Anna skrifaði:
Etu ja takakappaletta aloittaessa kumman hihan alle kerroksen vaihtumiskohta siis tulee? Oikean vai vasemman kun ajatellaan että paita olisi puettu päälle.
12.10.2026 - 15:05DROPS Design svaraði:
Hei, voit itse valita, kunhan kerroksen vaihtumiskohta on sivussa.
13.10.2026 - 18:08
Pia skrifaði:
Pääntien reunusta ei varmaankaan neulota puikoilla 5 kuten ohjeessa lukee..
21.11.2025 - 17:32DROPS Design svaraði:
Ohje on nyt korjattu, pääntien reunus neulotaan tietysti pyöröpuikolla nro 3,5.
21.11.2025 - 18:21
Rudolph's Parade Sweater#rudolphsparadesweater |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með hringlaga berustykki og marglitu mynstri með hreindýrum. Stærð XS - XXXL. Þema: Jól.
DROPS 263-41 |
|||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------ UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 94 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 8) = 11,8. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 12. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn - svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermarnar bíða. Síðan eru ermarnar prjónaðar niður á við í hring. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 92-94-98-100-106-110-114 lykkjur á hringprjón 3,5 með litnum Sjávarblár í DROPS Air. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4-4-4-4-5-5-5 cm. Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki eftir fyrstu 31-31-33-33-35-37-38 lykkjur í umferð (= ca fyrir miðju að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem aukið er út um 4-8-10-8-8-10-12 lykkjur jafnt yfir – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 96-102-108-108-114-120-126 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til berustykkið mælist 0-0-1-0-0-1-1 cm frá merki. Nú er prjónað MYNSTUR – lesið leiðbeiningar að ofan, prjónið A.1 alls 16-17-18-18-19-20-21 sinnum berustykkið hringinn. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka eru 256-272-288-288-304-320-336 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 17-17-18-20-20-21-21 cm frá merki. Munið að fylgja prjónfestunni. Prjónið síðan sléttprjón með litnum Sjávarblár. Þegar berustykkið mælist 20-21-22-23-24-26-28 cm frá merki fyrir miðju að framan skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Jafnframt sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Setjið fyrstu 52-56-59-56-58-58-58 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-10-14-16-18-20 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 76-80-85-88-94-102-110 lykkjur í sléttprjóni (= framstykki), setjið næstu 52-56-59-56-58-58-58 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-10-14-16-18-20 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 76-80-85-88-94-102-110 lykkjur í sléttprjóni (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 164-176-190-204-220-240-260 lykkjur. Setjið 1 merki í aðra hliðina á stykki (= fyrir miðju í 6-8-10-14-16-18-20 lykkjur sem fitjaðar eru upp undir ermi). Prjónið fram að merki, umferðin byrjar hér og prjónað er í hring. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 43-45-47-48-49-51-53 cm frá merki fyrir miðju að framan. Skiptið yfir á hringprjón 3,5, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem er aukið út um 28-32-34-36-40-44-44 lykkjur jafnt yfir í umferð 1= 192-208-224-240-260-284-304 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 47-49-51-52-54-56-58 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 52-54-56-58-60-62-64 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 52-56-59-56-58-58-58 lykkjur frá ermi af þræði á hringprjón 5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-8-10-14-16-18-20 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 58-64-69-70-74-76-78 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 6-8-10-14-16-18-20 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn með litnum Sjávarblár – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 1 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 10-8-6-5½-5-4½-4 cm alls 3-5-7-7-8-8-8 sinnum = 52-54-55-56-58-60-62 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 38-39-39-39-38-36-34 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 10-10-9-10-10-10-10 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 62-64-64-66-68-70-72 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 42-43-43-43-43-41-39 cm frá skiptingunni. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #rudolphsparadesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 22 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 263-41
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.