Anna Lisa skrifaði:
Buongiorno. Nelle indicazioni dello sprone credo manchi il segnapunti n. 2 tra la spalla e il davanti.
30.03.2026 - 06:34DROPS Design svaraði:
Buonasera Anna Lisa, grazie per la segnalazione: abbiamo corretto il testo. Buon lavoro!
30.03.2026 - 19:29
Anne Hansen skrifaði:
Hvor mange nøgler skal der til str XL?
12.03.2026 - 15:04DROPS Design svaraði:
Hei Anne. Garnmengden til alle 7 str. finner du øverst i oppskriften. Klikk på firkanten med XL øverst og detvil da lages en ring rundt alle viktige mål/tall i oppskriften til str. XL. mvh DROPS Design
16.03.2026 - 13:59
Nathalie skrifaði:
J’ai monté 104 mailles pour commencer le col, mais l’encolure est très petite, je ne passe pas ma tête, alors que le modèle a une encolure très large. J’ai utilisé des aiguilles 3 -1/2.
04.03.2026 - 10:29
Nathalie skrifaði:
J’ai monté 104 mailles pour commencer le col, mais l’encolure est très petite, je ne passe pas ma tête, alors que le modèle a une encolure très large. J’ai utilisé des aiguilles 3 -1/2.
04.03.2026 - 10:13DROPS Design svaraði:
Bonjour Nathalie, pensez à bien vérifier votre tension (20 mailles x 27 rangs jersey = 10 x 10 cm avec des aiguilles 3,5) - et veillez bien à ce que votre montage ne soit pas trop serré, pour que l'encolure ne soit pas trop serrée non plus. Utilisez par exemple 1 ou 2 tailles d'aiguilles en plus, prenez votre fil en double pour le montage (cf. vidéo, etc.. Bon tricot!
05.03.2026 - 09:29
Gabriele Adler skrifaði:
Vielen, vielen Dank für Ihre schnelle und aufschlussreiche Antwort. Ich habe wohl falsche Info bezüglich der Banderole erhalten. Viele freundliche Grüße G. Adler
25.02.2026 - 18:29
Gabriele Adler skrifaði:
Di Wolle wird mit 5er Nadeln lt. Banderole gestrickt. Dabei ist die Maschenprobe dieselbe wie in Drops 266-32 #quietfildsweater. Ihre Anleitung wird mit 3,5 gestrickt und kommt auch auf 20 M 27 Reihen. Ist 3,5 Nadeln wirklich richtig? Ich möchte gerne ein Baumwollgarn benutzen und bin nun unsicher, welches möglich wäre. Gabi Adler
24.02.2026 - 12:50DROPS Design svaraði:
Liebe Gabriele, die auf der Banderole angegebene Maschenprobe ist nur ein Richtwert. Gerade Flauschgarne wie Brushed Alpaca Silk lassen sich auch gut mit dünneren Nadeln stricken. Die Maschenprobe auf der Banderole mit Nadelstärke 5 ist 17 Maschen x 22 Reihen, hier in dieser Anleitung ist die Maschenprobe mit Nadel 3,5 20 Maschen x 27 Reihen, das kommt also hin. Die Angabe der Nadelstärke ist für diesen Pullover korrekt, Sie sollten 20 Maschen auf 10 cm haben - letztendlich müssen Sie aber selbst ausprobieren, ob Sie dafür Nr. 3,5 oder eine etwas dünnere oder etwas dickere Nadel benötigen. Viel Spaß beim Stricken!
24.02.2026 - 16:34
Kristina skrifaði:
Hi, Is the back and front increase of stitches is correct? Because it is not possible to get in total 80 stitches after the first front and back increase (if you increase 4 stitches every second round and do 24 rounds in total). It gives you 12 stitches in each back and front, so it is total 56 stitches in back and front. So can I get in total 80 stitches for back and front? Or maybe I do not understand something. Size S
20.02.2026 - 22:39
Quiet Field Sweater#quietfieldsweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með útaukningu fyrir axlarsæti, rúllukanti, sléttprjóni og stuttum ermum. Stærð XS - XXXL.
DROPS 266-32 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL HÆGRI Á UNDAN MERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL TIL VINSTRI Á EFTIR MERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. ------------------------------------------------------ BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermarnar bíða. Síðan eru ermarnar prjónaðar niður á við í hring. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 100-104-108-108-112-116-120 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Brushed Alpaca Silk. Prjónið 3 umferðir sléttprjón (= rúllukantur), prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 2-2-2-2-2½-2½-2½ cm. Setjið 1 merki í byrjun umferðar (= miðja að aftan). BERUSTYKKI: Nú eru sett 4 merki í stykkið, merkin eru notuð þegar auka á út fyrir útaukningu fyrir axlarsæti, ermar og berustykki. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið næstu umferð þannig: Prjónið sléttprjón yfir fyrstu 15-16-17-17-18-19-20 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið 1. merki á undan næstu lykkju. Prjónið sléttprjón yfir næstu 20 lykkjur (= axlalykkjur), setjið 2. merki á undan næstu lykkju. Prjónið sléttprjón yfir næstu 30-32-34-34-36-38-40 lykkjur (= framstykki), setjið 3. merki á undan næstu lykkju. Prjónið sléttprjón yfir næstu 20 lykkjur (= axlalykkjur), setjið 4. merki á undan næstu lykkju. Prjónið sléttprjón yfir síðustu 15-16-17-17-18-19-20 lykkjur (= hálft bakstykki). ÚTAUKNING AXLARSÆTI: Prjónið sléttprjón hringinn jafnframt því sem aukið er út fyrir axlarsæti – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING. Lykkjur eru einungis auknar út á framstykki/bakstykki, fjöldi lykkja á ermum verður sá sami. Aukið er út um 4 lykkjur í hverri umferð, þannig: UMFERÐ 1: * Prjónið fram að fyrsta/næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 20 lykkjur, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar, prjónið slétt út umferðina (= 4 lykkjur fleiri). Prjónið þessa umferð alls 22-24-24-24-24-24-24 sinnum = 188-200-204-204-208-212-216 lykkjur. Munið að fylgja prjónfestunni. Það eru 20 lykkjur á hvorri ermi og 74-80-82-82-84-86-88 lykkjur á bakstykki / framstykki. Síðan er aukið út fyrir ermar eins og útskýrt er að neðan. ÚTAUKNING ERMAR: Einungis er aukið út á ermum og fjöldi lykkja á bakstykki og framstykki verður sá sami. Prjónið sléttprjón, JAFNFRAMT er aukið út um 4 lykkjur í annarri hverri umferð – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING og prjónið þannig: UMFERÐ 1: * Prjónið fram að fyrsta/næsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar, prjónið út umferðina (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2: Prjónið slétt. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 11-14-15-13-11-8-5 sinnum (= 22-28-30-26-22-16-10 umferðir prjónaðar) = 232-256-264-256-252-244-236 lykkjur. Það eru 42-48-50-46-42-36-30 lykkjur á hvorri ermi og 74-80-82-82-84-86-88 lykkjur á bakstykki / framstykki. Síðan eru lykkjur auknar út bæði fyrir fram- og bakstykki og ermar eins og útskýrt er að neðan. ÚTAUKNING BERUSTYKKI: Nú er aukið út bæði á ermum og á bakstykki og framstykki. Prjónið sléttprjón – JAFNFRAMT er aukið út um 8 lykkjur í annarri hverri umferð, aukið er út á undan og á eftir hverju merki – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING og prjónið þannig: UMFERÐ 1: * Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan fyrsta merki, aukið út til hægri, prjónið 1 lykkju, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 1 lykkju, aukið út 1 lykkju til vinstri *, prjónið frá *-* einu sinni til viðbótar, prjónið út umferðina (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2: Prjónið slétt. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 9-9-11-14-18-22-27 sinnum (= 18-18-22-28-36-44-54 umferðir prjónaðar) = 304-328-352-368-396-420-452 lykkjur. Það eru 60-66-72-74-78-80-84 lykkjur á hvorri ermi og 92-98-104-110-120-130-142 lykkjur á bakstykki / framstykki. Stykkið mælist 20-22-24-25-26-37-29 cm frá yst á öxl og niður (= 5 cm dýpt á útaukningu fyrir axlarsæti og 15-17-19-20-21-22-24 cm fyrir útaukningu á ermum). Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið yfir fyrstu 46-49-52-55-60-65 lykkjur eins og áður (= hálft bakstykki), setjið næstu 60-66-72-74-78-80-84 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-6-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 92-98-104-110-120-130-142 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 60-66-72-74-78-80-84 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 4-6-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið síðustu 46-49-52-55-60-65-71 lykkjur eins og áður (= hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 192-208-224-240-260-284-308 lykkjur. Prjónið sléttprjón til stykkið mælist 48-50-52-54-56-58-60 cm frá merki fyrir miðju að aftan. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT því sem aukið er út um 10-12-12-12-12-14-16 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 202-220-236-252-272-298-324 lykkjur. Þegar stroffið mælist 1½-1½-1½-2-2-2-2 cm fellið af. Peysan mælist 50-52-54-56-58-60-62 cm frá merki fyrir miðju að aftan. ERMAR: Setjið til baka 60-66-72-74-78-80-84 lykkjur frá ermi af þræði á hringprjóna 3,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 4-6-8-10-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 64-72-80-84-88-92-96 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 11-8-7-7-6-6-4 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið), í fyrstu umferð er aukið út um 6-8-8-8-8-10-10 lykkjur jafnt yfir = 70-80-88-92-96-102-106 lykkjur. Þegar stroffið mælist 1½-1½-1½-2-2-2-2 cm fellið af. Ermin mælist ca 13-10-9-9-8-8-6 cm frá skiptingunni. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #quietfieldsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 31 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 266-32
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.