Kat skrifaði:
Is the I cord worked on full length of the shoulder or just on the first 2 rows
22.04.2026 - 19:00DROPS Design svaraði:
Hi Kat, The I-cord is repeated on all rows downwards. Regards, Drops Team.
23.04.2026 - 06:04
Elke skrifaði:
Kann es sein das ein Fehler Bein zunehmen der Schulter rechts und links Vorderteil ist .Ich soll insgesamt je 10 Maschen an der Schulter zunehmen da stehen 1Masche 3 mal 2 Maschen 1 mal und 3 Maschen 1 mal das sind keine 10 Maschen.
20.04.2026 - 22:41DROPS Design svaraði:
Liebe Elke, Sie nehmen nur 8 Maschen zu - die am Ende genannte Maschenzahl nach den Zunahmen bezieht sich ja auf die Gesamtzahl der Maschen, vorher müssen Sie bei der Maschenzahl, die vor den Zunahmen für das Muster genannt ist, noch die 2 I-Cord-Maschen dazurechnen. Dann passt es mit der genannten Zahl an Zunahmen. Viel Spaß beim Stricken!
21.04.2026 - 08:57
Mossy Trails Top#mossytrailstop |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónaður toppur úr DROPS Belle. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri og i-cord. Stærð XS - XXXL.
DROPS 266-18 |
||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.1 og A.3). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Mynsturteikning er lesin frá hægri til vinstri þegar prjónað er frá réttu og frá vinstri til hægri þegar prjónað er frá röngu. LEIÐBEININGAR MYNSTUR: Þegar lykkjur eru auknar út fyrir hálsmáli og handvegi eru nýjar lykkjur prjónaðar jafnóðum inn í mynstur, þ.e.a.s. mynsturteikning A.3 með 7 lykkjum sléttprjóni á milli hverra mynstureiningar. Bíðið með að prjónað gatamynstur þar til pláss er fyrir heila mynsturteikningu A.3. Þegar það eru 7-7-8-8-8-10-12 mynstureiningar af A.3 á breiddina á framstykki/bakstykki, prjónið þær lykkjur sem eftir eru í sléttprjóni að hvorri hlið. I-CORD-1: Prjónið umferð 1 þannig: Prjónið 2 lykkjur snúnar slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið eins og áður út umferðina. Prjónið umferð 2 þannig: Prjónið eins og áður þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, lyftið 2 lykkjum af prjóni með þráðinn framan við stykkið. Endurtakið UMFERÐ 1 og 2. I-CORD-2: Prjónið umferð 1 þannig: Prjónið 2 lykkjur snúnar slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, lyftið 2 lykkjum af prjóni með þráðinn framan við stykkið. Endurtakið umferð 1 frá réttu og röngu. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: Aukið út 1 lykkju innan við 3 lykkjur (= 2 kantlykkjur + 1 lykkja slétt) í hvorri hlið á stykki, aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn og jafnóðum inn í mynstur. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: Aukið út 1 lykkju á undan 1. Og 3. Merki og aukið út 1 lykkju á eftir 2. Og 4. Merki. Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Axlirnar eru prjónaðar fram og til baka hvor fyrir sig þar til hálsmálið hefur verið prjónað til loka, síðan er framstykkið/bakstykkið prjónað hvort fyrir sig. Framstykkið og bakstykkið er sett saman og fram- og bakstykkið er prjónað í hring að loka máli. Axlasaumarnir eru saumaðir og í lokin er prjónaður kantur í hálsmáli í hring. VINSTRI ÖXL (framstykki): Fitjið upp 17-19-20-20-22-22-22 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Belle. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu og 1 umferð slétt frá réttu. Prjónið nú MYNSTUR - sjá útskýringu að ofan. UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið 2 kantlykkjur með I-CORD-1 - sjá útskýringu að ofan, A.1 yfir 15-17-18-18-20-20-20 lykkjur - munið að mynsturteikningin er lesin frá vinstri til hægri þegar prjónað er frá röngu. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið A.1 yfir 15-17-18-18-20-20-20 lykkjur og prjónið 2 kantlykkjur með I-CORD-1. Þegar A.1 er lokið, endurtakið mynsturteikningu. Prjónið slétt þar til stykkið mælist ca 3-4-5-6-7-8-9 cm – stillið af að næsta umferð sé frá röngu. Lesið LEIÐBEININGAR MYNSTUR í útskýringunni að ofan áður en haldið er áfram. Munið að fylgja prjónfestunni. Fitjið nú upp lykkjur í lok hverrar umferðar frá röngu þannig: Fitjið upp 1 lykkju 3 sinnum, 2 lykkjur 1 sinni og 3 lykkjur 1 sinni = 25-27-28-28-30-30-30 lykkjur. Eftir síðustu umferð frá röngu er stykkið lagt til hliðar. Stykkið mælist ca 7-8-9-10-11-12-13 cm. Prjónið hægri öxl eins og útskýrt er hér að neðan. HÆGRI ÖXL (framstykki): Fitjið upp 17-19-20-20-22-22-22 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Belle. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu og 1 umferð slétt frá réttu. Prjónið nú MYNSTUR - sjá útskýringu að ofan. UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið A.2 yfir 15-17-18-18-20-20-20 lykkjur og prjónið 2 kantlykkjur með I-CORD-1. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið 2 kantlykkjur með I-CORD-1, A.2 yfir 15-17-18-18-20-20-20 lykkjur. Þegar A.2 hefur verið prjónað, endurtakið mynsturteikningu. Prjónið þar til stykkið mælist ca 3-4-5-6-7-8-9 cm - stillið af að næsta umferð sé frá réttu. Munið eftir LEIÐBEININGAR MYNSTUR. Fitjið nú upp lykkjur í lok hverrar umferðar frá réttu þannig: Fitjið upp 1 lykkju 3 sinnum, 2 lykkjur 1 sinni og 3 lykkjur 1 sinni = 25-27-28-28-30-30-30 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu þannig að hægri og vinstri öxl endi í sömu umferð í mynstrinu. Stykkið mælist ca 7-8-9-10-11-12-13 cm. Setjið nú hægri og vinstri öxl saman eins og útskýrt er hér að neðan. FRAMSTYKKI: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 2 kantlykkjur með I-CORD-2 – sjá útskýringu að ofan, prjónið eins og áður yfir hægri öxl, fitjið upp 13-15-15-17-15-17-19 nýjar lykkjur fyrir hálsmál, prjónið yfir lykkjurnar frá vinstri öxl þar til 2 lykkjur eru eftir og prjónið 2 kantlykkjur með I-CORD-2 = 63-69-71-73-75-77-79 lykkjur. Prjónið fram og til baka með mynstri eins og áður, prjónið nýju lykkjurnar í hálsmáli inn í mynstrið. Þegar stykkið mælist 12-13-13-13-13-12-14 cm frá uppfitjunarkantinum (það eru 6-6-7-8-9-11-11 cm eftir þar til handvegur er tilbúinn), aukið út fyrir handveg í hvorri hlið – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1. Athugið í hvaða umferð í mynstrinu útaukningin byrjar (notað þegar bakstykkið er prjónað). Aukið út í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 6-7-7-6-7-6-1 sinnum í hvorri hlið, síðan aukið út í hverri umferð (þ.e.a.s. bæði frá réttu og röngu) alls 4-4-6-10-12-18-30 sinnum í hvorri hlið. Aukið hefur verið út alls 10-11-13-16-19-24-31 sinnum í hvorri hlið og það eru 83-91-97-105-113-125-141 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 18-19-20-21-22-23-25 cm frá öxl. Leggið framstykkið til hliðar, prjónið nú vinstri og hægri öxl á bakstykki eins og útskýrt er að neðan. VINSTRI ÖXL (bakstykki): Fitjið upp 17-19-20-20-22-22-22 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Belle. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu og 1 umferð slétt frá réttu. Prjónið nú MYNSTUR - sjá útskýringu að ofan. UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið 2 kantlykkjur með I-CORD-1 - sjá útskýringu að ofan, A.1 yfir 15-17-18-18-20-20-20 lykkjur - munið að mynsturteikningin er lesin frá vinstri til hægri þegar prjónað er frá röngu. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið A.1 yfir 15-17-18-18-20-20-20 lykkjur og prjónið 2 kantlykkjur með I-CORD-1. Þegar A.1 er lokið, endurtakið mynsturteikningu. Prjónið slétt þar til stykkið mælist ca 2 cm – stillið af að næsta umferð sé frá röngu. Fitjið nú upp 1 lykkju fyrir hálsmál í lok hverrar umferðar frá röngu alls 3 sinnum = 20-22-23-23-25-25-25 lykkjur. Stykkið mælist ca 4 cm. Klippið frá og leggið stykkið til hliðar. Prjónið nú hægri öxl eins og útskýrt er að neðan. HÆGRI ÖXL (bakstykki): Fitjið upp 17-19-20-20-22-22-22 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Belle. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu og 1 umferð slétt frá réttu. Prjónið nú MYNSTUR - sjá útskýringu að ofan. UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið A.2 yfir 15-17-18-18-20-20-20 lykkjur og prjónið 2 kantlykkjur með I-CORD-1. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið 2 kantlykkjur með I-CORD-1, A.2 yfir 15-17-18-18-20-20-20 lykkjur. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, endurtakið mynsturteikningu. Prjónið þar til stykkið mælist ca 2 cm - stillið af að næsta umferð sé frá réttu. Munið eftir LEIÐBEININGAR MYNSTUR. Fitjið nú upp 1 lykkju fyrir hálsmál í lok hverrar umferðar frá réttu alls 3 sinnum = 20-22-23-23-25-25-25 lykkjur. Prjónið 1 umferð frá röngu þannig að hægri og vinstri öxl endi á sömu umferð í mynstrinu. Stykkið mælist ca 4 cm. Setjið nú hægri og vinstri öxl saman eins og útskýrt er hér að neðan. BAKSTYKKI: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 2 kantlykkjur með I-CORD-2, prjónið eins og áður yfir hægri öxl, fitjið upp 23-25-25-27-25-27-29 lykkjur fyrir hálsmáli, prjónið yfir lykkjurnar frá vinstri öxl þar til 2 lykkjur eru eftir og prjónið 2 kantlykkjur með I-CORD-2 = 63-69-71-73-75-77-79 lykkjur. Prjónið fram og til baka með mynstri eins og áður, nýju lykkjurnar í hálsmáli eru prjónaðar inn í mynstrið. Þegar stykkið mælist 12-13-13-13-13-12-14 cm frá uppfitjunarkanti (það eru 6-6-7-8-9-11-11 cm eftir þar til handvegur er tilbúinn), aukið út fyrir handveg í hvorri hlið – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og stillið af þannig að útaukningin byrji í sömu umferð í mynstrinu og á framstykki. Aukið út í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 6-7-7-6-7-6-1 sinnum í hvorri hlið, síðan aukið út í hverri umferð (þ.e.a.s. bæði frá réttu og röngu) alls 4-4-6-10-12-18-30 sinnum í hvorri hlið. Aukið hefur verið út alls 10-11-13-16-19-24-31 sinnum í hvorri hlið og það eru 83-91-97-105-113-125-141 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 18-19-20-21-22-23-25 cm frá öxl. Setjið nú bakstykkið og framstykkið saman eins og útskýrt er að neðan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið yfir bakstykkið eins og áður, fitjið upp 13-15-17-19-21-23-25 nýjar lykkjur (= í hlið), prjónið yfir framstykkið eins og áður og fitjið upp 13-15-17-19-21-23-25 nýjar lykkjur (= í hlið) = 192-212-228-248-268-296-332 lykkjur. Mynstrið heldur áfram eins og áður, en í næstu umferð er lykkjum fækkað í skiptingunni yfir í lykkjurnar sem fitjaðar voru upp í hliðum. Þetta er gert til að koma í veg fyrir að skiptingin verði laus (prjónið kantlykkjurnar slétt). Prjónið þannig: Prjónið yfir bakstykkið þar til 1 lykkja er eftir á undan lykkjum sem fitjaðar voru upp í hliðinni, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið brugðið yfir næstu 11-13-15-17-19-21-23 lykkjur, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið yfir framstykkið þar til 1 lykkja er eftir á framstykkinu, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 11-13-15-17-19-21-23 lykkjur brugðið, prjónið 2 lykkjur slétt saman = 188-208-224-244-264-292-328 lykkjur. Haldið áfram með mynstrið, lykkjurnar í hliðinni eru prjónaðar í sléttprjóni. Byrjið umferðina mitt á milli nýju lykkja sem voru fitjaðar upp í annarri hliðinni. Setjið 4 merki í stykkið: Setjið 1. merkið í sléttu lykkjuna á undan 1. mynstureiningu af A.3 á bakstykkinu, setjið 2. merkið í sléttu lykkjuna eftir síðustu mynstureiningu af A.3 á bakstykkinu, setjið 3. merkið í sléttu lykkjuna á undan 1. mynstureiningu af A.3 á framstykkinu og setjið 4. merkið í sléttu lykkjuna eftir síðustu mynstureiningu af A.3 á framstykkinu. Þegar stykkið mælist 6-7-8-8-8-8-8 cm frá þar sem stykkið var sett saman, aukið út í hliðunum - sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2. Aukið svona út með ca 12-13-13-9-9-9-9 cm millibili alls 2-2-2-3-3-3-3 sinnum = 196-216-232-256-276-304-340 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 31-33-34-35-36-37-38 cm frá skiptingunni - endið eftir umferð 1 í A.3. Fellið laust af með sléttum lykkjum. Toppurinn mælist ca 49-52-54-56-58-60-62 cm frá öxl. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp ca. 76 til 104 lykkjur með DROPS Belle á hringprjón 3,5 í kringum hálsmál. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) þar til hálsmálið mælist 1½-1½-1½-2-2-2-2 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #mossytrailstop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 17 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 266-18
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.