Małgorzata skrifaði:
Pięknie dziękuję za odpowiedź. Teraz jest ro zrozumiałe, Co to za kłopot? napisać w takiej firmie: umieścić 1 marker za 19 oczkiem w oczku 20. Serdecznie pozdrawiam
14.05.2026 - 19:51
Małgorzata skrifaði:
Witam serdecznie, opis wzoru absolutnie dla mnie nie jasny. Jak wynika z ilości oczek na dekolt mamy 116 oczek. Dzielimy na 4 markery 112 oczek a 4 markery pozostają bez celu ? Gdzie jest błąd?
14.05.2026 - 12:00DROPS Design svaraði:
Witaj Małgosiu, każdy marker powinien znajdować się w oczku (a nie między oczkami) - są to oczka reglanów; te markery wskazują miejsca, gdzie będą dodawane oczka na reglan - tutaj są te 4 brakujące oczka. Pozdrawiamy!
14.05.2026 - 19:22
Elvira skrifaði:
Verstehe ich es richtig, dass vor dem Bündchen noch 56Maschen (M) zugenommen werden? Lt Muster ist dies so nicht erkennbar!
07.05.2026 - 22:09DROPS Design svaraði:
Liebe Elvira, ja ganz genau, man braucht mehr Maschen für das Bündchen mit den Nadeln Nr 2,5 als fürs Glattrechts mit den Nadeln 4 deshalb muss man zunehmen, und so wird die untere Kante den Pullover nicht zusammenziehen. Viel Spaß beim Stricken!
08.05.2026 - 08:35
Marjanne skrifaði:
Maat XL is 128 steken opzetten. Raglan is 23/39/23/39 is 124. Wat te doen met de 4 overgebleven steken?
04.05.2026 - 08:22
Victoria skrifaði:
Liebes Drops Design Team, seit einiger Zeit habe die Top-Down Modelle keinen Halsausschnitt mehr :( Es fallen deswegen so viele Anleitungen weg. Ältere Modelle hatten viel besseren Schnitt. LG
25.02.2026 - 11:53
Fairytale Summer Tee#fairytalesummertee |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Fiesta. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með laskalínu og stuttum ermum. Stærð XS - XXXL.
DROPS 267-21 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Á UNDAN LASKALYKKJU (= uppslátturinn snýr til hægri): Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, setjið til baka uppsláttinn yfir á vinstri prjóninn með því að stinga inn vinstri prjóni aftan frá í uppsláttinn (uppslátturinn er núna snúinn). Prjónið uppsláttinn slétt í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn – svo ekki myndist gat. Á EFTIR LASKALYKKJU (= uppslátturinn snýr til vinstri): Prjónið uppsláttinn slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn – svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING – í skiptingu yfir í stroff: Þegar lykkjum er aukið út jafnt yfir í skiptingunni yfir í stroff, er mikilvægt að auka út þar sem lykkjurnar eru síðar prjónaðar brugðið, sléttprjóns lykkjurnar koma þá til með að halda fallega áfram yfir í stroffið. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 108-116-116-124-128-132-140 lykkjur á hringprjón 2,5 með DROPS Fiesta. Prjónið 1 umferð brugðið. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja brugðið / 1 lykkja slétt) þar til kantur í hálsmáli mælist 2-2-3-3-3-4-4 cm. Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki eftir fyrstu 38-40-40-44-45-46-50 lykkjur í umferð (= ca fyrir miðju að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Prjónið síðan með hringprjón 4. Nú eru sett 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett á milli 2 lykkja og þessar 2 lykkjur eru kallaðar fyrir laskalykkjur. Setjið 1. merki í fyrstu lykkju, teljið 19-19-19-23-23-23-27 lykkjur (= ermi), setjið 2. merki í næstu lykkju, teljið 33-37-37-37-39-41-41 lykkjur (= framstykki), setjið 3. merki í næstu lykkju, teljið 19-19-19-23-23-23-27 lykkjur (= ermi), setjið 4. merki í næstu lykkju, það eru 33-37-37-37-39-41-41 lykkjur á eftir síðasta merki (= bakstykki). Prjónið sléttprjón hringinn og aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við laskalykkjurnar – lesið leiðbeiningar að ofan með útskýringu hvernig auka á út. LASKALÍNA: UMFERÐ 1: Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar (= 8 lykkjur fleiri). ATH: Í byrjun umferðar er aukið út eftir lykkju með 1. merki og í lok umferðar er aukið út á undan lykkju með 1. merki - að auki er aukið út um 0-0-0-0-0-4-6 lykkjur jafnt yfir á framstykki og 0-0-0-0-0-4-6 lykkjur jafnt yfir á bakstykki = 116-124-124-132-136-148-160 lykkjur. UMFERÐ 2: Prjónið sléttprjón – munið að uppslátturinn er prjónaður eins og útskýrt er undir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. UMFERÐ 3: Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar (= 8 lykkjur fleiri fyrir laskalínu). UMFERÐ 4: Prjónið sléttprjón – munið að uppslátturinn er prjónaður eins og útskýrt er undir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Prjónið UMFERÐ 3 og 4 alls 19-25-27-21-24-30-29 sinnum (= 40-52-56-44-50-62-60 umferðir prjónaðar) = 268-324-340-300-328-388-392 lykkjur í umferð. Munið að fylgja prjónfestunni. Prjónið og aukið út þannig: UMFERÐ 1: Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2: Prjónið sléttprjón. UMFERÐ 3: Prjónið sléttprjón, aukið út fyrir laskalínu á framstykki og bakstykki, þ.e.a.s. aukið út á eftir 2. og 4. merki og á undan 3. og 1. merki – lykkjur eru ekki auknar út á ermum (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 4: Prjónið sléttprjón. Prjónið umferð 1 til 4 alls 3-1-1-5-4-2-3 sinnum (= 12-4-4-20-16-8-12 umferðir prjónaðar = 3-1-1-5-4-2-3 sinnum útaukning á ermum og 6-2-2-10-8-4-6 sinnum útaukning á framstykki/bakstykki) = 304-336-352-360-376-412-428 lykkjur í umferð. Öll útaukning fyrir laskalínu hefur nú verið gerð til loka, aukið hefur verið út alls 26-28-30-32-33-35-36 sinnum á framstykki/bakstykki og 23-27-29-27-29-33-33 sinnum á ermum. Prjónið síðan sléttprjón án þess að auka út, þar til stykkið mælist 21-22-23-23-24-25-26 cm frá merki fyrir miðju að framan. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Þegar stykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar þá koma laskalykkjurnar til með að vera staðsettar aðeins inn á framstykki/bakstykki, þ.e.a.s. samtímis sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 2-2-2-2-4-5-7 lykkjur sléttprjón (hálft bakstykki), setjið næstu 63-71-75-75-75-81-81 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-12-16-20-20-24 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 89-97-101-105-113-125-133 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 63-71-75-75-75-81-81 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-12-16-20-20-24 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 87-95-99-103-109-120-126 lykkjur sléttprjón (= hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 194-210-226-242-266-290-314 lykkjur. Setjið 1 merki í aðra hlið stykkisins (= mitt í 8-8-12-16-20-20-24 lykkjurnar sem fitjaðar voru upp undir ermi). Prjónið fram að merki, umferðin byrjar hér og prjónað er í hring. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 38-40-42-42-44-46-48 cm frá merki við miðju að framan. Skiptið yfir á hringprjón 2,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 48-52-56-60-70-72-76 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 242-262-282-302-336-362-390 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-5-5-5-5 cm, fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 42-44-46-47-49-51-52 cm frá merki við miðju að framan og ca 46-48-50-52-54-56-58 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 63-71-75-75-75-81-81 lykkjur frá ermi af öðrum þræðinum á hringprjón 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 8-8-12-16-20-20-24 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 71-79-87-91-95-101-105 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til ermin mælist 13-12-11-12-12-10-10 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 5-5-7-7-7-9-9 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 76-84-94-98-102-110-114 lykkjur. Þegar stroffið mælist 2-2-3-3-3-4-4 cm fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 15-14-14-15-15-14-14 cm frá skiptingunni. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #fairytalesummertee eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 267-21
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.