Midnight Snug Neck Warmer#midnightsnugneckwarmer |
|
![]() |
![]() |
Prjónað hálsskjól úr 2 þráðum DROPS Melody. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með evrópskri öxl, sléttprjóni og i-cord.
DROPS 261-45 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá réttu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá réttu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá röngu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja á frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann. AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá röngu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann. 3 KANTLYKKJUR I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kantlykkjur þannig (= 3 lykkjur): Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kantlykkjur þannig (= 3 lykkjur): Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Stykkið er fyrst prjónað fram og til baka á hringprjóna. Byrjað er á að fitja upp lykkjur aftan í hnakka. Síðan er bakstykkið prjónað niður á við samtímis sem aukið er út í hvorri hlið á stykki þar til lykkjufjöldi fyrir axlarvídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið smá skáhallandi öxl. Síðan er prjónað niður að loka máli. Nú er framstykkið prjónað, framstykkið er fyrst prjónað í 2 stykkjum. Byrjað er á að prjóna upp lykkjur meðfram annarri öxlinni frá bakstykki, prjónað sléttprjón jafnframt því sem aukið er út við hálsmál. Þetta er endurtekið á hinni öxlinni. Hægra og vinstra framstykki er sett saman þegar útaukningu fyrir hálsmáli er lokið. Síðan er framstykkið prjónað niður að loka máli. Í lokin er prjónaður kantur í hálsmáli í hring. BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 14-16-18 lykkjur á hringprjón 7 með 2 þráðum DROPS Melody. UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 2 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 3 (= ranga): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 og prjónið 3 lykkjur brugðið, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið brugðið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 3 lykkjur brugðið. Á EFTIR UMFERÐ 3: Prjónið UMFERÐ 2 og 3 alls 7-7-7 sinnum (= 14-14-14 umferðir prjónaðar), á eftir síðustu útaukningu eru = 42-44-46 lykkjur í umferð. Munið að fylgja prjónfestunni. Prjónið síðan í sléttprjóni og 3 KANTLYKKJUR I-CORD í hvorri hlið – lesið leiðbeiningar að ofan. Prjónið þar til stykkið mælist 28-30-31 cm. Skiptið yfir á hringprjón 6, prjónið 3 kantlykkjur eins og áður, prjónið sléttprjón jafnframt því sem aukið er út um 6-4-6 lykkjur jafnt yfir næstu 36-38-40 lykkjur, prjónið 3 kantlykkjur eins og áður = 48-48-52 lykkjur. Nú er prjónað stroff (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu). Prjónið 3 kantlykkjur eins og áður, prjónið stroff (= 2 lykkjur brugðið / 2 lykkjur slétt) þar til 5 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 3 kantlykkjur eins og áður. Haldið áfram með stroff fram og til baka í 4-4-5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Stykkið mælist ca 32-34-36 frá uppfitjunarkanti. VINSTRA FRAMSTYKKI: Finnið vinstri öxl á bakstykki þannig: Leggið bakstykkið flatt með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjur frá þræði / hjálparprjóni snúa að þér, vinstri hlið á stykki = vinstri öxl. Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við hálsmál og prjónið upp lykkjur út að handvegi þannig: Notið hringprjón 7 og prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð, innan við ystu lykkju = 14-14-14 lykkjur. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Prjónið sléttprjón með 3 kantlykkjur i-cord yst við öxl (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu). Þegar stykkið mælist 5-4-5 cm, aukið út lykkjur við hálsmál þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið út umferðina eins og áður. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið – kantlykkjur eru prjónaðar eins og áður. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 4-5-5 sinnum (= 8-10-10 umferðir prjónaðar) = 18-19-19 lykkjur, (prjónið næstu umferð frá réttu). Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er hægra framstykkið prjónað meðfram hægri öxl eins og útskýrt er að neðan. HÆGRA FRAMSTYKKI: Nú eru prjónaðar upp lykkjur meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við öxl og prjónið upp lykkjur inn að hálsmáli þannig: Notið hringprjón 7 og prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju = 14-14-14 lykkjur. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Prjónið sléttprjón með 3 kantlykkjum i-cord yst við öxl (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu). Þegar stykkið mælist 5-4-5 cm, aukið út lykkjur að hálsmáli þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 3 lykkjur slétt – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið – kantlykkjur eru prjónaðar eins og áður. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 4-5-5 sinnum (= 8-10-10 umferðir prjónaðar) = 18-19-19 lykkjur (prjónið næstu umferð frá réttu). Síðan eru framstykkin sett saman – lesið útskýringu að neðan. FRAMSTYKKI (hægra og vinstra stykki sett saman): Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 18-19-19 lykkjur frá hægra framstykki eins og áður, fitjið upp 6-6-8 lykkjur fyrir hálsmáli í lok þessarar umferðar, prjónið síðan 18-19-19 lykkjur frá vinstra framstykki eins og áður = 42-44-46 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón og 3 kantlykkjur með i-cord í hvorri hlið þar til stykkið mælist 28-30-31 cm. Skiptið yfir á hringprjón 6, prjónið 3 kantlykkjur eins og áður, prjónið sléttprjón jafnframt sem aukið er út um 6-4-6 lykkjur jafnt yfir næstu 36-38-40 lykkjur, prjónið 3 kantlykkjur eins og áður = 48-48-52 lykkjur. Nú er prjónað stroff (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu). Prjónið 3 kantlykkjur eins og áður, prjónið stroff (= 2 lykkjur brugðið / 2 lykkjur slétt) þar til 5 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 3 kantlykkjur eins og áður. Haldið áfram með stroff fram og til baka í 4-4-5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Stykkið mælist 32-34-36 cm mælt frá innst við hálsmál og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið hringprjón 6 og 2 þræði DROPS Melody. Byrjið frá réttu við aðra axlalínuna og prjónið upp ca 60-64-68 lykkjur í kringum hálsmál innan við 1 lykkju, prjónið 1 umferð slétt þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður út – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff hringinn (= 12 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 18-20-22 cm. Skiptið yfir á hringprjón 7 og fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #midnightsnugneckwarmer eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 21 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 261-45
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.