Quiet Field Cardigan#quietfieldcardigan |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með útaukningu fyrir axlarsæti, rúllukanti, i-cord og stuttum ermum. Stærð XS - XXXL.
DROPS 266-31 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 (frá réttu): AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL HÆGRI Á UNDAN MERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL TIL VINSTRI Á EFTIR MERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 (frá röngu): AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL VINSTRI Á UNDAN MERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL TIL HÆGRI Á EFTIR MERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig (= 7 lykkjur): Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 5 lykkjur í garðaprjóni. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kantlykkjur að framan þannig (= 7 lykkjur): Prjónið þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að lykkjur í kanti að framan hafa verið fitjaðar upp. Fellið síðan af fyrir 4-4-5-5-5-6-6 næstu hnappagötum með ca 11-12-10-10-10½-9-9½ cm á milli hverra hnappagata. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. ------------------------------------------------------ BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Berustykkið er prjónað fram og til baka til að forma hálsmálið, síðan er berustykkið prjónað til loka áður en það skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermarnar bíða. Síðan eru ermarnar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og kantur í hálsmáli er prjónaður fram og til baka. BERUSTYKKI: Fitjið upp 74-76-78-78-80-82-84 lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Brushed Alpaca Silk. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Nú eru sett 4 merki í stykkið eins og útskýrt er að neðan, merkin eru sett á milli 2 lykkja – þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar. Þessi merki eru notuð þegar auka á út fyrir útaukningu á axlarsæti, ermum og berustykki. Teljið 2 lykkjur (= framstykki), setjið 1. merki á undan næstu lykkju, teljið 20 lykkjur frá 1. merki, setjið 2. merki í næstu lykkju (= ermi), teljið 30-32-34-34-36-38-40 lykkjur frá 2. merki (= bakstykki), setjið 3. merki á undan næstu lykkju, teljið 20 lykkjur frá 3. merki, setjið 4. merki á undan næstu lykkju (= ermi). Það eru 2 lykkjur eftir á framstykki á eftir síðasta merki. Látið þessi 4 merki fylgja áfram með, það á að auka út við hvert og eitt þessara merkja. Prjónið sléttprjón fram og til baka jafnframt því sem aukið er út fyrir axlarsæti og fitjaðar eru upp nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok hverrar umferðar. Lykkjur eru einungis auknar út á bakstykki og framstykkjum, lykkjufjöldinn á ermum verðu sá sami. Prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta) – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: * Prjónið slétt fram að fyrsta/næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 20 lykkjur (= ermi), færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar, prjónið slétt út umferðina, endið með að fitja upp 2 nýjar lykkjur í umferð = 80-82-84-84-86-88-90 lykkjur. UMFERÐ 2 (= ranga) – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: * Prjónið fram að fyrsta/næsta merki, aukið út 1 lykkju til vinstri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 20 lykkjur (= ermi), færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til hægri *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar, prjónið brugðið út umferðina, endið með að fitja upp 2 nýjar lykkjur í umferð = 86-88-90-90-92-94-96 lykkjur. UMFERÐ 3 (= rétta): * Prjónið fram að fyrsta/næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 20 lykkjur (= ermi), færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar, prjónið slétt út umferðina, endið með að fitja upp 2 nýjar lykkjur í umferð = 92-94-96-96-98-100-102 lykkjur. UMFERÐ 4 (= ranga): * Prjónið fram að fyrsta/næsta merki, aukið út 1 lykkju til vinstri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 20 lykkjur (= ermi), færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til hægri *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar, prjónið brugðið út umferðina, endið með að fitja upp 2 nýjar lykkjur í umferð = 98-100-102-102-104-106-108 lykkjur. UMFERÐ 5 (= rétta): * Prjónið fram að fyrsta/næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 20 lykkjur (= ermi), færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar, prjónið slétt út umferðina, endið með að fitja upp 3 nýjar lykkjur í umferð = 105-107-109-109-111-113-115 lykkjur. UMFERÐ 6 (= ranga): * Prjónið fram að fyrsta/næsta merki, aukið út 1 lykkju til vinstri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 20 lykkjur (= ermi), færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til hægri *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar, prjónið brugðið út umferðina, endið með að fitja upp 3 nýjar lykkjur í umferð = 112-114-116-116-118-120-122 lykkjur. UMFERÐ 7 (= rétta): * Prjónið fram að fyrsta/næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 20 lykkjur (= ermi), færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar, prjónið slétt út umferðina, endið með að fitja upp 13-14-15-15-16-17-18 nýjar lykkjur í umferð = 129-132-135-135-138-141-144 lykkjur. UMFERÐ 8 (= ranga): Prjónið KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD yfir fyrstu 7 lykkjurnar – lesið leiðbeiningar að ofan, * Prjónið fram að fyrsta/næsta merki, aukið út 1 lykkju til vinstri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 20 lykkjur (= ermi), færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til hægri *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar, prjónið brugðið út umferðina, endið með að fitja upp 13-14-15-15-16-17-18 nýjar lykkjur í umferð = 146-150-154-154-158-162-166 lykkjur. Það eru 30-31-32-32-33-34-35 lykkjur á hvoru framstykki, 20 lykkjur á hvorri ermi og 46-48-50-50-52-54-56 lykkjur á bakstykki. Aukið hefur verið út alls 8 sinnum fyrir axlarsæti. ÚTAUKNING AXLARSÆTI: Prjónið fram og til baka í sléttprjóni og kant að framan með i-cord í hvorri hlið jafnframt sem haldið er áfram að auka út fyrir axlarsæti. Fellt er af fyrir HNAPPAGAT – lesið leiðbeiningar að ofan. UMFERÐ 1 (= rétta): * Prjónið eins og áður fram að fyrsta/næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 20 lykkjur, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar, prjónið slétt út umferðina (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2 (= ranga): * Prjónið eins og áður fram að fyrsta/næsta merki, aukið út 1 lykkju til vinstri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 20 lykkjur (= ermi), færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til hægri *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar, prjónið slétt út umferðina (= 4 lykkjur fleiri). Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 7-8-8-8-8-8-8 sinnum (= 14-16-16-16-16-16-16 umferðir prjónaðar). Aukið hefur verið út 14-16-16-16-16-16-16 sinnum oftar en 8 útaukningar frá hálsmáli – aukið hefur verið út alls 22-24-24-24-24-24-24 sinnum fyrir útaukningu fyrir axlarsæti = 202-214-218-218-222-226-230 lykkjur. Munið að fylgja prjónfestunni. Það eru 44-47-48-48-49-50-51 lykkjur á hvoru framstykki, 20 lykkjur á hvorri ermi og 74-80-82-82-84-86-88 lykkjur á bakstykki. Síðan er aukið út fyrir ermar eins og útskýrt er að neðan. ÚTAUKNING ERMAR: Einungis er aukið út á ermum og fjöldi lykkja á bakstykki og framstykki verður sá sami. Prjónið sléttprjón og kanta að framan eins og áður, JAFNFRAMT er aukið út um 4 lykkjur í hverri umferð frá réttu – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): * Prjónið fram að fyrsta/næsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar, prjónið út umferðina (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið brugðið þar til 7 lykkjur eru eftir, endið með kant að framan eins og áður. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 11-14-15-13-11-8-5 sinnum (= 22-28-30-26-22-16-10 umferðir prjónaðar) = 246-270-278-270-266-258-250 lykkjur. Það eru 44-47-48-48-49-50-51 lykkjur á hvoru framstykki, 42-48-50-46-42-36-30 lykkjur á hvorri ermi og 74-80-82-82-84-86-88 lykkjur á bakstykki. Aukið síðan út bæði á fram- og bakstykki og ermum eins og útskýrt er að neðan. ÚTAUKNING BERUSTYKKI: Nú er aukið út bæði á ermum og á bakstykki og framstykki. Prjónið sléttprjón og kanta að framan eins og áður – JAFNFRAMT er aukið út um 8 lykkjur í hverri umferð frá réttu, aukið er út á undan og á eftir hverju merki – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): * Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan fyrsta merki, aukið út til hægri, prjónið 1 lykkju, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 1 lykkju, aukið út 1 lykkju til vinstri *, prjónið frá *-* einu sinni til viðbótar, prjónið út umferðina (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið brugðið þar til 7 lykkjur eru eftir, endið með kant að framan eins og áður. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 9-9-11-14-18-22-27 sinnum (= 18-18-22-28-36-44-54 umferðir prjónaðar) = 318-342-366-382-410-434-466 lykkjur. Það eru 53-56-59-62-67-72-78 lykkjur á hvoru framstykki, 60-66-72-74-78-80-84 lykkjur á hvorri ermi og 92-98-104-110-120-130-142 lykkjur á bakstykki. Stykkið mælist ca 20-22-24-25-26-27-29 cm frá yst á öxl og niður (= 5 cm dýpt á útaukningu fyrir axlarsæti og 15-17-19-20-21-22-24 cm fyrir útaukningu á ermum). Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 53-56-59-62-67-72-78 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 60-66-72-74-78-80-84 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-6-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 92-98-104-110-120-130-142 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 60-66-72-74-78-80-84 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 4-6-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið síðustu 53-56-59-62-67-72-78 lykkjur eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 206-222-238-254-274-298-322 lykkjur. Prjónið sléttprjón og kanta að framan eins og áður þar til stykkið mælist 48-50-52-54-56-58-60 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að aftan. Í næstu umferð frá réttu byrjar stroff JAFNFRAMT sem aukið er út um 21-23-23-25-27-29-33 lykkjur jafnt yfir í umferð (lykkjum er ekki aukið út yfir kanta að framan) = 227-245-261-279-301-327-355 lykkjur, prjónið þannig: Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið kant að framan eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið – munið eftir útaukningunni) þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og kant að framan eins og áður. Þegar stroffið mælist 1½-1½-1½-2-2-2-2 cm fellið af. Peysan mælist 50-52-54-56-58-60-62 cm frá uppfitjunarkanti fyrir miðju að aftan. ERMAR: Setjið til baka 60-66-72-74-78-80-84 lykkjur frá ermi af þræði á hringprjóna 3,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 4-6-8-10-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 64-72-80-84-88-92-96 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 11-8-7-7-6-6-4 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið), í fyrstu umferð er aukið út um 6-8-8-8-8-10-10 lykkjur jafnt yfir = 70-80-88-92-96-102-106 lykkjur. Þegar stroffið mælist 1½-1½-1½-2-2-2-2 cm fellið af. Ermin mælist ca 13-10-9-9-8-8-6 cm frá skiptingunni. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið hringprjón 3. Byrjið frá réttu við miðju að framan og prjónið upp ca 113 til 133 lykkjur í kringum hálsmál (ásamt 1 lykkju í hverja af 7 kantlykkjum að framan í hvorri hlið), lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2+1. Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja brugðið / 1 lykkja slétt) þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og kant að framan eins og áður. Prjónið stroff svona fram og til baka í 2-2-2-2-2½-2½-2½ cm, endið með umferð frá réttu. Prjónið 3 umferðir sléttprjón með kant að framan eins og áður (= rúllukantur), notið hringprjón 3,5 og fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #quietfieldcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 48 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 266-31
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.