Blue Country Wrap#bluecountrywrap |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||
Hekluð peysa með ¾ löngum ermum úr DROPS Belle. Stykkið er heklað ofan frá og niður með vafningi, stuðlum, sólfjaðrakanti og bandi í mitti. Stærð XS - XXXL.
DROPS 266-4 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Fyrsta stuðli í byrjun umferðar er skipt út fyrir 3 loftlykkjur. ATH: Þegar fyrsta lykkjan í byrjun umferðar er tvíbrugðinn stuðull, skipti út fyrstu lykkju með 4 loftlykkjum. Þegar heklað er í hring byrjar umferðin með 3 loftlykkjur sem koma í stað fyrsta stuðuls. Í lok umferðar er hekluð 1 keðjulykkja í 3. loftlykkju í byrjun umferðar. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: Aukið út 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla í sama stuðul. Aukið er út innan við ystu lykkju (þ.e.a.s. heklið 2 stuðla í 2. lykkju, eða næst síðustu lykkju í umferð). Aukið út á sama hátt frá réttu og frá röngu. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: Aukið út 2 lykkjur með því að hekla eins og útskýrt er í A.1 á hægra framstykki og A.2 á vinstra framstykki – ATH: Fyrsti tvíbrugðni stuðullinn í byrjun hverrar umferðar er skipt út fyrir 4 loftlykkjur. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Fækkið um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla saman í 1 stuðul þannig: * Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum fyrstu 2 lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* alls 2 sinnum, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 lykkja færri). Fækkið um 2 stuðla fyrir miðju undir hvorri ermi þannig: Heklið þar til 3 stuðlar eru eftir á undan merkiþræði fyrir miðju undir handveg, heklið 2 stuðla saman, heklið 1 stuðul í hverja af næstu 2 stuðlum (merkiþráðurinn situr fyrir miðju á milli þessa 2 stuðla), heklið 2 stuðla saman. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2 (á við um ermar): Fækkið um 2 stuðla fyrir miðju undir ermi: Heklið 1 stuðul, heklið 2 stuðla saman (= 1 lykkja færri), heklið þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, heklið 2 stuðla saman (= 1 lykkja færri), endið með 1 stuðul í síðustu lykkjuna. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykkin og bakstykkið er heklað fram og til baka í stykkjum, ofan frá og niður. Síðan eru stykkin sett saman og allt fram- og bakstykkið er heklað fram og til baka að loka máli. Axlirnar eru saumaðar saman. Kantur er heklaður meðfram framstykkjum og í kringum hálsmál. Ermarnar eru heklaðar fram og til baka ofan frá og niður þar til ermakúpan hefur verið hekluð til loka, síðan eru ermarnar heklaðar í hring, en til skiptis 1 umferð frá réttu og 1 umferð frá röngu þannig að áferðin verði alveg eins. Í lokin er heklað band/snúra til að hnýta saman með í hlið á fram- og bakstykki. Peysan er hnýtt með vafningi í mitti. HÆGRI ÖXL BAKSTYKKI: Heklið 23-25-26-26-26-26-27 loftlykkjur með heklunál 4 með DROPS Belle. Snúið stykkinu, heklið fyrstu umferð frá röngu þannig: Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (= 2 stuðlar), heklið 1 stuðul í hverja af næstu 1-3-4-4-4-4-4-5 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, heklið 1 stuðul í hverja af næstu 5 loftlykkjum *, heklið frá *-* alla umferðina = 18-20-21-21-21-21-22 stuðlar. Klippið þráðinn og leggið stykkið til hliðar. VINSTRI ÖXL BAKSTYKKI: Heklið 23-25-26-26-26-26-27 loftlykkjur. Snúið stykkinu, heklið fyrstu umferðina frá röngu þannig: Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (= 2 stuðlar), heklið 1 stuðul í hverja af næstu 1-3-4-4-4-4-4-5 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, heklið 1 stuðul í hverja af næstu 5 loftlykkjum *, heklið frá *-* alla umferðina = 18-20-21-21-21-22 stuðlar. Lesið HEKLLEIÐBEININGAR – Í næstu umferð (= rétta) er heklaður 1 stuðul í hvern stuðul þar til 1 stuðul er eftir, heklið 2 stuðla í síðasta stuðulinn (= að hálsmáli) = 19-21-22-22-22-22-23 stuðlar á vinstri öxl. Heklið síðan 25-25-25-27-27-29-29 loftlykkjur fyrir hálsmál. Takið fram hægri öxlina, byrjið frá réttu og heklið 2 stuðla í fyrsta stuðul, heklið síðan 1 stuðul í hvern af næstu 17-19-20-20-20-20-21 stuðlum (= 19-21-22-22-22-22-23 stuðlar á hægri öxl) = 63-67-69-71-71-73-75 lykkjur. Snúið síðan við og heklið yfir bakstykkið eins og útskýrt er að neðan. BAKSTYKKI: Haldið áfram á hægri öxl (= ranga) og heklið 1 stuðul í hvern af 19-21-22-22-22-22-23 stuðlum, heklið 1 stuðul í hverja af 25-25-25-27-27-29-29 loftlykkjum í hálsmáli, heklið 1 stuðul í hvern af 19-21-22-22-22-22-23 stuðlum á vinstri öxl = 63-67-69-71-71-73-75 stuðlar. Munið að fylgja heklfestunni. Heklið 1 stuðul í hvern stuðul þar til stykkið mælist 18-18-18-18-16-15-14 cm. Byrjið nú á að auka út fyrir handveg í hvorri hlið á stykkinu - Athugið hversu margar umferðir hafa verið heklaðar áður en útaukningin fyrir handveg byrjar svo að hægt sé að hekla jafn margar umferðir á framstykkin. Aukið út um 1 stuðul í hvorri hlið með því að hekla 2 stuðla í annan og næst síðasta stuðul í umferðinni – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 (= 2 lykkjur fleiri). Aukið svona út í hverri umferð alls 1-2-3-4-6-8-10 sinnum = 65-71-75-79-83-89-95 stuðul. Stykkið mælist ca 19-20-21-22-23-24-25 cm. Klippið þráðinn og heklið hægra framstykki. HÆGRA FRAMSTYKKI: Heklið 23-25-26-26-26-26-27 loftlykkjur. Snúið stykkinu við, heklið fyrstu umferðina frá röngu þannig: Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (= 2 stuðlar), heklið 1 stuðul í hverja af næstu 1-3-4-4-4-4-4-5 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, heklið 1 stuðul í hverja af næstu 5 loftlykkjum *, heklið frá *-* alla umferðina = 18-20-21-21-21-22 stuðlar. Heklið alls 7 umferðir með 1 stuðul í hvern stuðul – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR – heklið síðustu umferðina frá röngu. Í næstu umferð (= frá réttu) byrjar útaukning fyrir vafning í lok umferðar – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1. UMFERÐ 1 (= rétta): Heklið 1 stuðul í hvern stuðul þar til 2 lykkjur eru eftir, heklið 2 stuðla í næsta stuðul, heklið 1 stuðul í síðasta stuðul (= 1 lykkja fleiri). UMFERÐ 2 (= ranga): Heklið 1 stuðul eins og áður, heklið 2 stuðla í næsta stuðul, heklið 1 stuðul í hvern stuðul út umferðina (= 1 lykkja fleiri). Alls hafa verið heklaðar 9 umferðir = 20-22-23-23-23-23-24 lykkjur. Aukið síðan út um 2 lykkjur fyrir vafning í hverri umferð eins og útskýrt er í A.1 – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2, aukið út fyrir vafning þar til fram- og bakstykkið er tilbúið. Jafnframt, þegar stykkið mælist 18-18-18-18-16-15-14 cm, byrjið að auka út fyrir handveg – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1, útaukningin á að byrja í sömu umferð og bakstykkið til að áferðin passi síðar. Aukið út um 1 stuðul fyrir handveg í hverri umferð alls 1-2-3-4-6-8-10 sinnum (þ.e.a.s. frá röngu er aukið út í næst síðustu lykkjuna í lok umferðarinnar, og frá réttu er aukið út í aðra lykkjuna í byrjun umferðarinnar) = 1-2-3-4-6-8-10 lykkjur fleiri fyrir handveg. Stykkið mælist ca 19-20-21-22-23-24-25 cm. Klippið þráðinn, leggið stykkið til hliðar – munið að það á að hekla sama fjölda umferða og á bakstykkinu. VINSTRA FRAMSTYKKI: Heklið 23-25-26-26-26-26-27 loftlykkjur. Snúið stykkinu við, heklið fyrstu umferðina frá röngu þannig: Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (= 2 stuðlar), heklið 1 stuðul í hverja af næstu 1-3-4-4-4-4-4-5 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, heklið 1 stuðul í hverja af næstu 5 loftlykkjum *, heklið frá *-* alla umferðina = 18-20-21-21-21-22 stuðlar. Heklið alls 7 umferðir með 1 stuðul í hvern stuðul – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR – heklið síðustu umferðina frá röngu. Í næstu umferð (= frá réttu) byrjar útaukning fyrir vafning í byrjun umferðar – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1. UMFERÐ 1 (= rétta): Heklið 1 stuðul eins og áður, heklið 2 stuðla í næsta stuðul, heklið 1 stuðul í hvern stuðul út umferðina (= 1 lykkja fleiri). UMFERÐ 2 (= ranga): Heklið 1 stuðul í hvern stuðul þar til 2 lykkjur eru eftir, heklið 2 stuðla í næsta stuðul, heklið 1 stuðul í síðasta stuðul (= 1 lykkja fleiri). Alls hafa verið heklaðar 9 umferðir = 20-22-23-23-23-23-24 lykkjur. Aukið síðan út um 2 lykkjur fyrir vafning í hverri umferð eins og útskýrt er í A.2 – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2, aukið út fyrir vafning þar til fram- og bakstykkið er tilbúið. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 18-18-18-18-16-15-14 cm byrjar útaukning fyrir handveg – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1, útaukning á að byrja í sömu umferð og bakstykkið svo að áferðin passi síðar. Aukið út um 1 stuðul fyrir handveg í hverri umferð alls 1-2-3-4-6-8-10 sinnum (þ.e.a.s. frá réttu er aukið út í næst síðustu lykkjuna í lok umferðar og frá röngu er aukið út í aðra lykkjuna í byrjun umferðar) = 1-2-3-4-6-8-10 lykkjur fleiri fyrir handveg. Stykkið mælist ca 19-20-21-22-23-24-25 cm. Klippið þráðinn, leggið stykkið til hliðar – munið að það á að hekla sama fjölda umferða og á bakstykkinu. FRAM- OG BAKSTYKKI: Gakktu úr skugga um að bæði framstykkin og bakstykkið snúi í sömu átt, í næstu umferð er haldið áfram að hekla yfir öll stykkin – stillið þessa umferð þannig að heklað sé frá réttu eða frá röngu eftir því hvaða umferð var hekluð á undan, þannig að áferðin haldi áfram eins og áður. Heklið þannig: Heklið yfir annað framstykkið eins og áður – munið að byrja með útaukningu fyrir vafning eins og áður (= A.1/A.2), heklið 2-2-4-8-12-16-20 loftlykkjur fyrir handveg, heklið yfir bakstykkið eins og áður, heklið 2-2-4-8-12-16-20 loftlykkjur fyrir handveg, heklið yfir lykkjurnar frá hinu framstykkinu eins og áður – munið að enda með útaukningu fyrir vafning (= A.1/A.2). Í næstu umferð er heklaður 1 stuðul í hverja loftlykkju undir handvegi – setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 2-2-4-8-12-16-20 nýjar lykkjur undir báðum handvegum, þessir merkiþræðir verða síðar notaðir þegar lykkjum er fækkað í hliðum á fram- og bakstykki. Heklið fram og til baka með útaukningu fyrir vafning (= A.1/A.2) eins og áður, JAFNFRAMT er fækkað um 2 stuðla undir hvorri ermi (= 4 stuðlar færri alls) með 4 cm millibili alls 4 sinnum (= 16 lykkjur færri) – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1. Þegar úrtöku undir ermum er lokið, aukið síðan út lykkjum fyrir vafning eins og áður þar til stykkið mælist 34-37-39-41-43-45-47 cm frá öxl. Heklið 1 umferð með 1 stuðul í hvern stuðul (ekki er aukið lengur út fyrir vafning), síðar eru hekluð upp bönd/snúrur í hvorri hlið hér. Stykkið mælist ca 35-38-40-42-44-46-48 cm. Heklið nú sólfjaðrakant neðst þannig: Byrjið á hægra framstykki frá röngu og heklið þannig: Heklið A.3 yfir fyrstu 4 lykkjurnar, heklið A.4 þar til ca. 4 lykkjur eru eftir (þ.e.a.s. A.4 fer yfir 9 stuðla – stillið fjölda mynstureininga þannig að það sé pláss til að enda yfir 4 lykkjur), endið með A.5. Heklið A.5, A.4 og A.3 til baka á sama hátt frá réttu. Peysan mælist ca. 37-40-42-44-46-48-50 cm frá öxl. FRÁGANGUR-1: Saumið axlasauma. KANTUR: Heklið nú kant meðfram framstykkjum og hálsmáli. Byrjið neðst í horninu á hægra framstykkinu frá réttu og festið þráðinn með 1 keðjulykkju í fyrstu lykkju. Heklið 1 fastalykkju í kringum fyrstu umferðina, * 3 loftlykkjur, 1 fastalykkju í kringum næstu umferð *, heklið frá *-* meðfram öllu hægra framstykkinu, meðfram hálsmálinu að aftan og niður meðfram vinstra framstykkinu, endið í horninu. Klippið og festið þráðinn. ERMI: Ermin er hekluð ofan frá og niður. Fyrst er ermakúpa hekluð fram og til baka þannig: Heklið 53-56-56-55-50-54-53 loftlykkjur með heklunál 4. Snúið stykkinu við, heklið fyrstu umferð þannig: Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (= 2 stuðlar), heklið 1 stuðul í hverja af næstu 1-4-4-3-4-2-1 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, heklið 1 stuðul í hverja af næstu 5 loftlykkjum *, heklið frá *-* alla umferðina = 43-46-46-45-41-44-43 stuðlar. Í næstu umferð er aukið út um 2 stuðla hvoru megin við stykkið, aukið út um 2 stuðla með því að hekla 3 stuðla í fyrsta og síðasta stuðul í umferðinni (= 4 stuðlar fleiri), aukið svona út í hverri umferð alls 4-4-5-6-8-8-9 sinnum = 59-62-66-69-73-76-79 stuðlar. Í næstu umferð er aukið út um 3 stuðla í hvorri hlið á stykki, aukið út um 3 stuðla með því að hekla 4 stuðla í fyrsta og síðasta stuðul í umferðinni (= 6 stuðlar fleiri) = 65-68-72-75-79-82-85 stuðlar. Klippið þráðinn. Heklið 1-1-2-4-6-8-10 loftlykkjur fyrir handveg, heklið yfir ermina með 1 stuðul í hvern stuðul og endið með 1-1-2-4-6-8-10 fyrir handveg, tengið stykkið saman með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju = 67-70-76-83-91-98-105 lykkjur. Heklið nú í hring með stuðlum til skiptis frá réttu og röngu - munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR, þannig að áferðin haldi áfram eins og á fram- og bakstykki. Í næstu umferð er fækkað um 2 lykkjur undir erminni - sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona alls 7-6-7-8-9-9-10 sinnum með 3-3-3-2½-2½-2½-2 cm millibili = 53-58-62-67-73-80-85 stuðlar. Þegar ermin mælist 33-33-34-35-36-36-37 cm frá toppi ermakúpunnar og síðasta umferðin hefur verið hekluð frá réttu, heklið sólfjaðrakant. Heklið næstu umferð frá röngu þannig: Heklið A.3 yfir fyrstu 4 lykkjurnar, heklið A.4 þar til ca. 4 lykkjur eru eftir (þ.e.a.s. A.4 fer yfir 9 stuðla - stillið fjölda mynstureininga þannig að það sé pláss til að enda yfir 4 lykkjur), endið með A.5. Heklið A.5, A.4 og A.3 til baka á sama hátt frá réttu. FRÁGANGUR-2: Saumið ermarnar í (byrjun umferðar = miðja undir erminni). BAND/SNÚRA: Notið heklunál 4 og heklið 4 keðjulykkjur utan um ysta stuðul neðst á fram- og bakstykki (þ.e.a.s. í síðustu umferð á undan sólfjaðrakanti). Heklið fram og til baka yfir 4 stuðla með 1 stuðul í hvern stuðul þar til bandið/snúran mælist ca 45-50-55-60-65-70-75 cm. Endurtakið í gagnstæðri hlið á fram- og bakstykki. Hnýtið bandið/snúruna utan um mittið. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #bluecountrywrap eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 11 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 266-4
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.