Sea Lace Vest#sealacevest |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónað vesti úr DROPS Alpaca. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með áferðamynstri, háum kraga og i-cord snúrubandi. Stærð XS - XXXL.
DROPS 263-18 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. 2 KANTLYKKJUR I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kantlykkjur þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykki og prjónið 1 lykkju slétt. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kantlykkjur þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykki, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Mynsturteikning er lesin frá hægri til vinstri þegar prjónað er frá réttu og frá vinstri til hægri þegar prjónað er frá röngu. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá réttu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá réttu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Stykkið er prjónað fram og til baka, ofan frá og niður í tveimur stykkjum. Byrjað er á annarri öxlinni og aukið út fyrir hálsmáli. Síðan er hin öxlin prjónuð áður en lykkjurnar eru settar saman fyrir framstykki og stykkið er prjónað ofan frá og niður að loka máli. Bakstykkið er prjónað á sama hátt. Stykkin eru saumuð saman á öxlum. Í lokin eru prjónaðar upp lykkjur í kringum hálsmál og prjónaður er kantur í hálsmáli. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. VINSTRI ÖXL AÐ FRAMAN (séð þegar flíkin er mátuð): Fitjið upp 39-47-55-63-71-87-95 lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Alpaca. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan MYNSTUR – lesið leiðbeiningar að ofan og prjónið frá hálsmáli þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): 1 lykkja í GARÐAPRJÓN – lesið leiðbeiningar að ofan, prjónið A.1 alls 4-5-6-7-8-10-11 sinnum, prjónið A.2 og endið með 2 KANTLYKKJUR I-CORD – lesið leiðbeiningar að ofan. UMFERÐ 2 (= ranga): 2 kantlykkjur i-cord, prjónið A.2, prjónið A.1 þar til 1 lykkja er eftir, endið með 1 lykkju í garðaprjóni. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 þar til stykkið mælist 3-3-3-4-5-6-7 cm, endið með umferð frá röngu. Nú á að auka út lykkjur fyrir hálsmáli. ÚTAUKNING HÁLSMÁL: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið eins og áður yfir fyrstu 9 lykkjurnar, aukið út 1 lykkju til vinstri – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING, prjónið eins og áður út umferðina. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið eins og áður – útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 8 sinnum (= 16 umferðir prjónaðar) = 47-55-63-71-79-95-103 lykkjur (næsta umferð er prjónuð frá réttu). Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er prjónuð hægri öxl að framan eins og útskýrt er að neðan. HÆGRI ÖXL AÐ FRAMAN (séð þegar flíkin er mátuð): Fitjið upp 39-47-55-63-71-87-95 lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Alpaca. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan mynstur frá hlið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): 2 kantlykkjur i-cord, prjónið A.3, prjónið A.1 alls 3-4-5-6-7-9-10 sinnum, prjónið fyrstu lykkjur í A.1, endið með 1 lykkju í garðaprjóni við hálsmál. UMFERÐ 2 (= ranga): 1 lykkja í garðaprjóni, haldið áfram með A.1 þar til 12 lykkjur eru eftir, prjónið A.3, endið með 2 kantlykkjur i-cord. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 þar til stykkið mælist 3-3-3-4-5-6-7 cm, endið eftir umferð frá röngu. Nú á að auka út lykkjur fyrir hálsmáli. ÚTAUKNING HÁLSMÁL: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið eins og áður þar til 9 lykkjur eru eftir að hálsmáli, aukið út 1 lykkju til hægri – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING, prjónið eins og áður út umferðina. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið eins og áður – útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 8 sinnum (= 16 umferðir prjónaðar) = 47-55-63-71-79-95-103 lykkjur (næsta umferð er prjónuð frá réttu). Nú eru axlirnar settar saman fyrir framstykki eins og útskýrt er að neðan. FRAMSTYKKI: Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið eins og áður yfir 47-55-63-71-79-95-103 lykkjur frá hægri öxl að framan, fitjið upp 44 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok þessarar umferðar, prjónið eins og áður yfir 47-55-63-71-79-95-103 lykkjur frá vinstri öxl að framan = 138-154-170-186-202-234-250 lykkjur. Haldið síðan áfram að prjóna mynstur fram og til baka yfir allar lykkjur með 2 kantlykkjur i-cord í hvorri hlið eins og áður. Munið að fylgja prjónfestunni. Prjónið þar til stykkið mælist ca 44-46-48-49-51-52-54 cm frá uppfitjunarkanti á öxlum – endið eftir 7. eða 14. umferð í mynsturteikningu. Skiptið yfir á hringprjón 2,5 og prjónið stroff þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): 2 kantlykkjur i-cord, prjónið stroff (= 2 lykkjur brugðið / 2 lykkjur slétt) þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur brugðið og 2 kantlykkjur i-cord. UMFERÐ 2 (= ranga): 2 kantlykkjur i-cord, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt og 2 kantlykkjur i-cord. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 þar til stroffið mælist 2-2-2-3-3-4-4 cm. Fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Vestið mælist ca 46-48-50-52-54-56-58 cm frá öxl. HÆGRI ÖXL AÐ AFTAN (séð þegar flíkin er mátuð): Fitjið upp 39-47-55-63-71-87-95 lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Alpaca. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan mynstur frá hálsmáli að aftan þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): 1 lykkja í garðaprjóni, prjónið A.1 alls 4-5-6-7-8-10-11 sinnum, prjónið A.2 og endið með 2 kantlykkjur i-cord. UMFERÐ 2 (= ranga): 2 kantlykkjur i-cord, prjónið A.2, prjónið A.1 þar til 1 lykkja er eftir, endið með 1 lykkju í garðaprjóni. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 þar til stykkið mælist 2 cm, endið með umferð frá röngu. Nú á að auka út lykkjur fyrir hálsmáli. ÚTAUKNING HÁLSMÁL: UMFERÐ 1 (= rétta): 1 lykkja í garðaprjóni, aukið út 1 lykkju til vinstri – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING, prjónið eins og áður út umferðina. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið eins og áður – útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 2 sinnum (= 4 umferðir prjónaðar) = 41-49-57-65-73-89-97 lykkjur (næsta umferð er prjónuð frá réttu). Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er prjónuð vinstri öxl aftan eins og útskýrt er að neðan. VINSTRI ÖXL AÐ AFTAN (séð þegar flíkin er mátuð): Fitjið upp 39-47-55-63-71-87-95 lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Alpaca. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan mynstur frá hlið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): 2 kantlykkjur i-cord, prjónið A.3, prjónið A.1 alls 3-4-5-6-7-9-10 sinnum, prjónið fyrstu 2 lykkjur í A.1, endið með 1 lykkju í garðaprjóni við hálsmál. UMFERÐ 2 (= ranga): 1 lykkja í garðaprjóni, haldið áfram með A.1 þar til 12 lykkjur eru eftir, prjónið A.3, endið með 2 kantlykkjur i-cord. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 þar til stykkið mælist 2 cm, endið með umferð frá röngu. Nú á að auka út lykkjur fyrir hálsmáli. ÚTAUKNING HÁLSMÁL: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið eins og áður þar til 1 lykkja er eftir að hálsmáli, aukið út 1 lykkju til hægri – munið eftir LEIÐBEINNINGAR ÚTAUKNING, prjónið 1 lykkju í garðaprjóni. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið eins og áður – útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 2 sinnum (= 4 umferðir prjónaðar) = 41-49-57-65-73-89-97 lykkjur (næsta umferð er prjónuð frá réttu). Nú eru axlirnar settar saman fyrir bakstykki eins og útskýrt er að neðan. BAKSTYKKI: Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið eins og áður yfir 41-49-57-65-73-89-97 lykkjur frá vinstri öxl að aftan, fitjið upp 56 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok þessarar umferðar, prjónið eins og áður yfir 41-49-57-65-73-89-97 lykkjur frá hægri öxl að aftan = 138-154-170-186-202-234-250 lykkjur. Haldið síðan áfram að prjóna mynstur fram og til baka yfir allar lykkjur með 2 kantlykkjur i-cord í hvorri hlið eins og áður. Prjónið þar til stykkið mælist ca 44-46-48-49-51-52-54 cm frá uppfitjunarkanti á öxlum – stillið af eftir framstykki. Skiptið yfir á hringprjón 2,5 og prjónið stroff á sama hátt og á framstykki. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið hringprjón 2,5. Byrjið frá réttu við aðra öxlina og prjónið upp ca 144-148-152-156-160-164-168 lykkjur í kringum hálsmál innan við 1 lykkju – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 8-8-9-9-10-10-11 cm – stillið af að stroffið passi fallega fyrir mynstur fyrir miðju að framan og miðju aftan í hálsmáli. Fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. SNÚRA: Prjónið 2 snúrubönd sem eru notuð til að hnýta hvora hlið á vestinu, prjónið þannig: Fitjið upp 3 lykkjur á sokkaprjóna 3,5. Prjónið 1 umferð slétt. Nú er prjónað snúruprjón í hring þannig: * Færið allar lykkjur yfir á hægri hlið á prjóni án þess að snúa stykkinu, herðið á þræði og prjónið aftur slétt yfir allar 3 lykkjurnar *, prjónið frá *-* þar til snúran mælist ca 120-120-125-125-125-130-130 cm, eða að óskaðri lengd. Fellið af. Þræðið hvora snúru í gegnum gat í mynstri á framstykki og bakstykki, ca 29-32-34-36-38-40-42 cm niður frá öxl, hnýtið lausan hnút. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sealacevest eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 263-18
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.