Creme Caramel Set#cremecaramelset |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð húfa og hálsskjól úr DROPS Daisy eða DROPS Karisma. Húfan og hálsskjólið er prjónað neðan frá og upp í sléttprjóni og stroffprjóni.
DROPS 261-53 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR (á við um húfu): Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá réttu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá réttu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Stykkið er prjónað í hring neðan frá og upp. HÚFA: Fitjið upp 130-138-146 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Daisy eða DROPS Karisma – notið e.t.v. ítalska uppfitjun. Prjónið stroff í hring (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til stykkið mælist 12 cm (kanturinn er síðar brotinn upp). Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið sléttprjón jafnframt því sem í umferð 1 er fækkað um 26-30-30 lykkjur jafnt yfir = 104-108-116 lykkjur. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 21-22-22 cm, það eru ca 9-9-10 cm að loka máli. Munið að fylgja prjónfestunni. Setjið 4 merki í stykkið, merkin eru sett á milli lykkja þannig að það eru 26-27-29 lykkjur á milli merkja. Prjónið sléttprjón jafnframt því sem lykkjum er fækkað eftir mynsturteikningu – lesið MYNSTUR í útskýringu að ofan og prjónið þannig: UMFERÐ 1: * Prjónið sléttprjón þar til 5 lykkjur eru eftir á undan merki, prjónið A.1 (= 2 lykkjur færri) *, prjónið frá *-* umferðina hringinn (fækkað er um 8 lykkjur í umferð). UMFERÐ 2 og 3: Prjónið sléttprjón umferðina hringinn. Prjónið UMFERÐ 1 til 3 alls 6-6-7 sinnum = 56-60-60 lykkjur (= 14-15-15 lykkjur á milli merkja). Nú er prjónað þannig: UMFERÐ 1: * Prjónið sléttprjón fram þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merki, prjónið A.2 (= 2 lykkjur færri) *, prjónið frá *-* umferðina hringinn (fækkað er um 8 lykkjur í umferð). UMFERÐ 2: Prjónið sléttprjón umferðina hringinn. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 3-3-3 sinnum = 32-36-36 lykkjur. Nú er prjónað þannig: UMFERÐ 1: Prjónið 2 og 2 lykkjur slétt saman umferðina hringinn = 16-18-18 lykkjur. UMFERÐ 2: Prjónið 2 og 2 lykkjur slétt saman umferðina hringinn = 8-9-9 lykkjur. Klippið þráðinn, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Stykkið mælist 30-31-32 cm alls. Brjótið stroffið ca 8 cm upp að réttu, húfan mælist ca 22-23-24 cm. ------------------------------------------------------- HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykkið og bakstykkið eru alveg eins, stykkin eru prjónuð hvort fyrir sig fram og til baka neðan frá og upp. Stykkin eru saumuð saman á öxlum og prjónaður er upp kantur í hálsmáli sem prjónaður er í hring. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 67-73-81 lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Daisy eða DROPS Karisma – notið e.t.v. ítalska uppfitjun. UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið 3 lykkjur í GARÐAPRJÓN – lesið leiðbeiningar að ofan, prjónið stroffprjón (= 1 lykkja brugðið / 1 lykkja slétt) þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 3 lykkjur í garðaprjóni. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið 3 lykkjur í garðaprjóni, prjónið stroffprjón (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 3 lykkjur í garðaprjóni. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 þar til stykkið mælist 4 cm – stillið af að næsta umferð sé frá réttu. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið þannig: 3 lykkjur í garðaprjóni, 6 lykkjur stroffprjón eins og áður, sléttprjón yfir næstu 49-55-63 lykkjur jafnframt því sem fækkað er um 10-12-14 lykkjur yfir þessar lykkjur, endið með 6 lykkjur stroffprjón eins og áður og 3 lykkjur í garðaprjóni = 57-61-67 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka með sléttprjón og 9 lykkjur í hvorri hlið eins og áður. Munið að fylgja prjónfestunni. Þegar stykkið mælist 6 cm er aukið út í hvorri hlið – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING og aukið út frá réttu þannig: Prjónið eins og áður yfir fyrstu 10 lykkjur, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið eins og áður þar til 10 lykkjur eru eftir í umferð, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið eins og áður út umferðina. Aukið svona út í ca hverjum 2½-2-2 cm þar til aukið hefur verið út alls 4-5-5 sinnum í hvorri hlið = 65-71-77 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 19-20-21 cm, nú á að fella af lykkjur fyrir hálsmáli í næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið yfir fyrstu 25-26-28 lykkjur eins og áður og setjið þær síðan á þráð fyrir vinstri öxl, fellið af næstu 15-19-21 lykkjur fyrir hálsmáli og prjónið út umferðina. Axlirnar eru prjónaðar hvor fyrir sig til loka. HÆGRI ÖXL: = 25-26-28 lykkjur. Byrjið frá röngu og fellið lykkjur af fyrir hálsmáli í byrjun hverrar umferðar frá réttu þannig: Fellið af 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkju 2 sinnum = 19-20-22 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 26-28-30 cm frá uppfitjunarkanti. Fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum frá réttu. VINSTRI ÖXL: Setjið til baka fyrstu 25-26-28 lykkjur frá þræði á prjóninn. Byrjið frá réttu og fellið af lykkjur fyrir hálsmáli í byrjun hverrar umferðar frá röngu þannig: Fellið af 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkju 2 sinnum = 19-20-22 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 26-28-30 cm frá uppfitjunarkanti. Fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum frá réttu. BAKSTYKKI: Prjónið á sama hátt og framstykki. FRÁGANGUR: Saumið axlasaumana – saumið innan við affellingarkantinn. KRAGI Í HÁLSMÁLI: Notið hringprjón 3 og byrjið frá réttu við annan axlasauminn, prjónið upp ca 142-162-178 lykkjur í kringum hálsmál (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2). Prjónið hringinn í stroffprjóni (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til kraginn mælist ca 22-23-24 cm. Fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #cremecaramelset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 261-53
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.