Pamela skrifaði:
Wie kann ein paar Maschen nach der rechten Schulter die vordere Mitte kommen? Muss das nicht entweder die linke Schulter oder die hintere Mitte sein? Verwirrte Grüße 😊
14.03.2026 - 15:48DROPS Design svaraði:
Liebe Pamela, man wird hier von oben nach unten stricken, die Runden beginnen bei diesem Modell mit der Raglanmaschen vor rechtem Ärmel, dann strickt man den rechten Ärmel, das Vorderteil, den linken Ärmel und endlich das Rückenteil. Viel Spaß beim Stricken!
16.03.2026 - 09:01
Alexandra skrifaði:
Hej ni bör se över mönstret. Förvirrande att dela upp både raglan och indelningen av ärmar. Tex.. sätt de första … maskorna på tråd. De första .. maskorna är ryggen i detta mönster. Då de börjar från höger axel bak och över ryggen. Sedan står de att ena ärmen ska ha 35 maskor på tråd o den andra 19. Kan de verkligen stämma. Även förvirrande när man ska dela upp raglanen med markörer. Tex sätt första markören i första maskan på varvet o sen räkna… förvirrande
25.02.2026 - 02:03DROPS Design svaraði:
Hei Alexandra. Her har det nok blitt skrevet inn feil tall til erme nr. 2. Det skal være samme maskeantall som erme nr. 1 (35-35-39-39-41-41-41). Oppskriften er oversendt til Design avd. slik at de kan dobbeltsjekke. Men når du deler til bol og erme setter man først maskene til 1. erme på 1 tråd, deretter legges opp nye masker og så strikkes det masker til forstykket (ikke bakstykket), så setter man masker til 2. erme på 1 tråd, deretter legges opp nye masker og så strikkes det masker til bakstykket. mvh DROPS Design
09.03.2026 - 10:06
Spring Hug Sweater#springhugsweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Air og DROPS Melody. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með laskalínu og i-cord. Stærð XS - XXXL.
DROPS 267-34 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Á UNDAN MERKI (= uppslátturinn snýr til hægri): Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, setjið til baka uppsláttinn yfir á vinstri prjóninn með því að stinga inn vinstri prjóni aftan frá í uppsláttinn (uppslátturinn er núna snúinn). Prjónið uppsláttinn slétt í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn – svo ekki myndist gat. Prjónið nýjar lykkjur í sléttprjóni. Á EFTIR MERKI (= uppslátturinn snýr til vinstri): Prjónið uppsláttinn slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn – svo ekki myndist gat. Prjónið nýjar lykkjur í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Þegar lykkjum er aukið út jafnt yfir út í skiptinguna yfir í stroff er mikilvægt að auka út þar sem lykkjurnar verða síðar prjónaðar brugðið, sléttprjónið heldur þá fallega áfram inn í stroffið. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Berustykkið er prjónað í hring á hringprjón frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður með útaukningu fyrir laskalínu. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp fyrir kant í hálsmáli sem felldar eru af með i-cord. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. BERUSTYKKI: Fitjið upp 52-52-54-56-58-60-64 lykkjur á hringprjón 8 með 1 þræði DROPS Air og 1 þræði DROPS Melody (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt. Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki eftir fyrstu 16-16-17-17-18-18-19 lykkjur í umferð (= ca fyrir miðju að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. Nú eru sett 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett í lykkju og þessar lykkjur eru nú kallaðar fyrir laskalykkjur og auka á út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar. Setjið 1. merki í fyrstu lykkju, teljið 5 lykkjur (= ermi), setjið 2. merki í næstu lykkju, teljið 19-19-20-21-22-23-25 lykkjur (= framstykki), setjið 3. merki í næstu lykkju, teljið 5 lykkjur (= ermi), setjið 4. merki í næstu lykkju, það eru 19-19-20-21-22-23-25 lykkjur á eftir síðasta merki (= bakstykki). Nú er prjónað sléttprjón hringinn jafnframt því sem aukið er út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við laskalykkjurnar – lesið leiðbeiningar að ofan með útskýringu hvernig auka á út. Munið að fylgja prjónfestunni. Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð, aukið er út hvoru megin við laskalykkjurnar alls 14-14-16-16-17-17-17 sinnum = 164-164-182-184-194-196-200 lykkjur (= 8 lykkjur fleiri í hverri útaukningsumferð). ATH: Í byrjun umferðar er aukið út á eftir lykkju með 1. merki og í lok umferðar er aukið út á undan lykkju með 1. merki. Útaukningu fyrir ermar er nú lokið, en haldið áfram að auka út fyrir laskalínu á framstykki og bakstykki í annarri hverri umferð 0-1-1-2-2-4-5 sinnum til viðbótar = 164-168-186-192-202-212-220 lykkjur í umferð (= 4 lykkjur fleiri í hverri útaukningsumferð). Prjónið síðan án þess að auka út þar til stykkið mælist 20-22-24-26-27-30-31 cm frá merki fyrir miðju að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Jafnframt sem næsta umferð er prjónuð skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Setjið fyrstu 35-35-39-39-41-41-41 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-6-6-8-10-12-14 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 47-49-54-57-60-65-69 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 35-35-39-39-41-41-41 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-6-6-8-10-12-14 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 47-49-54-57-60-65-69 lykkjur í sléttprjóni (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 102-110-120-130-140-154-166 lykkjur. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 48-50-52-54-56-58-60 cm frá merki fyrir miðju að framan. Skiptið yfir á hringprjón 6, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 30-32-36-38-44-46-48 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 132-142-156-168-184-200-214 lykkjur. Þegar stroffið mælist 3 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 51-53-55-57-59-61-63 cm frá merki við miðju að framan og ca 54-56-58-60-62-64-66 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 35-35-39-39-41-41-41 lykkjur frá ermi af öðrum þræðinum á hringprjón 8 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 4-6-6-8-10-12-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 39-41-45-47-51-53-55 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 4-6-6-8-10-12-14 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur með 0-0-10-10-8-8-8 cm millibili alls 1-1-2-2-3-3-3 sinnum = 37-39-41-43-45-47-49 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 42-41-39-38-37-35-34 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 6 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 11-11-11-13-13-13-15 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 48-50-52-56-58-60-64 lykkjur. Þegar stroffið mælist 3 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 45-44-42-41-40-38-37 cm frá skiptingunni. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið hringprjón 8 og 1 þráð í hvorri tegund (= 2 þræðir). Byrjið frá réttu við aðra axlalínuna og prjónið upp ca 52-52-54-56-58-60-64 lykkjur í kringum hálsmál, þ.e.a.s. 1 lykkju í hverja lykkju frá uppfitjunarkanti. Nú á að fella af með i-cord – passið uppá að fella ekki af of fast. Byrjið á að fitja upp 2 nýjar lykkjur á hægri prjón frá réttu. Lyftið 2 nýju lykkjunum af hægri prjóni yfir á vinstri prjón þannig að þráðurinn sem prjónað er með sitji 2 lykkjum inn á vinstri prjóni (þegar prjónað er þá herðir þráðurinn sem prjónað er með á stykkinu, þannig að það myndast snúruprjón). * Prjónið 1 lykkjur slétt, prjónið næstu 2 lykkjur snúnar slétt saman. Lyftið 2 lykkjum af hægri prjóni til baka yfir á vinstri prjón. Ekki snúa stykkinu.* Prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir. Lyftið til baka 2 lykkjunum af hægri prjóni yfir á vinstri prjón. Fellið af. Saumið lítið spor sem bindur saman byrjun og enda á i-cord. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #springhugsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 39 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 267-34
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.