Maréka Krentner skrifaði:
Bonjour, j’ai bien compris les rangs raccourcis mais lá où je ne comprends plus c’est quand on tricote pour le 1er rang jusqu’à 8 m après le marqueur en au de l’épaule et on tourne , mais jusqu’où , on fait le tour ou on va jusqu’à le dessus de la manche et on refait 8 mailles et tourne. Si on fait ça cela est bizarre . Expliquez-moi car j’ai recommencer au moins dix fois. Merci de me répondre.
27.07.2026 - 17:16
Mari Louise skrifaði:
Hejsa, Hvilken sværhedsgrad er denne opskrift: Sweet Lime Top? God dag! Mvh Louise
12.07.2026 - 11:03DROPS Design svaraði:
Hej Mari Louise, den er egentlig ikke så svær, hvis du følger opskriften stykke for stykke - god fornøjelse!
03.08.2026 - 14:45
Mareka Krentner skrifaði:
Bonjour, je ne comprends pas quand on passe à la division des emmanchures et qu’on doit faire un rang envers cela décale tout le motif que dois-je faire c’est normale si tous les points sont à l’envers c’est n’importe quoi et pourtant sur la photo du pull tout est parfait le motif on ne voit pas de changement. Expliquer moi merci
04.07.2026 - 11:42DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Krentner, le tour de la division doit être un tour impair du diagramme, ainsi, lorsque vous continuez en allers et retours, vous commencez sur l'envers et les rangs pairs du diagramme sont sur l'envers et les rangs ajourés sont ainsi toujours sur l'endroit. Si vous n'avez pas divisé l'ouvrage après un rang pair, il vous suffit juste de couper le fil et de tricotez le rang suivant sur l'endroit en commençant par le rang impair suivant. Bon tricot!
06.07.2026 - 07:10
Mareka Krentner skrifaði:
Bonjour. Je suis sur la division des emmenchures, vous dites « commencer 3 m avant le début du tour et rabattre 6 mailles . Ces 3 mailles se trouve où, au rang d’avant ce n’est pas clair et doit-on les tricoter . Merci de me répondre.
03.07.2026 - 16:31DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Krentner, tricotez le dernier tour avant la division jusqu'à ce qu'il reste 3 m avant le début des tours (3 m avant le fil marqueur sur le côté, là où les tours commencent depuis le début, après les côtes), puis rabattez les 6 m suivantes : 6 m pour l'emmanchure soit 3 m de chaque côté du fil marqueur, répétez de l'autre côté, vous avez ainsi le même nombre de mailles pour le dos et le devant, et 6 m rabattues de chaque côté (3 de chaque côté de chaque fil marqueur). Bon tricot!
06.07.2026 - 06:36
Barbara skrifaði:
Buongiorno, la lunghezza del ferro circolare da 40 cm comprende il solo cavetto o anche le punte... grazie
03.07.2026 - 13:21DROPS Design svaraði:
Buongiorno Barbara, la lunghezza del ferro, è da punta a punta. Buon lavoro!
05.08.2026 - 16:01
Maréka Krentner skrifaði:
Bonjour, juste une petite question sur le diagramme. Le 1er rang , C’est bien 1 m envers et 5 m endroits et 1 m envers , et ensuite on fait à nouveau 5 m endroits et 1m envers où on fait 2 fois 1m envers et 5 m endroits tout au long de ce 1er Rang.merci de me répondre.
15.06.2026 - 16:01DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Krentner, on doit répéter les 7 mailles du diagramme, ainsi on répète (1 m env, 5 m end, 1 m env), on aura ainsi 2 m envers entre chaque section 5 m endroit - mais le tour commence et se termine par 1 m env. Bon tricot!
16.06.2026 - 07:50
Sweet Lime Top#sweetlimetop |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa með stuttum ermum úr DROPS Cotton Light. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með gatamynstri. Stærð XS - XXXL.
DROPS 266-26 |
||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------ UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). LEIÐBEININGAR PRJÓN: Þegar prjónaðar eru stuttar umferðir myndast lítið gat þegar stykkinu er snúið við – hægt er að loka þessu gati með því að herða á þræði eða nota aðferðina German Short Rows þannig: Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið. Leggið síðan þráðinn yfir hægri prjón og herðið vel á þræði á bakhlið (þannig verða til tvær lykkjur á prjóninum). Þessar lykkjur eru prjónaðar saman í næstu umferð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breytið eftir þörfum. Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp að handvegi. Síðan skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki og hvort stykki er prjónað til loka, fram og til baka hvort fyrir sig. Axlasaumar saumaðir. Lykkjur prjónaðar upp fyrir ermar í kringum handveg og ermarnar eru prjónaðar niður á við. Fyrst er prjónað fram og til baka með stuttum umferðum til að forma ermakúpu, síðan eru ermarnar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og prjónaður er kantur í hálsmáli í hring. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 224-240-256-272-304-336-368 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Cotton Light. Prjónið stroff í hring (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 2-2-2-2-3-3-3 cm. Í næstu umferð er fækkað um 28-30-32-34-38-42-46 lykkjur jafnt yfir þannig: * 1 lykkja brugðið, 5 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið saman *, prjónið frá *-* alls 28-30-32-34-38-42-46 sinnum = 196-210-224-238-266-294-322 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í byrjun umferðar og 1 merkiþráð eftir 98-105-112-119-133-147-161 lykkjur = í hliðar á stykkinu – merkiþræðirnir sitja á milli 2 lykkja brugðið í hvorri hlið. Látið merkiþræðina fylgja áfram með í stykkinu, merkiþræðirnir eru notaðir þegar fella á af fyrir handveg. Skiptið yfir í hringprjón 4 og prjónið MYNSTUR – lesið leiðbeiningar að ofan og prjónið A.1 hringinn á fram- og bakstykki. Haldið áfram með mynstur upp úr. Munið að fylgja prjónfestunni. Prjónið þar til stykkið mælist 26-28-29-30-31-32-33 cm frá uppfitjunarkanti – stillið af að næsta umferð sé umferð með oddatölu í mynsturteikningu, þannig að mynstrið sé prjónað frá réttu þegar prjónað er fram og til baka. Nú er fellt af fyrir handvegi og stykkið skiptist fyrir framstykki og bakstykki. SKIPTING VIÐ HANDVEG: Í næstu umferð skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki og umferðin er prjónuð þannig: Byrjið 3-3-3-3-6-6-8 lykkjum á undan fyrsta merkiþræði, fellið af 6-6-6-6-12-12-16 lykkjur fyrir handveg, prjónið 92-99-106-113-121-135-145 lykkjur eins og áður (= framstykki), fellið af næstu 6-6-6-6-12-12-16 lykkjur fyrir handveg, prjónið 92-99-106-113-121-135-145 lykkjur eins og áður (= bakstykki). Nú er framstykkið og bakstykkið prjónað til loka fram og til baka. BAKSTYKKI: = 92-99-106-113-121-135-145 lykkjur. Haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og áður – fyrsta umferðin er prjónuð frá röngu. JAFNFRAMT eru lykkjur felldar af fyrir handveg í hvorri hlið í annarri hverri umferð þannig: Fellið af 2 lykkjur 2-2-2-2-3-3-4 sinnum og 1 lykkju 3-3-3-3-5-5-8 sinnum í hvorri hlið = 78-85-92-99-99-113-113 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður, en ystu 3 lykkjur í hvorri hlið við handveg eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 41-43-45-47-49-51-53 cm frá uppfitjunarkanti, fellið af miðju 30-31-30-31-31-33-33 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. ÖXL: Haldið áfram með mynstur eins og áður og fellið af 2 lykkjur í næstu umferð fyrir hálsmáli = 22-25-29-32-32-38-38 lykkjur eftir á hvorri öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 44-46-48-50-52-54-56 cm frá uppfitjunarkanti. FRAMSTYKKI: = 92-99-106-113-121-135-145 lykkjur. Haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og áður. JAFNFRAMT eru lykkjur felldar af fyrir handveg í hvorri hlið í annarri hverri umferð þannig: Fellið af 2 lykkjur 2-2-2-2-3-3-4 sinnum og 1 lykkju 3-3-3-3-5-5-8 sinnum í hvorri hlið = 78-85-92-99-99-113-113 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður, en ystu 3 lykkjur í hvorri hlið við handveg eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 38-39-40-41-42-43-44 cm frá uppfitjunarkanti – stillið af að næsta umferð sé umferð 3 í mynsturteikningu, setjið miðju 16-17-16-17-17-17-17 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. ÖXL: Haldið áfram með mynstur eins og áður og fellið af lykkjur fyrir hálsmáli í annarri hverri umferð þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkja 2-2-2-2-2-3-3 sinnum = 22-25-29-32-32-38-38 lykkjur á hvorri öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 44-46-48-50-52-54-56 cm. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. ERMAR: Ermin er prjónuð frá handveg og niður. Leggið stykkið flatt og setjið 1 merki efst í handveg = miðja ofan á öxl. Notið hringprjón 4 og prjónið upp lykkjur aðeins fast (notið e.t.v. fínni prjón). PRJÓNIÐ UPP LYKKJUR ÞANNIG: Byrjið fyrir miðju í lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – prjónið upp 70-70-72-78-84-88-94 lykkjur – stillið af að prjónaðar séu upp jafn margar lykkjur hvoru megin við merki. ERMAKÚPA: Til að flíkin passi betur er prjónað sléttprjón með stuttum umferðum fram og til baka yfir ermakúpu, umferðin byrjar fyrir miðju undir ermi og prjónað er þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 8-8-8-9-9-10-10 lykkjur fram hjá merki ofan á öxl, snúið stykkinu – lesið LEIÐBEININGAR PRJÓN. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 8-8-8-9-9-10-10 lykkjur fram hjá merki, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 2 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= rétta): Prjónið 2 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið stykkinu. Endurtakið síðan UMFERÐ 3 og 4. Prjónið þar til snúið hefur verið við alls 22-22-22-22-28-28-36 sinnum (= 11-11-11-11-14-14-18 sinnum í hvorri hlið og síðasta prjónaða umferðin er frá röngu). Á EFTIR SÍÐASTA SKIPTI SEM SNÚIÐ ER VIÐ: Í síðasta skipti sem umferð 4 er prjónuð, endið umferðina með því að snúa stykkinu við, prjónið síðan frá réttu að byrjun umferðarinnar (= mitt undir ermi). Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju undir ermi, merkiþráðurinn er notaður þegar lykkjum er fækkað undir ermi. Látið merkiþráðinn fylgja áfram með í stykkinu. ERMIN ÁFRAM NIÐUR: Nú er prjónað í hring í sléttprjóni yfir allar lykkjur JAFNFRAMT sem lykkjum er fækkað undir ermi, lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Þegar prjónuð hefur verið 1 umferð, fækkið um 2 lykkjur í annarri hverri umferð alls 2-2-2-2-2-1-1 sinnum = 66-66-68-74-80-86-92 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 20-20-19-18-18-16-17 cm frá miðju efst á öxl. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT og aukið út um 6-6-6-6-8-8-10 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 72-72-74-80-88-94-102 lykkjur. Þegar stroffið mælist 2-2-2-2-3-3-3 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 22-22-21-20-21-19-20 cm frá miðju efst á öxl. HÁLSMÁL: Byrjið frá réttu við annan axlasauminn, notið hringprjón 3 og prjónið upp ca 90-94-96-98-102-108-110 lykkjur í kringum hálsmál innan við 1 lykkju. Prjónið 1 umferð slétt þar sem lykkjufjöldinn er aðlagaður - lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2. Prjónið stroff í hring (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 2-2-2½-2½-3-3-3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sweetlimetop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 22 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 266-26
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.