DROPS Super Sale · 30% AFSLÁTTUR á 5 tegundum af ullargarni
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 665.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6650.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Autumn & Winter 26/27

Coffee Bliss Jacket

Prjónuð peysa úr DROPS Merino Extra Fine eða DROPS Lima. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með evrópsku berustykki, v-hálsmáli, i-cord og sjalkraga. Stærð XS - XXXL.

Velja stærð:


DROPS 272-44

#coffeeblissjacket

DROPS Design: Mynstur me-314
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS - S - M - L - XL - XXL - XXXL

GARN:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
500-550-600-700-750-800-900 gr litur 51, Tvöfaldur Latte

Eða notið:
DROPS LIMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
550-600-650-700-800-850-950 gr litur 9026, Kastanía

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: Lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm.

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni með prjóna nr 4 = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 665.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6650.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

0
0

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1:
AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÉTTU:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn.
AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá RÉTTU:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn.

LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2:
AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá RÖNGU:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn.
AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÖNGU:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-3 (á við um í hliðum á fram- og bakstykki):
Byrjið 1 lykkju á undan merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

LEIÐBEININGAR ERMI:
Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist.

LEIÐBEININGAR ÚRTAKA:
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn þannig:
Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

I-CORD AFFELLING:
Þegar síðasta umferð hefur verið prjónuð byrjar affelling þannig:
BYRJUN (= rétta):
Fitjið upp 2 nýjar lykkjur á hægri prjón frá réttu.
Lyftið þessum 2 nýju lykkjum frá hægri prjóni yfir á vinstri prjón þannig að þráðurinn sem prjónað er með sitji 2 lykkjum inn á vinstri prjóni (þegar prjónað er þá herðir þráðurinn sem prjónað er með á stykkinu, þannig að það myndast lítill snúru kantur).
UMFERÐ 1 (rétta):
Prjónið 1 lykkju slétt, prjónið næstu 2 lykkjur snúnar slétt saman. Lyftið til baka 2 lykkjum frá hægri prjóni yfir á vinstri prjón. Ekki snúa stykkinu.
Endurtakið UMFERÐ 1 þar til 2 lykkjur eru eftir á hægri prjóni. Lyftið til baka 2 lykkjum frá hægri prjóni yfir á vinstri prjón. Fellið af.
Saumið eitt lítið spor sem bindur saman byrjun og lokin á I-cord kantinum (= þegar prjónað er í hring).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum.
Stykkið er prjónað samkvæmt útskýringu 1-5.
1. BAKSTYKKI: Fitjið upp lykkjur aftan í hnakka og prjónið bakstykkið fram og til baka niður á við jafnframt því sem aukið er út í hvorri hlið á stykki þar til til fjöldi lykkja á axlavídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið litla skáhallandi öxl.
2. FRAMSTYKKI: Byrjað er á að prjóna kantlista í garðaprjóni og i-cord, það á að sauma þennan lista við uppfitjunarkantinn í hálsmáli í lokin. Prjónið síðan upp lykkjur meðfram annarri öxlinni frá bakstykki, framstykkið prjónað niður á við jafnframt því sem lykkjur eru auknar út við hálsmál. Þetta er endurtekið á hinni öxlinni.
3. BERUSTYKKI: Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar á sama hringprjón – prjónað er þannig:
Prjónið lykkjur frá öðru framstykkinu, prjónið upp lykkjur fyrir ermi meðfram hlið á framstykki, prjónið lykkjur frá bakstykki, prjónið upp lykkjur fyrir ermi meðfram hlið á hinu framstykkinu og prjónið síðustu lykkjur frá framstykki = síðan er berustykkið prjónað yfir allar lykkjur fram og til baka frá miðju að framan.
4. ÚTAUKNING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Jafnframt því sem berustykkið er prjónað er lykkjum aukið út fyrir fram- og bakstykki og ermar, fyrst er aukið út fyrir ermum og síðan er aukið út bæði fyrir fram- og bakstykki og ermum. Útaukning fyrir v-hálsmáli heldur áfram.
5. FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Þegar allar lykkjur hafa verið auknar út og berustykkið hefur verið prjónað að tilgreindu máli, á að skipta stykkinu fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring.

BAKSTYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 30-32-32-34-34-34-38 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Merino Extra Fine eða DROPS Lima.
UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið.
UMFERÐ 2 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 3 lykkjur slétt.
UMFERÐ 3 (= ranga): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 og prjónið 3 lykkjur brugðið, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið brugðið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið 3 lykkjur brugðið.
Á EFTIR UMFERÐ 3:
Prjónið UMFERÐ 2 og 3 alls 12-12-12-12-13-13-13 sinnum (= 24-24-24-24-26-26-26 umferðir prjónaðar), á eftir síðustu útaukningu eru = 78-80-80-82-86-86-90 lykkjur í umferð. Munið að fylgja prjónfestunni. Klippið frá, setjið lykkjurnar á þráð eða á hjálparprjón.

HÆGRI KANTLISTI:
Fitjið upp 18 lykkjur á hringprjón 4 og prjónið þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 15 lykkjur GARÐAPRJÓN – lesið leiðbeiningar að ofan, prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt.
UMFERÐ 2 (= ranga): Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið og prjónið 15 lykkjur í garðaprjóni.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 15 lykkjur í garðaprjóni, prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt.
UMFERÐ 4 (= ranga): Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið og prjónið 8 lykkju í garðaprjóni, snúið og herðið á þræði.
UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið 8 lykkjur í garðaprjóni, prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt.

Prjónið UMFERÐ 2 til 5 þar til kantlistinn mælist 7-8-8-8-8-8-9 cm innst þar sem hann er minnstur/grennstur (= ca ½ hálsvídd að aftan), endið með umferð frá röngu. Setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón.
Síðan er hægra framstykkið prjónað eins og útskýrt er að neðan (það á að prjóna kantlistann saman með hægra framstykki).

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Finnið hægri öxl á bakstykki þannig: Leggið bakstykkið flatt á borð með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjur af þræði/hjálparprjóni snúi að þér, hægri hlið á stykki = hægri öxl.
Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við handveg og prjónið upp lykkjur inn að hálsmáli þannig:
Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónað umferð innan við ystu lykkju = 24-24-24-24-26-26-26 lykkjur, prjónið síðan lykkjur frá kantlista = 42-42-42-42-44-44-44 lykkjur.
Setjið 1 merki í stykkið inn við hálsmál. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessu merki.
Prjónið sléttprjón og kantlista (= 15 lykkjur í garðaprjóni með 3 lykkjur i-cord við miðju að framan), stuttar umferðir eru ekki lengur prjónaðar yfir kantlista.

Nú á að fækka lykkjum í kantlista og auka út fyrir v-hálsmáli innan við kantlista + 2 lykkjur, en áður en úrtöku/útaukningu líkur, á að leggja stykkið til hliðar og vinstra framstykkið er prjónað. Lestu því 3 næstu kafla áður en prjónað er áfram, til að fá yfirsýn yfir hvernig á að prjóna.

ÚRTAKA Í KANTLISTA:
Þegar stykkið mælist 5 cm frá merki, byrjar úrtaka í kantlista. Fækkið lykkjum í hverjum 1½ cm alls 10 sinnum með því að prjóna fyrstu 2 garðaprjónslykkjur í kantlista (séð frá réttu), snúnar slétt saman. Á eftir síðustu úrtöku eru alls 8 lykkjur í kantlista (= 5 lykkjur í garðaprjóni og 3 lykkjur i-cord).

ÚTAUKNING FYRIR HÁLSMÁLI:
Þegar stykkið mælist 7-7-8-8-8-8-8 cm, aukið út lykkjur við hálsmál þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan kantlista, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 2 lykkjur slétt og kantlista eins og áður.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kantlista eins og áður og brugðið yfir þær lykkjur sem eftir eru.
Aukið út fyrir v-hálsmáli í annarri hverri umferð (= hverri umferð frá réttu) alls 12-12-12-12-12-12-14 sinnum, síðan er aukið út í 4. hverri umferð 3-4-4-5-5-5-5 sinnum.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 11-12-12-12-14-14-15 cm leggið stykkið til hliðar, endið með umferð frá röngu.
Klippið þráðinn, setjið lykkjurnar á þráð eða á hjálparprjón, nú er vinstri kantlisti prjónaður og vinstra framstykki eins og útskýrt er að neðan.

VINSTRI KANTLISTI:
Fitjið upp 18 lykkjur á hringprjón 4 og prjónið þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið og prjónið 15 lykkjur í garðaprjóni.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 15 lykkjur garðaprjón, prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt.
UMFERÐ 3 (= rétta): Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið og prjónið 8 lykkjur í garðaprjóni, snúið og herðið á þræði.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 8 lykkjur í garðaprjóni, prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt.
Prjónið UMFERÐ 1 til 4 þar til kantlisti mælist 7-8-8-8-8-8-9 cm innst þar sem stykkið er minnst/grennst (= ca ½ hálsvídd að aftan), endið með umferð frá röngu.
Prjónið síðan vinstra framstykki eins og útskýrt er að neðan (það á að prjóna kantlistann saman með vinstra framstykki).

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Prjónið upp lykkjur meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við hálsmál og prjónið upp lykkjur út að handvegi þannig:
Prjónið eins og áður yfir lykkjur frá kantlista og prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju (= 24-24-24-24-26-26-26 lykkjur) = 42-42-42-42-44-44-44 lykkjur. Setjið 1 merki í stykkið inn við hálsmál. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessu merki, mælt í lykkjustefnu.
Prjónið sléttprjón og kantlista (= 15 lykkjur í garðaprjóni með 3 lykkjur i-cord við miðju að framan), stuttar umferðir eru ekki lengur prjónaðar yfir lykkjur í kantlista.

Nú á að fækka lykkjum í kantlista og auka út fyrir v-hálsmáli innan við kantlista + 2 lykkjur, en áður en úrtöku/útaukningu líkur, á að setja framstykkin og bakstykkið saman og lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermar. Lestu því næstu 3 næstu kafla áður en prjónað er áfram, til að fá yfirsýn yfir hvernig á að prjóna.

ÚRTAKA Í KANTLISTA:
Þegar stykkið mælist 5 cm frá merki, byrjar úrtaka í kantlista. Fækkið lykkjum í hverjum 1½ cm alls 10 sinnum með því að prjóna síðustu 2 garðaprjónslykkjur í kantlista (séð frá réttu), slétt saman. Á eftir síðustu úrtöku eru alls 8 lykkjur í kantlista (= 3 lykkjur i-cord og 5 lykkjur í garðaprjóni).

ÚTAUKNING FYRIR HÁLSMÁL:
Þegar stykkið mælist 7-7-8-8-8-8-8 cm, aukið út lykkjur við hálsmál þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið kantlista + 2 lykkjur sléttprjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið út umferðina.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið og kantlista eins og áður.
Aukið út fyrir v-hálsmáli í annarri hverri umferð (= hverri umferð frá réttu) alls 12-12-12-12-12-12-14 sinnum, síðan er aukið út í 4. hverri umferð 3-4-4-5-5-5-5 sinnum.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 11-12-12-12-14-14-15 cm á að setjia framstykkin og bakstykkið saman og lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermi eins og útskýrt er að neðan. Munið eftir úrtöku í kantlista/útaukningu fyrir v-hálsmáli þegar prjónað er áfram.

BERUSTYKKI:
UMFERÐ 1 (= rétta): Byrjið frá réttu með lykkjur frá vinstra framstykki: Prjónið kantlista eins og áður og slétt þar til 1 lykkja er eftir á framstykki, setjið 1 merki í umferð, prjónið síðustu lykkju frá framstykki slétt (= lykkjan tilheyrir ermi), prjónið upp 22-24-24-24-30-30-32 lykkjur meðfram hlið á vinstra framstykki – lykkjur eru prjónaðar upp innan við ystu lykkju, prjónið fyrstu lykkju á bakstykki slétt (= lykkjan tilheyrir ermi), setjið 1 merki í umferð, prjónið slétt þar til 1 lykkja er eftir á bakstykki, setjið 1 merki í umferð, prjónið síðustu lykkju á bakstykki slétt (= lykkjan tilheyrir ermi), prjónið upp 22-24-24-24-30-30-32 lykkjur meðfram hægra framstykki – lykkjurnar eru prjónaðar upp innan við ystu lykkju, prjónið fyrstu lykkju á hægra framstykki slétt (= lykkjan tilheyrir ermi), setjið 1 merki í umferð, prjónið slétt yfir lykkjur á framstykki og kantlista eins og áður.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið með kantlista eins og áður.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið kantlista, prjónið slétt fram að fyrsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið slétt fram að næsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið út umferðina eins og áður.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðið með kantlista eins og áður.
Á EFTIR UMFERÐ 4:
Prjónið UMFERÐ 3 og 4 þar til aukið hefur verið út 16-16-15-14-10-6-2 sinnum á ermum (= 32-32-30-28-20-12-4 umferðir prjónaðar) = 56-58-56-54-52-44-38 lykkjur á hvorri ermi og 76-78-78-80-84-84-88 lykkjur á bakstykki.

Síðan á að auka út bæði á ermum og á fram- og bakstykki, aukið er út á fram- og bakstykki 2 lykkjur innan við merki þannig að það eru 2 lykkjur á milli útaukninga fyrir fram- og bakstykki og útaukningu fyrir ermar – næsta umferð er prjónuð þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið eins og áður þar til 2 lykkjur eru eftir á undan fyrsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 2 lykkjur slétt, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki (= ermi), aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 2 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 2 lykkjur slétt, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki (= ermi), aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 2 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið út umferðina eins og áður (= 8 lykkjur fleiri, hvoru megin við 2 lykkjur í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og ermi).
UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið brugðið með kantlista eins og áður.
Prjónið UMFERÐ 1 og 2 þar til aukið hefur verið út alls 3-6-10-12-14-19-23 sinnum (= 6-12-20-24-28-38-46 umferðir prjónaðar). Aukið hefur verið út alls 19-22-25-26-24-25-25 sinnum á ermum og 3-6-10-12-14-19-23 sinnum á fram- og bakstykki = 62-70-76-78-80-82-84 lykkjur á hvorri ermi og 82-90-98-104-112-122-134 á bakstykki og 49-53-57-60-64-69-75 lykkjur á hvoru framstykki – öll úrtaka í kantlista og útaukning fyrir v-hálsmáli er lokið.

Ermin mælist ca 14-16-18-19-17-18-18 cm – þegar peysan er brotin tvöföld við öxl, á stykkið að mælast ca 19-22-24-25-25-25-26 cm frá yst á öxl og niður meðfram handvegi. Ef stykkið mælist minna en þetta, prjónið að tilgreindu máli án útaukningar. N‘u skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar.

SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR:
JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:
Prjónið 49-53-57-60-64-69-75 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 62-70-76-78-80-82-84 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-10-12-14-16 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið næstu 82-90-98-104-112-122-134 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 62-70-76-78-80-82-84 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-10-12-14-16 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 49-53-57-60-64-69-75 lykkjur eins og áður (= framstykki).
Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 192-208-228-244-264-288-316 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í hvora hlið á fram- og bakstykki, fyrir miðju í 6-6-8-10-12-14-16 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi og látið merkiþræðina fylgja áfram með í stykkinu, merkiþræðirnir eru notaðir þegar fækka lykkjum/auka lykkjum í hliðum á fram- og bakstykki.
Prjónið fram og til baka frá miðju að framan yfir allar lykkjur í sléttprjóni og kantlista eins og áður.
Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingunni, aukið út 1 lykkju hvoru megin við báða merkiþræðina – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út í 3. hverjum cm alls 6 sinnum = 216-232-252-268-288-312-340 lykkjur. Prjónið sléttprjón og kantlista eins og áður þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62-64 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að aftan. Fellið af með I-CORD AFFELLING – lesið leiðbeiningar að ofan.
Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64-66 cm frá öxl.

ERMAR:
Setjið 62-70-76-78-80-82-84 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-10-12-14-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 68-76-84-88-92-96-100 lykkjur.
Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 6-6-8-10-12-14-16 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn.
Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT í fyrstu umferð er lykkjum fækkað fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 4-4-3-2½-2½-2½-2 cm alls 4-8-10-12-12-14-14 sinnum = 60-60-64-64-68-68-72 lykkjur.
Prjónið síðan þar til ermin mælist 40-39-38-38-40-40-40 cm frá skiptingunni.
Fellið af með I-CORD AFFELLING – lesið leiðbeiningar að ofan.

BELTI:
Notið hringprjón 4 og fitjið upp 5 lykkjur og prjónið 1 umferð slétt. Prjónið snúruprjón með 5 lykkjur þannig: * Færið allar lykkjur yfir á hægri hlið á prjóninum án þess að snúa stykkinu, herðið á þræðinum og prjónið aftur slétt yfir allar lykkjur *, prjónið frá *-* þar til beltið mælist ca 170-200 cm. Beltið er hnýtt utan um mittið.

FRÁGANGUR:
Saumið kantlista aftan í hnakka á bakstykki.

Mynstur

Diagram for DROPS 272-44

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!
Ertu búin að klára þetta mynstur?
Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #coffeeblissjacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery.

Skrifaðu athugasemd um DROPS 272-44

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (1)

country flag Ellen skrifaði:

Kan ik het patroon ook opslaan

27.10.2026 - 09:47

DROPS Design svaraði:

Dag Ellen,

Als je op de afdrukknop klikt kun je vervolgens kiezen voor opslaan als pdf.

28.10.2026 - 17:51