Tim Johns skrifaði:
Hello. Do I increase once in row 4? Or do I repeat row 4 and increase 18 times in that row? A1 is 42 rows. If I repeat the pattern 18 times, would that mean I knit 756 rows total before I divide for sleeves?
26.11.2026 - 02:58DROPS Design svaraði:
Hi Tim, You increase 1 stitch on each repeat in width of A.1, and A.1 is repeated 18 times on round-4 so there will be 18 increased stitches on this round. A.1 is worked once in height (42 rounds), then you continue in stocking stitch without further increases before dividing for the sleeves. Regards, Drops Team.
26.11.2026 - 07:35
Tim Johns skrifaði:
Good evening. When reading charts, we start from right to left and from what I understand, one row is one row of the pattern. I am knitting a size medium. Am I reading A.1 correctly when there is only one stitch increase in the first four rows? Or do I repeat 6 stitches across each whole row, resulting in three rows of regular knits and fourth row of 18+ increases?
22.11.2026 - 01:04DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Johns, you should repeat the diagram all the round, so on 4th round A.1 you will increase 1 stitch at the end of each A.1 = there are now 7 sts in each A.1. When diagram is done you should have 15 sts in each A.1 x 18 repeats = 270 sts. happy knitting!
23.11.2026 - 09:59
Elizabeth skrifaði:
Hi, I like this pattern, but diagram A1 for the increases seems to be missing. Can you please help me with this. Thanks.
15.11.2026 - 23:13DROPS Design svaraði:
Dear Elizabeth, we have sent your comment to the design department so that they can update the incorrect chart. Happy knitting!
15.11.2026 - 23:47
Tiina skrifaði:
Mistä kaavio A1 löytyy?
14.11.2026 - 20:15DROPS Design svaraði:
Hei, piirros A.1 löytyy ohjeen alapuolelta.
16.11.2026 - 18:29
Sylvie Delhommé skrifaði:
J’aimerais pouvoir faire le modèle 972–9 Purple Dahlia sweater , or dans la notice il est noté qu’il faut utiliser le diagramme A1, alors que je n’ai que dans les explications, il n’y a que le diagramme A3. Pouvez-vous me dire pourquoi s’il vous plaît plaît ?
14.11.2026 - 14:24DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Delhommé, merci pour votre retour, il s'agissait d'une erreur, le diagramme A.1 est maintenant disponible. Merci pour votre retour et bon tricot!
16.11.2026 - 15:52
Annette skrifaði:
Bonjour, Pourriez-vous m'indiquer svp ou trouver le diagramme A1? Merci
13.11.2026 - 21:45DROPS Design svaraði:
Bonjour Annette, erreur de notre part, vous pouvez désormais trouver le bon diagramme A.1 sous les explications. Merci pour votre retour et bon tricot!
16.11.2026 - 15:53
Almudena skrifaði:
Creo que hay un error en el diagrama que se muestra y que no corresponde con este modelo de jersey. El dibujo es "A3" y no se corresponde con la descripción del patrón
13.11.2026 - 16:16DROPS Design svaraði:
Hola Almudena, se trataba de un error en la página, ya está disponible el diagrama correcto.
17.11.2026 - 12:04
Margarita skrifaði:
Cuantos ovillos necesito comprar para realizar el jersey en una talla S o M? Muchas gracias
26.10.2026 - 22:13DROPS Design svaraði:
Hola Margarita, la cantidad se indica en gramos, en la parte superior del patrón; si haces click a la talla a trabajar, te indicará cuántos gramos necesitas para tu talla. Como los ovillos son de 50gr, para la talla S requieres 7 ovillos (= 350gr) y para la talla M 8 ovillos (=400gr) de DROPS Air.
01.11.2026 - 18:47
Anna skrifaði:
Grazie per I bellissimi modelli! Come potrei fare un collo alto risvoltato su questo maglione? Lavorando il bordo del collo per più centimetri?
23.10.2026 - 07:57DROPS Design svaraði:
Buonasera Anna, si, può proseguire in questo modo. Buon lavoro!
31.10.2026 - 15:39
Sophie Martel skrifaði:
Bonjour, comment lire le diagramme ? Se tricote t'il de haut en bas ou de bas en haut : lorsque le col est achevé, doit-on poursuivre par la partie large du diagramme ou par la pointe ? Merci.
07.10.2026 - 09:45DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Martel, les diagrammes se lisent de bas en haut et de droite à gauche tous les tours. Bon tricot!
07.10.2026 - 17:25
Purple Dahlia Sweater#purpledahliasweater |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með hringlaga berustykki. Stærð XS - XXXL.
DROPS 272-9 |
|||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Þessi samhverfa útaukning býr til 1 nýja lykkju. Fylgdu leiðbeiningum 1 - 4 að neðan: 1. Haldið þræðinum sem prjónað er með aftan við stykkið. Lyftið yfir fyrstu lykkju á vinstri prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið. 2. Stingið vinstri prjóni aftan við lyftu lykkjuna og inn á milli lyftu lykkjunnar og næstu lykkju á hægri prjóni. 3. Myndið nýja lykkju með uppslætti með þræðinum sem prjónað er með utan um hægri prjón og dragið uppsláttinn í gegnum lykkjuna þannig að það myndast 1 ný lykkja á hægri prjóni. 4. Sleppið fremri lykkjuboganum á vinstri prjóni af og prjónið síðan 1 lykkju slétt í fremri hlutann á hinum lykkjuboganum. Nú hefur verið aukið út um 1 lykkju. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður með útaukningu fyrir hringlaga berustykki. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 84-88-92-96-100-104-108 lykkjur á stuttan hringprjón 3,5 með DROPS Air. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur brugðið) í 4-4-4-5-5-6-6 cm. Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki eftir fyrstu 28-29-30-32-33-34-36 lykkjur í umferð (= ca fyrir miðju að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir í hringprjón 5 og prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem aukið er út um 12-14-16-18-26-28-30 lykkjur jafnt yfir = 96-102-108-114-126-132-138 lykkjur. Prjónið nú mynsturteikningu A.1 alls 16-17-18-19-21-22-23 sinnum berustykkið hringinn. Fylgið síðan mynsturteikningu og aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu. Munið að fylgja prjónfestunni. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 240-255-270-285-315-330-345 lykkjur í umferð. Prjónið síðan sléttprjón þar sem aukið er út um 4-1-0-3-1-6-7 lykkjur jafnt yfir í 1. umferð = 244-256-270-288-316-336-352 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist ca 21-21-23-25-25-27-28 cm frá merki við miðju að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Setjið fyrstu 48-50-51-56-62-64-64 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-12-14-14-16-18 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 74-78-84-88-96-104-112 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 48-50-51-56-62-64-64 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-12-14-14-16-18 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 74-78-84-88-96-104-112 lykkjur slétt (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 164-176-192-204-220-240-260 lykkjur. Setjið 1 merki í aðra hliðina á stykki (= fyrir miðju í 8-10-12-14-14-16-18 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi). Prjónið fram að merki, umferðin byrjar hér og prjónað er í hring. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 51-53-55-57-57-59-61 cm frá merki fyrir miðju að framan. Skiptið yfir á hringprjón 3,5, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 28-32-32-36-40-44-44 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 192-208-224-240-260-284-304 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 55-57-59-61-62-64-66 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 60-62-64-66-68-70-72 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 48-50-51-56-62-64-64 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 8-10-12-14-14-16-18 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 56-60-63-70-76-80-82 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 8-10-12-14-14-16-18 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn - JAFNFRAMT þegar prjónuð er 1 umferð eftir skiptinguna, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkað er um 2 lykkjur í annarri hverri umferð 2-2-2-3-3-3-3 sinnum, síðan er fækkað um 2 lykkjur með 3-3-3-2-2-2-2 cm millibili 3-4-5-6-8-10-10 sinnum = 46-48-49-52-54-54-56 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 41-42-40-38-39-37-37 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 10-8-11-8-10-10-8 lykkjur jafnt yfir í umferð 1= 56-56-60-60-64-64-64 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 45-46-44-42-44-42-42 cm frá skiptingunni. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
![]() |
|||||||
![]() |
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #purpledahliasweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 20 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 272-9
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.