Moon Thread Sweater#moonthreadsweater |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónuð oversize / stór peysa úr DROPS Alpaca Bouclé og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með skáhallandi öxl / evrópskri öxl og köðlum. Stærð XS - XXXL.
DROPS 264-28 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Finndu þína stærð í mynsturteikningu (á við um A.4 og A.5). Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.6). LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá réttu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá réttu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá röngu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá röngu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann. LEIÐBEININGAR PRJÓN: Þegar prjónaðar eru stuttar umferðir myndast lítið gat þegar stykkinu er snúið við – hægt er að loka þessu gati með því að herða á þræði eða nota aðferðina German Short Rows þannig: Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið. Leggið síðan þráðinn yfir hægri prjón og herðið vel á þræði á bakhlið (þannig verða til tvær lykkjur á prjóninum). Þessar lykkjur eru prjónaðar saman í næstu umferð. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf. Stykkið er fyrst prjónað fram og til baka á hringprjóna. Byrjað er á að fitja upp lykkjur aftan í hnakka. Síðan er bakstykkið prjónað niður á við jafnframt því sem lykkjur eru auknar út í hvorri hlið á stykki þar til fjöldi lykkja á axlavídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið litla skáhallandi öxl. Síðan er prjónað niður að handvegi. Nú er bakstykkið látið bíða og framstykkið er prjónað. Framstykkið er fyrst prjónað í 2 hlutum. Byrjað er á að prjóna upp lykkjur meðfram annarri öxlinni frá bakstykki, prjónið mynstur samtímis sem aukið er út við hálsmál. Þetta er endurtekið á hinni öxlinni. Hægra og vinstra framstykki er sett saman þegar útaukning fyrir hálsmál hefur verið gerð til loka. Síðan er framstykkið prjónað niður að handvegi. Síðan er framstykkið og bakstykkið sett inn á sama hringprjón og fram- og bakstykki er prjónað niður á við í hring á hringprjóna. Lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermar í kringum handveg og ermarnar eru prjónaðar niður á við. Fyrst er prjónað fram og til baka með stuttum umferðum til að forma ermakúpu, síðan eru ermarnar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og prjónaður er kantur í hálsmáli. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 36-36-36-36-40-40-44 lykkjur á hringprjón 6 með 1 þræði DROPS Alpaca Bouclé og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir). UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið 1 lykkju slétt, A.1, prjónið brugðið þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið A.1 og 1 lykkju slétt (= 4 lykkjur fleiri) = 40-40-40-40-44-44-48 lykkjur. UMFERÐ 2 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1, prjónið 1 lykkju slétt, A.2, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 9 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið A.3, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 3 (= ranga): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2, prjónið 1 lykkju slétt, A.3, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið brugðið þar til 9 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið A.2 og 1 lykkju slétt. Á EFTIR UMFERÐ 3: Prjónið umferð 2 og 3 alls 10-11-11-13-14-15-16 sinnum (= 20-22-22-26-28-30-32 umferðir prjónaðar) = 80-84-84-92-100-104-112 lykkjur. Prjónið síðan þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 1 lykkju slétt, A.2, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 9 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið A.3, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 2 lykkjur slétt saman, haldið áfram með A.3 yfir 7 næstu lykkjur, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið brugðið þar til 9 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 7 fyrstu lykkjur í A.2 og prjónið 2 síðustu lykkjur slétt saman = 82-86-86-94-102-106-114 lykkjur. Klippið þráðinn. Nú eru ystu 8 lykkjur í hvorri hlið settar á þræði eða á lykkjuhaldara – þessar lykkjur er prjónaðar síðar á ermum = 66-70-70-78-86-90-98 lykkjur í umferð. Setjið 1 merki yst í hliðina í umferð. Héðan er nú stykkið mælt frá! Prjónið síðan í sléttprjóni - Munið að fylgja prjónfestunni – þar til stykkið mælist 10-10-8-10½-10½-10-11 cm mælt frá merki yst meðfram handvegi. Nú er aukið út í hvorri hlið fyrir handveg. ÚTAUKNING HANDVEGUR: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 2-2-4-3-3-4-4 sinnum = 70-74-78-84-92-98-106 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 12-12-13-14-15-15-16 cm, mælt frá merki yst meðfram handvegi, endið með umferð frá röngu. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er vinstra framstykkið prjónað meðfram vinstri öxl eins og útskýrt er að neðan. VINSTRA FRAMSTYKKI: Finnið vinstri öxl á bakstykki þannig: Leggið bakstykkið flatt með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjur frá þræði / hjálparprjóni snúa að þér, vinstri hlið á stykki = vinstri öxl. Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við hálsmál og prjónið upp lykkjur út að öxl þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð, innan við ystu lykkju = 22-24-24-28-30-32-34 lykkjur. Setjið 1 merki í stykkið inn við hálsmál. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessu merki, mælt í lykkjustefnu. UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið JAFNFRAMT sem aukið er út um 5-6-6-5-5-6-6 lykkjur jafnt yfir = 27-30-30-33-35-38-40 lykkjur. UMFERÐ 2 (= rétta): Byrjið við ör í þinni stærð í A.4 og prjónið síðustu 4-5-5-6-6-7-7 lykkjurnar í A.4, prjónið 3-4-4-5-6-7-8 lykkjur slétt, A.3, prjónið 3-4-4-5-6-7-8 lykkjur slétt, A.3, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 3 (= ranga): Prjónið 1 lykkju slétt, A.3, 3-4-4-5-6-7-8 lykkjur brugðið, A.3, 3-4-4-5-6-7-8 lykkjur brugðið og að lokum prjónið 4-5-5-6-6-7-7 lykkjur í A.4. Á EFTIR UMFERÐ 3: Prjónið umferð 2 og 3 þar til stykkið mælist 6-6-6-7-7-8-8 cm frá merki, endið eftir umferð frá röngu. Nú á að auka út lykkjur fyrir hálsmáli. ÚTAUKNING HÁLSMÁL: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1, haldið áfram í sléttprjóni og mynstri eins og áður út umferðina. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttprjón og mynstur eins og áður – útaukna lykkjan er prjónuð brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 4-5-6-6-7-7-8 sinnum (= 8-10-12-12-14-14-16 umferðir prjónaðar) = 31-35-36-39-42-45-48 lykkjur (næsta umferð er prjónuð frá réttu) – ATH: Jafnóðum og lykkjur eru auknar út fyrir hálsmáli á að prjóna A.3 yfir A.4, en A.3 er ekki prjónað fyrr en það myndast pláss fyrir A.3 innan við 3 lykkjur sléttprjón við hálsmál – í stærð XS og S gerist þetta eftir að útaukningu fyrir hálsmáli er lokið, í öðrum stærðum gerist þetta jafnóðum sem aukið er út fyrir hálsmáli – að auki stillist mynstrið af þannig að það er alltaf snúið í kaðli í sömu umferð í mynstri sem þegar er byrjað. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er hægra framstykkið prjónað meðfram hægri öxl eins og útskýrt er að neðan. HÆGRA FRAMSTYKKI: Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis hægri öxl – byrjið frá réttu við öxl og prjónið upp lykkjur inn við hálsmál þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju = 22-24-24-28-30-32-34 lykkjur. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið JAFNFRAMT sem aukið er út um 5-6-6-5-5-6-6 lykkjur jafnt yfir = 27-30-30-33-35-38-40 lykkjur. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið 1 lykkju slétt, A.2, prjónið 3-4-4-5-6-7-8 lykkjur slétt, A.2, prjónið 3-4-4-5-6-7-8 lykkjur slétt og prjónið að lokum 4-5-5-6-6-7-7 fyrstu lykkjur í A.5, stoppið við ör fyrir þína stærð. UMFERÐ 3 (= ranga): Prjónið 4-5-5-6-6-7-7 lykkjur í A.5, prjónið 3-4-4-5-6-7-8 lykkjur brugðið, A.2, 3-4-4-5-6-7-8 lykkjur brugðið, A.2, 1 lykkja slétt. Á EFTIR UMFERÐ 3: Prjónið umferð 2 og 3 þar til stykkið mælist 6-6-6-7-7-8-8 cm frá merki, endið með umferð frá röngu. Nú á að auka út lykkjur fyrir hálsmáli. ÚTAUKNING HÁLSMÁL: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttprjón og mynstur eins og áður þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 3 lykkjur slétt – munið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttprjón og mynstur eins og áður – útaukna lykkjan er prjónuð brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 4-5-6-6-7-7-8 sinnum (= 8-10-12-12-14-14-16 umferðir prjónaðar) = 31-35-36-39-42-45-48 lykkjur (næsta umferð er prjónuð frá réttu) – ATH: Á sama hátt og á vinstra framstykki og jafnóðum og lykkjur eru auknar út fyrir hálsmáli á að prjóna A.2 yfir A.5 þegar pláss er fyrir A.2 innan við 3 lykkjur sléttprjón við hálsmál – í stærð XS og S gerist þetta fyrst eftir að útaukningu fyrir hálsmáli er lokið. Setjið síðan framstykkin saman eins og útskýrt er að neðan. FRAMSTYKKI (hægra og vinstra stykki sett saman): UMFERÐ 1 (= rétta): 1 lykkja slétt, A.2, prjónið 3-4-4-5-6-7-8 lykkjur slétt, A.2, prjónið 3-4-4-5-6-7-8 lykkjur slétt, A.2, prjónið 0-2-3-4-5-6-7 lykkjur slétt, fitjið upp 17-15-13-13-15-15-15 lykkjur fyrir hálsmáli í lok þessarar umferðar, prjónið 0-2-3-4-5-6-7 lykkjur slétt, prjónið A.3, prjónið 3-4-4-5-6-7-8 lykkjur slétt, A.3, 3-4-4-5-6-7-8 lykkjur slétt, A.3, 1 lykkja slétt = 79-85-85-91-99-105-111 lykkjur í umferð. UMFERÐ 2 (= ranga): Haldið áfram með sléttprjón og mynstur eins og áður fram að 17-15-13-13-15-15-15 lykkjum sem fitjaðar voru upp fyrir hálsmáli, prjónið brugðið yfir þessar lykkjur og aukið JAFNFRAMT út 4-4-4-4-6-6-6 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, haldið áfram í sléttprjóni og mynstri eins og áður út umferðina = 83-89-89-95-105-111-117 lykkjur. UMFERÐ 3 (= rétta): 1 lykkja slétt, A.2, prjónið 3-4-4-5-6-7-8 lykkjur slétt, A.2, 3-4-4-5-6-7-8 lykkjur slétt, A.2, 3-4-4-5-6-7-8 lykkjur slétt, A.6 (stillið af byrjun á mynstri þannig að snúningur í kaðli sé í sömu umferð og í mynstri sem þegar er byrjað), prjónið 3-4-4-5-6-7-8 lykkjur slétt, A.3, 3-4-4-5-6-7-8 lykkjur slétt, A.3, 3-4-4-5-6-7-8 lykkjur slétt, A.3, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið sléttprjón og mynstur eins og áður. Á EFTIR UMFERÐ 4: Prjónið UMFERÐ 3 og 4 þar til stykkið mælist 25-27-26-28-29-30-31 cm frá merki. Nú er aukið út í hvorri hlið fyrir handveg. ÚTAUKNING HANDVEGUR: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið mynstur og sléttprjón eins og áður þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttprjón og mynstur eins og áður – útauknar lykkjur eru prjónaðar brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 1-1-3-2-2-3-3 sinnum = 85-91-95-99-109-117-123 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 26-28-29-30-31-33-34 cm frá merki, endið með umferð frá röngu. Nú er framstykkið og bakstykkið sett saman fyrir fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan. Stykkið er nú mælt héðan! FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið 85-91-95-99-109-117-123 lykkjur frá framstykki eins og áður, fitjið upp 2-2-2-2-2-4-4 nýjar lykkjur í lok þessarar umferðar (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 70-74-78-84-92-98-106 lykkjur frá bakstykki og fitjið upp 2-2-2-2-2-4-4 nýjar lykkjur í lok umferðar (= í hlið fyrir miðju undir ermi) = 159-169-177-187-205-223-237 lykkjur í umferð. Nú er prjónað í hring með mynstri eins og áður yfir miðju 81-87-87-93-103-109-115 lykkjur frá framstykki og sléttprjóni yfir þær lykkjur sem eftir eru. Prjónið þar til stykkið mælist ca 26-26-27-27-28-28-29 cm frá handveg – stillið af að prjónaðar séu 2 til 4 umferðir á eftir umferð með snúningi í kaðli. Skiptið yfir á hringprjón 4,5, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um ca 15-15-17-21-23-23-31 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 – ATH: Stroffið á að ganga jafnt upp allan tímann hringinn þannig að það passi yfir mynstur á framstykki – til að fá þetta til að ganga upp þá þarf að fækka um 1 lykkju í hverri einingu með köðlum í öllum stærðum – að auki á í stærð S, M, XL og XXXL að auka út 1 lykkju í hverri einingu með sléttprjóni á milli kaðla – afgangur af lykkjum er aukin út jafnt yfir lykkjur í sléttprjóni í hliðum á framstykki og á bakstykki = ca 174-184-194-208-228-246-268 lykkjur. Þegar stykkið mælist 6-6-6-7-7-7-7 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64-66 cm, mælt frá öxl innst við hálsmál. ERMAR: Stykkið er prjónað frá handveg og niður. Leggið stykkið flatt og setjið 1 merki efst í handveg = mitt ofan á öxl (ATH! Miðja ofan á öxl er ekki sami staður og þar sem lykkjur voru prjónaðar upp fyrir framstykki, heldur ca 7 til 9 cm niður á framstykki). Prjónið upp lykkjur í kringum handveg, notið hringprjón 4,5 og byrjið mitt í nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – prjónið upp 52-54-56-60-64-68-70 lykkjur (meðtaldar 8 lykkjur á þræði) - stillið af að lykkjufjöldinn sé 2 lykkjum fleiri frá merki að miðju undir ermi á bakstykki en fjöldinn frá merki að miðju undir ermi á framstykki (vegna kaðals sem dregur stykkið aðeins saman). Skiptið yfir á hringprjón 6. Nú er prjónað sléttprjón fram og til baka, en A.3 (hægri ermi) / A.4 (vinstri ermi) heldur áfram eins og áður – að auki eru prjónaðar stuttar umferðir yfir ermakúpu til að ermin fái betra form og passi betur, umferðin byrjar mitt undir ermi og prjónað er þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Teljið út hversu margar lykkjur eru frá merki sem var sett fyrir miðju ofan á öxl og niður fram hjá kaðli, byrjið fyrir miðju undir ermi og prjónið slétt þar til prjónaður hefur verið sá fjöldi lykkja sem var talinn fram hjá merki fyrir miðju ofan á öxl, snúið stykkinu (prjónað er svona til að koma í veg fyrir að snúið sé við í miðjum kaðli) – lesið LEIÐBEININGAR PRJÓN. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið jafnmargar lykkjur fram hjá merki fyrir miðju ofan á öxl eins og í hinni hliðinni, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 2 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við síðast, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 2 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við síðasta, snúið stykkinu. Prjónið UMFERÐ 3 og 4 þar til snúið hefur verið við alls 6-8-10-6-6-8-8 sinnum (= 3-4-5-3-3-4-4 sinnum í hvorri hlið ásamt fyrsta skipti sem snúið er við – síðasta umferðin er frá röngu). Á EFTIR SÍÐASTA SKIPTI SEM SNÚIÐ ER VIÐ: Í síðasta skipti sem umferð 4 er endurtekin, endið umferð með að snúa stykkinu, prjónið síðan frá réttu að byrjun umferðar (mitt undir ermi). Setjið 1 merkiþráð mitt undir ermi, það á að nota merkiþráðinn þegar fækka á lykkjum undir ermi. Látið merkiþráðinn fylgja áfram með í stykkinu. Nú er prjónað í hring í sléttprjóni A.3/A.4 eins og áður JAFNFRAMT sem lykkjum er fækkað undir ermi, lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Þegar ermin mælist 2 cm mælt fyrir miðju undir ermi er fækkað um 2 lykkjur í hverjum 2-2-2-2-2-2-2 cm alls 2-2-2-2-3-3-3 sinnum = 48-50-52-56-58-62-64 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 45-44-45-43-41-39-38 cm frá merki fyrir miðju ofan á öxl. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 8-8-8-8-10-10-10 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 (1 lykkja er aukin út fyrir miðju í kaðli til að stroffið gangi jafnt upp yfir kaðal) = 56-58-60-64-68-72-74 lykkjur. Þegar stroffið mælist 6-6-6-7-7-7-7 cm er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 50-50-51-49-47-46-45 cm frá miðju ofan á öxl. KANTUR HÁLSMÁL: Notið hringprjón 4,5 og 1 þráð í hvorri tegund (= 2 þræðir). Byrjið frá réttu við aðra axlalínuna og prjónið upp ca 80-82-84-86-100-100-110 lykkjur innan við 1 lykkju, prjónið 1 umferð slétt þar sem lykkjufjöldinn er e.t.v. jafnaður út – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið – stillið af að stroffið gangi fallega upp jafnt yfir miðjulykkjurnar að framan verðu í hálsmáli) í 11-11-12-12-12-13-13 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #moonthreadsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 30 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 264-28
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.