Seashell Sweater#seashellsweater |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Big Merino. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með evrópsku berustykki og gatamynstri. Stærð XS - XXXL.
DROPS 267-33 |
|||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÉTTU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá RÉTTU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá RÖNGU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÖNGU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Prjónið sléttprjón með mynstri með 6 cm millibili, passið á að enda með að minnsta kosti 4 cm af sléttprjóni fyrir stroff neðst á fram- og bakstykki og á ermum. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. Stykkið er prjónað samkvæmt útskýringu 1-5. 1. BAKSTYKKI: Fitjaðar eru upp lykkjur aftan í hnakka og bakstykkið er prjónað fram og til baka niður á við jafnframt því sem lykkjum er aukið út í hvorri hlið á stykki þar til fjöldi lykkja á axlavídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið litla skáhallandi öxl. 2. FRAMSTYKKI: Er prjónað í 2 stykkjum (= hvoru megin við hálsmál). Byrjað er á að prjóna upp lykkjur meðfram annarri öxlinni frá bakstykki, framstykkið prjónað niður á við jafnframt því sem lykkjur eru auknar út við hálsmál. Þetta er endurtekið á hinni öxlinni, síðan eru fitjaðar upp nýjar lykkjur fyrir hálsmáli við miðju að framan = framstykkin eru sett saman í einn hluta. Framstykkið er prjónað fram og til baka að tilgreindu máli. 3. BERUSTYKKI: Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar á sama hringprjón – prjónað er þannig: Lykkjur eru prjónaðar frá framstykki, lykkjur prjónaðar upp fyrir ermi meðfram hlið á framstykki, bakstykkið er prjónað, lykkjur prjónaðar upp fyrir ermi meðfram hlið á hinu framstykkinu = síðan er berustykkið prjónað í hring yfir allar lykkjur. 4. ÚTAUKNING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Samtímis sem berustykkið er prjónað, á að auka út lykkjur fyrir fram- og bakstykki og ermar, fyrst er aukið út fyrir ermar og síðan er aukið út bæði fyrir fram- og bakstykki og ermar. 5. FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Þegar allar lykkjur hafa verið auknar út og berustykkið hefur verið prjónað að tilgreindu máli, á að skipta stykkinu fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við og í hring, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og kantur í hálsmáli er prjónaður í hring. BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón. Fitjið upp 30-30-30-32-32-32-34 lykkjur á hringprjón 5 með DROPS Big Merino. UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 2 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 3 (= ranga): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 og prjónið 3 lykkjur brugðið, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið brugðið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 3 lykkjur brugðið. Á EFTIR UMFERÐ 3: Prjónið UMFERÐ 2 og 3 alls 9-9-9-9-9-10-11 sinnum (= 18-18-18-18-18-18-20-22 umferðir prjónaðar), eftir síðustu útaukningu eru = 66-66-66-68-68-72-78 lykkjur í umferð. Klippið þráðinn, setjið lykkjurnar á þráð eða á hjálparprjón. Munið að fylgja prjónfestunni. VINSTRI ÖXL: Finnið vinstri öxl bakstykkisins þannig: Leggið bakstykkið flatt með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjurnar á þræði/hjálparprjóni snúi að þér, vinstri hlið á stykki = vinstri öxl. Prjónið upp lykkjur meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl - byrjið frá réttu við hálsmál og takið upp lykkjur út að handvegi þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkjuna = 18-18-18-18-18-20-22 lykkjur. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum upptökukanti. Prjónið sléttprjón (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu). Þegar stykkið mælist 7-8-9-10-11-12-13 cm, aukið út lykkjur að hálsmáli þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt út umferðina. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 4 sinnum (= 8 umferðir prjónaðar) = 22-22-22-22-22-24-26 lykkjur. Útaukning fyrir hálsmáli er nú lokið. Stykkið mælist ca 11-12-13-14-15-16-17 cm frá merki. 2-3-3-4-4-4-4-5 cm af dýpt af hálsmáli kemur til með að teygja sig yfir á bakstykkið. Setjið lykkjurnar á þráð eða á hjálparprjón, nú er hægri öxl prjónuð meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl eins og útskýrt er að neðan. HÆGRI ÖXL: Finnið hægri öxlina á bakstykkinu þannig: Leggið bakstykkið flatt með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjurnar á þræði/hjálparprjóni snúi að þér, hægri hlið á stykki = hægri öxl. Prjónið upp lykkjur meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl - byrjið frá réttu við handveg og prjónið upp lykkjur að hálsmáli þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkjuna = 18-18-18-18-18-20-22 lykkjur. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum upptökukanti. Prjónið sléttprjón (fyrsta umferðin er prjónuð frá röngu). Þegar stykkið mælist 7-8-9-10-11-12-13 cm, aukið út lykkjur við hálsmál þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út til hægri, prjónið 3 lykkjur slétt - munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 4 sinnum (= 8 umferðir prjónaðar) = 22-22-22-22-22-24-26 lykkjur. Útaukning fyrir hálsmáli er nú lokið. Stykkið mælist ca 11-12-13-14-15-16-17 cm frá merki. 2-3-3-4-4-4-4-5 cm af dýpt af hálsmáli kemur til með að teygja sig yfir á bakstykkið. Í næstu umferð (= rétt) eru framstykkin prjónuð saman þannig: Prjónið sléttar yfir 22-22-22-22-22-24-26 lykkjur frá hægra framstykki, fitjið upp 22-22-22-24-24-24-26 nýjar lykkjur í umferð, prjónið slétt yfir 22-22-22-22-22-24-26 lykkjur frá vinstra framstykki = 66-66-66-68-68-72-78 lykkjur. Prjónið sléttprjón, fram og til baka þar til stykkið mælist 12-13-14-15-16-16-18 cm. Setjið síðan framstykkið og bakstykkið saman og prjónið upp lykkjur fyrir ermakúpu, prjónið eins og útskýrt er að neðan. UMFERÐ 1: Prjónið fyrstu 2 lykkjur frá framstykki slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir á framstykki, lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri), setjið 1 merki hér, prjónið upp 20-22-24-26-28-28-30 lykkjur meðfram hlið frá vinstra framstykki (= lykkjur fyrir ermi - lykkjurnar eru prjónaðar upp innan við ystu lykkjuna), setjið 1 merki, prjónið fyrstu 2 lykkjur frá bakstykki slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á bakstykki, lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 1 slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri), setjið 1 merki, prjónið upp 20-22-24-26-28-28-30 lykkjur meðfram hlið frá hægra framstykki (= lykkjur fyrir ermi - lykkjurnar eru prjónaðar upp innan við ystu lykkjuna), setjið 1 merki = 168-172-176-184-188-196-212 lykkjur. Prjónið síðan í hring eins og útskýrt er fyrir neðan undir berustykki – JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 4 cm frá þar sem lykkjur voru fitjaðar upp fyrir hálsmáli, prjónið MYNSTUR eins og útskýrt er í A.1 yfir allar lykkjur – sjá útskýringu að ofan. ATH! A.1 er deilanlegt með 3 lykkjum, þar sem mynstrið gengur ekki jafnt upp yfir heila mynstureiningu í kringum berustykkið, endið gataumferðina með sléttum lykkjum. BERUSTYKKI: UMFERÐ 1: Prjónið slétt yfir allar lykkjur og aukið út 1 lykkju hvoru megin við hvora ermi eins og áður – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1, fjöldi lykkja á hvorri ermi er aukinn, fjöldi lykkja á fram- og bakstykki er sá sami. UMFERÐ 2: Prjónið 1 umferð slétt yfir allar lykkjur. Prjónið þessar 2 umferðir 7-7-6-4-1-1-1 sinnum (= 34-36-36-34-30-30-32 lykkjur á hvorri ermi og 64-64-64-66-66-70-76 lykkjur á framstykki/bakstykki) = 196-200-200-200-192-200-216 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð þannig: UMFERÐ 1: Prjónið 2 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir á undan merki, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 2 lykkjur slétt, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt yfir 34-36-36-34-30-30-32 lykkjur á ermi, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 2 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið 62-62-62-64-64-68-70 lykkjur slétt á bakstykki, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 2 lykkjur slétt, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt yfir 34-36-36-34-30-30-32 lykkjur á ermi, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón (= 8 lykkjur fleiri, hvoru megin við 2 lykkjur í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og ermi). UMFERÐ 2: Prjónið slétt. Endurtakið þessar 2 umferðir þar til aukið hefur verið út 7-10-12-15-18-20-20 sinnum bæði á fram- og bakstykki og ermum. Aukið hefur verið út samtals 14-17-18-19-19-21-21 sinnum á ermum = 252-280-296-320-336-360-376 lykkjur. Það eru 48-56-60-64-66-70-72 lykkjur á hvorri ermi og 78-84-88-96-102-110-116 lykkjur á framstykki / bakstykki. Ermin mælist ca 13-15-16-17-17-19-19 - þegar peysan er brotin tvöföld við öxlina á stykkið að mælast ca 19-21-23-25-25-27-28 cm frá yst á öxl og niður meðfram handveg. Ef stykkið mælist minna en þetta, haldið þá áfram að prjóna að tilgreindu máli án útaukningar. Skiptið nú berstykkinu í fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptið berustykkinu fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið fyrstu 78-84-88-96-102-110-116 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 48-56-60-64-66-70-72 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10-12 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið næstu 78-84-88-96-102-110-116 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 48-56-60-64-66-70-72 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10-12 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi). Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 168-180-192-208-224-240-256 lykkjur. Prjónið sléttprjón og A.1 í hring þar til stykkið mælist 46-47-49-50-51-53-54 lykkjur frá uppfitjunarkanti við miðju að aftan, passið uppá að enda með að minnsta kosti 4 cm sléttprjóni eftir síðustu mynsturteikningu af A.1. Skipið yfir á hringprjón 3,5, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 28-32-32-36-40-44-44 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 196-212-224-244-264-284-300 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm, fellið af. Peysan mælist 50-51-53-54-56-58-59 cm frá miðju að aftan og 52-54-56-58-60-62-64 cm frá öxl. ERMAR: Setjið 48-56-60-64-66-70-72 lykkjur af erminni frá þræði á hringprjón 5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir erminni – sjá LEIÐBEININGAR ERMI = 54-62-68-72-76-80-84 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 6-6-8-8-10-10-12 nýjar lykkjur undir erminni – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón og A.1 í hring - JAFNFRAMT þegar ermin mælist 1 cm frá skiptingu, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi - lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur 2 sinnum í annarri hverri umferð, fækkið síðan um 2 lykkjur 0-2-3-3-4-4-5 sinnum með 3½ cm millibili = 50-54-58-62-64-68-70 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 35-35-34-34-34-33-32 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 10-10-10-10-12-12-14 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 60-64-68-72-76-80-84 lykkjur. Þegar stroffið mælist 5-5-6-6-6-6-6 cm, fellið af. Ermin mælist ca 53-55-56-57-58-58-57 cm frá öxl. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið frá réttu við aðra axlarlínuna og prjónið upp ca. 88 til 112 lykkjur í kringum hálsmál á hringprjón 3,5 (fjöldi lykkja verður að vera deilanlegur með 4). Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #seashellsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 44 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 267-33
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.