Veronique skrifaði:
Désolée: je viens de voir sur votre site que la longueur d'Air est de 150m/50g (je me suis basée sur les infos erronées d'un revendeur)
04.09.2026 - 14:36
Veronique skrifaði:
Bonjour. je suis étonnée par la différence de quantité de fil entre les 2 qualités, car il n'y a que 5m de différence dans la longueur des fils: Air 70m et Nepal 75m? merci de confirmer svp. belle journée
04.09.2026 - 13:36DROPS Design svaraði:
Bonjour Véronique, 1 pelote 50 g DROPS Air fait environ 150 mètres - cf nuancier, soit environ 2 fois plus qu'une pelote DROPS Nepal. Bon tricot!
04.09.2026 - 16:57
Blanca skrifaði:
Precioso 💖
01.09.2026 - 00:37
Lory skrifaði:
Ya vi que sí está en español. Gracias ! 🙏🏼 🥹🥰
31.08.2026 - 00:53
Lory skrifaði:
Está disponible en español…? 😩
31.08.2026 - 00:30
Geneviève skrifaði:
Waouh super contente que ce modèle soit choisi. C'est mon préféré de cette année. Je viens de commander mon fils. Je le ferai en Népal car j'aime beaucoup ce fil pour mes chandails. Je suis souvent à l'extérieur pour promener Oliver. Bien au chaud dans mon nouveau tricot. J'ai hâte de m'y mettre.
28.08.2026 - 13:18
Blue Bloom Sweater#bluebloomsweater |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Sky eða DROPS Nepal. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með hringlaga berustykki og marglitu mynstri með blómum. Stærð XS - XXXL.
DROPS 273-1 |
||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 90 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 6) = 15. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 8. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermarnar bíða. Síðan eru ermarnar prjónaðar niður á við í hring. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 84-90-94-98-102-108-114 lykkjur á hringprjón 5 með litnum Þoka í DROPS Air eða DROPS Nepal. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið 3 umferðir slétt. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 2½-2½-2½-3-3-3½-3½ cm. Prjónið 2 umferðir slétt. Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki við byrjun umferðar, berustykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem aukið er út um 0-6-2-10-6-12-6 lykkjur jafnt yfir – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 84-96-96-108-108-120-120 lykkjur. Prjónið 0-0-2-2-2-2-2 umferðir sléttprjón. Nú er prjónað MYNSTUR – lesið leiðbeiningar að ofan: Prjónið A.1, prjónið A.2 *, prjónið frá *-* alls 7-8-8-9-9-10-10 sinnum berustykkið hringinn. Þegar A.1 og A.2 hefur verið prjónað til loka eru 238-272-272-306-306-340-340 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 20-20-21-21-21-21-21 cm frá merki. Munið að fylgja prjónfestunni. Setjið merki fyrir miðju í 8-8-8-8-10-10-10 mynstureiningu, þ.e.a.s. í 9. lykkju í 4-4-4-4-5-5-5 mynstureiningu með A.2 (= miðja að framan – sjá merkingu í A.2). Síðar á að telja út frá þessari lykkju þegar stykkið skiptist upp. Prjónið síðan sléttprjón með litnum Þoka jafnframt því sem í umferð 1 er aukið út um 6-0-12-2-12-2-18 lykkjur jafnt yfir – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 244-272-284-308-318-342-358 lykkjur. Þegar berustykkið mælist 21-21-22-23-24-25-26 cm frá merki fyrir miðju að framan skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar – gakktu úr skugga um að mynstrið sé skipt samhverft – skiptið stykkinu þannig: Prjónið sléttprjón þar til 86-96-100-109-111-118-122 lykkjur eru eftir að lykkju með merki fyrir miðju að framan, setjið næstu 50-57-58-64-64-66-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-14-14-18 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 72-79-84-90-95-105-113 lykkjur í sléttprjóni (= framstykki), setjið næstu 50-57-58-64-64-66-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-14-14-18 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið næstu 72-79-84-90-95-105-113 lykkjur í sléttprjóni (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 160-174-188-200-218-238-262 lykkjur. Setjið 1 merki í aðra hliðina á stykki (= fyrir miðju í 8-8-10-10-14-14-18 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi). Prjónið fram að merki, umferðin byrjar hér og prjónað er í hring. Prjónið sléttprjón hringinn í litnum Þoka þar til stykkið mælist 45-47-49-50-51-53-55 cm frá miðju að framan eftir kant í hálsmáli. Skiptið yfir á hringprjón 3,5, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 28-32-34-36-40-42-44 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 188-206-222-236-258-280-306 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 49-51-53-55-56-58-60 cm frá miðju að framan eftir kant í hálsmáli ca 54-56-58-60-62-64-66 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 50-57-58-64-64-66-66 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-14-14-18 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 58-65-68-74-78-80-84 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 8-8-10-10-14-14-18 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn í litnum Þoka – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 1 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 10-7-5-4-4-3½-3 cm alls 3-6-7-9-10-10-11 sinnum = 53-54-56-58-60-62 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 40-40-40-39-39-38-37 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt / 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 10-11-10-10-10-10-10 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 62-62-64-66-68-70-72 lykkjur. Þegar stroffið mælist 2½-2½-2½-3½-3½-3½-3½ cm. Prjónið 3 umferðir slétt. Fellið af með sléttum lykkjum. Ermin mælist ca 43-43-43-43-43-42-41 cm frá skiptingunni. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #bluebloomsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 22 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 273-1
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.