Pink Marshmallow Sweater#pinkmarshmallowsweater |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með köðlum. Stærð XS - XXXL.
DROPS 267-13 |
||||||||||||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning er lesin frá hægri til vinstri þegar prjónað er frá réttu og frá vinstri til hægri þegar prjónað er frá röngu. Vegna gatamynsturs í kaðli í A.1 og A.3 verður fjöldi lykkja breytilegur – allur lykkjufjöldi sem gefinn er upp í mynstri er talinn án þeirra lykkju sem er fækkað og aukið út (= A.1a er alltaf talið sem 26 lykkjur, A.1b er alltaf talið sem 5 lykkjur). LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1: Öll úrtaka er gerð frá réttu! FÆKKIÐ LYKKJUM Í BYRJUN UMFERÐAR ÞANNIG: Prjónið 2 lykkjur slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna (= 1 lykkja færri). FÆKKIÐ LYKKJUM Í LOK UMFERÐAR ÞANNIG: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið 2 lykkjur slétt. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). LEIÐBEININGAR PRJÓN: Þegar prjónaðar eru stuttar umferðir myndast lítið gat þegar stykkinu er snúið við – hægt er að loka þessu gati með því að herða á þræði eða nota aðferðina German Short Rows þannig: Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið. Leggið síðan þráðinn yfir hægri prjón og herðið vel á þræði á bakhlið (þannig verða til tvær lykkjur á prjóninum). Þessar lykkjur eru prjónaðar saman í næstu umferð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breytið eftir þörfum. Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp að handvegi. Það eru prjónaðir kaðlar bæði á framstykki og á bakstykki. Síðan skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki og hvort stykki er prjónað til loka, fram og til baka hvort fyrir sig. Axlasaumar saumaðir. Lykkjur prjónaðar upp fyrir ermar í kringum handveg og ermarnar prjónaðar niður á við. Fyrst er prjónað fram og til baka með stuttum umferðum til að forma ermakúpu, síðan eru ermarnar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og prjónaður er kantur í hálsmáli í hring. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 204-216-232-248-268-292-316 lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Air. Prjónið stroff í hring (= 1 lykkju slétt, 1 lykkju brugðið) í 4-4-5-5-6-6-6 cm. Setjið 1 merkiþráð í byrjun umferðar og 1 merkiþráð eftir 102-108-116-124-134-146-158 lykkjur = í hliðar á flíkinni. Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið 1 umferð slétt samtímis sem lykkjum er fækkað og aukið út þannig: Prjónið 9-11-15-19-19-25-31 lykkjur slétt og fækkið jafnframt um 2-1-2-2-3-4-5 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (= 7-10-13-17-16-21-26 lykkjur slétt), prjónið 85-85-85-85-97-97-97 lykkjur slétt og aukið jafnframt út um 17-17-17-17-15-15-15 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (= 102-102-102-102-112-112-112 lykkjur slétt), prjónið 17-23-31-39-37-49-61 lykkju slétt og fækkið jafnframt um 3-3-5-5-5-7-9 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (= 14-20-26-34-32-42-52 lykkjur slétt – passið að merkiþráðurinn sé mitt á milli þessara lykkja), prjónið 85-85-85-85-97-97-97 lykkjur slétt og aukið jafnframt út um 17-17-17-17-15-15-15 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (= 102-102-102-102-112-112-112 lykkjur slétt), prjónið 8-12-16-20-18-24-30 lykkjur slétt og fækkið jafnframt um 1-2-3-3-2-3-4 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (= 7-10-13-17-16-21-26 lykkjur slétt) = 232-244-256-272-288-308-328 lykkjur. Prjónið síðan MYNSTUR – lesið útskýringu að ofan og prjónið þannig: Prjónið 7-10-13-17-16-21-26 lykkjur sléttprjón, * A.1a, prjónið A.1b alls 1-1-1-1-2-2-2 sinnum, A.2, prjónið A.3b alls 1-1-1-1-2-2-2 sinnum, A.3a *, prjónið 14-20-26-34-32-42-52 lykkjur sléttprjón (merkiþráðurinn er mitt á milli þessara lykkja), prjónið frá * til * 1 sinni til viðbótar, endið með 7-10-13-17-16-21-26 lykkjur sléttprjón. Haldið áfram með mynstur sem þegar er byrjað. Munið að fylgja prjónfestunni. Prjónið þar til stykkið mælist 39-40-41-42-43-44-45 cm – stillið af að næsta umferð sem á að prjóna sé umferð með oddatölu í mynsturteikningu þannig að kaðlaprjóninn sé frá réttu þegar stykkið er síðan prjónað fram og til baka. Nú er lykkjum fækkað fyrir handveg og stykkið skiptist í fram- og bakstykki. SKIPTING VIÐ HANDVEG: Í næstu umferð er stykkinu skipt í framstykki og bakstykki, prjónið þannig: Byrjið 2-3-3-4-5-6-7 lykkjur á undan merkiþræði í byrjun umferðar, fellið af 4-6-6-8-10-12-14 lykkjur fyrir handveg, prjónið 112-116-122-128-134-142-150 lykkjur eins og áður (= framstykki), fellið af 4-6-6-8-10-12-14 lykkjur fyrir handveg (merkiþráðurinn er mitt á milli þessara lykkja), prjónið 112-116-122-128-134-142-150 lykkjur eins og áður (= bakstykki). Nú er bakstykkið og framstykkið prjónað til loka fram og til baka. BAKSTYKKI: = 112-116-122-128-134-142-150 lykkjur. Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu. Haldið áfram með sléttprjón og mynstur eins og áður. Í næstu umferð frá réttu byrjar úrtaka fyrir handveg. Í hvorri hlið er lykkjum fækkað fyrir handveg, lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 og fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið í annarri hverri umferð alls 1-3-4-7-7-9-11 sinnum = 110-110-114-114-120-124-128 lykkjur. Þegar stykkið mælist 55-57-59-61-63-65-67 cm og næsta umferð á að vera prjónuð frá réttu, fækkið um 14 lykkjur yfir miðju 44 lykkjurnar (= fækkið um 6 lykkjur yfir kaðalinn með 16 lykkjum og fækkið um 4 lykkjur yfir hvern kaðal með 8 lykkjum) = 96-96-100-100-106-110-114 lykkjur. Í næstu umferð (= ranga) er fækkað um miðju 26 lykkjurnar fyrir hálsmáli, prjónið út umferðina, hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. ÖXL: = 35-35-37-37-40-42-44 lykkjur. Fyrsta umferðin er prjónuð frá réttu. Prjónið mynstur sem þegar er byrjað fram og til baka eins og áður, en yfir A.1b/A.3b (= 5 lykkjur) er aðeins prjónaðar sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur - JAFNFRAMT eru lykkjur felldar af fyrir hálsmáli í hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 1 lykkju 2 sinnum = 33-33-35-35-38-40-42 lykkjur. Þegar ca. 1 umferð er eftir þar til stykkið mælist 58-60-62-64-66-68-70 cm og næsta umferð á að vera prjónuð frá réttu, fækkið um 8 lykkjur jafnt yfir (= fækkið um 4 lykkjur yfir hvern kaðal með 8 lykkjum) = 25-25-27-27-30-32-34 lykkjur. Fellið af með brugðnum lykkjum frá röngu. FRAMSTYKKI: = 112-116-122-128-134-142-150 lykkjur. Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu. Haldið áfram með sléttprjón og mynstur eins og áður. Í næstu umferð frá réttu byrjar úrtaka fyrir handveg. Í hvorri hlið er lykkjum fækkað fyrir handveg, lesið ÚRTAKA-1 og fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið í annarri hverri umferð alls 1-3-4-7-7-9-11 sinnum = 110-110-114-114-120-124-128 lykkjur. Þegar stykkið mælist 52-53-55-56-57-58-59 cm og næsta umferð á að vera prjónuð frá réttu, fækkið um 14 lykkjur yfir miðju 44 lykkjurnar (= fækkið um 6 lykkjur yfir kaðalinn með 16 lykkjum og fækkið um 4 lykkjur yfir hvern kaðal með 8 lykkjum) = 96-96-100-100-106-110-114 lykkjur. Í næstu umferð (= ranga), setjið miðju 20-20-20-20-16-16-16 lykkjurnar á 1 þráð fyrir hálsmál (til að þurfa ekki að klippa þráðinn sem prjónað er með, prjónið lykkjurnar áður en þær eru settar á þráðinn), prjónið út umferðina, prjónið hvora öxl til loka fyrir sig. ÖXL: = 38-38-40-40-45-47-49 lykkjur. Fyrsta umferðin er prjónuð frá réttu. Prjónið mynstur sem þegar er byrjað fram og til baka eins og áður, en yfir A.1b/A.3b (= 5 lykkjur) er aðeins prjónaðar sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur - JAFNFRAMT eru lykkjur felldar af fyrir hálsmáli í hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 1-1-1-1-2-2-2 sinnum og 1 lykkju 3 sinnum = 33-33-35-35-38-40-42 lykkjur. Þegar ca. 1 umferð er eftir þar til stykkið mælist 58-60-62-64-66-68-70 cm, og næsta umferð á að vera prjónuð frá réttu, fækkið um 8 lykkjur jafnt yfir (= fækkið um 4 lykkjur yfir hvern kaðal með 8 lykkjum) = 25-25-27-27-30-32-34 lykkjur. Fellið af með brugðnum lykkjum frá röngu. FRÁGANGUR: Saumið axlasaumana. ERMAR: Ermin er prjónuð frá handvegi og niður. Leggið stykkið flatt og setjið 1 merki efst á handveginn = miðja ofan á öxl. Notið hringprjón 5 og prjónið upp lykkjur frekar þétt (notið e.t.v. fínni prjón). PRJÓNIÐ UPP LYKKJUR ÞANNIG: Byrjið fyrir miðju á milli nýju lykkjanna sem fitjaðar voru upp undir erminni – prjónið upp 58-62-66-68-74-78-82 lykkjur – passið uppá að prjónaðar sé upp jafnmargar lykkjur hvoru megin við merkið. ERMAKÚPA: Til að flíkin passi betur er prjónað sléttprjón með stuttum umferðum fram og til baka yfir ermakúpuna, umferðin byrjar fyrir miðju undir ermi og prjónað er þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 6-6-6-7-8-10-10 lykkjur fram hjá merki efst á öxlinni, snúið stykkinu við – sjá LEIÐBEININGAR PRJÓN. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 6-6-6-7-8-10-10 lykkjur fram hjá merki, snúið stykkinu við. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 3-3-3-2-2-2-2 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við síðast, snúið stykkinu við. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 3-3-3-2-2-2-2-2 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við síðast, snúið stykkinu við. Endurtakið síðan UMFERÐ 3 og 4. Prjónið þar til snúið hefur verið við alls 14-16-18-22-22-24-26 sinnum (= 7-8-9-11-11-12-13 sinnum í hvorri hlið og síðasta umferðin er prjónuð frá röngu). Á EFTIR SÍÐASTA SKIPTI SEM SNÚIÐ ER VIÐ: Í síðasta skipti sem umferð 4 er prjónuð, endið umferðina með því að snúa stykkinu við, prjónið síðan frá réttu að byrjun umferðarinnar (= mitt undir ermi). Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju undir ermi, merkiþráðurinn verður notað þegar lykkjum er fækkað undir ermi. Látið merkiþráðinn fylgja áfram með í stykkinu. ERMIN ÁFRAM NIÐUR: Nú er prjónað í hring í sléttprjóni yfir allar lykkjur JAFNFRAMT sem lykkjum er fækkað undir erminni, lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2 og fækkið lykkjum þannig: Þegar 1 umferð hefur verið prjónuð, fækkið um 2 lykkjur 2 sinnum í annarri hverri umferð, síðan er fækkað um 2 lykkjur 2-2-4-3-4-5-5 sinnum með 3-3-2-3-2-2-2 cm millibili = 50-54-54-58-62-64-68 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 44-45-44-45-43-43-43 cm frá miðju efst á öxl. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 14-16-16-16-18-20-20 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 64-70-70-74-80-84-88 lykkjur. Þegar stroffið mælist 7-7-8-8-9-9-9 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 51-52-52-53-52-52-52 cm frá miðju efst á öxl. HÁLSMÁL: Notið hringprjón 3,5, byrjið frá réttu við annan axlarsauminn og prjónið upp ca 86-88-88-90-92-94-96 lykkjur innan við 1 lykkju (meðtaldar lykkjur af þræði). Prjónið 1 umferð brugðið, síðan 1 umferð slétt þar sem lykkjufjöldinn er e.t.v. jafnaður út – fjöldi lykkja verður að vera deilanlegur með 2. Prjónið stroff í hring (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4-4-4-4-5-5-5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #pinkmarshmallowsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 40 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 267-13
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.