Winds of Winter Vest#windsofwintervest |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónað vesti úr DROPS Daisy eða DROPS Lima. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með skáhallandi öxl, áferðamynstri og hringlaga hálsmáli. Stærð S – XXXL.
DROPS 262-27 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 (frá réttu): Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í perluprjón (A.1). AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI Á UNDAN AXLALYKKJUM: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð í fremri lykkjubogann. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI Á EFTIR AXLALYKKJUM: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð í aftari lykkjubogann. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 (frá röngu): Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í perluprjón (A.1). AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI Á UNDAN AXLALYKKJUM: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð í aftari lykkjubogann. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI Á EFTIR AXLALYKKJUM: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð í fremri lykkjubogann. LEIÐBEININGAR PRJÓN: Þegar prjónaðar eru stuttar umferðir myndast lítið gat þegar stykkinu er snúið við – hægt er að loka þessu gati með því að herða á þræði eða nota aðferðina German Short Rows þannig: Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið. Leggið síðan þráðinn yfir hægri prjón og herðið vel á þræði á bakhlið (þannig verða til tvær lykkjur á prjóninum). Þessar lykkjur eru prjónaðar saman í næstu umferð. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um kanta í handvegi): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir að lykkju með merki í, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið 1 lykkju slétt (= lykkja með merki í), prjónið 2 lykkjur slétt saman = 2 lykkjur færri. Í næstu umferð er mynstrið stillt af inn í stroff þannig að það er aldrei meira en 1 lykkja slétt við merkið. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-3 (á við um kanta í handvegi): Prjónið að lykkjum með merki í, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt (= lykkja með merki í), sláið 1 sinni uppá prjóninn = 2 lykkjur fleiri. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn / brugðið inn í stroff. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VESTI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli er prjónaður í hring á hringprjóna frá aftan við hægri öxl og prjónað er ofan frá og niður. Þegar kantur í hálsmáli hefur verið prjónaður til loka er berustykkið prjónað fram og til baka með stuttum umferðum þar til hálsmál hefur verið prjónað til loka. Stykkið skiptist fyrir framstykki og bakstykki og er prjónað hvort fyrir sig niður að handvegi. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka í hring. Síðan eru kantar í handvegi prjónaðir í hring. Kantur í hálsmáli er brotinn tvöfaldur að röngu og saumaður niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI. Fitjið upp 112-112-120-120-128-128 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Daisy eða DROPS Lima. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 7-7-7-9-9-9 cm (fitjað er upp á grófari prjóna svo uppfitjunarkanturinn verði ekki stífur, síðar á að brjóta kant í hálsmáli saman tvöfalt og þá verður kantur í hálsmáli ca 3-3-3-4-4-4 cm). Nú eru sett 2 merki í stykkið, setjið fyrra merkið á undan 1. lykkju í umferð og setjið 2. merki á undan 56-56-60-60-64-64 lykkjum í umferð = 56-56-60-60-64-64 lykkjur á milli merkja. Merkin sitja á milli 2 lykkja í umferð. Þessar 2 lykkjur eru nú kallaðar fyrir axlalykkjur og eru prjónaðar í sléttprjóni. Klippið þráðinn. Skiptið yfir á hringprjón 4 og færið fyrstu 11-11-9-9-7-7 lykkjurnar yfir á vinstri prjón án þess að prjóna þær, setjið 1. merkiþráðinn hér, færið næstu 34-34-38-38-42-42 lykkjur yfir á vinstri prjón án þess að prjóna þær. Þessar lykkjur eru nú fyrir miðju framan á vestinu. Það eru eftir 11-11-11-11-11-11 lykkjur í umferð á undan 2. merki. Setjið 2. merkiþráðinn hér, héðan á að prjóna núna. Það er mikilvægt að það sé munur á milli merkja og merkiþráða. Við merkin (merkja axlalykkjurnar) á að auka út lykkjur, við merkiþræðina á að prjóna stuttar umferðir, til að forma hálsmálið. Lesið LEIÐBEININGAR PRJÓN. Prjónið nú fram og til baka. UMFERÐ 1 (= rétta): Byrjið við 2. merkiþráðinn (að vinstri öxl á framstykki), prjónið mynstur A.1 og aukið út fyrir öxl hvoru megin við 2 axlalykkjurnar – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1, prjónið A.1 þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá 1. merkiþræði. Það hafa verið auknar út 4 lykkjur. Snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið mynstur A.1 og aukið út fyrir öxl hvoru megin við 2 axlalykkjurnar LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2, haldið áfram með A.1 þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá 2. merkiþræðinum. Það hafa verið auknar út 4 lykkjur. Snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið mynstur A.1 og aukið út fyrir öxl hvoru megin við 2 axlalykkjurnar – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1, haldið áfram með A.1 þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fleiri en þegar snúið var við í fyrra skipti, nýjar lykkjur eru prjónaðar inn í mynstur A.1. Það hafa verið auknar út 4 lykkjur. Snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið mynstur A.1 og aukið út fyrir öxl hvoru megin við 2 axlalykkjurnar – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2, haldið áfram með A.1 þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fleiri en þegar snúið var við í fyrra skipti, nýjar lykkjur eru prjónaðar inn í mynstur A.1. Það hafa verið auknar út 4 lykkjur. Snúið stykkinu. Prjónið síðan UMFERÐ 3 og 4, en snúið stykkinu þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fleiri en þegar snúið var við í fyrra skipti alls 4-4-4-4-4-4 sinnum í hvorri hlið, snúið síðan þegar prjónuð hefur verið 1 lykkja fleiri en þegar snúið var við í fyrra skipti alls 3-3-5-5-7-7 sinnum í hvorri hlið. Prjónaðar hafa verið 14-14-18-18-22-22 umferðir og síðasta umferðin er prjónuð frá röngu. Það eru 168-168-192-192-216-216 lykkjur í umferð, aukið hefur verið út alls 14-14-18-18-22-22 sinnum hvoru megin við axlalykkjurnar. Klippið þráðinn. Setjið 2 axlalykkjurnar í hvorri hlið á sitt hvorn þráðinn, það eiga að vera 82-82-94-94-106-106 lykkjur fyrir framstykki og 82-82-94-94-106-106 lykkjur fyrir bakstykki, setjið lykkjurnar frá bakstykki á þráð. Nú á að prjóna fram og til baka yfir framstykkið og bakstykkið hvort fyrir sig þannig: FRAMSTYKKI: = 82-82-94-94-106-106 lykkjur. Setjið eitt merki yst, handvegurinn er mældur héðan. Byrjið frá réttu og haldið áfram með A.1 fram og til baka. Þegar stykkið mælist ca 11-12-13-14-15-16 cm frá merki er prjónað þannig: Prjónið A.2. Prjónið A.3 alls 6-6-7-7-8-8 sinnum, endið með 10 fyrstu lykkjur í A.3, þannig að mynstrið verði alveg eins í hvorri hlið. Prjónið A.4, þegar 6-8-8-12-12-16 umferðir eru eftir í A.4 (sjá ör í mynsturteikningu) er að auk aukið út fyrir handveg, fitjið upp nýjar lykkjur í lok hverrar umferðar þannig: 1 lykkja 2-2-2-4-4-4 sinnum í hvorri hlið, 2 lykkjur 0-1-1-1-1-3 sinnum í hvorri hlið og 3 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið (= 6-8-8-12-12-16 umferðir prjónaðar) = 92-96-108-112-124-132 lykkjur. Stykkið mælist nú 25-26-27-28-29-30 cm frá merki. BAKSTYKKI: Setjið 82-82-94-94-106-106 lykkjur af þræði til baka á hringprjón 4. Byrjið frá réttu og prjónið á sama hátt og á framstykki = 92-96-108-112-124-132 lykkjur. STYKKIÐ SETT SAMAN: Fitjið upp 2-6-6-10-10-12 lykkjur á hringprjón 4, prjónið 92-96-108-112-124-132 lykkjur frá framstykki í sléttprjóni, fitjið upp 4-12-12-20-20-24 lykkjur, prjónið 92-96-108-112-124-132 lykkjur frá bakstykki í sléttprjóni og fitjið upp 2-6-6-9-9-12 lykkjur = 192-216-240-264-288-312 lykkjur. Nú er stykkið prjónað í hring eftir mynstri eins og útskýrt er að neðan: FRAM- OG BAKSTYKKI: = 192-216-240-264-288-312 lykkjur. Prjónið mynstur í hring þanni: Prjónið A.5. Prjónið A.6. Prjónið A.3. Prjónið A.7. Prjónið síðan A.1 þar til stykkið mælist 23-24-25-25-26-27 cm frá þar sem stykkið var sett saman. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem aukið er út um 20-24-24-26-28-32 lykkjur jafnt yfir = 212-240-264-290-316-344 lykkjur. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4-4-4-5-5-5 cm. Fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Stykkið mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá yst á öxl. KANTUR Í HANDVEGI: Notið hringprjón 3. Byrjið frá réttu fyrir miðju undir ermi og prjónið upp ca 59-65-67-71-75-79 lykkjur fram að 2 axlalykkjum af þræði, setjið 2 lykkjur á vinstri prjón, yfir 2 lykkjur sem voru prjónaðar þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, aukið út 1 lykkju brugðið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið upp 60-64-66-72-74-80 lykkjur fram að byrjun umferðar = 122-132-136-146-152-162 lykkjur. Byrjið umferð með 1 lykkju slétt og prjónið stroff (= 1 lykkja brugðið / 1 lykkja slétt) (stroffið á að passa við 3 lykkjur í toppi á öxl). Setjið eitt merki í miðjulykkju undir ermi, síðan á að fækka lykkjum hvoru megin við þessa lykkju. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 1 cm. Lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum í annarri hverri umferð alls 3 sinnum. Kantur í handvegi mælist ca 3 cm. Prjónið þar til kantur í handvegi mælist ca 4 cm. Nú á að auka út hvoru megin við lykkju með merki í – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-3. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 3 sinnum. Þegar kantur í ermi mælist ca 7 cm er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Brjótið inn kantinn og saumið varlega niður – gætið þess að saumurinn þrengi ekki handveginn. FRÁGANGUR: Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
![]() |
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #windsofwintervest eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 31 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 262-27
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.