Christina skrifaði:
Hallo, ich habe für den Halsausschnitt die letzte Reihe-Hin rechte Maschen gestrickt mit Umschlägen und Maschen aufgenommen. Wie beschrieben sind dann 136 M Größe S auf der Nadel. Dann soll zur Runde geschlossen werden und für Reihe 1 der Passe steht dass wieder Zunahmen gemacht werden. Meine Frage, ich habe ja noch die Umschläge auf der Nadel, soll ich die einfach abstricken? Oder sollte ich vorher noch eine Reihe zurück links stricken bevor ich zur Runde schließe? Dankeschön
28.04.2026 - 00:10DROPS Design svaraði:
Liebe Christina, schließen Sie zur Runde direkt nach den 136 Maschen und stricken Sie sofort die Passe, so haben Sie 2 Zunahmen direkt nacheinander und dann in jeder 2. Runde zunehmen. Viel Spaß beim Stricken!
28.04.2026 - 08:46
Doulet Christiane skrifaði:
Merci pour vos réponses. Si on démarre en aller-retour sur aiguilles circulaires, cela veut dire qu'a la fin il y a une ouverture, ou une couture à faire......
12.04.2026 - 08:59DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Doulet, on ne va pas avoir besoin de coutures car quand les augmentations de l'encolure sont faites de chaque côté, on monte les dernières mailles de l'encolure au milieu du devant (entre la fin et le début du rang) et on continue en rond. Bon tricot!
13.04.2026 - 09:49
Ariane skrifaði:
Laine DROPS NEPAL bleu océan, aig. 5,5 et 5. J'ai pas compris pourquoi le col était séparé, j'ai tout tricoté d'une pièce, du coup l'encolure en effet est droite devant comme derrière, pour une femme cela n'est pas gênant la poitrine tire sur le tricot devant... Super raglan, super à tricoter, seul les conseils pour les manches sont pas à suivre ils forment des poches aux diminutions, perso j'alterne une fois à dr et une fois à g du marqueur tous les 4rg.
11.04.2026 - 10:23
Doulet Christiane skrifaði:
J'ai l'habitude de tricoter vos modèle avec des aiguilles circulaires, ce modèle correspond exactement à la laine qu'on m'a donnée, j'aimerai donc le faire mais je ne comprends pas , d'habitude, on commence par les côtes du col....alors que là, vous reprenez des mailles à la fin pour tricoter le col. ...ca me perturbe....et le fait de donner les explications, soit avec des aiguilles circulaires ou en aller et retour, on n'y comprend plus rien....
09.04.2026 - 09:04DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Doulet, dans ce modèle, on tricote d'abord l'empiècement en allers et retours en augmentant pour le raglan et en montant en même temps des mailles pour l'encolure jusqu'à ce que toutes les mailles de l'encolure aient été montées (l'encolure dos est ainsi plus haute que l'encolure devant), on continue ensuite en rond, et on continue à augmenter pour le raglan, puis on divise l'empiècement etc.. À la fin, on relève les mailles autour de l'encolure pour tricoter le col. Bon tricot!
09.04.2026 - 16:13
Greet skrifaði:
Voor het meerderen van de pas zie ik instructies voor 18 (mouw) dan 26 (voorpand), en dan weer 18 (mouw) steken. Ik begrijp dit niet, er ontbreken dan toch nog 26 steken voor het rugpand?
31.03.2026 - 10:59DROPS Design svaraði:
Dag Greet,
Klopt, je breit eerst heen en weer waarbij je een ronding aan de voorkant van de hals maakt en tegelijkertijd meerdert voor de raglan. Zodra de ronding is gemaakt brei je verder in de rondte, dit wordt aangegeven in de beschrijving.
04.04.2026 - 21:42
Veronique skrifaði:
Bonjour j ai fais ce modele en xl j ai respecte les explication et devant au niveau des bras c vraiment moche ca fait un grand pli et lorsqu on leve les bras c pire Je l ai défait et recommencee ca tombe toujours aussi mal Dommage
23.03.2026 - 09:20DROPS Design svaraði:
Bonjour Véronique, avez-vous tricoté le pull en Alaska ou en Big Merino? Avez vous conservé la bonne tension tout du long? Autrement dit 17 m x 22 rangs jersey = 10 x 10 cm? Si tel est le cas, vous devriez avoir les mêmes mesures que celles indiquées dans le schéma, si maintenant vous préférez des manches plus serrées/près du corps au niveau des emmanchures, peut être pouvez-vous vous orienter vers un modèle avec des manches montées?
23.03.2026 - 16:07
Kat skrifaði:
For the sleeves, where I decrease every 10cm, is that every 10cm in the circumference or length of the sleeves? Thank you!
24.02.2026 - 15:36DROPS Design svaraði:
Hi Kat, This is measuring length-wise on the sleeve. Regards, Drops Team.
25.02.2026 - 06:59
Kirsten skrifaði:
Hej. Da I for tiden ikke kan levere de kantede strømpepinde i nr. 5, vil jeg spørge, om det er muligt at anvende nr. 4,5 i stedet. ? Jeg kan ikke lige se af opskriften, hvornår de pinde skal anvendes. Jeg venter med garnbestillingen efter svaret.
12.02.2026 - 11:05DROPS Design svaraði:
Hej Kirsten, vi har masser af strømpepinde på lager :) Strømpepindene skal først bruges til ærmerne :)
12.02.2026 - 13:43
Dana skrifaði:
I've got a question regarding the change from working flat to in round. The last row worked flat is done on the right side with 8 raglan increases. But, according to the pattern, the yoke in the round part starts with raglan increases as well — is this correct? Should I worked the YOs and add new YOs immediately after? Or is there a missing row between the last 'ROW 1' in the neckline part and the first 'ROUND 1' in the yoke part?
08.02.2026 - 15:48DROPS Design svaraði:
Hi Dana, You need to knit 1 round before continuing the raglan increases. Regards, Drops Team.
09.02.2026 - 06:55
Francesca skrifaði:
Salve, volevo segnalare un errore nello schema alla fine di tutti gli aumenti del raglan, prima del corpo, seguendo la taglia m le maglie dovrebbero essere 300 e non 296 dal momento che dopo aver fatto gli aumenti fino a 188m si deve ultimare il blocco con il giro 3 e 4 e poi fare 9 volte questi 4 giri quindi: 188+4+ (12 x 9) sono 300 m. Giusto una precisazione, ma fin ora lo schema tutto ok.
02.02.2026 - 15:32DROPS Design svaraði:
Buonasera Francesca, grazie per la segnalazione, abbiamo aggiornato il modello. Buon lavoro!
05.02.2026 - 00:05
Winter Ocean Sweater#winteroceansweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Alaska eða DROPS Big Merino. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með laskalínu. Stærð XS - XXXL.
DROPS 263-26 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LASKALÍNA – þegar prjónað er fram og til baka: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn frá réttu. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Á UNDAN LASKALYKKJU: Prjónið uppsláttinn brugðið í aftari lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Prjónið nýjar lykkjur í sléttprjóni. Á EFTIR LASKALYKKJU: Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, en í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn brugðið í fremri lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Prjónið nýjar lykkjur í sléttprjóni. LASKALÍNA – þegar prjónað er í hring: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Á UNDAN LASKALYKKJU: Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, en í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Á EFTIR LASKALYKKJU: Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Fyrst er hálsmálið prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður og fitjaðar eru upp nýjar lykkjur í hvorri hlið til að forma hálsmálið. Þegar hálsmálið hefur verið prjónað til loka, heldur berustykkið áfram í hring með útaukningu fyrir laskalínu. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. HÁLSMÁL: Fitjið upp 66-68-70-72-74-76-78 lykkjur á hringprjón 5 með DROPS Alaska eða DROPS Big Merino. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Nú eru sett 4 merki í stykkið jafnframt sem næsta umferð er prjónuð, merkin eru sett á milli 2 lykkja, þessar 2 lykkjur eru nú kallaðar fyrir laskalykkjur og auka á út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar. UMFERÐ 1 (frá réttu): Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt og setjið 1 merki á milli þessa 2 lykkja (= laskalykkjur), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 18 lykkjur slétt (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt og setjið 1 merki á milli þessa 2 lykkja (= laskalykkjur), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 20-22-24-26-28-30-32 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt og setjið 1 merki á milli þessa 2 lykkja (= laskalykkjur), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 18 lykkjur slétt (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt og setjið 1 merki á milli þessa 2 lykkja (= laskalykkjur), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt og fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar = 75-77-79-81-83-85-87 lykkjur. UMFERÐ 2 (frá röngu): Prjónið brugðið yfir allar lykkjur (munið eftir að uppslátturinn er prjónaður eins og útskýrt er í LASKALÍNA), fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar = 76-78-80-82-84-86-88 lykkjur. UMFERÐ 3 (frá réttu): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við laskalykkjurnar, fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar = 85-87-89-91-93-95-97 lykkjur. UMFERÐ 4 (frá röngu): Prjónið brugðið yfir allar lykkjur, fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar = 86-88-90-92-94-96-98 lykkjur. Prjónið umferð 3 og 4 3 sinnum til viðbótar. Aukið hefur verið út 5 sinnum fyrir laskalínu og fitjaðar hafa verið upp 5 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í hvorri hlið = 116-118-120-122-124-126-128 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þannig: UMFERÐ 1 (frá réttu): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu eins og útskýrt er að ofan, fitjið upp 8-10-12-14-16-18-20 nýjar lykkjur í lok umferðar = 132-136-140-144-148-152-156 lykkjur. Prjónið síðan berustykkið hringinn yfir allar lykkjur eins og útskýrt er að neðan. Það eru 32-34-36-38-40-42-44 lykkjur á bakstykki og á framstykki, 30 lykkjur á hvorri ermi og 2 lykkjur í hvorri laskalínu. BERUSTYKKI: Prjónið sléttprjón hringinn. Munið að fylgja prjónfestunni. Útaukning fyrir laskalínu heldur áfram þannig – ATH! Í stærð XS er hoppað yfir þennan kafla, haldið áfram frá ALLAR STÆRÐIR. UMFERÐ 1: Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2: Prjónið sléttprjón, nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni (munið eftir að uppslátturinn er prjónaður eins og útskýrt er í LASKALÍNA). Prjónið UMFERÐ 1 og 2 0-4-6-9-6-7-7 sinnum (= 0-8-12-18-12-14-14 umferðir prjónaðar) = 132-168-188-216-196-208-212 lykkjur í umferð. ALLAR STÆRÐIR: Síðan er prjónað og aukið út fyrir laskalínu þannig: UMFERÐ 1: Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2: Prjónið sléttprjón, nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni (munið eftir að uppslátturinn er prjónaður eins og útskýrt er í LASKLÍNA). UMFERÐ 3: Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu á framstykki og á bakstykki, þ.e.a.s. aukið út á eftir 2. og 4. merki og á undan 3. og 1. merki – lykkjum er ekki aukið út á ermum (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 4: Prjónið sléttprjón. Prjónið UMFERÐ 1 til 4 10-9-9-8-11-12-14 sinnum (= 40-36-36-32-44-48-56 umferðir prjónaðar = 10-9-9-8-11-12-14 sinnum útaukning á ermum og 20-18-18-16-22-24-28 sinnum útaukning á framstykki/bakstykki) = 252-276-296-312-328-352-380 lykkjur í umferð. Öll útaukning fyrir laskalínu er nú lokið, aukið hefur verið út alls 26-28-30-31-34-37-41 sinnum á framstykki/bakstykki og 16-19-21-23-23-25-27 sinnum á ermum. Prjónið sléttprjón án þess að auka út, þar til stykkið mælist 24-26-28-29-31-34-38 cm, frá uppfitjunarkanti fyrir miðju að aftan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið fram til og með fyrstu 2 laskalykkjurnar, setjið næstu 50-56-60-64-64-68-72 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12-12 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið næstu 76-82-88-92-100-108-118 lykkjur í sléttprjóni (= bakstykki), setjið næstu 50-56-60-64-64-68-72 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12-12 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu lykkjur frá framstykki = 76-82-88-92-100-108-118 lykkjur á framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 164-176-192-200-220-240-260 lykkjur. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 45-47-49-51-52-54-56 cm frá uppfitjunarkanti fyrir miðju að aftan. Skiptið yfir á hringprjón 4, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 16-20-20-28-28-28-28 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 180-196-212-228-248-268-288 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm er fellt af aðeins laust. Peysan mælist ca 49-51-53-55-57-59-61 cm frá uppfitjunarkanti fyrir miðju að aftan og ca 54-56-58-60-62-64-66 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 50-56-60-64-64-68-72 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 56-62-68-72-74-80-84 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 6-6-8-8-10-12-12 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 1-1-1-1-1-1-1 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi - lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur 2 sinnum í annarri hverri umferð, fækkið síðan um 2 lykkjur í hverjum 0-10-10-10-10-5-3½ cm alls 0-2-3-4-4-6-7 sinnum = 52-54-58-60-62-64-66 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 40-39-39-36-34-30-28 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 8-6-6-8-6-8-6 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 60-60-64-68-68-72-72 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm fellið af aðeins laust. Ermin mælist ca 44-43-43-40-39-35-33 cm frá skiptingunni. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp frá réttu innan við 1 lykkju ca 92 til 112 lykkjur í kringum hálsmál á hringprjón 4, lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) – stillið af að 2 lykkjur slétt í stroffi passi yfir 2 lykkjur slétt frá hverri laskalínu. Fellið af þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm, passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #winteroceansweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 263-26
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.