Three Wishes Sweater#threewishessweater |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa úr 1 þræði DROPS Melody eða 2 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með skáhallandi öxl / evrópskri öxl, köðlum, rúllukanti og háu hálsmáli. Stærð XS - XXXL.
DROPS 264-12 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá réttu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá réttu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá röngu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann. AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá röngu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann. LEIÐBEININGAR PRJÓN: Þegar prjónaðar eru stuttar umferðir myndast lítið gat þegar stykkinu er snúið við – hægt er að loka þessu gati með því að herða á þræði eða nota aðferðina German Short Rows þannig: Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið. Leggið síðan þráðinn yfir hægri prjón og herðið vel á þræði á bakhlið (þannig verða til tvær lykkjur á prjóninum). Þessar lykkjur eru prjónaðar saman í næstu umferð. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Stykkið er fyrst prjónað fram og til baka á hringprjóna. Byrjið á að fitja upp lykkjur aftan í hnakka. Prjónið síðan bakstykki niður á við samtímis sem aukið er út í hvorri hlið á stykki þar til lykkjufjöldi fyrir axlarvídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið smá skáhallandi öxl. Prjónið síðan niður að handvegi. Nú bíður bakstykkið á meðan framstykkið er prjónað. Framstykkið er fyrst prjónað í 2 stykkjum. Byrjið á að prjóna upp lykkjur meðfram annarri öxlinni frá bakstykki, prjónið mynstur samtímis sem aukið er út við hálsmál. Endurtakið á hinni öxlinni. Hægra og vinstra framstykki er sett saman þegar útaukningu er lokið fyrir hálsmáli. Síðan er framstykkið prjónað niður að handvegi. Nú er framstykkið og bakstykkið sett inn á sama hringprjón og fram- og bakstykkið er prjónað niður á við í hring á hringprjóna. Lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermar í kringum handveg og ermar eru prjónaðar niður á við. Fyrst er prjónað fram og til baka með stuttum umferðum til að forma ermakúpu, síðan eru ermarnar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og prjónaður er kantur í hálsmáli. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 24-24-24-28-28-28-28 lykkjur á hringprjón 5,5 með 1 þræði DROPS Melody eða 2 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk. UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 2 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 4 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 4 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 4 lykkjur slétt. UMFERÐ 3 (= ranga): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 og prjónið 4 lykkjur brugðið, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið brugðið þar til 4 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 4 lykkjur brugðið. Á EFTIR UMFERÐ 3: Prjónið UMFERÐ 2 og 3 alls 10-11-13-14-16-18-20 sinnum (= 20-22-26-28-32-36-40 umferðir prjónaðar). Á eftir síðustu útaukningu eru = 64-68-76-84-92-100-108 lykkjur í umferð. Prjónið 2 umferðir í sléttprjóni fram og til baka án þess að auka út. Setjið 1 merki yst í hvora hlið. Héðan er nú stykkið mælt frá! Prjónið síðan í sléttprjóni - Munið að fylgja prjónfestunni – þar til stykkið mælist 7-8-9-11-12-12-13 cm mælt frá merki yst meðfram handvegi. Nú eru lykkjur auknar út í hvorri hlið fyrir handveg. ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 4 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 4 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 4 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 6-6-6-4-4-4-4 sinnum = 76-80-88-92-100-108-116 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 13-14-15-15-16-16-17 cm, mælt frá merki yst meðfram handvegi, endið eftir umferð frá röngu. Klippið þráðinn, setjið lykkjurnar á þráð eða á hjálparprjón, nú er vinstra framstykkið prjónað meðfram vinstri öxl eins og útskýrt er að neðan. VINSTRA FRAMSTYKKI: Finnið vinstri öxl á bakstykki þannig: Leggið bakstykkið flatt með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjur frá þræði / hjálparprjóni snúa að þér, vinstri hlið á stykki = vinstri öxl. Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við hálsmál og prjónið upp lykkjur út að handvegi þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð, innan við ystu lykkju, að auki eru prjónaðar upp 2 lykkjur niður á við meðfram bakstykki = 22-24-28-30-34-38-42 lykkjur. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur eru prjónaðar upp. Prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið 10-12-16-17-21-25-29 lykkjur brugðið, 4 lykkjur slétt, prjónið 8-8-8-9-9-9-9 lykkjur brugðið og aukið jafnframt út 4-4-4-7-7-7-7 lykkjur jafnt yfir þessar 8-8-8-9-9-9-9 lykkjur = 26-28-32-37-41-45-49 lykkjur. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið 12-12-12-16-16-16-16 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið, 10-12-16-17-21-25-29 lykkjur slétt. UMFERÐ 3 (= ranga): Prjónið 10-12-16-17-21-25-29 lykkjur brugðið, 4 lykkjur slétt, 12-12-12-16-16-16-16 lykkjur brugðið. Prjónið umferð 2 og 3 þar til stykkið mælist 4-4-5-5-3-4-5 cm frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, nú á að prjóna MYNSTUR – lesið leiðbeiningar að ofan og prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið A.1, 4 lykkjur brugðið, 10-12-16-17-21-25-29 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 10-12-16-17-21-25-29 lykkjur brugðið, 4 lykkjur slétt, A.1. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. A.1 er endurtekið á hæðina. Þegar stykkið mælist 6-6-7-7-8-9-10 cm frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, aukið út lykkjur við hálsmál þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 1 lykkju brugðið og 1 lykkju slétt í fyrstu lykkju í umferð (= 1 lykkja fleiri), haldið áfram með A.1 (fyrsta lykkjan í A.1 er slétta lykkjan sem var prjónuð í ystu lykkjuna), prjónið út umferðina eins og áður. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið eins og áður – útaukna lykkjan er prjónuð slétt frá röngu og brugðið frá réttu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 1 lykkju brugðið og 1 lykkju slétt framan í og aftan í fyrstu lykkju í umferð (= 1 lykkja fleiri), prjónið brugðið fram að A.1, prjónið A.1, 4 lykkjur brugðið, 10-12-16-17-21-25-29 lykkjur slétt. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 10-12-16-17-21-25-29 lykkjur brugðið, 4 lykkjur slétt, A.1, prjónið slétt út umferðina. Prjónið UMFERÐ 3 og 4 3 sinnum til viðbótar (= 6 umferðir prjónaðar) = 31-33-37-42-46-50-54 lykkjur (næsta umferð er prjónuð frá réttu). Klippið þráðinn, setjið lykkjurnar á þráð eða á hjálparprjón, nú er hægra framstykkið prjónað meðfram hægri öxl eins og útskýrt er að neðan. HÆGRA FRAMSTYKKI: Nú eru prjónaðar upp lykkjur meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við öxl og prjónið upp lykkjur inn að hálsmáli þannig: Byrjið 2 lykkjum niður á bakstykki, prjónið upp 2 lykkjur meðfram bakstykki, síðan er prjónuð upp 1 lykkja í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju = 22-24-28-30-34-38-42 lykkjur. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur eru prjónaðar upp. Prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið 8-8-8-9-9-9-9 lykkjur brugðið og aukið jafnframt út 4-4-4-7-7-7-7 lykkjur jafnt yfir þessar 8-8-8-9-9-9-9 lykkjur, prjónið 4 lykkjur slétt og 10-12-16-17-21-25-29 lykkjur brugðið. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið 10-12-16-17-21-25-29 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið, 12-12-12-16-16-16-16 lykkjur slétt. UMFERÐ 3 (= ranga): Prjónið 12-12-12-16-16-16-16 lykkjur brugðið, 4 lykkjur slétt, 10-12-16-17-21-25-29 lykkjur brugðið. Prjónið umferð 2 og 3 þar til stykkið mælist 4-4-5-5-3-4-5 cm frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, nú á að prjóna MYNSTUR – lesið leiðbeiningar að ofan og prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 10-12-16-17-21-25-29 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið, A.1. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið A.1, 4 lykkjur slétt, 10-12-16-17-21-25-29 lykkjur brugðið. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. A.1 er endurtekið á hæðina. Þegar stykkið mælist 6-6-7-7-8-9-10 cm, eru lykkjur auknar út við hálsmál þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 10-12-16-17-21-25-29 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið, prjónið A.1 þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 1 lykkju brugðið í síðustu lykkju í umferð (= 1 lykkja fleiri). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 1 lykkju slétt, prjónið A.1, 4 lykkjur slétt, 10-12-16-17-21-25-29 lykkjur brugðið. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 10-12-16-17-21-25-29 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið, A.1, prjónið brugðið þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 1 lykkju slétt framan í og aftan í síðustu lykkju í umferð (= 1 lykkja fleiri). UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið slétt fram að A.1, prjónið A.1, 4 lykkjur slétt, 10-12-16-17-21-25-29 lykkjur brugðið. Prjónið UMFERÐ 3 og 4 3 sinnum til viðbótar (= 6 umferðir prjónaðar) = 31-33-37-42-46-50-54 lykkjur (næsta umferð er prjónuð frá réttu). Síðan eru framstykkin sett saman eins og útskýrt er að neðan. FRAMSTYKKI (hægra og vinstra stykki sett saman): Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 31-33-37-42-46-50-54 lykkjur frá hægra framstykki eins og áður, fitjið upp 14-14-14-18-18-18-18 lykkjur fyrir hálsmáli í lok þessarar umferðar, prjónið 31-33-37-42-46-50-54 lykkjur frá vinstra framstykki eins og áður = 76-80-88-102-110-118-126 lykkjur í umferð. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 10-12-16-17-21-25-29 lykkjur brugðið, 4 lykkjur slétt, A.1, 6 lykkjur slétt, A.1 (byrjið í sömu umferð í mynsturteikningu sem mynstrið er þegar byrjað, þannig að það er alltaf snúningur í kaðli frá réttu), prjónið 6 lykkjur slétt, A.1, 4 lykkjur slétt, 10-12-16-17-21-25-29 lykkjur brugðið. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 10-12-16-17-21-25-29 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið, A.1, 6 lykkjur brugðið, A.1, 6 lykkjur brugðið, A.1, 4 lykkjur brugðið, 10-12-16-17-21-25-29 lykkjur slétt. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. Þegar stykkið mælist 19-20-21-25-26-28-29 cm frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, aukið út í hvorri hlið. ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 4 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið eins og áður þar til 4 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 4 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttprjón og mynstur eins og áður – útauknar lykkjur eru prjónaðar brugðið frá röngu / slétt frá réttu. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 6-6-6-4-4-4-4 sinnum (= 12-12-12-8-8-8-8 umferðir prjónaðar) = 88-92-100-110-118-126-134 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 25-26-27-29-30-32-33 cm frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, endið á umferð frá röngu. Nú er framstykkið og bakstykkið sett saman fyrir fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan. Stykkið er nú mælt héðan! FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið 88-92-100-110-118-126-134 lykkjur frá framstykki í sléttprjóni og mynstri eins og áður, fitjið upp 2-2-2-4-4-4-4 nýjar lykkjur í lok þessarar umferðar (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið síðan 76-80-88-92-100-108-116 lykkjur frá bakstykki í sléttprjóni og fitjið upp 2-2-2-4-4-4-4 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) = 168-176-192-210-226-242-258 lykkjur í umferð. Nú er prjónað í hring, þ.e.a.s. mynstrið er prjónað eins og áður yfir miðju 56-56-56-68-68-68-68 lykkjur frá framstykki og sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru. Prjónið þar til stykkið mælist ca 28-29-30-29-30-30-31 cm frá handvegi – stillið af að prjónaðar séu nokkrar umferðir á eftir umferð með snúning í kaðli. Nú á að prjóna stroff og lykkjur eru auknar út jafnt yfir, það er gert þannig: Skiptið yfir á hringprjón 4, prjónið sléttprjón fram að 4 lykkjum brugðið í byrjun á mynstri á framstykki, prjónið A.2, A.3, A.4 yfir 56-56-56-68-68-68-68 lykkjur í mynstri (= 6 lykkjur fleiri), prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) yfir 112-120-136-142-158-174-190 lykkjur í sléttprjóni og aukið jafnframt út 14-18-18-16-16-24-24 lykkjur. Haldið svona áfram með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur (síðustu 3 umferðir í A.2-A.4 eru endurteknar á hæðina yfir miðju 62-62-62-74-74-74-74 lykkjur á framstykki). Þegar stroffið mælist 6-6-6-7-7-7-7 cm, fellið af aðeins lauste með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66-68 cm, mælt frá innst við hálsmál. ERMAR: Ermin er prjónuð frá handveg og niður. Leggið stykkið flatt og setjið 1 merki efst í handveg = mitt ofan á öxl (ATH! Miðja ofan á öxl er ekki á sama stað og lykkjur voru prjónaðar upp fyrir framstykki, heldur ca 6 til 8 cm niður á framstykki). Prjónið upp lykkjur í kringum handveg, notið hringprjón 4 og byrjið fyrir miðju í nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – prjónið upp 54-58-60-68-70-74-78 lykkjur – stillið af að prjónaðar séu upp jafn margar lykkjur hvoru megin við merki. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Nú er prjónað sléttprjón fram og til baka með stuttum umferðum yfir ermakúpu til að ermin fá betra form og passi betur, umferðin byrjar fyrir miðju undir ermi þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 8-8-10-10-10-10-12 lykkjur fram hjá merki ofan á öxl, snúið stykkinu – lesið LEIÐBEININGAR PRJÓN. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 8-8-10-10-10-10-12 lykkjur fram hjá merki, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 3-3-3-4-4-4-4 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skiptið, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 3-3-3-4-4-4-4 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skiptið, snúið stykkinu. Endurtakið síðan UMFERÐ 3 og 4. Prjónið þar til snúið hefur verið við alls 12 sinnum (= 6 sinnum í hvorri hlið og síðasta umferð er frá röngu). Á EFTIR SÍÐASTA SKIPTI SEM SNÚIÐ ER VIÐ: Í síðasta skipti sem umferð 4 er endurtekin, endið umferð með að snúa stykkinu, prjónið síðan frá réttu að byrjun á umferð (fyrir miðju undir ermi). Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju undir ermi, það á að nota hann þegar fækka á lykkjum undir ermi. Látið merkiþráðinn fylgja með í stykkinu. Nú er prjónað í hring í sléttprjón yfir allar lykkjur JAFNFRAMT því sem fækka á lykkjum undir ermi, lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Þegar ermin mælist 1-1-1-1-1-1-1 cm mælt fyrir miðju undir ermi er fækkað um 2 lykkjur 0-0-0-2-2-2-2 sinnum í annarri hverri umferð, síðan er fækkað um 2 lykkjur í hverjum 2-2-2-2-2-2-2 cm alls 4-5-4-5-4-5-5 sinnum = 46-48-52-54-58-60-64 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 49-48-47-44-42-41-39 cm frá miðju ofan á öxl. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 10-8-12-10-14-12-12 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 56-56-64-64-72-72-76 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-5-5-5-5 cm, prjónið 3 umferðir sléttprjón (= rúllukantur). Skiptið yfir á sokkaprjóna 5,5 og fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum. Ermin mælist ca 54-53-52-50-48-47-45 cm frá miðju ofan á öxl. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið hringprjón 4. Byrjið frá réttu við aðra axlalínuna og prjónið upp ca 74-74-76-82-84-86-88 lykkjur innan við 1 lykkju, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út jafnt yfir til 96-96-100-108-108-112-116 lykkjur – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið). Þegar stroffið mælist 12-12-14-14-16-16-16 cm fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #threewishessweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 35 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 264-12
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.