Valérie Pollet skrifaði:
Pour le point fantasies est ce A1 et A2 5 fois ?
23.03.2026 - 14:26DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Pollet, A.1 montre comment tricoter le début du point fantaisie, autrement dit, vous tricotez 1 fois A.1 puis 5 fois A.2. Bon tricot!
23.03.2026 - 16:20
Spring Dawn Top#springdawntop |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa með stuttum ermum úr DROPS BabyMerino eða DROPS Safran. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með evrópsku berustykki, stuttum ermum og gatamynstri. Stærð XS - XXXL.
DROPS 268-16 |
||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ATH: Það er prjónað mynstur á framstykki og bakstykki og sléttprjón á ermum. Útauknar lykkjur eru prjónaðar inn í mynstrið, en lykkjurnar eru prjónaðar í sléttprjóni þar til pláss er fyrir heilt nýtt gatamynstur á breiddina. ATH: Forðist að prjóna gatamynstur við hliðina á skiptingunni milli fram-/bakstykkis og erma. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÉTTU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá RÉTTU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÖNGU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÖNGU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Stykkið er prjónað samkvæmt útskýringu 1-5. 1. BAKSTYKKI: Fitjaðar eru upp lykkjur aftan í hnakka og bakstykkið er prjónað fram og til baka niður á við jafnframt því sem lykkjum er aukið út í hvorri hlið á stykki þar til fjöldi lykkja á axlavídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið litla skáhallandi öxl. 2. FRAMSTYKKI: Er prjónað í 2 stykkjum (= hvoru megin við hálsmál). Byrjað er á að prjóna upp lykkjur meðfram annarri öxlinni frá bakstykki, prjónið framstykkið niður á við jafnframt því sem aukið er út við hálsmál. Þetta er endurtekið á hinni öxlinni, síðan eru nýjar lykkjur fitjaðar upp fyrir hálsmáli fyrir miðju að framan = framstykkin eru sett saman í eitt stykki. Framstykkið er prjónað fram og til baka að tilgreindu máli. 3. BERUSTYKKI: Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar á sama hringprjón – prjónað er þannig: Prjónað er yfir lykkjur frá öðru framstykkinu, lykkjur fitjaðar upp fyrir hálsmáli fyrir miðju að framan, hinn hlutinn á framstykkinu er prjónaður, lykkjur prjónaðar upp fyrir ermi meðfram hlið á framstykki, lykkjur frá bakstykki prjónaðar, lykkjur prjónaðar upp fyrir ermi meðfram hlið á hinu framstykkinu = síðan er berustykkið prjónað í hring yfir allar lykkjur – gatamynstur er prjónað á framstykki og bakstykki og sléttprjón á ermum. 4. ÚTAUKNING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Samtímis sem berustykkið er prjónað, aukið út lykkjur fyrir fram- og bakstykki og ermar, fyrst er aukið út fyrir ermar og síðan er aukið út bæði á fram- og bakstykki og ermum. 5. FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Þegar allar lykkjur hafa verið auknar út og berustykkið hefur verið prjónað að tilgreindu máli, á að skipta stykkinu fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við og í hring, á meðan ermarnar eru látnar bíða. Síðan eru ermarnar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru lykkjur prjónaðar í kringum hálsmál og kantur í hálsmáli er prjónaður í hring. BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 41-43-45-47-49-53-57 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Baby Merino eða DROPS Safran. UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 2 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 3 (= ranga): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 og prjónið 3 lykkjur brugðið, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið brugðið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið 3 lykkjur brugðið. Á EFTIR UMFERÐ 3: Prjónið UMFERÐ 2 og 3 alls 13-14-14-14-14-14-15 sinnum (= 26-28-28-28-28-28-30 umferðir prjónaðar), á eftir síðustu útaukningu eru 93-99-101-103-105-109-117 lykkjur í umferð. Klippið þráðinn, setjið lykkjurnar á þráð eða hjálparprjón. VINSTRI ÖXL: Finnið vinstri öxlina á bakstykkinu þannig: Leggið bakstykkið flatt með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjurnar frá þræði/hjálparprjóni snúi að þér, vinstri hlið á stykki = vinstri öxl. Nú eru prjónaðar upp lykkjur meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl - byrjið frá réttu við hálsmál og prjónið upp lykkjur út að handvegi þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkjuna = 26-28-28-28-28-28-30 lykkjur fyrir öxl. Setjið 1 merki í stykkið við hálsmál. Öll lengdarmæling á framstykki er gerð frá þessu merki, mælt í lykkjustefnu. Prjónið sléttprjón (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu). Þegar stykkið mælist 5-5-6-6-6-6-7 cm, aukið út lykkjur við hálsmál þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt út umferðina. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið án þess að auka út. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 6 sinnum (= 12 umferðir prjónaðar) = 32-34-34-34-34-34-36 lykkjur. Aukið síðan út lykkjur við hálsmál þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt út umferðina. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið án útaukningar. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið slétt án útaukningar. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðið án útaukningar. Prjónið UMFERÐ 1 til 4 alls 2-2-2-2-3-3-3 sinnum (= 8-8-8-8-12-12-12 umferðir prjónaðar) = 34-36-36-36-37-37-39 lykkjur. Útaukning fyrir hálsmáli er nú lokið. Stykkið mælist ca 11-11-12-12-13-13-14 cm frá merki. Ca. 2-2-3-3-3-3-3 cm af dýpt á hálsmáli kemur til með að teygja sig yfir á bakstykkið. Setjið lykkjurnar á hjálparprjón og prjónið hægri öxl eins og útskýrt er að neðan. HÆGRI ÖXL: Prjónið upp lykkjur meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við handveg og prjónið upp lykkjur inn að hálsmáli þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju = 26-28-28-28-28-28-30 lykkjur fyrir öxl. Setjið 1 merki í stykkið inn við hálsmál. Öll lengdarmæling á framstykki er gerð frá þessu merki, mælt í lykkjustefnu. Prjónið sléttprjón (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu). Þegar stykkið mælist 5-5-6-6-6-6-7 cm, aukið út lykkjur við hálsmál þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 3 lykkjur slétt - munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið án þess að auka út. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 6 sinnum (= 12 umferðir prjónaðar) = 32-34-34-34-34-36 lykkjur. Aukið síðan út lykkjur við hálsmál þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 3 lykkjur slétt - munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING -1. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið án útaukningar. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið slétt án útaukningar. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðið án útaukningar. Prjónið UMFERÐ 1 til 4 alls 2-2-2-2-3-3-3 sinnum (= 8-8-8-8-12-12-12 umferðir prjónaðar) = 34-36-36-36-37-37-39 lykkjur. Nú eru axlirnar prjónaðar saman til að mynda framstykki eins og útskýrt er að neðan. FRAMSTYKKI: Í næstu umferð (= rétta) eru axlirnar settar saman til að mynda framstykki þannig: Prjónið slétt yfir 34-36-36-36-37-37-39 lykkjur frá hægri öxl, fitjið upp 25-27-29-31-31-35-39 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok þessarar umferðar, prjónið slétt yfir 34-36-36-36-37-37-39 lykkjur frá vinstri öxl = 93-99-101-103-105-109-117 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka yfir framstykkið þar til stykkið mælist 12-12-13-13-14-14-15 cm frá merki – prjónið síðustu umferðina frá röngu. Síðan er framstykkið og bakstykki sett saman og lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermar, prjónið eins og útskýrt er að neðan. UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið fyrstu 2 lykkjurnar af framstykki slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir á framstykki, lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri), setjið 1 merki hér, prjónið upp 32-32-34-34-36-36-40 lykkjur meðfram hlið vinstra framstykkis (= lykkjur fyrir ermi - lykkjurnar eru prjónaðar upp innan við ystu lykkjuna), setjið 1 merki, prjónið fyrstu 2 lykkjurnar af bakstykki slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir á bakstykki, lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri), setjið 1 merki, prjónið upp 32-32-34-34-36-36-40 lykkjur meðfram hlið hægra framstykkis (= lykkjur fyrir ermi - lykkjurnar eru prjónaðar upp innan við ystu lykkjuna), setjið 1 merki = 246-258-266-270-278-286-310 lykkjur. BERUSTYKKI: Prjónið síðan í stykkið hring. UMFERÐ 1: Prjónið allar lykkjur slétt og aukið út 1 lykkju hvoru megin við hvora ermi – munið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 – aukið út 1 lykkju til vinstri í byrjun á ermi, aukið út 1 lykkju til hægri í lok á ermi, fjöldi lykkja á hvorri ermi eykst, fjöldi lykkja á fram- og bakstykki verður óbreyttur. Prjónið þessa umferð 3 sinnum = 38-38-40-40-42-42-46 lykkjur á hvorri ermi og 91-97-99-101-103-107-115 lykkjur á framstykki/bakstykki = 258-270-278-282-290-298-322 lykkjur. Prjónið síðan í hring þannig: UMFERÐ 1: Prjónið allar lykkjur slétt og aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvora ermi eins og áður – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1, fjöldi lykkja á hvorri ermi eykst, fjöldi lykkja á fram- og bakstykki verður óbreyttur. UMFERÐ 2: Prjónið allar lykkjur slétt án þess að auka út = 262-274-282-286-294-302-326 lykkjur. Nú er prjónað MYNSTUR á framstykki og bakstykki – lesið útskýringu að ofan og prjónið þannig: UMFERÐ 3: Prjónið 3-6-7-8-9-3-7 lykkjur slétt, A.1, prjónið A.2 alls 5-5-5-5-5-6-6 sinnum, prjónið 3-6-7-8-9-3-7 lykkjur slétt (= framstykki), færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 3-6-7-8-9-3-7 lykkjur slétt, A.1, prjónið A.2 alls 5-5-5-5-5-6-6 sinnum, prjónið 3-6-7-8-9-3-7 lykkjur slétt (= bakstykki), færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón. UMFERÐ 4: Prjónið mynstur og sléttprjón eins og útskýrt er að ofan, án þess að auka út. Prjónið UMFERÐ 3 og 4 alls 8-7-5-6-5-2-1 sinnum (= 16-14-10-12-10-4-2 umferðir prjónaðar. Aukið hefur verið út alls 12-11-9-10-9-6-5 sinnum á ermum = 56-54-52-54-54-48-50 lykkjur á hvorri ermi og 91-97-99-101-103-107-115 lykkjur á framstykki/bakstykki) = 294-302-302-310-314-310-330 lykkjur. Aukið síðan út á báðum ermum og fram- og bakstykki. Aukið út á fram- og bakstykki 2 lykkjur innan við merkið þannig að það verði 2 lykkjur á milli útaukninga á fram- og bakstykki og útaukninga á ermi - prjónið næstu umferð þannig: UMFERÐ 1: Prjónið 2 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið mynstur eins og áður þar til 2 lykkjur eru eftir á framstykkinu á undan merki, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 2 lykkjur slétt, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón (= ermi), prjónið 2 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið mynstur eins og áður þar til 2 lykkjur eru eftir á bakstykkinu á undan merki, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 2 lykkjur slétt, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón (= ermi). Aukið hefur verið út um 8 lykkjur, þ.e.a.s. 1 lykkja hefur verið aukin út hvoru megin við 2 lykkjur í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og ermi. UMFERÐ 2: Prjónið mynstur og sléttprjón eins og áður án þess að auka út. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 11-13-16-19-23-28-31 sinnum (= 22-26-32-38-46-56-62 umferðir prjónaðar). Alls hefur verið aukið út 23-24-25-29-32-34-36 sinnum á ermum og 11-13-16-19-23-28-31 sinnum á fram- og bakstykki = 78-80-84-92-100-104-112 lykkjur á hvorri ermi og 113-123-131-139-149-163-177 lykkjur á framstykki/bakstykki = 382-406-430-462-498-534-578 lykkjur. Ermin mælist ca 13-13-14-16-18-19-20 cm - þegar peysan er brotin tvöföld við öxlina, á stykkið að mælast ca 19-19-21-23-25-26-28 cm frá yst á öxl og niður meðfram handvegi. Ef stykkið mælist minna en þetta, prjónið þá að tilgreindu máli án þess að auka út. Skiptið nú berstykkinu í fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið fyrstu 113-123-131-139-149-163-177 lykkjur í mynstri eins og áður (= framstykki), setjið næstu 78-80-84-92-100-104-112 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-10-12-14-16-18 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið næstu 113-123-131-139-149-163-177 lykkjur í mynstri eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 78-80-84-92-100-104-112 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-10-12-14-16-18 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 238-262-282-302-326-358-390 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í hvora hlið á fram- og bakstykki, mitt á milli 6-8-10-12-14-16-18 nýrra lykkja – látið merkiþræðina fylgja áfram með í stykkinu, merkiþræðirnir eru notaðir til að merkja hliðar fram- og bakstykki. Prjónið mynstur sem þegar er byrjað eins og áður á framstykki og bakstykki og prjónið A.3 yfir 2 miðjulykkjur í hvorri hlið (merkiþræðirnir sitja mitt í A.3). Haldið áfram með mynstur þannig – ATH: A.1 og A.2 er prjónað eins langt og hægt er út að A.3 í hvorri hlið, en passið að það séu að minnsta kosti 4 lykkjur í sléttprjóni á milli A.1/A.2 og A.3. Prjónið svona þar til stykkið mælist 46-48-49-51-52-54-56 cm frá uppfitjunarkanti við miðju aftan við hnakka, en stillið af þannig að prjónaðar séu að minnsta kosti 8 til 10 umferðir af sléttprjóni eftir síðustu umferð með gatamynstri í A.1/A.2 (A.3 heldur áfram í hvorri hlið eins og áður). Skipið yfir á hringprjón 2,5, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT í 1. umferð er aukið út um 29-29-31-37-41-45-45 lykkjur jafnt yfir á framstykki og 29-29-31-37-41-45-45 lykkjur jafnt yfir á bakstykki (ekki auka út yfir A.3 í hvorri hlið - stillið stroffið af þannig að prjónaðar séu 2 lykkjur slétt yfir lykkjurnar í A.3) = 296-320-344-376-408-448-480 lykkjur. Þegar stroffið mælist 2-2-2-2-3-3-3 cm, fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 48-50-51-53-55-57-59 cm frá uppfitjunarkanti aftan við hnakka og 50-52-54-56-58-60-62 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 78-80-84-92-100-104-112 lykkjur frá ermi af þræði á hringprjón 3 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-8-10-12-14-16-18 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir erminni – sjá LEIÐBEININGAR ERMI = 84-88-94-104-114-120-130 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 6-8-10-12-14-16-18 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT þegar prjónuð hefur verið 1 umferð á eftir skiptinguna, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur 2-2-2-3-3-4-6 sinnum í annarri hverri umferð, fækkið síðan um 2 lykkjur 4-3-3-5-6-6-3 sinnum með 3-3-3-1½-1-1-1 cm millibili = 72-78-84-88-96-100-112 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 14-14-13-12-9-9-7 cm frá skiptingunni – JAFNFRAMT í síðustu umferð er fækkað um 4-6-6-4-8-6-14 lykkjur jafnt yfir = 68-72-78-84-88-94-98 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 4-8-6-4-8-6-10 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 72-80-84-88-96-100-108 lykkjur. Þegar stroffið mælist 2-2-2-2-3-3-3 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 29-29-29-30-30-31-30 cm frá öxl. HÁLSMÁL: Byrjið frá réttu við aðra axlalínuna og prjónið upp ca 112-120-128-136-144-148-156 lykkjur í kringum hálsmál á hringprjón 2,5. Prjónið 1 umferð slétt og jafnið e.t.v. lykkjufjöldann út – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið – stillið stroffið af að það passi yfir 2 lykkjur slétt yfir hvora axlalínu á bakstykki). Þegar stroffið mælist 2-2-2½-2½-3-3-3 cm, fellið af, aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #springdawntop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 49 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 268-16
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.