Dora skrifaði:
Klopt het dat je aan het eind van de naald meerdert met nog 3 steken op de naald? Moeten dat ook niet 5 steken zijn.
09.10.2026 - 15:59DROPS Design svaraði:
Dag Dora,
Nee, je meerdert met nog 3 steken op de naald.
11.10.2026 - 17:22
Marianne skrifaði:
Klopt het wel dat bij de armsgaten eerst 5 steken recht breien? Volgens mij moet dat dan 3 zijn...
24.09.2026 - 14:24DROPS Design svaraði:
Dag Marianne,
De armsgaten hebben 4 ribbelsteken en tussen het meerderen en de ribbelsteken zit nog 1 steek, dus kom je op 5 steken.
27.09.2026 - 12:17
Lia skrifaði:
Er staat in dit patroontje "meerderen voor de armsgaten" in nl1 brei 5 st Recht, meerder.......brei recht tot er 3 st over zijn.... Volgen mij klopt dit niet helemaal?
19.09.2026 - 18:42
Missy skrifaði:
Klopt de beschrijving wel bij de foto's? In de tekst gaat het over een vest. Op de foto's zie ik een pullover.
10.08.2026 - 20:46DROPS Design svaraði:
Dag Missy,
Ja, het juiste patroon staat erbij. Het wordt vest was inderdaad niet juist, dat is nu aangepast.
14.08.2026 - 11:21
Sprinkles and Smiles Vest#sprinklesandsmilesvest |
|
![]() |
![]() |
Prjónað vesti fyrir börn úr DROPS Fiesta. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í með evrópskri öxl / skáhallandi öxl, garðaprjóni og sléttprjóni. Stærð 2 – 14 ára.
DROPS Children 50-27 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÉTTU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá RÉTTU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá RÖNGU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÖNGU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VESTI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Stykkið er fyrst prjónað fram og til baka á hringprjóna. Byrjað er á að fitja upp lykkjur aftan í hnakka. Síðan er bakstykkið prjónað niður á við jafnframt því sem aukið er út í hvorri hlið á stykki þar til fjöldi lykkja á axlavídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið litla skáhallandi öxl. Síðan er prjónað niður að handvegi. Bakstykkið er látið bíða og framstykkið er prjónað. Framstykkið er fyrst prjónað í 2 stykkjum. Byrjað er á að prjóna upp lykkjur meðfram annarri öxlinni frá bakstykki, jafnframt því sem er prjónað er aukið út við hálsmál. Þetta er endurtekið á hinni öxlinni. Hægra og vinstra framstykki er sett saman þegar útaukning fyrir hálsmáli er lokið. Síðan er framstykkið prjónað niður að handvegi. Framstykkið og bakstykkið er síðan sett á sama hringprjón og fram- og bakstykkið er prjónað niður á við í hring á hringprjóna. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og kantur í hálsmáli er prjónaður í hring. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 25-25-25-27-27-29-29 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Fiesta. UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 2 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 3 (= ranga): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 og prjónið 3 lykkjur brugðið, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið brugðið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið 3 lykkjur brugðið. Á EFTIR UMFERÐ 3: Prjónið UMFERÐ 2 og 3 alls 5-6-7-7-8-9-10 sinnum (= 10-12-14-14-16-18-20 umferðir prjónaðar), eftir síðustu útaukningu eru = 45-49-53-55-59-65-69 lykkjur í umferð. . Setjið 1 merki yst í hliðina. Héðan er stykkið mælt! Prjónið síðan í sléttprjóni með 4 lykkjur í GARÐAPRJÓN í hvorri hlið – lesið leiðbeiningar að ofan. Munið að fylgja prjónfestunni og prjónið þar til stykkið mælist 6-7-7-8-9-10-10 cm mælt frá merki yst meðfram handvegi. Nú er aukið út í hvorri hlið fyrir handveg. ÚTAUKNING HANDVEGUR: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 5 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 4 lykkjur slétt, prjónið brugðið þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 4 lykkjur slétt. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 6 sinnum (= 12 prjónaðar umferðir) = 57-61-65-67-71-77-81 lykkjur í umferð. Prjónið síðan eins og áður án þess að auka út þar til stykkið mælist 10-11-11-12-13-14-14 cm, mælt frá merki yst meðfram handvegi – endið með umferð frá röngu. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er vinstra framstykkið prjónað meðfram vinstri öxl eins og útskýrt er að neðan. VINSTRA FRAMSTYKKI: Finnið vinstri öxl á bakstykki þannig: Leggið bakstykkið flatt með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjur af þræði/hjálparprjóni snúa að þér, vinstri hlið á stykki = vinstri öxl. Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við hálsmál og prjónið upp lykkjur út að handvegi þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju = 10-12-14-14-16-18-20 lykkjur. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Prjónið fyrstu umferð frá röngu þannig: Prjónið 4 lykkjur slétt, prjónið 6-8-10-10-12-14-16 lykkjur brugðið. Prjónið síðan þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 4 lykkjur slétt, prjónið brugðið út umferðina. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 þar til stykkið mælist ca 6-6-7-7-8-8-9 cm frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Nú á að auka út fyrir hálsmáli þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 4 lykkjur slétt, prjónið brugðið út umferðina, endið með því að fitja upp 1 nýja lykkju í umferð. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið slétt. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 4 lykkjur slétt, prjónið brugðið út umferðina, endið með því að fitja upp 2 nýjar lykkjur í umferð. UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið slétt. UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið 4 lykkjur slétt, prjónið brugðið út umferðina, endið með því að fitja upp 3 nýjar lykkjur í umferð = 16-18-20-20-22-24-26 lykkjur (næsta umferð er prjónuð frá réttu). Útaukningu fyrir hálsmál er nú lokið. Stykkið mælist ca 8-8-9-9-10-10-11 cm frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Ca 2 cm af dýpt á hálsmáli nær að teygja sig yfir á bakstykkið. Klippið þráðinn, setjið lykkjurnar á þráð eða á hjálparprjón, nú er hægra framstykkið prjónað meðfram hægri öxl eins og útskýrt er að neðan. HÆGRA FRAMSTYKKI: Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við öxl og prjónið upp lykkjur inn að hálsmáli þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð, innan við ystu lykkju = 10-12-14-14-16-18-20 lykkjur. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Prjónið fyrstu umferðina frá röngu þannig: Prjónið 6-8-10-10-12-14-16 lykkjur brugðið, prjónið 4 lykkjur slétt. Prjónið síðan þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 4 lykkjur slétt. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 þar til stykkið mælist 6-6-7-7-8-8-9 cm frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Aukið nú út fyrir hálsmáli þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt út umferðina, endið með því að fitja upp 1 nýja lykkju í umferð. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 4 lykkjur slétt. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið slétt út umferðina, endið með því að fitja upp 2 nýjar lykkjur í umferð. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðið þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 4 lykkjur slétt. UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið slétt út umferðina, endið með því að fitja upp 3 nýjar lykkjur í umferð. UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið brugðið þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 4 lykkjur slétt = 16-18-20-20-22-24-26 lykkjur (= næsta umferð er frá réttu). Klippið ekki þráðinn. Setjið framstykkin saman eins og útskýrt er að neðan. FRAMSTYKKI (hægri og vinstri hluti sett saman): Prjónið fyrstu umferðina frá réttu þannig: Prjónið 16-18-20-20-22-24-26 lykkjur af hægra framstykki slétt, fitjið upp 13-13-13-15-15-17-17 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli, prjónið 16-18-20-20-22-24-26 lykkjur af vinstra framstykki slétt = 45-49-53-55-59-65-69 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón með 4 lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 14-15-17-18-19-20-22 cm frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Nú er aukið út í hvorri hlið fyrir handveg. ÚTAUKNING HANDVEGUR: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 5 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 4 lykkjur slétt, prjónið brugðið þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 4 lykkjur slétt. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 samtals 6 sinnum (= 12 umferðir prjónaðar) = 57-61-65-67-71-77-81 lykkjur í umferð. Prjónið síðan eins og áður án þess að auka út þar til stykkið mælist 18-19-21-22-23-24-26 cm - endið með umferð frá röngu. Nú er framstykkið og bakstykkið sett saman fyrir fram- og bakstykki eins og útskýrt er hér að neðan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið 57-61-65-67-71-77-81 lykkjur af framstykki eins og áður, fitjið upp 10-10-11-12-12-12-12 nýjar lykkjur í lok þessarar umferðar (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 53-57-61-63-67-73-77 lykkjur af bakstykki eins og áður, setjið 1 merki í umferðina hér (= byrjun umferðar), prjónið síðustu 4 lykkjur af bakstykki slétt, fitjið upp 10-10-11-12-12-12-12 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) = 134-142-152-158-166-178-186 lykkjur í umferð. Klippið þráðinn og byrjið við merkið sem var sett á undan síðustu sléttu lykkjum á bakstykki (þetta er gert til þess að lykkjur í garðaprjóni haldi fallega áfram á fram- og bakstykki í hliðinni undir handvegi). Prjónið síðan í hring í 2 cm þannig: Prjónið 18-18-19-20-20-20-20 lykkjur í GARÐAPRJÓN - sjá útskýringu að ofan, prjónið 49-53-57-59-63-69-73 lykkjur slétt, prjónið 18-18-19-20-20-20-20 lykkjur garðaprjón, prjónið 49-53-57-59-63-69-73 lykkjur slétt. Prjónið síðan í sléttprjóni í hring yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 29-30-33-36-37-41-47 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að aftan. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT er aukið út 28-30-30-32-34-34-36 lykkjur jafnt yfir í 1. umferð = 162-172-182-190-200-212-222 lykkjur. Þegar stroffið mælist 3 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Vestið mælist 32-33-36-39-40-44-50 cm frá miðju að aftan og ca 34-35-38-41-42-46-52 cm frá efst á öxl. HÁLSMÁL: Notið hringprjón 3. Byrjið frá réttu við aðra af skásettu axlalínunum á bakstykkinu og prjónið upp ca 72-72-74-78-80-86-88 lykkjur í kringum hálsmál innan við 1 lykkju - fjöldi lykkja verður að vera deilanlegur með 2. Prjónið stroff í hring (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið) í 2½-2½-2½-3-3-3-3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sprinklesandsmilesvest eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 17 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 50-27
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.