Inger Ballegaard skrifaði:
Ang ranglen udt Jeg skal slå om på pind et Strikke omslaget på anden pind . Skal jeg så strikke en pind ude noget , eller skal pind 3 strikkes som pind et . Kh Inger
04.05.2026 - 10:36DROPS Design svaraði:
Hei Inger. Først skal du øke til raglan på hver 2. omgang (en omgang der det slås om og på neste omgang strikkes omslaget = 2 omganger), og dette gjentas totalt 23-25-29-33-34-35 ganger = 320-336-376-408-424-440 masker. Deretter fortsettes det å øke til raglan kun på forstykke og bakstykke, også på hver 2.omgang 3-5-3-4-7-9 ganger til = 332-356-388-424-452-476 masker på pinnen. mvh DROPS Design
04.05.2026 - 13:30
Aila Viola skrifaði:
Miten saisin neulottua ko. ohjeella pitkät hihat? Kiitän🫶
06.03.2026 - 06:46DROPS Design svaraði:
Hei, jos haluat pidemmän hihan, jatka kavennuksia siten, että hihan alaosasta tulee tarpeeksi kapea. Neulo kunnes hiha on halutun pituinen ja tee lopuksi joustinneule. Katso myös DROPS Fabel-langasta neulottuja pitkähihaisia puseroitamme.
06.03.2026 - 18:46
Roslyn skrifaði:
Can you please send me this pattern thanks
03.03.2026 - 22:39
Lynne skrifaði:
Where do I place the markers on this top down jumper
25.02.2026 - 20:36
Catherine skrifaði:
Bonjour Pourquoi ne proposez vous plus de rehausses sur vos modèles ? Merci de votre réponse Cordialement
24.02.2026 - 07:48DROPS Design svaraði:
Bonjour Catherine, tout le monde ne souhaite pas avoir une réhausse, nous essayons d'écrire des modèles qui correspondent le plus possible aux demandes. Notez toutefois que vous pouvez en ajouter une facilement, retrouvez ici, en vidéo comment vous pouvez procéder. Bon tricot!
24.02.2026 - 09:58
Memories of Provence Tee#memoriesofprovencetee |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Fabel. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og stuttum ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 267-29 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Á UNDAN LASKALYKKJU (= uppslátturinn snýr til hægri): Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, setjið til baka uppsláttinn yfir á vinstri prjóninn með því að stinga inn vinstri prjóni aftan frá í uppsláttinn (uppslátturinn er núna snúinn). Prjónið uppsláttinn slétt í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn – svo ekki myndist gat. Á EFTIR LASKALYKKJU (= uppslátturinn snýr til vinstri): Prjónið uppsláttinn slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn – svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 136-136-144-144-152-160 lykkjur á hringprjón 2,5 með DROPS Fabel. Prjónið stroff hringinn þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, * prjónið 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, endið með 2 lykkjur brugðið og 1 lykkju slétt. Prjónið þar til stykkið mælist 3-3-3-3½-3½-3½ cm. Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki eftir fyrstu 44-44-46-46-48-50 lykkjur í umferð (= ca fyrir miðju að framan), stykkið er mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Nú eru settir 4 merkiþræðir í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkiþræðirnir eru settir á milli 2 lykkja og þessar 2 lykkjur eru kallaðar fyrir laskalykkjur. Setjið 1. merkiþráðinn við byrjun umferðar, teljið 20 lykkjur (= ermi), setjið 2. merkiþráðinn á undan næstu lykkju, teljið 48-48-52-52-56-60 lykkjur (= framstykki), setjið 3. merkiþráðinn á undan næstu lykkju, teljið 20 lykkjur (= ermi), setjið 4. merkiþráðinn á undan næstu lykkju, það eru 48-48-52-52-56-60 lykkjur á eftir síðasta merkiþræði (= bakstykki). Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið síðan í hring í sléttprjóni og aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við laskalykkjurnar – lesið leiðbeiningar að ofan. Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 23-25-29-33-34-35 sinnum = 320-336-376-408-424-440 lykkjur (= 8 lykkjur fleiri í hverri útaukningarumferð). Munið að fylgja prjónfestunni. Útaukningarnar fyrir ermar eru nú tilbúnar, en haldið áfram að auka út fyrir laskalínu á framstykki og bakstykki í annarri hverri umferð 3-5-3-4-7-9 sinnum til viðbótar = 332-356-388-424-452-476 lykkjur í umferð (= 4 lykkjur fleiri í hverri útaukningsumferð). Prjónið síðan án útaukningar þar til stykkið mælist 19-20-22-24-26-28 cm frá merki eftir kanti í hálsmáli. Skiptið nú berstykkinu í fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Jafnframt sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Setjið fyrstu 66-70-78-86-88-90 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-12-14-16-18-22 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 100-108-116-126-138-148 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 66-70-78-86-88-90 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-12-14-16-18-22 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 100-108-116-126-138-148 lykkjur eins og áður (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 220-240-260-284-312-340 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 40-42-44-45-47-49 cm frá merki við miðju að framan. Skiptið yfir á hringprjóna 2,5, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 40-40-40-44-52-60 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 260-280-300-328-364-400 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-5-5-5 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 44-46-48-50-52-54 cm frá merki við miðju að framan og ca 48-50-52-54-56-58 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 66-70-78-86-88-90 lykkjur frá ermi af öðrum þræðinum á hringprjón 3,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 10-12-14-16-18-22 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 76-82-92-102-106-112 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 10-12-14-16-18-22 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við hér. Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 2-2-2-2-3-4 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur með 2½-2½-2-2-2-0 cm millibili alls 5-5-5-5-3-1 sinnum = 66-72-82-92-100-110 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 13-13-11-10-8-7 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 10-12-14-16-16-18 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 76-84-96-108-116-128 lykkjur. Þegar stroffið mælist 1½-2 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 15-15-13-12-10-9 cm frá skiptingunni. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #memoriesofprovencetee eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 34 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 267-29
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.