Sunday Mist Sweater#sundaymistsweater |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS BabyMerino. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, gatamynstri og rúllukanti. Stærð XS - XXXL.
DROPS 262-20 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. A.1 er alltaf talið sem 9 lykkjur. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Á UNDAN A.1: Lyftið uppslættinum af vinstri prjónið og setjið til baka yfir á vinstri prjón, en í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. Á EFTIR A.1: Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar lykkjur eru prjónaðar upp mitt undir ermi, getur myndast smá gat í skiptingunni á milli lykkja frá fram- og bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja – þessi þráður er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkju á milli fram- og bakstykkis og ermi, þannig að gatið lokast. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 132-136-140-144-152-160-168 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Baby Merino. Prjónið 3 umferðir sléttprjón (= rúllukantur). Prjónið 3 umferðir stroff (= 1 lykkja slétt / 1 lykkja brugðið). Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið sléttprjón yfir fyrstu 25 lykkjur – ATH! 1. og síðasta af þessum lykkjum er 1 lykkja brugðið (= ermi), prjónið A.1, prjónið 23-25-27-29-33-37-41 lykkjur í sléttprjóni, prjónið A.1 (= 41-43-45-47-51-55-59 lykkjur fyrir framstykki), prjónið sléttprjón yfir næstu 25 lykkjur (= ermi), prjónið A.1, prjónið 23-25-27-29-33-37-41 lykkjur í sléttprjóni, prjónið A.1 (= 41-43-45-47-51-55-59 lykkjur fyrir bakstykki). Prjónið A.1 og sléttprjón svona í 4 cm – stillið af að síðasta umferðir sé síðasta umferð í A.1. Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki eftir fyrstu 45-46-47-48-50-52-54 lykkjur í umferð (= ca fyrir miðju að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Nú eru sett 8 ný merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett hvoru megin við A.1 (= 9 lykkjur), þessar 9 lykkjur eru núna kallaðar fyrir laskalykkjur og auka á út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar. Setjið 1. merki í byrjun umferðar, teljið 25 lykkjur (= ermi), setjið 2. merki á undan næstu lykkju, teljið 9 lykkjur (= laskalykkjur / A.1), setjið 3. merki á undan næstu lykkju, teljið 23-25-27-29-33-37-41 lykkjur (= framstykki), setjið 4. merki á undan næstu lykkju, teljið 9 lykkjur (= laskalykkjur / A.1), setjið 5. merki á undan næstu lykkju, teljið 25 lykkjur (= ermi), setjið 6. merki á undan næstu lykkju, teljið 9 lykkjur (= laskalykkjur / A.1), setjið 7. merki á undan næstu lykkju, teljið 23-25-27-29-33-37-41 lykkjur (= bakstykki), setjið 8. merki á undan næstu lykkju, það eru eftir 9 lykkjur á eftir síðasta merki (= laskalykkjur / A.1). Prjónið sléttprjón og mynstur hringinn og aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við laskalykkjurnar – lesið útskýringu að ofan með leiðbeiningum hvernig auka á út. UMFERÐ 1: Prjónið sléttprjón og A.1 eins og áður, aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar (= 8 lykkjur fleiri). ATH: Í byrjun umferðar er aukið út á eftir A.1 og í lok umferðar er aukið út á undan A.1. UMFERÐ 2: Prjónið sléttprjón og A.1 eins og áður. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 17-20-28-32-34-33-32 sinnum (= 34-40-56-64-68-66-64 umferðir prjónaðar) = 268-296-364-400-424-424-424 lykkjur í umferð. Munið að fylgja prjónfestunni. Prjónið síðan og aukið út þannig: UMFERÐ 1: Prjónið sléttprjón og A.1 eins og áður, aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2: Prjónið sléttprjón og A.1 eins og áður. UMFERÐ 3: Prjónið sléttprjón og A.1 eins og áður, aukið út fyrir laskalínu á framstykki og á bakstykki, þ.e.a.s. aukið út á eftir 3. og 7. merki og á undan 4. og 8. merki – lykkjur eru ekki auknar út á ermum (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 4: Prjónið sléttprjón og A.1 eins og áður. Prjónið UMFERÐ 1 til 4 alls 9-9-6-5-5-7-9 sinnum (= 36-36-24-20-20-28-36 umferðir prjónaðar = 9-9-6-5-5-7-9 sinnum útaukning á ermum og 18-18-12-10-10-14-18 sinnum útaukning á framstykki/bakstykki) = 376-404-436-460-484-508-532 lykkjur í umferð. Öll útaukning fyrir laskalínu hefur nú verið gerð til loka, aukið hefur verið út alls 35-38-40-42-44-47-50 sinnum á framstykki/bakstykki og 26-29-34-37-39-40-41 sinnum á ermum. Prjónið sléttprjón og A.1 eins og áður án þess að auka út, þar til stykkið mælist 21-22-24-25-26-28-30 cm frá merki fyrir miðju að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Þegar stykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar þá kemur A.1 til með að vera staðsett aðeins inn á framstykki/bakstykki. Jafnframt því sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 1-1-2-3-4-4-4 lykkjur sléttprjón (= tilheyrir bakstykki), setjið næstu 75-81-89-93-95-97-99 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-12-14-16-20-22-26 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 113-121-129-137-147-157-167 lykkjur sléttprjón og A.1 eins og áður (= framstykki), setjið næstu 75-81-89-93-95-97-99 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-12-14-16-20-22-26 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 112-120-127-134-143-153-163 lykkjur í sléttprjóni og A.1 eins og áður. Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 246-266-286-306-334-358-386 lykkjur. Setjið 1 merki í aðra hliðina á stykki (= fyrir miðju í 10-12-14-16-20-22-26 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi). Prjónið fram að merki, umferðin byrjar hér og prjónað er í hring. Prjónið sléttprjón og A.1 eins og áður þar til stykkið mælist 46-48-50-52-54-56-58 cm frá merki fyrir miðju að framan. Prjónið 3 umferðir stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Prjónið 3 umferðir slétt (= rúllukantur), fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum. Peysan mælist 47-49-51-53-55-57-59 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 52-54-56-58-60-62-64 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 75-81-89-93-95-97-99 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 3 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 10-12-14-16-20-22-26 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 85-93-103-109-115-119-125 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 10-12-14-16-20-22-26 lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn JAFNFRAMT þegar ermin mælist 2-3-3-2-4-4-4 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 3½-2½-2-2-2-1½-1½ cm alls 11-14-17-17-18-18-18 sinnum = 63-65-69-75-79-83-89 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 40-41-39-39-38-36-35 cm frá skiptingunni. Prjónið stroff 3 umferðir (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 1 lykkju jafnt yfir í umferð 1 = 64-66-70-76-80-84-90 lykkjur. Prjónið 3 umferðir slétt (= rúllukantur), fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum. Ermin mælist ca 41-42-40-40-39-37-36 cm frá skiptingunni. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sundaymistsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 262-20
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.