Morning Glow Sweater#morningglowsweater |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, köðlum og stroffprjóni. Stærð XS - XXXL.
DROPS 268-12 |
|||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður með útaukningu fyrir laskalínu. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 102-102-102-102-114-114-114 lykkjur á hringprjón 2,5 með 2 þráðum DROPS Kid-Silk. Prjónið stroffprjón í hring (= 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt) í 4 cm. Í síðustu umferð eru allar 1 lykkja brugðið aukið út til 2 lykkjur brugðið (aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á undan hverri brugðinni lykkju) = 136-136-136-136-152-152-152 lykkjur. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið. Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan, mitt á milli fyrstu 2 lykkja brugðið. Setjið 1 merki á eftir fyrstu 46-46-46-46-50-50-50 lykkjur í umferð (= ca fyrir miðju að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Nú eru sett 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett á milli 6 lykkja, þessar 6 lykkjur eru núna kallaðar laskalykkjur og auka á út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar. Laskalykkjurnar eru prjónaðar þannig: 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt. Setjið 1. merki í byrjun umferðar (þ.e.a.s. á milli 2 lykkja bruðgið), teljið 3 lykkjur, teljið 18 lykkjur (= ermi), teljið 6 lykkjur (= laskalykkjur) og setjið 1 merki á milli þessa 6 lykkja, teljið 38-38-38-38-46-46-46 lykkjur (= framstykki), teljið 6 lykkjur (= laskalykkjur) og setjið 1 merki á milli þessa 6 lykkja, teljið 18 lykkjur (= ermi), teljið 6 lykkjur (= laskalykkjur) og setjið 1 merki á milli þessa 6 lykkja, teljið 38-38-38-38-46-46-46 lykkjur (= bakstykki), teljið 3 lykkjur (fyrsta merkið í umferð situr á milli fyrstu 3 lykkja og síðustu 3 lykkja í umferð = laskalykkjur). Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið næstu umferð þannig – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið stroffprjón (= 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt) yfir næstu 16 lykkjur, 2 lykkjur brugðið, aukið út 1 lykkju til hægri, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt (þessar 6 lykkjur = laskalykkjur), aukið út 1 lykkju til vinstri, 0-0-0-0-2-2-2 lykkjur brugðið, 0-0-0-0-2-2-2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið, A.1, 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið, A.2, 1 lykkja brugðið, 0-0-0-0-2-2-2 lykkjur slétt, 0-0-0-0-2-2-2 lykkjur brugðið, aukið út 1 lykkju til hægri, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt (þessar 6 lykkjur = laskalykkjur), aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið stroffprjón (= 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt) yfir næstu 16 lykkjur, 2 lykkjur brugðið, aukið út 1 lykkju til hægri, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt (þessar 6 lykkjur = laskalykkjur), aukið út 1 lykkju til vinstri, 0-0-0-0-2-2-2 lykkjur brugðið, 0-0-0-0-2-2-2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið, A.1, 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið, A.2, 1 lykkja brugðið, 0-0-0-0-2-2-2 lykkjur slétt, 0-0-0-0-2-2-2 lykkjur brugðið, aukið út 1 lykkju til hægri, 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið (þessar 3 lykkjur + fyrstu 3 lykkjur í umferð = laskalykkjur). Allar 2 lykkjur slétt eru nú yfir 2 lykkjur slétt í stroffprjóni. Prjónið 1 umferð með mynstri sem þegar er byrjað, útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í stroffprjón (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Munið að fylgja prjónfestunni. Prjónið síðan þannig: UMFERÐ 1: Prjónið stroffprjón og mynstur eins og áður og aukið út 1 lykkjur slétt hvoru megin við hverja laskalínu (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt) (= 8 lykkjur fleiri) – lykkjan er aukin út til hægri á undan laskalykkjum og til vinstri á eftir laskalykkjum. UMFERÐ 2: Prjónið stroffprjón og mynstur eins og áður. UMFERÐ 3: Prjónið stroffprjón og mynstur eins og áður og aukið út 1 lykkju brugðið hvoru megin við laskalínu (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt) (= 8 lykkjur fleiri) – lykkjan er aukin út til hægri á undan laskalykkjum og til vinstri á eftir laskalykkjum. UMFERÐ 4: Prjónið stroffprjón og mynstur eins og áður og aukið út 1 lykkju brugðið hvoru megin við hverja laskalínu (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt) (= 8 lykkjur fleiri) – lykkjan er aukin út til hægri á undan laskalykkjum og til vinstri á eftir laskalykkjum. UMFERÐ 5: Prjónið stroffprjón og mynstur eins og áður og aukið út 1 lykkju slétt hvoru megin við hverja laskalínu (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt) (= 8 lykkjur fleiri) – lykkjan er aukin út til hægri á undan laksalykkjum og til vinstri á eftir laskalykkjum. UMFERÐ 6: Prjónið stroffprjón og mynstur eins og áður. Prjónið UMFERÐ 1 til 6 þar til aukið hefur verið út alls 28-28-28-32-32-36-40 sinnum (= 42-42-42-48-48-54-60 umferðir prjónaðar) = 360-360-360-392-408-440-472 lykkjur. Það eru 6 lykkjur í hverri laskalínu, 74-74-74-82-82-90-98 lykkjur á hvorri ermi, 94-94-94-102-110-118-126 lykkjur á framstykki/bakstykki. Útauking á ermum er nú lokið. Nú er einungis aukið út á framstykki og bakstykki, aukið út 4-8-16-12-16-16-20 sinnum til viðbótar (= 6-12-24-18-24-24-30 umferðir prjónaðar) = 376-392-424-440-472-504-552 lykkjur. Það eru 6 lykkjur í hverri laskalínu, 74-74-74-82-82-90-98 lykkjur á hvorri ermi, 102-110-126-126-142-150-166 lykkjur á bakstykki/framstykki. Öll útaukning hefur nú verið gerð til loka. Prjónið nú þar til stykkið mælist 20-22-27-27-29-32-36 cm frá merki fyrir miðju að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Samtímis sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Setjið fyrstu 80-80-80-88-88-96-104 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 12-12-12-20-20-20-20 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 108-116-132-132-148-156-172 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 80-80-80-88-88-96-104 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 12-12-12-20-20-20-20 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 108-116-132-132-148-156-172 lykkjur eins og áður (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 240-256-288-304-336-352-384 lykkjur. Prjónið mynstur, stroffprjón og kant að framan eins og áður. Þegar stykkið mælist 44-46-48-50-52-54-56 cm frá merki fyrir miðju að framan, köðlum er ekki snúið lengur í A.1 og A.2, allar lykkjur halda áfram í stroffprjóni. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur þegar stykkið mælist 49-51-53-55-57-59-61 cm frá merki fyrir miðju að framan. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64-66 cm frá öxl. ERMAR: Setjið 80-80-80-88-88-96-104 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 12-12-12-20-20-20-20 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir erminni = 92-92-92-108-108-116-124 lykkjur. Prjónið stroffprjón eins og áður. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur þegar ermin mælist 25-25-21-22-18-18-15 cm. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #morningglowsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 268-12
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.