Bene skrifaði:
Hallo, ersteinmal vielen Dank für die Anleitung! Ich bin gerade bei den ersten roten Maschen des Musters angekommen. Bisher habe ich die Farben immer mitgeführt. Ergibt das auch für die rote Farbe Sinn, oder sollte ich lieber mit einzelnen Fäden arbeiten? Falls man mit separaten Fäden arbeitet, verwendet man für jede Beere einen einzelnen, oder kann ich mehrere Beeren mit dem gleichen Faden stricken? Vielen Dank für die Hilfe!
16.11.2026 - 21:51DROPS Design svaraði:
Liebe Bene, am besten führen Sie den Faden mit, die Fäden (beide Farben) können Sie aber an der Rückseite verkreuzen, vermeiden Sie aber, die Fäden zu ziehen, sonnst wird die Maschenprobe ändern und die Elastizität würde dann verloren. Viel Spaß beim Stricken!
17.11.2026 - 17:00
Magdalena skrifaði:
Dzień dobry, chciałabym uzyskać głębszy dekolt robiąc rzędy skrócone? Czy to możliwe? Jak wtedy rozliczyć wzór dla rozmiaru L?
16.11.2026 - 10:56DROPS Design svaraði:
Witaj Magdaleno, na wzór weź 273-11. Ten sweter jest dla włóczki o tej samej grubości, ma podobną liczbę oczek nabieraną na dekolt i jest w nim przewidziane podwyższenie. Idealnie się nada. Pozdrawiamy!
16.11.2026 - 12:26
Zunahme Am Bund (Rumpf) skrifaði:
Kann ich mit der gleichen Nadelstärke den Rumpfbund ohne Zunahmen stricken, oder sieht das doof aus? Ich hätte es eigentlich lieber , dass das Bündchen leicht enger wird und nicht gerade nach unten fällt, damit die Kälte nicht reinzieht. Es soll aber auch nicht so eng sein, dass es nach oben rutscht …. Kann ich das irgendwie berechnen?
15.11.2026 - 18:08DROPS Design svaraði:
Hallo, vielleicht am besten stricken Sie eine kleine Maschenprobe glattrechts dann im Bündchen und messen Sie die Breite mit dem 2 Muster und 2 Nadelgrösse, so können Sie rechnen, wie viele Maschen Sie für den gewünschten Umfang brauchen. Viel Spaß beim Stricken!
16.11.2026 - 16:53
Carol skrifaði:
What do the black symbols at the row ends instruct on the A1 chart for the Holly Dolly Sweater?
05.11.2026 - 01:12DROPS Design svaraði:
Hi Carol, The black ovals are yarn overs (for increasing on the yoke), which are worked in Off White and are knitted twisted on the next round to avoid holes (knit through the back stitch loop). If you click on "Lessons" at the top of the page, there is a video to help you read our charts. Regards, Drops Team.
05.11.2026 - 05:26
Diane skrifaði:
When marking the center point on sweater, do you put a marker before you do the ribbing or after you have finished the ribbing for 2 inches? Thanks
21.07.2026 - 22:58DROPS Design svaraði:
Dear Diane, the marker should be inserted after the ribbing is done, you will use this marker to measure the yoke from afterwards. Happy knitting!
11.08.2026 - 11:36
Jorit Tellervo skrifaði:
Hvornår er denne opskrift udkommet?
19.03.2026 - 15:22DROPS Design svaraði:
Hej Jorit. Den publicerades här 2025-10-29. Mvh DROPS Design
20.03.2026 - 10:15
Zsuzsanna skrifaði:
The necessary yarn quantity is different in Englisch and in Hungarian. Please check it. Thank you
07.11.2025 - 11:04
Lii skrifaði:
Kas ülalt alla kootud kampsuneil on esiosa ja seljaosa ühekõrgused ja kuidas jääb sel juhul kaelus kaelale istuma? Üldjuhul on ju alt üles kootud kampsuneil ka esiosa kaelaava madalam, seljaosal kõrgem.... Kuidas ülalt alla kootavatel kaelaava on?
03.11.2025 - 18:16DROPS Design svaraði:
Tere Lii! Selles kampsuni juhendis ei ole, aga tavaliselt kootakse seljaosale kõrgendus edasi-tagasi lühendatud ridadega, mis tõstab seljaosa kaelakaare kõrgemale. See tehakse tavaliselt kohe peale kaeluse kudumist. Kui soovite just seda mustrit teha, siis võite vaadata kõrgenduse tegemist mõnest teisest juhendist, kus on sama koetihedus. Head kudumist!
11.11.2025 - 11:43
Marica skrifaði:
Salve sé volessi lavorarlo con un filato più sottile e ferri 3,5 e volendo ottenere una taglia L è sufficiente seguire una XL?
03.11.2025 - 13:46DROPS Design svaraði:
Buongiorno Marica, purtroppo in questa sede non ci è possibile adattare i modelli alle singole esigenze. Buon lavoro!
06.11.2025 - 08:39
Holly Dolly Sweater#hollydollysweater |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Nepal. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með hringlaga berustykki og marglitu mynstri með berjum. Stærð XS - XXXL. Þema: Jól.
DROPS 264-39 |
|||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 94 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 8) = 11,8. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 12. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn - svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermarnar bíða. Síðan eru ermarnar prjónaðar niður á við í hring. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 92-94-98-100-106-110-114 lykkjur á hringprjón 3,5 með litnum Ljós Beige í DROPS Nepal. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 5-5-5-5-6-6-6 cm. Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki eftir fyrstu 31-31-33-33-35-37-38 lykkjur í umferð (= ca fyrir miðju að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem aukið er út um 4-8-10-8-8-10-12 lykkjur jafnt yfir – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 96-102-108-108-114-120-126 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til berustykkið mælist 0-0-1-0-0-1-1 cm frá merki. Nú er prjónað MYNSTUR – lesið leiðbeiningar að ofan, prjónið A.1 alls 16-17-18-18-19-20-21 sinnum berustykkið hringinn. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka eru 256-272-288-288-304-320-336 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 17-17-18-20-20-21-21 cm frá merki. Munið að fylgja prjónfestunni. Prjónið síðan sléttprjón með litnum Ljós Beige. Þegar berustykkið mælist 20-21-22-23-24-26-28 cm frá merki fyrir miðju að framan skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Jafnframt sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Setjið fyrstu 52-56-59-56-58-58-58 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-10-14-16-18-20 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 76-80-85-88-94-102-110 lykkjur í sléttprjóni (= framstykki), setjið næstu 52-56-59-56-58-58-58 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-10-14-16-18-20 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 76-80-85-88-94-102-110 lykkjur í sléttprjóni (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 164-176-190-204-220-240-260 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn í litnum Ljós Beige þar til stykkið mælist 45-47-49-50-51-53-55 cm frá merki fyrir miðju að framan. Skiptið yfir á hringprjón 3,5, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem er aukið út um 28-32-34-36-40-44-44 lykkjur jafnt yfir í umferð 1= 192-208-224-240-260-284-304 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 49-51-53-54-56-58-60 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 54-56-58-60-62-64-66 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 52-56-59-56-58-58-58 lykkjur frá ermi af þræði á hringprjón 5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-8-10-14-16-18-20 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 58-64-69-70-74-76-78 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 6-8-10-14-16-18-20 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn í litnum Ljós Beige – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 1 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 10-7-4½-4½-4-3½-3½ cm alls 3-5-7-7-8-8-8 sinnum = 52-54-55-56-58-60-62 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 30-31-31-31-31-29-27 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 22-22-23-24-24-24-24 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 74-76-78-80-82-84-86 lykkjur. Þegar stroffið mælist 12-12-12-12-12-12-12 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 42-43-43-43-43-41-39 cm frá skiptingunni. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #hollydollysweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 22 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 264-39
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.