Carole Paquette skrifaði:
Pour la division je ne comprends vraiment pas comment faire et aussi le rajout des 6 mailles. Est-ce possible aussi de ne pas faire ça en rond et tricoter sur des aiguilles séparément Merci beaucoup de m'aider car je ne comprends vraiment plus comment faire
03.03.2026 - 07:16DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Pacquette, retrouvez cette étape ici, en photos à partir de la photo 9) - ou bien ici, en vidéo à partir du time code 07:00 environ. Vous verrez ainsi comment procéder pour la division des mailles de l'empiècement, comment monter les nouvelles mailles sous les manches et comment continuer. Bon tricot!
03.03.2026 - 09:40
ElisabetWallin skrifaði:
Hej ! Jag har gjort den här tröjan i garnet Paris storlek 7-8 år och den blev helt underbar. Jag skulle vilja göra en i vuxen storlek, dam och undrar om jag kan få hjälp med ett mönster som har samma grund. Diagrammet kan jag ju lägga till själv men jag behöver något att utgå ifrån. Vill göra även den stora tröjan i garnet Paris. Vänligen Elisabet Wallin
02.03.2026 - 10:56DROPS Design svaraði:
Hej Elisabet. Kanske du kan använda dig av mönster 254-39? Mvh DROPS Design
04.03.2026 - 12:27
Carole Paquette skrifaði:
J'ai envoyé une question et personne ne me répond, j'attends votre réponse pour pouvoir continuer mon tricot SVP ME RÉPONDRE MERCI
02.03.2026 - 01:33DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Paquette, vous trouverez la réponse ci-dessous, merci pour votre patience. Bon tricot!
02.03.2026 - 11:18
Carole Paquette skrifaði:
Empiecement : je ne comprends pas où il faut mettre les 4 marqueurs, pouvez-vous me donner des explications plus détaillées. J'ai mis un marqueur après la 23e mailles et ensuite pour l'empiecement je ne comprends pas du où je dois placer les 4 marqueurs. Merci beaucoup de m'aider
01.03.2026 - 21:47
Carole Paquette skrifaði:
Empiecement : je ne comprends pas où il faut mettre les 4 marqueurs, pouvez-vous me donner des explications plus détaillées. J'ai mis un marqueur après la 23e mailles et ensuite pour l'empiecement je ne comprends pas du où je dois placer les 4 marqueurs. Merci beaucoup de m'aider
01.03.2026 - 20:12DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Paquette, le marqueur après les 23 premières mailles sert juste à mesurer l'ouvrage, il ne compte pas pour le raglan. Les marqueurs des raglans doivent être placés ainsi: 1 marqueur, 11 m (manche), 1 marqueur, 24 m (devant), 1 marqueur, 11 m (manche), 1 marqueur, 24 m (dos) soit: 11+24+11+24=70 mailles en taille 5/6 ans. Bon tricot!
02.03.2026 - 10:44
Helena skrifaði:
Stl 5-6 år: hur ska jag minska tre gånger med 10 cm mellanrum när ärmen ska bli 26 cm innan resåren?
15.02.2026 - 19:36DROPS Design svaraði:
Hei Helena. Du feller 1. gang når arbeidet måler 2 cm fra delingen, så etter 10, cm (2. felling), og så etter nye 10 cm (3. felling). Det er nå felt 3 ganger totalt og det er strikket 22 cm etter delingen. Strikk videre til ermet måler 26 cm fra delingen, altså 4 cm etter 3. felling. Og så kommer vrangborden på 3 cm = 26 + 3 = 29 cm. mvh DROPS Design
16.02.2026 - 14:29
Pua Eklund skrifaði:
Hei, riittääkö 2-vuotiaan kokoon todellakin vain 4 kerää lankaa, vaikka se käytetään kaksinkertaisena? T. Pia
01.02.2026 - 09:52DROPS Design svaraði:
Hei, DROPS Alpaca-lanka on hyvin riittoisa lanka, joten 4 kerän tulisi riittää, kunhan neuletiheytesi on sama kuin ohjeessa.
02.02.2026 - 18:24
Little Snow Sweater#littlesnowsweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa fyrir börn úr 2 þráðum DROPS Alpaca. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með laskalínu og rúllukanti. Stærð 2 – 14 ára.
DROPS Children 50-19 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- TVEIR ÞRÆÐIR: Ef fjöldi dokka í mynstri er með oddatölu er hægt að nota tvo þræði úr sömu dokkunni. Notið þráðinn bæði innan í og utan með dokkunni. Þegar skipt er yfir í nýja dokku er gott að skipta ekki um báða þræðina í einu svo festingin á þræðinum verði ekki eins sýnileg. LASKALÍNA: Aukið út 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Á UNDAN LASKALÍNU (= uppslátturinn snýr til hægri): Lyftið uppslættinum frá vinstri prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, setjið uppsláttinn til baka yfir á vinstri prjón með því að stinga inn vinstri prjóni aftan frá í uppsláttinn (uppslátturinn er núna snúinn). Prjónið uppsláttinn slétt í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn – svo ekki myndist gat. Á EFTIR LASKALÍNU (= uppslátturinn snýr til vinstri): Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn – svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermarnar prjónaðar niður á við í hring. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið aðeins laust upp 64-66-70-72-74-76-78 lykkjur á hringprjón 5 með 2 þráðum DROPS Alpaca – lesið TVEIR ÞRÆÐIR í útskýringu að ofan. Prjónið sléttprjón hringinn í 4-4-5-5-5-6-6 cm (= rúllukantur). Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki eftir fyrstu 22-22-23-24-24-25-25 lykkjur í umferð (= ca fyrir miðju að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Nú eru sett 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett á milli 2 lykkja slétt, þessar 2 lykkjur eru kallaðar fyrir laskalykkjur og aukið er út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar. Setjið 1. merki á undan fyrstu lykkju, teljið 11 lykkjur (= ermi), Setjið 2. merki á undan næstu lykkju, teljið 21-22-24-25-26-27-28 lykkjur (= framstykki), Setjið 3. merki á undan næstu lykkju, teljið 11 lykkjur (= ermi), Setjið 4. merki í/á undan næstu lykkju, það eru eftir 21-22-24-25-26-27-28 lykkjur á eftir síðasta merki (= bakstykki). Prjónið sléttprjón hringinn og aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við laskalykkjurnar – lesið útskýringu að ofan með leiðbeiningum hvernig auka á út. Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð, aukið er út hvoru megin við laskalykkjurnar alls 10-11-12-13-14-15-16 sinnum = 144-154-166-176-186-196-206 lykkjur (= 8 lykkjur fleiri í hverri útaukningsumferð). Munið að fylgja prjónfestunni. Útaukning fyrir ermar er nú lokið, en haldið áfram að auka út fyrir laskalínu á framstykki og bakstykki í annarri hverri umferð 4 sinnum til viðbótar (= 4 lykkjur fleiri í hverri útaukningsumferð) = 160-170-182-192-202-212-222 lykkjur í umferð. Öll útaukning fyrir laskalínu er nú lokið, aukið hefur verið út alls 14-15-16-17-18-19-20 sinnum á framstykki/bakstykki og 10-11-12-13-14-15-16 sinnum á ermum. Prjónið síðan án þess að auka út þar til stykkið mælist 13-14-15-15-16-17-18 cm frá merki við miðju að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Setjið fyrstu 31-33-35-37-39-41-43 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 49-52-56-59-62-65-68 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 31-33-35-37-39-41-43 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 49-52-56-59-62-65-68 lykkjur í sléttprjóni (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 110-116-124-130-136-142-148 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 27-30-34-38-41-43-45 cm frá merki fyrir miðju að framan. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið stroff (= 3 lykkjur slétt / 3 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 10-10-14-14-14-20-20 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 120-126-138-144-150-162-168 lykkjur. Þegar stroffið mælist 3-3-3-3-4-4-4 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 30-33-37-41-45-47-49 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 33-36-40-44-48-50-52 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 31-33-35-37-39-41-43 lykkjur af þræði frá ermi í annarri hlið á stykki á hringprjón 5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 37-39-41-43-45-47-49 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 6 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 10 cm alls 2-2-3-3-3-3-3 sinnum = 33-35-35-37-39-41-43 lykkjur í umferð. Prjónið þar til ermin mælist 18-23-26-31-34-38-41 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4 og prjónið stroff (3 lykkjur slétt / 3 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 3-1-1-5-3-1-5 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 36-36-36-42-42-42-48 lykkjur. Þegar stroffið mælist 3-3-3-3-4-4-4 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 21-26-29-34-38-42-45 cm frá skiptingunni. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #littlesnowsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 50-19
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.