Christine skrifaði:
Hallo, die Anleitung ist super verständlich, ich habe einen wunderschönen Pullover aus Merinowolle mit Tweed gestrickt. Das Lochmuster am Raglan wurde von meinen Strickkolleginnen bewundert. Meine Empfehlung: Zuerst immer die komplette Anleitung mehrmals lesen und sich die Arbeit im Kopf vorstellen. Danke!
23.11.2026 - 13:45
Agneta skrifaði:
Ska man fortsätta göra avig maska ( de från början 25 ärmmaskorna) första o sista på ärmen hela tiden? Även under raglanökningarna?
14.11.2026 - 19:30DROPS Design svaraði:
Hej Agneta, nej de skal ikke strikkes vrang. Du starter ved 1vrang maske fra seneste varv og strikker 25 ret, A.1, 25 ret, A.1, 25 ret, A.1, 25 ret, A.1 :)
19.11.2026 - 14:36
Kaija skrifaði:
" Neulo ensimmäisillä 25 silmukalla sileää neuletta (HUOM! Näiden silmukoiden ensimmäinen ja viimeinen silmukka = nurja silmukka) ????????(= hiha), neulo mallineuletta piirroksen A.1 mukaisesti, neulo 23-25-27-29-33-37-41 silmukkaa sileää neuletta, neulo mallineuletta piirroksen A.1 mukaisesti (= 41-43-45-47-51-55-59 silmukkaa etukappaleessa), neulo seuraavilla 25 silmukalla sileää neuletta (= hiha)" jne. Mihin kohtiin tulee nurjat silmukat(piirroksen A.1 lisäksi)?
18.10.2026 - 17:39DROPS Design svaraði:
Hei, tässä tarkoitetaan, että näiden 25 silmukan ensimmäinen ja viimeinen silmukka on joustinneuleen nurja silmukka. Kaikilla 25 silmukalla neulotaan kuitenkin sileää neuletta.
22.10.2026 - 19:03
Susanne skrifaði:
Det jeg mener er, om første og sidste m af de 29 m skal strikkes v, ligesom ved de 25 m.
10.09.2026 - 15:58DROPS Design svaraði:
Hei Susanne. Se vårt svar på ditt forrige spørsmål :) mvh DROPS Design
14.09.2026 - 09:39
Susanne skrifaði:
Nej. Der står 1. m vrang ved de 25 m til ærme. Men på de 29 m - for og bagstykke, står der ikke 1 v m, men det sådan ud på billedet.
10.09.2026 - 14:55DROPS Design svaraði:
Hei Susanne. Du har strikket 3 omganger vrangbord til hals, 1 vrang, 1 rett og (str L?) skal nå strikke 25 masker glattstrikk. Den første og siste masken det strikkes glattstrikk over er en vrangmaske fra vrangborden. Så strikkes A.1 over 9 masker. Deretter strikkes forstykket (47 masker). Den første og siste masken over forstykket strikkes glattstrikk over en vrang maske fra vrangborden. Det samme gjelder for det andre ermet og for bakstykket. Det er det man ser på bildet når det forstørres 200%. mvh DROPS Design
14.09.2026 - 09:39
Susanne skrifaði:
Hej. Jeg er begyndt på Sunday Mist sweater. Når jeg kigger på fotoet, så ser det ud som om, at man også ved strik af de 29 masker skal strikke første og sidste maske vrang, men det står ikke i opskriften. Hvad er rigtigt ? Mvh, Susan e
10.09.2026 - 12:16DROPS Design svaraði:
Hei Susanne. Hvilken str. strikker du? Er det de vrangmaskene som strikkes i diagram A.1 du mener, som ikke er forklart, men tegnet inn i diagrammet? mvh DROPS Design
10.09.2026 - 12:39
Kirsten Møller skrifaði:
Jeg strikker str l
11.06.2026 - 15:57DROPS Design svaraði:
Hei Kirsten. I str. L har du 144 masker og så strikker du slik: Strikk glattstrikk over de første 25 maskene (1. og siste av disse maskene strikkes vrang (= erme) + strikk A.1 (= 1. raglanlinje / 9 masker) + strikk 29 masker i glattstrikk (= forstykket) + strikk A.1 (= 2. raglanlinje/9 masker). Når A.1, forstykket og A.1 er strikket, er det strikket over 47 masker (= 9 + 29 + 9). Fortsett med 2. erme (25 masker i glattstrikk, der 1. og siste maske strikkes vrang). Så strikkes A.1 (= 3. raglanlinje) + 29 masker i glattstrikk (=bakstykket) + strikk A.1 (= 4. raglanlinje). Bare tall: 25+9+29+9+25+9+29+9=144. mvh DROPS Design
12.06.2026 - 08:25
Kirsten Møller skrifaði:
Jeg forstår ikke inddeling til raglan, der er for mange masker i opskriften til model 262-20
11.06.2026 - 08:37DROPS Design svaraði:
Hej Kirsten, hvilken størrelse strikker du, så skal vi prøve at hjælpe dig?
11.06.2026 - 09:45
Marie-Pia skrifaði:
Je ne comprends pas les augmentations du raglan. Il faut bien augmenter 8 m à chaque tour, alors pourquoi est-il préciser dans NOTE : au début du tour augmenter après A1 et à la fin du tour augmenter avant A1. Ne faut-il augmenter avant et après A1 à chaque fois ? Merci d'avance
08.04.2026 - 11:51DROPS Design svaraði:
Bonjour Marie-Pia, on doit effectivement augmenter avant/après chaque A.1 mais les tours commencent par les mailles de la manche et se terminent par les mailles du raglan/A.1, autrement dit, au début du tour, vous augmentez tout de suite après le A.1 entre le dos et la manche et, à la fin du tour, vous augmentez avant le A.1 à la fin du dos; Si vous augmentiez de chaque côté du dernier A.1 du tour, vous décaleriez le début des tours. Bon tricot!
09.04.2026 - 10:03
Giulia skrifaði:
C'è scritto di lavorare a maglia rasata (= dritto) le prime 25 maglie (che sono per la manica) ma poi c'è l'annotazione N.B. che indica che la prima e l'ultima maglia sono a rovescio. Quindi sono 25 a diritto o 23 diritto e 2 rovescio? Poi dovrei fare A1 e 27 maglie rasate e A1 (nella taglia M) e però indica tra parentesi =45 maglie per il davanti: ma non ci sono 45 maglie per il davanti! Inoltre se faccio la somma dei punti indicati in questa sezione non torna con i 140 punti del bordo.
16.03.2026 - 09:09DROPS Design svaraði:
Buonasera Giulia, è corretto: la prima e l'ultima maglia delle 25 della manica sono a rovescio, poi deve lavorare A.1 (9 maglie), 27 maglie a maglia rasata e A.1 (9 maglie), per un totale di 45 maglie per il davanti. Buon lavoro!
26.04.2026 - 22:17
Sunday Mist Sweater#sundaymistsweater |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS BabyMerino. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, gatamynstri og rúllukanti. Stærð XS - XXXL.
DROPS 262-20 |
||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. A.1 er alltaf talið sem 9 lykkjur. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Á UNDAN A.1: Lyftið uppslættinum af vinstri prjónið og setjið til baka yfir á vinstri prjón, en í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. Á EFTIR A.1: Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 132-136-140-144-152-160-168 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Baby Merino. Prjónið 3 umferðir sléttprjón (= rúllukantur). Prjónið 3 umferðir stroff (= 1 lykkja slétt / 1 lykkja brugðið). Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið sléttprjón yfir fyrstu 25 lykkjur – ATH! 1. og síðasta af þessum lykkjum er 1 lykkja brugðið (= ermi), prjónið A.1, prjónið 23-25-27-29-33-37-41 lykkjur í sléttprjóni, prjónið A.1 (= 41-43-45-47-51-55-59 lykkjur fyrir framstykki), prjónið sléttprjón yfir næstu 25 lykkjur (= ermi), prjónið A.1, prjónið 23-25-27-29-33-37-41 lykkjur í sléttprjóni, prjónið A.1 (= 41-43-45-47-51-55-59 lykkjur fyrir bakstykki). Prjónið A.1 og sléttprjón svona í 4 cm – stillið af að síðasta umferðir sé síðasta umferð í A.1. Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki eftir fyrstu 45-46-47-48-50-52-54 lykkjur í umferð (= ca fyrir miðju að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Nú eru sett 8 ný merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett hvoru megin við A.1 (= 9 lykkjur), þessar 9 lykkjur eru núna kallaðar fyrir laskalykkjur og auka á út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar. Setjið 1. merki í byrjun umferðar, teljið 25 lykkjur (= ermi), setjið 2. merki á undan næstu lykkju, teljið 9 lykkjur (= laskalykkjur / A.1), setjið 3. merki á undan næstu lykkju, teljið 23-25-27-29-33-37-41 lykkjur (= framstykki), setjið 4. merki á undan næstu lykkju, teljið 9 lykkjur (= laskalykkjur / A.1), setjið 5. merki á undan næstu lykkju, teljið 25 lykkjur (= ermi), setjið 6. merki á undan næstu lykkju, teljið 9 lykkjur (= laskalykkjur / A.1), setjið 7. merki á undan næstu lykkju, teljið 23-25-27-29-33-37-41 lykkjur (= bakstykki), setjið 8. merki á undan næstu lykkju, það eru eftir 9 lykkjur á eftir síðasta merki (= laskalykkjur / A.1). Prjónið sléttprjón og mynstur hringinn og aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við laskalykkjurnar – lesið útskýringu að ofan með leiðbeiningum hvernig auka á út. UMFERÐ 1: Prjónið sléttprjón og A.1 eins og áður, aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar (= 8 lykkjur fleiri). ATH: Í byrjun umferðar er aukið út á eftir A.1 og í lok umferðar er aukið út á undan A.1. UMFERÐ 2: Prjónið sléttprjón og A.1 eins og áður. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 17-20-28-32-34-33-32 sinnum (= 34-40-56-64-68-66-64 umferðir prjónaðar) = 268-296-364-400-424-424-424 lykkjur í umferð. Munið að fylgja prjónfestunni. Prjónið síðan og aukið út þannig: UMFERÐ 1: Prjónið sléttprjón og A.1 eins og áður, aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2: Prjónið sléttprjón og A.1 eins og áður. UMFERÐ 3: Prjónið sléttprjón og A.1 eins og áður, aukið út fyrir laskalínu á framstykki og á bakstykki, þ.e.a.s. aukið út á eftir 3. og 7. merki og á undan 4. og 8. merki – lykkjur eru ekki auknar út á ermum (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 4: Prjónið sléttprjón og A.1 eins og áður. Prjónið UMFERÐ 1 til 4 alls 9-9-6-5-5-7-9 sinnum (= 36-36-24-20-20-28-36 umferðir prjónaðar = 9-9-6-5-5-7-9 sinnum útaukning á ermum og 18-18-12-10-10-14-18 sinnum útaukning á framstykki/bakstykki) = 376-404-436-460-484-508-532 lykkjur í umferð. Öll útaukning fyrir laskalínu hefur nú verið gerð til loka, aukið hefur verið út alls 35-38-40-42-44-47-50 sinnum á framstykki/bakstykki og 26-29-34-37-39-40-41 sinnum á ermum. Prjónið sléttprjón og A.1 eins og áður án þess að auka út, þar til stykkið mælist 21-22-24-25-26-28-30 cm frá merki fyrir miðju að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Þegar stykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar þá kemur A.1 til með að vera staðsett aðeins inn á framstykki/bakstykki. Jafnframt því sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 1-1-2-3-4-4-4 lykkjur sléttprjón (= tilheyrir bakstykki), setjið næstu 75-81-89-93-95-97-99 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-12-14-16-20-22-26 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 113-121-129-137-147-157-167 lykkjur sléttprjón og A.1 eins og áður (= framstykki), setjið næstu 75-81-89-93-95-97-99 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-12-14-16-20-22-26 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 112-120-127-134-143-153-163 lykkjur í sléttprjóni og A.1 eins og áður. Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 246-266-286-306-334-358-386 lykkjur. Setjið 1 merki í aðra hliðina á stykki (= fyrir miðju í 10-12-14-16-20-22-26 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi). Prjónið fram að merki, umferðin byrjar hér og prjónað er í hring. Prjónið sléttprjón og A.1 eins og áður þar til stykkið mælist 46-48-50-52-54-56-58 cm frá merki fyrir miðju að framan. Prjónið 3 umferðir stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Prjónið 3 umferðir slétt (= rúllukantur), fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum. Peysan mælist 47-49-51-53-55-57-59 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 52-54-56-58-60-62-64 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 75-81-89-93-95-97-99 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 3 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 10-12-14-16-20-22-26 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 85-93-103-109-115-119-125 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 10-12-14-16-20-22-26 lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn JAFNFRAMT þegar ermin mælist 2-3-3-2-4-4-4 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 3½-2½-2-2-2-1½-1½ cm alls 11-14-17-17-18-18-18 sinnum = 63-65-69-75-79-83-89 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 40-41-39-39-38-36-35 cm frá skiptingunni. Prjónið stroff 3 umferðir (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 1 lykkju jafnt yfir í umferð 1 = 64-66-70-76-80-84-90 lykkjur. Prjónið 3 umferðir slétt (= rúllukantur), fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum. Ermin mælist ca 41-42-40-40-39-37-36 cm frá skiptingunni. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sundaymistsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 21 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 262-20
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.