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 1 lykkju brugðið. RANGA: Prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. LASKALÍNA: Öll útaukning er gerð frá réttu. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð frá röngu er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Á UNDAN MERKI (= uppslátturinn snýr til vinstri): Prjónið uppsláttinn brugðið í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn – svo ekki myndist gat. Á EFTIR MERKI (= uppslátturinn snýr til hægri): Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, setjið til baka uppsláttinn yfir á vinstri prjóninn með því að stinga inn vinstri prjóni aftan frá í uppsláttinn (uppslátturinn er núna snúinn). Prjónið uppsláttinn brugðið í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn – svo ekki myndist gat. VAFNINGSSTYKKI: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, aukið út innan við 4 lykkjur í hvorri hlið á stykki (þ.e.a.s. innan við 3 kantlykkjur að framan og 1 lykkjur sléttprjón). Í næstu umferð frá röngu er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Í BYRJUN UMFERÐAR (= uppslátturinn snýr til hægri): Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, setjið til baka uppsláttinn yfir á vinstri prjóninn með því að stinga inn vinstri prjóni aftan frá í uppsláttinn (uppslátturinn er núna snúinn). Prjónið uppsláttinn brugðið í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn – svo ekki myndist gat. Prjónið nýjar lykkjur í sléttprjóni. Í LOK UMFERÐAR (= uppslátturinn snýr til vinstri): Prjónið uppsláttinn brugðið í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn – svo ekki myndist gat. Prjónið nýjar lykkjur í sléttprjóni. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). KLUKKUPRJÓN (á við um belti): UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 1 lykkju slétt, * 1 lykkja brugðið, prjónið 1 lykkju slétt í lykkjuna fyrir neðan næstu lykkju *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju brugðið og 1 lykkju slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 1 lykkju brugðið, * prjónið 1 lykkju slétt í lykkjuna fyrir neðan næstu lykkju, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt í lykkjuna fyrir neðan næstu lykkju, 1 lykkja brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 að loka máli. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Fyrst eru prjónaðir tveir kantlistar fram og til baka. Síðan eru lykkjur fitjaðar upp á milli kantlista fyrir berustykki. Berustykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður með útaukningu fyrir laskalínu og vafningsstykki. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka ,skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin er prjónað belti. Kantlistar frá hvoru framstykki eru saumaðir saman, saumur = miðja að aftan, síðan er kantlistinn saumaður saman við lykkjur aftan í hnakka. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. HÆGRI KANTLISTI MED I-CORD: Fitjið upp 3 lykkjur á sokkaprjóna 5,5 með 1 þræði DROPS Air og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið HÆGRI KANTLISTI MEÐ I-CORD fram og til baka – sjá útskýringu að ofan. Prjónið þar til kantlistinn mælist ca 14-15-15-15-16-16-16 cm – prjónið síðustu umferð frá röngu. Klippið þráðinn og látið lykkjurnar á hjálparprjón. VINSTRI KANLISTI MEÐ I-CORD: Fitjið upp 3 lykkjur á sokkaprjón 5,5 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið VINSTRI KANTLISTI MEÐ I-CORD fram og til baka – sjá útskýringu að ofan. Prjónið þar til kantlisti mælist ca 14-15-15-15-16-16-16 cm – prjónið síðustu umferðina frá röngu. Nú er hægt að fitja upp lykkjur fyrir berustykki á milli kantlista í næstu umferð frá réttu þannig: Notið hringprjón 5,5 og prjónið upp vinstri kantlista með i-cord eins og áður (= 3 lykkjur í kantlista), fitjið upp 50-52-52-54-56-56-56 nýjar lykkjur í umferð, í lokin er prjónaður hægri kantlisti með i-cord eins og áður (= 3 lykkjur í kantlista) = 56-58-58-60-62-62-62 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 3 lykkjur í kantlista eins og áður í hvorri hlið. Setjið 1 merki í stykkið fyrir miðju í umferð (= miðja að aftan), héðan er stykkið mælt frá. Setjið nú 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett í lykkju, þessar lykkjur kallast laskalykkjur og aukið á út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar. Teljið 4 lykkjur (= vinstra framstykki), setjið 1. merkið í næstu lykkju, teljið 12 lykkjur (= ermi), setjið 2. merkið í næstu lykkju, teljið 20-22-22-24-26-26-26 lykkjur (= bakstykki), setjið 3. merkið í næstu lykkju, teljið 12 lykkjur (= ermi), setjið 4. merkið í næstu lykkju. Það eru 4 lykkjur eftir í umferð fyrir hægra framstykki. Prjónið nú sléttprjón fram og til baka með 3 lykkjur í kantlista eins og áður í hvorri hlið samtímis sem aukið er út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við laskalykkjurnar í annarri hverri umferð. SAMTÍMIS er aukið út fyrir VAFNINGSSTYKKI innan við 4 lykkjur í hvorri hlið í alls 9-10-10-11-12-12-12 sinnum í 4. hverri umferð – lesið útskýringar að ofan hvernig á að auka út. Munið að fylgja prjónfestunni. Prjónið og aukið út fyrir laskalínu alls 16-18-20-21-23-24-25 sinnum (= 32-36-40-42-46-48-50 umferðir prjónaðar) – JAFNFRAMT sem aukið er út fyrir VAFNINGSSTYKKI innan við 4 lykkjur í hvorri hlið í 4. hverri umferð (ATH: Fyrsta útaukningin fyrir vafningsstykki er gerð þegar aukið er út fyrir laskalínu í 2. skipti). Nú er ekki lengur aukið út fyrir ermar, heldur er aukið út fyrir framstykkjum og bakstykki í annarri hverri umferð eins og áður samtímis sem haldið er áfram að auka út fyrir vafningsstykki. Aukið út fyrir framstykkin/bakstykkið 4-3-3-3-2-3-4 sinnum til viðbótar (= 8-6-6-6-4-6-8 umferðir prjónaðar). Aukið hefur verið út 20-21-23-24-25-27-29 sinnum á framstykkjum/bakstykki, 16-18-20-21-23-24-25 sinnum á ermum og 9-10-10-11-12-12-12 sinnum fyrir vafningsstykki = 218-234-250-262-278-290-302 lykkjur í umferð. Öll útaukning fyrir laskalínu og vafningsstykki er nú lokið, prjónið síðan án útaukninga þar til stykkið mælist 21-22-24-25-26-28-31 cm frá merki fyrir miðju að aftan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Þegar stykkinu er skipt fyrir fram- og bakstykki og ermar kemur laskalínan til með að vera staðsett aðeins inn á framstykki/bakstykki í stærð XL, XXL og XXXL (í stærð XS, S, M og L skiptist stykkið við laskalínurnar), þ.e.a.s. JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 3 lykkjur í kantlista eins og áður, prjónið 31-33-35-37-40-43-46 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 44-48-52-54-56-56-56 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-10-12-14-16-18 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 62-66-70-74-80-86-92 lykkjur sléttprjón (= bakstykki), setjið næstu 44-48-52-54-56-56-56 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-10-12-14-16-18 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 31-33-35-37-40-43-46 lykkjur sléttprjón, prjónið 3 lykkjur í kantlista eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 142-154-166-178-194-210-226 lykkjur. Prjónið sléttprjón og kantlista eins og áður þar til stykkið mælist 52-54-56-58-59-61-63 cm frá merki fyrir miðju að aftan. Í næstu umferð frá réttu, byrjið stroffið, prjónið þannig: Skipið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið kantlista eins og áður, prjónið A.1 (= stroff með klukkuprjónslykkjum) þar til 3 lykkjur eru eftir (þ.e.a.s. endið með fyrstu lykkju í A.1) JAFNFRAMT sem aukið er út um 1 lykkju fyrir miðju í umferð, prjónið kantlista eins og áður = 143-155-167-177-195-211-227 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að affellingarkanturinn verði ekki of stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 4. hverja lykkju og uppslátturinn er felldur af á hefðbundinn hátt. Peysan mælist 56-58-60-62-64-66-68 cm frá merki fyrir miðju að aftan og ca 60-62-64-66-68-70-72 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 44-48-52-54-56-56-56 lykkjur af erminni frá öðrum þræðinum á hringprjón 5,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-8-10-12-14-16-18 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir erminni – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 50-56-62-66-70-72-74 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 6-8-10-12-14-16-18 nýjar lykkjur undir erminni - umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón í hring - JAFNFRAMT þegar ermin mælist 1 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi - munið eftir LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur með 0-10-10-5-5-4-4 cm millibili alls 0-2-4-6-7-7-7 sinnum = 50-52-54-54-56-58-60 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 41-40-39-39-37-36-34 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5 og prjónið A.1 (= stroff með klukkuprjónslykkjum). Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að affellingarkanturinn verði ekki of stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 4. hverja lykkju og uppslátturinn er felldur af á hefðbundinn hátt. Ermin mælist ca 45-44-43-43-42-41-39 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Kantlistar frá hvoru framstykki eru saumaðir saman, saumur = miðja að aftan, síðan er kantlistinn saumaður við lykkjur aftan í hnakka. BELTI: Notið sokkaprjóna 6 og 1 þráð af hvorri gerð (= 2 þræðir), fitjið upp 9-9-9-9-11-11-11 lykkjur og prjónið KLUKKUPRJÓN – lesið leiðbeiningar að ofan. Prjónið þar til beltið mælist ca 160-170-180-190-200-210-220 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur Beltið er bundið í kringum mittið, þræðið e.t.v. beltið í gegnum nokkrar lykkjur í hvorri hlið á fram- og bakstykki. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #peacefulbayjacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 22 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 271-18
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.